Pressan - 09.03.1989, Síða 6

Pressan - 09.03.1989, Síða 6
Fimmtudagur 9. mars 1989 6 „Það var mikil breidd í þeim lögum sem bárust og þau eru í raun þverskurður af þjóðar- sálinni. “ „SAMIÐ TIL SIGURS“ Nafn: Rúnar Þór Pétursson Heimili: Brotnar myndir Texti: Heimir Már Pétursson (bróöir Rúnars Þórs) Rúnar Þór Pétursson hefur sent frá sér fjórar hljómplötur og því enginn nýgræðingur á tónlistarsviðinu. Hann segir Brotnar myndir vera lag í „sín- um dúr“, samið eftir pöbbaspil á Fógetanum fyrir hálfu ári: „Var mitt lag eitt af tíu? Það er gott mál!“ sagði hann. „Ég sendi lagið fyrst og fremst til að taka þátt í þessari keppni. Ég hef aldrei áður tekið þátt í sönglagakeppni." Hvort honum fyndist þessi keppni á einhvern hátt frá- brugðin öðrum slíkum svaraði hann: „Já, mér finnst þessi einhvern veginn á heilbrigðari nótum. Mér finnst ekki rétt staðið að Eurovision núna.“ Kom þér á óvart að þitt lag skyldi verða eitt af tíu? „Nei, þ,að kom mér ekkert á óvart! Ég á von á fyrsta sæt- inu.“ Stefnir ótrauður að fyrsta sætinu 28. apríl? „Já, ná- kvæmlega. Þaö er samið til þess. Samið til sigurs." „LÖGIN SAMIN FYRIR SJÓNVARP" Nafn: Bjarni Hafþór Helga- son Heimili: Akureyri Heiti laga: Ég útiloka ekkert, Ég sigli í nótt Texti: Bjarni Hafþór Helgason Bjarni Hafþór Helgason segist hafa sent fjögur lög í keppnina. „Þetta eru lög úr tónlist sem ég hef verið að vinna fyrir sjónvarpsefni. Ann- að lagið var flutt í þaetti á Stöð 2 sl. haust og heitir Ég útiloka ekkert, og hitt er upphaflega samið fyrir sjónvarpsþátt fyrir RÚV,“ segir Bjarni Hafþór i samtali við Pressuna. Bjarni Hafþór hefur tvívegis sent lög í undankeppni Euro- vision og svo sigraði lag eftir hann í sönglagakeppni sem Reykjavíkurborg efndi til á 200 ára afmælinu. „Það lag heitir Hún Reykjavík, en ég veit reyndar ekkert hvað varð um lagið eftir þá keppni," segir hann. Hafþórerþekkturfyrir nokk- ur fleiri dægurlög sem hafa komið út á hljómplötum og eru flest í flutningi Skriðjökla frá Akureyri. Þar á meðal eru lög eins og Tengja, Aukakílóin, Hryssan mín bláog Inn í eilífð- ina, sem samið var fyrir um- ferðarráð. í vor er svo væntan- legt lag á safnplötu sem heitir Mikki refur, en það lag segist Hafþór hafa sent i fyrstu Euro- vision-keppnina. Áttirðu von áað komast í úr- slitakeppni Landslagsins? „Ég veit það eiginlega ekkl. Ég hef ekki talist til afkastamik- illa lagahöfunda. Á síðustu tveimur eða þremur árum hafa komið út sex eða átta lög og þau hafa reyndar gengið ágæt- lega. Ég átti ekkert sérstak- lega von áað komast að í þess- ari keppni en mér fannst þó að það gæti allt eins gerst.“ „BER VOTT UM GÓÐAN SMEKK" Nafn: Ingi Gunnar Jóhanns- son Heimili: Reykjavík Heiti lags: Við tvö Texti: Ingi Gunnar Jóhanns- son og Iðunn Steinsdóttir Ingi Gunnar Jóhannsson samdi lagið „Við tvö“ fyrir nokkrum árum, „á þeim tíma sem ég var f Hálft I hvoru“, segir hann. „Ég sendi lagið í þessa keppni því ég hef gam- an af að semja lög og vil láta þau heyrast. Maður beitir öll- um brögðum til að koma lög- um sínum á framfæri!" Ingi Gunnar segir lagið hafa legið í skúffu og hljómað í koll- inum á sér frá því hann samdi það fyrir um fimm árum: „Þetta lag var ekki samið af neinu sérstöku tilefni. Stef verða til eftir ákveðinni hug- mynd, sem ég man ekki hver var í þessu tilviki, og maður leitar leiða til að Ijúka við lag- ið.“ Hann hefur áður sent lög f söngvakeppni, náði öðru sæti í Eurovision í fyrra með laginu „Ástarævintýri" (Á vetrar- braut), og þetta lag, Við tvö, sendi hann tvívegis í Eurovisi- on-keppnina: „Þar náði þetta lag ekki inn,“ segir hann. Ingi Gunnar sendi nokkur lög í Landslagið og um það hvort þessi úrslit kæmu hon- um áóvart svaraði hann: „Mað- ur veit náttúrulega ekkert um gæði í fjögurhundruð laga bunka, en hins vegar vonaðist ég til að eitthvað af mínum lög- um kæmist áfram. Mér hefði þótt súrt í broti ef ekkert þeirra hefði náð lengra. Ég er mjög sáttur við að þetta lag skyldi verða valið af mínum lögum og finnst það bera vott um góðan smekk dómnefndarinnar!" „SETTIST BARA NIÐUR OG LAGIÐ K0M“ Nafn: Þórhaliur Sigurðsson (Laddi) Heimiíi: Reykjavík Heiti lags: Prinsippmál Texti: Þórhallur Sigurðsson Laddi hefur aldrei fyrr sent lag i söngvakeppni „og samdi þetta lag ekki beinlínis fyrir þessa keppni. Ég átti þetta lag til og það er upphaflega samið fyrir plötu sem ég ætla að gefa út með vorinu. En fyrst ég sá þessa keppni auglýsta ákvað ég að senda lagið inn því ég hafði aldrei tekið þátt í svona keppni fyrr“. Hann segirengin sérstöktil- drög vera að tilurð lagsins: „Það varð til eins og önnur lög mín; ég settist bara niður og lagið kom.“ Nú er þitt lag eitt af tíu í úrslitum. Kemur það á óvart? „Já, það kom mér á óvart að sjálfsögðu. Þegar ég frétti að það væru svona of- boðslega mörg lög bjóst ég ekki við miklum árangri." En stefnir hann að sigri? „Að sjálfsögðu, fyrst ég er kominn svona langt!“ „UPPGJÖR VIÐ SJÁLFA MIG“ Nafn: Bergþóra Árnadóttir Heimili: Bergþórshvoll, Dan- mörku. Heiti lags: Fugl í búri Texti: Bergþóra Árnadóttir Hún er sest að í Danmörku. Keypti sér hús á Skagen „sem að sjálfsögðu heitir Bergþórs- hvolí“, segir hún. Þar býr hún með dótturinni Birgittu, kett- inum Garpi og hundinum Muggi, „sem er danskur „pulsuhundur" og skilur bara íslensku!" Bergþóra Árnadóttir segist ekki hafa gert mikið af að semja lög upp á síðkastiö. „Fugl í búri“ samdi hún fyrir einu og hálfu ári: „Fyrst og fremst samdi ég þetta lag vegna tilfinningakrísu góðrar vinkonu — en komst svo að því síðar að það átti alveg eins við sjálfa mig. Þetta er nokkurs konar uppgjör mitt við sjálfa mig.“ Bergþóra segist hafa sent lag í Landslagið „til að reyna að vinna keppnina, því mig vantar peninga"! Hún hafði áð- ur sent lög í söngvakeppni, m.a. söngvakeppni sjónvarps- insfyrirmörgum árum, Reykja- víkurkeppnina og síðar í Söngvakeppni sjónvarps- stöðva, þar sem lögin komust ekki áfram. Hún sendi tvö lög í Sönglagakeppnina að þessu sinni og segist hafa orðið mest hissa á að „hitt lagið“ skyldi ekki fremur verða valið, „því ég hélt að það væri meira grípandi. Hins vegar er ég þeim mun ánægöari með að þetta skyldi komast inn“. Hvort hún ætlaði að koma heim og flytja lagið sjálf á úr- slitakvöldinu svaraði hún: „Já ég verð að gera það. Ég þekki engansem geturflutt þaðeins og ég vil að það verði flutt.“ Kom henni á óvart að hún skyldi eiga eitt lag af tíu í úr- slitum? „Nei, eiginlega ekki!“ „EKKI ÁRÚÐURSLAG" Nafn: Ágúst Ragnarsson Heimili: Reykjavík Heiti lags: Ráöhúsiö Texti: Ágúst Ragnarsson Ágúst Ragnarsson starfar sem sölumaður hjá íselco og er einnig starfandi tónlistar- maður með hljómsveitinni „Sveitin milli sanda“. Hann hefur samið lög i nokkur ár og hafa nokkur þeirra komið út á hljómplötum. Ágúst er bróðir Ólafs Ragnarssonar, sem á jafnframt lag i úrslitakeppn- inni, og þeir bræður gáfu út hljómplötuna „Ljóslifandi“ ár- ið 1982 — kölluðu sig Jarðl- inga. Ágúst hefur ennfremur átt lög á safnplötum og tvö lög ájólaplötu sem kom út 1984. Hann segist hafa sent lag í Sönglagakeppnina vegna þess að „maður vill auðvitað koma tónsmíðunum á fram- færi“! Ráðhúsið, er það áróð- urslag? „Nei það er ekki áróð- urslag. Ollu heldur skot á báða aðila, samið upp úr hugleið- ingu varðandi ráðhúsbygging- una. Ég hafði gaman af því hvernig báðir aðilar höguðu sér og lagið varð til eftir lestur blaða varðandi þetta mál.“ Ágúst segist hafa sent lög í öll skiptin sem Söngvakeppni sjónvarpsstöðva hefur verið haldin, „nema núna fékk ég ekki að vera með svo ég sendi þrjú lög í þessa keppni". Kem- ur þér á óvart að þetta lag skyldi verða eitt af tíu? „Já og nei. Það er auðvitað ansi gott að vera eitt úrtak af nærri fjög- urhundruð aðilum, en af hverju ekki?“ Hefðirðu kosið að ann- að hvort hinna laganna þinna hefði heldur komist áfram? „Nei, ætli það. Annað lagið er „rokkabiIlí“-lag, hitt er rólegt hugsjónalag þar sem maður hveturtil betra lífs í heiminum. Þetta er svona mitt á milli þeirra, hugleiðing um ádeilur, léttur rokkarj."

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.