Pressan - 09.03.1989, Page 15

Pressan - 09.03.1989, Page 15
Fimmtudágur 9. mars 1989 15 að sögn félaganna er hann einn af þeim sem halda uppi fjörinu i ferð- um Iandsliðsins; sérstaklega hafa félagarnir gaman af flughræðslu Sigurðar og hefur þeim dottið í hug að fá Ijósalampa við gluggann við sætið hans því hann er svo hræddur við myrkrið. Trúir því að björgun- arsveitunum takist ekki að finna vélina í myrkri þegar hún hrapar, sem hann er viss um að muni gerast þegar hann stígur um borð. En Sig- urður er eigi að síður ákaflega skemmtilegur og geðgóður segja þeir. Kristján Arason er einn af þeim leikmönnum sem verið hafa liðinu mjög dýrmætir og leikur nú á Spáni. Hann er kvæntur Þorgeröi Gunnarsdóttur, laganema við há- skólann hér heima, og reyna þau að hittast eins oft og aðstæðúí bjóða upp á. Um Kristján segir Guðjón Guðmundsson liðsstjóri: Hann er einn af þessum mönnum sem alltaf er hægt aö treysta, rólegur og yfir- vegaður. Hann er jarðbundinn per- sónuleiki, en þrátt fyrir að vera hlé- drægur og rólegur er hann mikil fé- lagsvera. Hann er mjög vel gefinn og skynsemin sagði honum á sínum tíma að láta af fyrirliðastöðunni í íslenska landsliðinu. Hann nýtur ómældrar virðingar strákanna sem hann hefur svo sannarlega unnið fyrir. Gunnar Þór Jónsson, læknir og formaður landsliðsnefndar HSÍ, segir samstöðuna innan landsliðs- ins eins og best verði á kosið. Dreng- irnir, allir sem einn, séu rniklir reglumenn og agaðir einstaklingar. Þeir séu allir mjög góðir vinir og þekki hver annan mjög vel, sem komi Iiðsheildinni til góða. Sigurður Sveinsson hefur ekki verið í náðinni hjá Bogdan í gegn- um tíðina, sem mörgum leikmönn- um liðsins hefur ekki þótt réttlátt þar sem Sigurður er toppleikmaður. Þorgils Óttar fyrirliði segir Sigurð hafa sýnt einstaka þolinmæði og skynsemi. Stór þáttur í því sé hve Sigurður hefur létt skap og að sögn Þorgils, eins og fram hefur komið, er hann einstakur húmoristi. Um Þorgils Óttar sem fyrirliða segir einn af leikmönnum liðsins: „Hann er mjög góður fyrirliði sem allir bera virðingu fyrir. Hann er ákveðinn og ekki laust við að hann sé frekur, sem helgast kannski af því að hann er kominn af fjölskyldu sem hefur dekrað við hann.“ Ann- ar segir um Þorgils að aldrei verði vart við að það stígi honum til höf- uðs, hann sé virkilegur vinur vina sinna og ævinlega taki hann upp hanskann fyrir þá sem minna mega sín. Að skrifa nærmynd um þessa „príma“-drengi, sem skipa lands- liðið, er ekki tekið út með sældinni. Allir þeir aðilar, sem leitað var til um upplýsingar, voru á einu máli unt að fátt væri hægt að finna að þeim. Enda væru þeir ekki í lands- liðinu ef þeir hefðu ekki þá kosti sem þeir búa yfir. „Það nær enginn árangri sem ekki er heilsteyptur karakter, hefur mikið keppnisskap og temur sér mikinn sjálfsaga, og síðast en ekki síst þurfa ntenn að vera greindir og reglusantir til að ná árangri," segir einn viðmælandi blaðsins, sem þekkir vel til. En Guðjón Guðmundsson liðs- stjóri á lokaorðin: Sá árangur sem landsliðið hefur náð hefði aldrei orðið ef ekki væri fyrir Bogdan. Hvað svo sem um hann má segja hefði ekki tekist að ná fram því besta sem í þessum stákum býr. Hann hefur lag á að byggja upp þann metnað sem til þarf auk þess sem hann hefur kennt þeini — með- vitað eða ómeðvitað — að beita skapinu á réttan hátt og með sínum aðferðum byggt upp nauðsynlegan aga. HLIÓÐ BYLGJAN Betri heilsa með góðum vítamínum og fiollefnum I Tóró 25 eru 15 vítamín og 10 steinefni í réttum hlutföllum. Eitt hylki gefur fullan dag- skammt allra helstu vítamína og steinefna. Tóró 25 er e.t.v. besta fáanlega fjölvítamíniö, hvaö varðar verö og gaeði. „Sífellt fleiri rannsóknir á efn- um til varnar sjúkdómum benda til þess að nokkur næringarefni dragi úr tíðni krabbabeins í þekjuvef líkam- ans. Meðal þeirra eru A, C og E vítamín, B-karótín (for- veri A vítamíns) og selen". Hollar og fjölmettaðar fitusýr- ur fyrir hjarta og æðakerfi. Ekkert annað lýsisþykkni á íslandi er ríkara af omega-3 fitusýrum, þ.e. 50% innihald af EPA og DHA. Hylkin inni- halda ekki A og D vítamín. Gerið verðsamanburð. J//Í TÓRÓ HF Siöumúla 32. I08 Reykjavik. o 686964

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.