Pressan


Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 32

Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 32
PRESSU Í^^ýsna ófriðlegt mun vera í bæjarpólitíkinni á Siglufirði um þessar mundir og veldur því gamalt hitamál, endurbygging gamals húss á staðnum, sem kallað er bakaríiö. Meirihluti Sjálfstæöisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðu- bandalags hefur útvegað mikið fjármagn til að standa straum af innréttingu átta leiguíbúða í hús- inu, þar á meðal 26 milljóna króna lán frá Húsnæöisstofnun. Minni- I hluti Alþýðuflokks hefur fundið þessum framkvæmdum ýmislegt til foráttu, meðal annars það að bæj- arstjórn hafi greitt væntanlegum i verktaka, Bút hf., 6 milljónir án nauðsynlegra trygginga og án þess að framkvæmdir væru hafnar. Einnig gera þeir athugasemdir við að nú sé Bútur út úr myndinni, en í staðinn sé kominn verktakinn Tfé- verk hf., sem mun vera í eigu sömu aðila. Minnihlutinn mun nú telja fullreynt að hann geti sætt sig við framgang þessa máls í bæjarstjórn og mun víst hafa ráðfært sig við lögfróða menn um framhaldið... h H Blópur forstjóra frá japönsk- um stórfyrirtækjum dvaldi hér á landi i vikunni og naut meðal ann- ars gestrisni Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra í ráðherra- bústaðnum. Ferðalag Japananna hingað til lands gekk þó ekki með öllu áfallalaust fyrirsig, því farang- ur forstjóranna tapaðist í fluginu. Við komuna til Reykjavíkur létu þeir því verða sitt fyrsta verk, að fara í miðborgina og kaupa föt. Herragaröurinn varð fyrir valinu, þegar kaupsýslumennirnir örkuðu um miðbæinn og virtu fyrir sér úrvalið. Þangað streymdu þeir inn og óskuðu eftir fötum af mátulegri stærð. Það er auðvitað ekki á hverj- um degi sem japanskir forstjórar banka upp á í herrafatabúð í mið- borginni. Garöar í Herragarðinum virtist hins vegar við öllu búinn, því forstjórarnir smáu eru sagðir hafa keypt heila slá af jakkafötum, í „japanskri stærð“... A ^É^kki eru allir á eitt sáttir um að sameina Gletting og Meitilinn í Þorlákshöfn. Rökstuðningur fyrir sameiningunni hefuraðallega kom- ið frá Björgvin Jónssyni, forstjóra Glettings, sem sagt hefur að sam- einingin verði til bjargar Þorláks- höfn. Þar ríkir nú hálfgert neyðar- ástand í atvinnulífinu vegna erfið- leika Meitilsins. Þeir eru hins vegar til sem segja allt tal um samruna fyrirtækjanna fyrst og fremst mið- VIÐ BÆTUM ÞJÓNUSTUNA OG FÆRUM AMERÍKU NÆR! Með siglingum vestur um haf á 10 daga fresti í stað 14 daga áður styttum við bilið milli íslands og Ameríku um 30%. Nú höfum við Reykjafoss og Skógafoss í stöðugum beinum siglingum til NewYork, Portsmouth og Halifax. Nýja siglingakerfið er stórbætt þjónusta við alla inn- og útflytjendur sem eiga viðskipti í Vesturheimi. FLUTNINGUR ER OKKAR FAG EIMSKIP IMEWYORK / PORTSMOUTH EIMSKIP USA Wheat Building—Suite 710 P.O.Box 3589 Norfolk, Virginia, 23514 U.SA Sími: 804-627-4444 Gjaldfgáls sími: 800-446-8317 Telex: 684411 Telefax: 804-627-9367 HALIFAX F.K. Warren Ltd. ■ P.O.Box 1117 2000 Barington Sl Suite 920 Cogswell Towers Halifax, N.S.B3J 2X1 Sími: 902-423-8136 Telex: 019-21693 Telefax: 902-429-1326 ast við hagsmuni Glettings. Því er nefnilega haldið fram að Björgvin ætli ekki að láta frystitogara sína fylgja með í samrunanum, heldur halda þeim fyrir sig og gera þá út frá Hafnarfirði... H^íiklar vangaveltur hafa verið í kringum kaup Friðriks Gíslasonar á Kostakaupum í Hafn- arfirði og nú síðast á Garöakaupum í Garðabæ. Er talið víst að einhver óþekktur aðili hafi raunverulega keypt Kostakaup af skiptaráðanda og samkvæmt traustum heimildum PRESSUNNAR stendur þar á bak við Páll nokkur Jónsson, öllu þekktari sem Páll í Pólaris... I næstu viku ætlar Búseti að af- henda fyrstu íbúðirnar í Grafar- vogi, 46 talsins. Þegar haft var samband við skráða félaga (eftir röð, auðvitað) reyndust margir þeirra hafa flutt út á land eða til útlanda eða hreinlega keypt sér íbúðir á hinum „hefðbundna" markaði. Sá síðasti, sem fékk út- hlutað íbúð í umræddu fjölbýlis- húsi, var því númer 257 í félaga- skránni. En það eru nú líka liðin fimm ár frá því Búseti var stofnað- ur og biðin eftir úthlutun getur ver- ið bæði erfið og kostnaðarsöm. Ásóknin er hins vegar ekkert að minnka og hafa t.d. yfir þúsund manns látið skrá sig í félagið frá því í ágúst á þessu ári... I síðustu viku var lagt lögbann við sölu húsgagnaverslunarinnar Mirale á húsgögnum sem framleidd eru sem eftirlíkingar af verkum frægra húsgagnahönnuða, sem gátu sér gott orð fyrr á öldinni. Það er ítalska fyrirtækið Cassina sem krafðist lögbannsins, en fyrirtækið hefur alheimsrétt á framleiðslu hús- gagna þessara klassísku meistara. Verslunin Casa hefur einkaleyfi til sölu þessara húsgagna hér á landi, en Mirale hefur hins vegar selt eftir- likingar sem verslunin kaupir frá fyrirtækinu Alivar. Cassina krafð- ist lögbanns á sölu eftirlíkinga af verkum hins fræga svissneska hönnuðar Le Corbusier og var lög- bannið lagt á í síðustu viku, en í framhaldi af því verður háð stað- festingarmái fyrirdómstólum. Lög- maður Cassina í þessu máli er Árni Vilhjálmsson héraðsdómslögmað- ur og sérfræðingur í höfundar- rétti... ■ ■ mrótið á tryggingamarkaðn- um eykur sífellt' hörkuna í sam- keppninni. Alls konar upplýsingar leka út um stöðu tryggingafélag- anna, sérstaklega eftir fregnir um samruna Sjóvár og Almennra trygginga. Dæmið hefur verið sett þannig upp að með því að samein- ast Sjóvá séu Almennar tryggingar að bregðast við í varnarbaráttu vegna mikils taprekstrar að undan- förnu. Það vekur hins vegar athygli að þrátt fyrir tap á síðasta ári hefur félagið skilað hagnaði á undan- förnum árum og á starfsmanna- fundi, sem haldinn var vegna sam- einingarviðræðnanna með starfs- fólki lelagsins í fyrri viku, kynntu forráðamenn þess reikningsstöðu sem sýnir 14 milljóna króna hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins og talsverða aukningu í sölu trygginga- skírteina. Það eru því ýmis sjónar- mið á lofti varðandi það hvort sam- eining félaganna tveggja sé til marks um sókn eða vörn..'. nn ein ferðaskrifstofan er að taka til starfa hér á landi. Mun hún eiga að heita Norræna ferðaskrif- stofan og er m.a. í eigu Smyril-line í Færeyjum og Jónasar Hallgríms- sonar á Seyðisfirði. Að sjálfsögðu mun skrifstofan hafa umboð fyrir ferjuna Norrænu, en það var áður hjá Ferðaskrifstofu ríkisins...

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.