Pressan - 09.03.1989, Page 5

Pressan - 09.03.1989, Page 5
4 -v Fimmtudagur 9. mars 1989 5' ÞVERSKURÐUR AF ÞJÓÐARSÁLINNI segir Björn G. Björnsson, formaður dómnefnd- ar, um lögin sem bárust í sönglagakeppnina. Alls komu á fjórða hundrað lög í keppnina. Það fór tæpur sólarhringur í að hlusta á öll þau lög sem bárust í Sönglagakeppni íslands. Vart fer á milli mála að á íslandi búa margir og afkastamíklir laga- smiðir, því á fjórða hundrað lög bárust í keppnina. Dómnefnd hlustaði á öll lögin og valdi að lokum þau tíu lög sem keppa til úrslita á Hótel Sögu 28. apríl naest- komandi. Björn G. Björnsson frá Stöð 2 er formaður dómnefndar, en auk hans sitja í nefndinni Palmi Gunn- arsson frá hljóðstúdíóinu Stöðinni, Steen Johansson frá Pressunni, Haraidur Gíslason, Hótel Sögu, Guðbjörg Sandholt fyrir Ferðamið- stöðina Veröld, Pétur Steinn Guð- mundsson frá Bylgjunni og Rík- harður Örn Pálsson frá FTT, Félagi tónskálda og textahöfunda. Björn segir dómnefndina eðli- lega hafa haft ærinn starfa við að hlusta á öll þau lög sem bárust: „Við hlustuðum á hvert einasta lag sem barst í keppnina,“ segir hann. „Þetta voru á fjórða hundrað lög, en ómögulegt er að vita hversu margir Iagasmiðirnir voru. Sumir sendu inn eitt lag, aðrir mörg og þess eru dæmi að sami Iagasmiður hafi sent inn tuttugu lög. Þau tiu lög sem valin voru til úr- slitakeppninnar eiga það sameigin- legt að vera tíu bestu lögin,“ segir Björn. „Það var mikil breidd í þeim lögum sem bárust og þau eru í raun þverskurður af þjóðarsálinni. Þótt keppt sé um sönglag bárust mörg dúndrandi harmónikulög þar sem ekkert var sungið, og í rauninni komu allar tegundir tónlistar inn í myndina.“ Hann segir engan „Eurovision-blæ“ hafa svifið yfir lögunum: „Alls ekki. Þessi tíu lög sem valin voru eru hvert með sínu móti, enda engin tilraun gerð til að steypa þau í sama mótið og ekki ætlunin að þau fari á Eurovisi- on-vettvanginn. Þarna voru hröð lög og róleg lög, Iétt lög og aivarleg, þekktir höfundar og óþekktir og þekktir flytjendur og gjörsamlega óþekktir.“ Hverju lagi var greitt atkvæði og eftir fyrstu umferð voru 40 lög nokkuð jöfn að stigum. Eftir hlust- un í annað sinn þrengdist valið nið- ur í 20 og eftir að hafa hlustað á hvert þeirra fyrir sig voru valin úr þau tíu sem keppa til úrslita. „Við slógum þann varnagla að hlusta enn einu sinni á lög sem voru með ákveðið atkvæðamagn á bak við sig, til að vera alveg viss um að okk- ur hefði ekki yfirsést neitt,“ segir Björn. „Dómnefndin vann störf sín samviskusamlega og var sammála í niðurstöðu á vali þessara tíu Iaga.“ Dómnefndin sendir lögin nú til hljóðstúdíósins Stöðvarinnar, í hendur Axels Einarssonar og hans manna, þar sem þau verða útsett í samráði við höfunda, valdir verða flytjendur og lögin tekin upp á hljómplötu. Útgáfa hennar verður væntanlega fljótlega eftir keppn- ina, þar sem reglur hennar kveða á um að lögin megi ekki hafa verið gefin út á hljómplötu. Lögin verða kynnt á Hótel Sögu 14. apríl og úr- slitakeppnin fer einnig fram þar, 28. apríl, í beinni útsendingu á Stöð 2 og Bylgjunni. Sama dómnefnd ásamt hlustendum Bylgjunnar og gestum á Hótel Sögu á úrslitakvöld- inu velur endanlega sigurlagið. ÚRSLIT ÞESSI TÍU LÖG HALDA ÁFRAM í KEPPNI HEITI LAGS: HÖFUNDUR: Fugl í búri Bergþóra Árnadóttir Prinsippmái Þórhallur Sigurösson Við fljótið Sigfús E. Arnþórsson Ráðhúsið Ágúst Ragnarsson Við tvö Ingi Gunnar Jóhannsson Brotnar myndir Rúnar Þór Pétursson Við eigum samleið Jóhann G. Jóhannsson Ég útiloka ekkert Bjarni Hafþór Helgason Dúnmjúka dimma Ólafur Ragnarsson Ég sigli i nótt Bjarni Hafþór Helgason SÖNGVAKEPPNI ISLANDS 1989 10 LÖG KOMIN í ÚRSLIT „VILDI VERA MEГ Nafn: Jóhann G. Jóhanns- son. Heimili: Reykjavik Lag: Við eigum samleið „Mérfannst þettagott fram- tak og vildi vera með,“ segir Jóhann G. Jóhannsson um þátttöku sfna í keppninni. Jó- hann er í Félagi tónskálda og textahöfunda, en félagiö hvatti til almennrar þátttöku i Sönglagakeppninni. „Þaö er ekki alltof auðvelt fyrirlagahöfundaaö komaefni sínu á framfæri, sérstaklega eftir að söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstööva breyttist í það sem hún er núna,“ er skoðun Jóhanns. Hann hefur tvisvar sent lög í söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva. Lagið, Við eigum samleið, samdi Jóhann árið 1986. „Ætli það hafi ekki verið samið inni í stofu, þau eru svo mörg samin þar,“ segir Jóhann. „Ég átti ekki von á miklum árangri þegar ég frétti hvað þátttakan var almenn og úrslit- in koma þægilega á óvart." „FYRSTA LAGIÐ SEM ÉG LÝK VIГ Nafn: Ólafur Ragnarsson Heimili: Mosfellsbær Lag: Dúnmjúka dimma „Lagið sem ég sendi inn í keppnina er það fyrsta sem ég lýk við,“ segir Ólafur Ragnars- son, einn hinna tíu útvöldu. Ólafursegist hafasamið lag og texta nótt eina þegar hann „horfði inn leillfðina“ogerþar jafnframt komin skýringin á nafninu. „Ég spái mikið I stjörnufræði og alheimsspeki og þessa nótt fannst mér ég komast í nánasnertingu viðtil- veruna." ÞegarÓlafur kom til að skila sþólunni í keþþnina sá hann stóran bunka af umslögum. „Ég ætlaði jafnvel að hætta við allt saman. En þar sem ég var kominn á staðinn skildi ég mitt umslag eftir í bunkanum og bjóst ekki við neinu sér- stöku framhaldi.“ Annað kom á daginn og sér Ólafur ekki eftir því að hafa lagt frumraun sína fyrir dómnefndina. „VAR ÞRJÁ MÁNUÐI AÐ SEMJA TEXTANN" Nafn: Sigfús Arnþórsson Heimili: Reykjavik Lag: Við fljótið „Ég sendi fimm lög inn og átti síst von á að þetta lag yrði fyrir valinu,'1 segir Sigfús Arn- þórsson. „Það tók mig þrjá mánuði að semja textann og lagið varð til I bútum sem féllu saman þeg- ar textinn var kominn." Viö fljótið er saknaðarljóð og bjóst Sigfús ekki við að það ætti upp á pallborðið hjá dóm- nefndinni og sendi þess vegna fjögur lög til vara. „Það hljóta að vera miklir smekkmenn sem sitja í dómnefndinni. Ég er viss um að þetta lag hefði aldrei náð langt i Eurovision- keppninni." Sigfús samdi fyrir nokkrum árum lagið Endurfundi, sem hljómsveitin Upplyfting gerði vinsælt.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.