Pressan - 14.06.1990, Síða 6

Pressan - 14.06.1990, Síða 6
Fimmtudagur 14. júní 1990 EFTIR: BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR Tölvufræðsla Reykjavíkur og Viðskipta- og málaskólinn eru náskyld fyrirtæki. Allir fimm stofnendur Viðskipta- og málaskólans höfðu haft fingurna í Tölvufræðslunni. Þessir sömu menn stunda áfram atvinnurekstur og skólinn sem síðast var stofp- aður heitir Viðskiptaskóli Is- lands. Tveir fimmmenning- anna, Friðrik Eysteinsson og Einar Bjarnason, eru viðriðn- ir það fyrirtæki, en þeir eru engir vinir og standa ekki saman að rekstrinum. Friðrik starfar við Viðskiptaskóla ís- lands, en Einar kemur þar hvergi nálægt. Sá síðarnefndi segist ætla að beita sér fyrir því að Friðrik fái ekki að nota nafnið Viðskiptaskóli íslands, sem þeir félagarnir fengu skráð í sameiningu. Margir verktakar, umboðs- aðilar, sölumenn og aðrir þeir sem hafa tengst Tölvufræðsl- unni og Viðskipta- og mála- skólanum hafa beinlínis verið hlunnfarnir, vegna þess að fyrirtækin hafa ekki staðið í skilum. Tölvufræðslan varð gjaldþrota, Viðskipta- og málaskólinn er um það bil gjaldþrota. Viðskiptaskóli Is- lands er nýr af nálinni og með óflekkað mannorð að sögn Friðriks Eysteinssonar, sem ekki sá ástæðu til þess að nafn Viðskiptaskólans yrði nefnt i neinum tengslum við nöfn hinna fyrirtækjanna. Skuldir fyrirtækjanna tveggja sem fóru á hausinn koma hluthöfunum ekki lengur við. Skuldahalinn er samt langur og angar málsins teygja sig víða. Báðir skólarn- ir seldu námskeið víða um land. Umboðsaðili Tölvufræðsl- unriar á Blönduósi, Óskar Húnfjörð, skipulagði og seldi námskeið á Blönduósi. Sjálf- stæðishúsið á Blönduósi leigði Tölvufræðslunni hús- næði fyrir milligöngu Óskars. ,,l>að sem gerðist síðan var að samþykktur var víxill, sem aldrei var borgaður. Víx- illinn var framlengdur aftur og aftur. Á endanum sá ég mér ekki annað fært en gera up[> við Sjálfstæðishúsið, til þess að svíkja ekki samning sem gerður var fyrir mín orð. Þáverandi framkvæmdastjóri Tölvufræðslunnar, Ellert Ól- afsson, skrifaði sjálfur upp á síðasta framlengingarvíxil- inn, en ég hef ekki séð krónu af þessum peningum ennþá og málið er hjá lögfræðingi," segir Óskar Húnfjörð á Blönduósi. Mörg dæmi af svipuðum toga eru til bæði um Tölvu- fræðsluna og Viðskipta- og málaskólann. Heimir Berg- mann er einn þeirra sem réðu sig í vinnu sem sölumenn hjá Viðskipta- og málaskólanum. Heimir var ekki verktaki en með ráðningarsamning frá 17. janúar. ,,Eg fékk ekki laun nema fyrir fyrstu tvær vik- urnar. Um mánaðamótin febrúar/mars var mér sagt upp störfum, en var engu að síður beðinn að starfa áfram. Ég var meðal annars í því að selja námskeið uppi á Skaga. Þegar mér var skipað að rukka inn fyrir námskeið sem sýnt var að ekki yrðu haldin neitaði ég og hætti að vinna fyrir þessa menn. Ég á inni laun í rúman mánuð hjá fyrir- tækinu." í síðustu PRESSU var skrif- að um námskeið á vegum Viðskipta- og málaskólans sem lauk aldrei, vegna þess að kennarar höfðu hætt og húsnæði verið lokað. Af þeim námskeiðum er það helst að segja að skólastjórinn, Frið- rik Eysteinsson, hélt skólaslit og útskrifaði alla nemend- urna þó þeir hefðu ekki lokiö námskeiðunum. Friðrik veitti hvítvín og snittur á samkom- unni en varð einn að skrifa upp á prófskírteinin því að kennararnir fengust ekki til þess. Nemendurnir ákváðu að taka viö prófskírteinum þessum frekar en að fá ekki neitt, enda réð Friðrik þeim frá því að leggja út í málaferli. Nemendurnir segjast ekki vera ánægðir með endalok málsins. Það var þeim þó ein- hver sárabót að Friðrik bauð þeim upp á ókeypis námsefni á myndböndum frá Við- skiptaskóla íslands, til þess að bæta upp það sem á vantaði hjá Viðskipta- og malaskólan- um. Leikkonan Olympia Dukakis, sem m.a. hefur uerid útnefnd til Óskarsverölauna, og fleiri frœgar konur koma til landsins í tengslum viö heimsókn kvenréttindakonunnar Betty Friedan. Kennslubókardœmi um vafasöm viöskipti Margir kannast við andlit hennar, þó þeir komi nafninu ef til vill ekki fyrir sig. Hún hefur líka leik- ið í fjölda kvikmynda, sem sýndar hafa verið hér á landi, og m.a. verið tilnefnd til Oskarsverðlauna fyrir eina þeirra. Þessi gráhærða, virðuiega kona heitir Olympia Dukakis og um þessar mundir er hún stödd á Islandi. EFTIR: JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR Hin virta kvenréttindakona Betty Friedan er væntanleg hingað til lands í boði Kven- réttindafélags íslands og er tilefnið 75 ára „afmæli" kosningaréttar kvenna, sem haldið verður upp á þann 19. júní næstkomandi. Én Betty Friedan er ekki ein á ferð. Með henni kemur um tugur kvenna, sem flestar eru þekktar fyrir afskipti af jafn- réttismálum í Bandaríkjun- um. Ein þessara kvenna er þó líklega kunnari en hinar allar til samans — a.m.k. hér á ís- landi. Það er leikkonan Olympia Dukakis. Reykjavík. Það eru myndirn- ar „Pottormur í pabbaleit", þar sem hún leikur á móti John Travolta og Kristie Alley, og „Steel Magnolias" („Stálblóm'). Seinni myndin er alveg glæný og fær mjög góða dóma, en þar leikur Olympia ásamt fimm öðrum þekktum leikkonum. Olympia lék einnig í kvik- myndinni „Moonstruck", sem Cher stalla hennar krækti sér í Óskarsverðlaun fyrir. Olympia Dukakis var einnig tilnefnd til Óskarsverðlauna Sex stjörnur i einni mynd. Aöalleikkonur myndarinn- ar „Steel Magnolias", sem fengiö hefur frábæra dóma og nú er verið að sýna í Stjörnubíói: Shirley MacLaine, Dolly Parton, Olympia Dukakis, Sally Fi- eld, Daryl Hannah og Julia Roberts. Betty Friedan. Leikkonan hefur greinilega áhuga á og afskipti af jafnréttismálum, þó ekki vitum við með hvaða hætti hún hefur látið til sín taka í þeim efnum. íslenskir fjölmiðlar munu eflaust inna hana eftir því nú, þegar hún heimsækir okkur í eigin per- sónu í tilefni kosningaafmæl- is kvenna. Olympia hefur leikið í fjöl- mörgum þekktum myndum — þar af tveimur, sem einmitt er verið að sýna um þessar mundir í Stjörnubíói í fyrir þá sömu mynd, sem besta leikkona í aukahlut- verki, en hreppti ekki hnoss- ið. Þess má geta að Olympia Dukakis er systir Michaels Dukakis, fyrrum forseta- frambjóðanda í Bandaríkjun- um. Eiginkona fram- leiðanda „Fjöl- skyldubanda“ En eins og fyrr segir eru fleiri þekktar konur á ferð með Betty Friedan. Ein þeirra er Diana Meehan Goldberg, en íslendingar kannast líklega fremur við eiginmann hennar en hana sjálfa. Hann framleiðir sjón- varpsþættina vinsælu Fjöl- skyldubönd (Family lies), sem Michael J. Fox leikur í og sýndir hafa verið hér á landi. Diana er þó ekki síður merkileg en eiginmaðurinn. Hún er doktor í fjölmiðla- fræði og hefur bæði skrifað bækur og framleitt myndir, sem vakið hafa gífurlega at- hygli í Bandaríkjunum og víð- ar. Ein bóka hennar kallast „Ladies of the Evening" og fjallar um konur í bandarísku sjónvarpi. Diana Meehan Goldberg framleiddi einnig umrædda fræðslumynd, sem hún nefndi „Women in War — Voices from the Front Lines" eða „Konur í stríði — raddir frá fremstu víglínu". í þeirri mynd er fjallað um konur í stríðshrjáðum lönd- um, m.a. á Norður-írlandi, Israel og E1 Salvador. Hér er Olympia Dukakis í hlutverki ömmunnar í kvikmyndinni „Rottormur í pabbaleit", sem einnig er verið að sýna í Stjörnubiói um þessar mundir. Tilnefnd til Ósk- arsverðlauna Það var ekki ákveðið fyrr en á síðustu stundu að Olympia Dukakis kæmi hing- að með þeim hópi, sem fylgir Olympia Dukakis er systir forsetaframbjóðandans Mi- chaels Dukakis, en hann komstraunar ekki í Hvíta húsið eins og frægt er orðið. Ef marka má slúðurdálka erlendra blaða varð ósigurinn eiginkonu Michaels (sem sést hér veifa til mannfjöldans) mikið áfall og nokkru síðar fór hún í meðferð vegna ofneyslu áfengis og lyfja. HEIMSÞEKKT LQKKONA TIL ÍSLANDS EINKASKÓLAR I GRÆNUM SJÓ „Ég trúði því bara ekki að framkoma fóiks gæti verið með þessum hætti,“ segir Óskar Húnfjörð á Blönduósi um viðskipti sín við Tölvufræðslu Reykjavíkur. „Mér var sagtað rukka fyrir námskeið sem ekki voru haldin,“ segir Heimir Bergmann um viðskipti sín við Viðskipta- og málaskól- ann hf.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.