Pressan - 17.11.1988, Page 31

Pressan - 17.11.1988, Page 31
Fimmtudagur 17. nóvember 19881 ■v. W VVWWAW- sjónvarp FIMMTUDAGUR 17. nóvember Stöð 2 kl. 16.20 AF SAMA MEIÐI Two of a Kind Bandarísk, gerð 1983, leikstjóri Henry Levin, aðalhlutverk John Travolta, Olivia Newton John, Charles Durning, Oliver Reed. Fjórir englar reyna að telja Guð af því að skella á mannkynið synda- flóði. Handritið var án efa hripað niður á pappír utan af tyggjóplötu. Algerlega vonlaust frá upphafi til enda. Aumingja Oliver Reed að hafa tekið þátt í þessu. Stöð 2 kl. 23.25 ENDURFUNDIR JECKYLL OG HYDE* Jeckyll and Hyde Together Again Bandarísk, gerð 1982, leikstjóri Jerry Belson, aðalhlutverk Mark Blankfeld, Bess Armstrong, Krista Erickson. Smekklausir og lélegir klám- og eiturlyfjabrandarar kollvarpa myndinni. Ekki þess virði að vaka eftir henni. FÖSTUDAGUR 18. nóvember Stöð 2 kl. 16.00 HRÓI OG MARÍANNA * * Robin and Marian Bresk, gerð 1976, aðalhlutverk Sean Connery, Audrey Hepburn, Robert Shaw. Segir frá þeim káta kappa Hróa hetti’ en reyndar ekki frá þeim tíma þegar hann var upp á sitt besta. Hrói kemur heim til Skírisskógar eftir langa fjarveru í krossferðum í Austurlöndum og kemst að því að Maríanna, unnusta hans, er gengin í klaustur. Fógetinn í Nottingham blandast í málið og það leiðir til afdrifaríkra atburða. Myndin er því miður illa heppnuð og gerir Hróa blessaðan frekar lítilsigldan. FIMMTUDAGUR 17. nóvember Ríkissjónvarpið kl. 20.30 FERDALAG FRÍÐU í þættinum í pokahorninu sýnir Ríkissjónvarpið stuttmyndina Ferða- lag Friðu, sem var ein þeirra mynda sem Listahátíð stóð að: Handritið gerði Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur, en leik- stjóri myndarinnar var María Krist- jánsdóttir. Ferðalag Fríðu segir frá gamalli konu sem liggur í sjúkrahúsi en einn morguninn, þegar henni er ekið fram á gang, samkvæmt venju, tekur þetta hefðbundna ferðalag nokkuð nýja stefnu. Það er hin góðkunna leikkona Sigriður Hagalin sem fer með titil- hlutverkið, en aðrir leikarar sem koma við sögu eru Arnar Jónsson, Sigrídur Hagalín. sem leikur Nonna, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, sem leikursjúkraliða, og Ólöf Andrea Proppé, sem fer með hlutverk Fríðu ungrar. Aðrir aðstandendur mynarinnar eru t.d. Ari Kristinsson, sem kvik- myndaði, Hjörtur Howser, sem gerði tónlistina, og Þórunn S. Þorgrímsdóttir, sem gerði leikmynd og búninga. ■■■■nmnHBnn ur þess vegna út eins og afsökun fyrir því að koma þessum stúlkum á hvíta tjaldið. Stöö 2 kl. 01.55 MILLI SKINNS OG HÖRUNDS *** Sender Stöð 2 kl. 22.10 FYRSTA ÁSTIN * * P’tang Yang Kipperbang Bresk, leikstjóri Michael Apted. Segir frá sumri í lífi 14 ára drengs sem á sér þá ósk heitasta að kyssa bekkjarsystur sína. Sumarið fer þó öðruvísi en drengurinn gat gert sér í hugarlund. Bresk, gerð 1982, leikstjóri Roger' Christian, aðalhlutverk Kathryn Harold, Shirley Knight o.fl. Góð mynd ef menn vilja þessa teg- und. Segir frá sálsjúklingi sem get- ur stundað hugsanaflutning en missir völdin á þessum hæfileikum og er lagður á sjúkrahús. Martraðir hans og draumar færast yfir á aðra sjúklinga og lækna. Ríkissjónvarpið kl. 22.45 RORÐALAGÐUR SKOTSPÓNN * * Brass Target Bandarísk, gerð 1978, leikstjóri John Hough, aðalhlutverk John Cassavetes, Sophia Loren, George Kennedy, Max von Sydow ofl. Spennumynd sem veltir upp þeim möguleika hvort Patton hershöfð- ingi (Kennedy) hafi verið myrtur af undirmönnum sínum, sem vildu sölsa undir sig gullfarm. Laus bygg- ing söguþráðar kemur í veg fyrir að myndin fari alla leið. Max von Sydow þykir afbragð sem sá grun- samlegasti. Stöð 2 kl. 00.15 OPNUSTÚLKURNAR* * Malibu Express Bandarísk, gerð 1984, leikstjóri Andy Sidiaris, aðalhlutverk Darby Hinton og Sybil Danning ásamt nokkrum af opnustúlkum Playboy- tímaritsins. Segir frá einkaspæjara sem fæst við erfitt mál, en gátan fellur í skugg- ann af þörf leikstjórans til að sýna hina fögru kroppa opnustúlknanna í Playboy sem leika í myndinni. Lít- LAUGARDAGUR 19. nóvember Stöð 2 kl. 14.30 KRYDD í TILVERUNA * * * A Guide for the Married Man Bandarísk, gerð 1967, leikstjóri Gene Kelly, aðalhlutverk Walther Matthau, Inger Stevens o.fl. t Gamanmynd um eiginmann sem finnst hann eiga að reyna að fylgja fordæmi vinar síns og halda fram- hjá konu sinni, en til þess að það takist þarf hann að tileinka sér ýms- ar varúðarreglur. Fullt af frægum gestaleikurum kemur við sögu og sýnir þessar varúðarreglur í praxís. Drepfyndin fullorðinskómedía. Ríkissjónvarpið kl. 21.20 RRÆÐUR MUNU RERJAST* * Last Remake of Beau Geste Bandarísk, gerð 1983, leikstjóri Marty Feldman, aðalhlutverk Marty Feldman, Ann Margret, Michael York, Peter Ustinov, Trevor Howard, Terry Thomas. Eitt af síðustu verkum Martys heit- i ins Feldman, sem þarna steig sitt! fyrsta skref sem leikstjóri. Myndin er, eins og við var að búast, geðveik- islega fyndin framan af, botninn dettur hinsvegar úr henni þegar á líður. Fullt af bröndurum, kannski aðeins of margir. Stöð 2 kl. 21.45 GULLNI DRENGURINN * The Golden Child Bandarísk, gerð 1986, leikstjóri Michael Ritchie, aðallilutverk Eddie Murphy, Charlotte Lewis. Murphy er ofsalega fyndinn, en bara sem Murphy. í þessari mynd er hann ekki annað en hann sjálfur, en það bara passar ekki. Mynd sent gekk mjög vel en engum fannst samt góð. Víst er Charlotte Lewis módel og sæt. Því miður bara ekk- ert meir. Ríkissjónvarpið kl. 23.00 FRANCES * * * Bandarísk, gerð 1982, leikstjóri Graeme Clifford, aðalhlutverk Jessica Lange, Sam Shephard, Kim Stanley. Segir frá ævi leikkonunnar Frances Farmer sem er frábærlega leikin af Jessicu Lange, einni af stórleikkon- um vorra tíma. Hún kynnist öllum hliðum stjörnulífsins; frægðinni, niðurlægingunni, útskúfuninni, til- beiðslu, ást og ástleysi. Á endanum þarf allt bandaríska kerfið til að brjóta þessa viljasterku og ákveðnu konu til hlýðni. Að vísu vantar í myndina skýringar á sjálfseyðing- arhvöt leikkonunnar, sem veikir hana. Engu að síður áhrifamikil saga. Stöð 2 kl. 23.45 KYRRÐ NORÐURSINS * * The Silence of the North Kanadísk, gerð 1981, leikstjóri Allan Winton King, aðalhlutverk Ellen Burstyn, Tom Skerrit. Mynd sem segir frá hetjulegri bar- áttu konu við óblítt umhverfi í Kanada, myndin sjálf er mjög þokkaleg og landslagið stórkostlegt í meðförum kvikmyndatöku- mannsins. Stöð 2 kl. 01.15 KYNÓRAR Joy of Sex Bandarísk, gerð 1984, leikstjóri Martha Coolidge, aðalhlutverk Ernie Hudson, Colleen Camp, Christopher Lloyd. Af þessari mynd fær maður bjána- hroll. Skammast sín fyrir hönd allra sem stóðu að henni. Myndin segir frá stúlku sem telur sig eiga skammt .ólifað og vill láta afmeyja sig áður en hún deyr. Þrátt fyrir titilinn skemmtir sér enginn, allra síst áhorfandinn. SUNNUDAGUR 20. nóvember Stöð 2 kl. 13.05 SYNIR OG ELSKHUGAR * * * * Sons and Lovers Bresk, gerð 1960, leikstjóri Jack Cardiff aðalhlutverk Dean Stock- well, Trevor Howard, Wendy Hiller. Myndin er gerð eftir bók breska skáldjöfursins D.H. Lawrence og segir frá lífsbaráttu fjölskyldu í Ikolanámubæ í Wales. Móðirinn vill að sonur hennar verði eitthvað, komist burt úr bænum og sömu- leiðis frá föðurnum, sem er alltaf fullur. Kvikmyndatakan færði myndinni óskar á sínum tíma. Stöð 2 kl. 22.30 RÚTAN ROSALEGA * * Big Bus Bandarísk, gerð 1976, leikstjóri James Frawley, aðalhlutverk \ Joseph Bologna, Stockard Cann- ing, John Beck o.fl. Miskunnarlaust grín gert að stór- slysamyndum og sviðið er stærsti áætlunarbíll sem vitað er um. Margir stórgóðir brandarar og oft hittir grínið meinfyndnislega í mark. Hinsvegar vantar herslu- muninn svo myndin teljist verulega góð. Stöð 2 kl. 23.55 DRAUGAHÚSIÐ * * * Legend of Hell House Bresk, gerð 1973, leikstjóri John Hough, aðalhlutverk Pamela Franklin, Roddy McDoweU. Óvenjuleg draugasaga sem segir frá fjórum manneskjum, áhugafólki, sem ákveður að dveljast í húsi þar sem ekki ku vera vært fyrir drauga- gangi. Tryggt að hárin rísa á höfð- inu.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.