Pressan - 14.06.1990, Page 8

Pressan - 14.06.1990, Page 8
8 VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÖGUM l'ltsíd.iiuli: l'Viimkv.rmdastjiiri: Kitstjurai: liladanu'im: l.júí'inyntlari: Útlit: 1‘rúíarkak'stm: Aui»lvsiiij>astjúri: lilaú hf. I l.ikoii Hákonarson .kinína l.rúsdúttir Omar Friúriksson Anna Kristiiu' Mai»iuísdóttir Kjori» l-'.va Krk'iulsdúttir l'riúrik l»úr (iuúimindsson ini’ihjori’ Súlrún (íísladúttir l .inar Olason Anna Tli. KÖL’nvaldsdiittir Sii»ríúúr H. (immarsdúttir Hinrik (iunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36. simi: 68 18 66. Auglýsingasimi: 68 18 66. Asknft og ctreifing: Ármúla 36. simi 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Oddi hf. Askriftargjald 500 kr á nvanuöi. Askriftargjald: Pressan og Alþyðublaóió: 1000 kr. a manuði. Veró i lausasolu: 150 kr. eintakið. JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS Harla sérkennileg viðbögð hafa orðið við kosningaútkomu Nýs vettvangs í Reykjavík. Hafa ýmsir góðkunnir jafnaðar- menn haldið uppi harðri gagnrýni á samruna jafnaðarmanna og lýðræðissinna í Nýjum vettvangi í ljósi þess að framboðið náði ekki að komanema tveimur kjörnum fulltrúum að í borg- inni. Pólitísk gerjun síðustu mánaða á vinstri vængnum hefur sýnt með afgerandi hætti að Alþýðuflokkurinn er eini vinstri flokkurinn sem býr yfir nægjanlegum sveigjanleika til að taka fullan þátt í samfylkingu jafnaðarmanna. Félagshyggjuframboðin náðu miklum árangri á landsvísu í sveitarstjórnarkosiingunum. Þrátt fyrir hraðsoðna kosninga- samsteypu Nýs vettvangs í vor tókst honum að gera sig að gild- andi afli í stjórnmálum og brjóta skarð í öfluga flokksmúra. Fyrsta skrefið er stigið. Raddirúr innsta hring stjórnkerfisins herma nú að allt bendi til að ríkisstjórnin muni efna til alþingiskosninga í haust. í ljósi þeirrar gerjunar sem átt hefur sér stað í stjórnmálum síðasta misseri væri fáránlegt ef jafnaðarmenn snem í skyndingu við blaðinu og höfnuðu frekari þátttöku í þeirri þróun sem þegar er hafin við samruna jafnaðarmanna. Þátttaka Alþýðuflokks- ins kann þar að skipta sköpum. Nægir þá engan veginn að bjóða bara út ný flokksskírteini á almennum markaði. Reynsl- an af því þegar leifarnar af Bandalagi jafnaðarmanna runnu inn í Alþýðuflokkinn á sínum tíma sýnir að hann tekur engum stökkbreytingum með því móti. Aðeins með útréttri hendi getur flokkurinn laðað ólíkar hreyfingar samaní samsteypu jafnaðarmanna. Slíkt gerist ekki á einni nóttu en er eina leiðin til að skapa skýrar línur fyrir kjósendur. Hugmynd Jóns Baldvins um breytingar á nafni Al- þýðuflokksins er því rökrétt og eðlileg í andrumslofti nýrra stjórnmála meðal vinstra fólks á íslandi. DPPr :>f ** < Tchl T-Y-r- Fimmtudagur 14. júní 1990 bankqbro* Þankubrot skrifa: Bolli Héðinsson, efna- hagsrádgjafi forsœtisrádherra, Einar Karl Haraldsson, ritstjóri Nordisk Kontakt, Jón Ormur Halldórsson stjórnmálafrwóingur og Lára Vi Júlíusdóttir, framkuœmdastjóri Alþýdusambands Islands. Skadlegar verdhœkkanir „Hækkunin á áfengi og tóbaki er skóla- bókardæmi um hvernig ekki á að standa að hlutunum. Hætter viðað auglýsingarn- arumrauðustrikinverðihéðanífrá hlægi- legar." ' Þann 1. febrúar sl. voru gerðir kjarasamningar, svo sem alkunna er. Þeir kjara- samningar voru um margt sögulegir, meðal annars vegna þess hve margir aðilar komu að samningunum og því hvernig samningsaðilar með fulltingi ríkisstjórnarinn- ar ætluðu sér að ná tökum á verðbólgunni og snúa vörn í sókn. Gjaldið sem greiða skyldi var að allir legðu sitt af mörkum, launahækkanir á lágum nótum og atvinnurek- endur lofuðu að hógværar kauphækkanir skyldu ekki velta út í verðlagið. Spáin sem gerð var í samningunum hljóðaði upp á að ná verð- bólgu niður í 6% á árinu og nafnvöxtum niður í 14% á tveimur mánuðum. Gengið skyldi verða stöðugt og verð á landbúnaðarvörum haldast óbreytt fram til 1. desember. Martjir voru efins um að þessi arangur gæti náðst og töluðu um bjartsýni aðila og óraunhæfa samninga. Víst er að bjartsýni var mikil við gerð samninganna, enda voru þeir aðilar sem þar stóðu að verki einhuga um að láta dæmið gangaupp. Nokk- ur spenna ríkti um það, hvort samningar yrðu samþykktir í félögum og hvað yrði gert ef þeir yrðu felldir. -o-o-o- Til að fylgja eftir áformum samninganna réðust verka- lýðsfélögin um allt land í öfl- uga verðgæslu og var sett upp skrifstofa hér í Reykjavík sem fylgdist grannt með verðlagi, tók við kvörtunum og leitaði skýringa á verð- hækkunum. Ennfremur var unnið leynt og ljóst í því að halda öllum forsendum samninganna innan ramma, svo dæmið mætti ganga upp. Þannig tókst að koma í veg fyrir fyrirhugaðar hækkanir á ýmsum sviðum eða draga úr þeim hækkunum. Þekkt- asta dæmið um það var þegar kókhækkunin var dregin til baka. Árangur samninganna hef- ur verið að koma í ljós. Samn- ingarnir voru víðast hvar samþykktir með miklum at- kvæðamun og sú bjartsýnis- spá sem menn gerðu hefur staðist. Kaupmáttarþróun varð með þeim hætti á fyrstu mánuðum ársins að rauða strikið í maí hélt. Verðbólga hefur ekki mælst lægri hér á landi í áratugi. Nafnvextir hafa lækkað svo sem að var stefnt. Gengið hefur verið stöðúgt. Húrra, þetta tókst. Allan tímann frá samnings- gerð hefur verið fylgst naið með verðþróun og spornað við eftir því sem tök hafa ver- ið á. Með slíku eftirliti hefur þetta tekist. Nú á síðustu vik- um hafa menn þóst sjá að ým- islegt benti til að verðlag færi núll komma eitthvað prósent fram yfir spá í byrjun septem- ber. Var því akveðið að minna landslýð á áform samninganna meðauglýsing- um í útvarpi. Þessi atriði öll hafa verið rædd við stjórn- völd og ríkisstjórnin hefur lýst áhyggjum ánum með þróun verðlags á fundum sem hún hefur átt með full- trúum vinnumarkaðarins. Allir sem komu að samn- ingunum hafa fylgt þeim eftir svo sem að var stefnt — eða næstum þvi allir. Meira að segja hafa stjórnvöld nú ákveðið að háskólamenntað- ir ríkisstarfsmenn skuli bíða með að fá samningsbundnar launahækkanir sínar, því það kunni að hafa slæm áhrif á árangur febrúarsamning- anna. Því er það í hæsta máta kaldhæðnislegt að á sama tíma og auglýsingar dynja á landslýð um aðhald og rauð strik og frestun á kauphækk- unum ákveðinna hópa skuli fjármálaráðuneytið senda frá sér fréttatilkynningu um 5% hækkun á áfengi og tóbaki. Sem sagt — ríkissjóður þarf að hafa allt sitt á þurru. Hefur hann ekki notið góðs af stöð- ugleika í kjölfar samning- anna? Þarf hann ekki að sýna sömu hófsemi í hækkunum sínum og aðrir hér í landi? -o-o-o- Það er að vísu staðreynd að í forsendum kjarasamninga var rætt um að áfengi og tób- ak myndu hækka í takt við almenna kostnaðarþróun á ríkisins þriggja mánaða fnesti, en að velja þessar vikur til að til- kynna þessa hækkun er skaðlegt stöðunni eins og hún nú er. Hækkunin sýnir að ríkisstjórnin tekur ekki meira mark á sjálfri sér en það að meðan hún segir við fulltrúa atvinnulífsins að beita ýtrasta aðhaldi, að allar hækkanir hafi slæm sálræn áhrif á þann stöðugleika sem náðst hefur, heldur hún öllu sínu á þurru. Og þá erum við einmitt komin að sálrænu áhrifun- úm. Þótt hækkunin á áfengi og tóbaki um daginn mælist ekki stórt í heildarkostnaði óttast ég sálrænu áhrifin. Ég óttast að menn hætti að taka tilmælin um hófsemina hátíð- lega og árangurinn sem náð- ist í samningunum í vetur fjari út. Slíkt má ekki henda. Því var hækkunin á áfengi og tóbaki skólabókardæmi um hvernig ekki á að standa að hlutunum. Hætt er við að auglýsingar um rauðu strikin verði héðan í frá hlægilegar. Nema ríkisstjórnin sjái að sér og bæti með einhverjum hætti þann skaða sem hér varð. LÁRA V. hin pressan ...með þvi hyggst Jón Bald- vin opna fyrrum pólitískum andstæðingum pólitískar \A bakdyr, sem þeir geti gengið^ ^ uppréttir inn um, inn í Alþýðu- flokkinn." — Timinn. „Frægðarferili stulkunnar hófst með kvikmyndagerð og bar þar hæst verk sem hún gerði um rassa. í því einstæða bíói er brugðið upp á hvíta tjaldið títtnefndum líkams- hluta 600 eða 6000 manna og kvenna." — Timinn. „Helmingur bíður eftir síma en hinir eftir són." — Fyrirsögn i Morgunblaðinu. Um símamál i A-Evrópu. Samvinnufélög finni aftur eigendur sina. ## ## - Forsíða Timans. — Ásgeir Hannes Eiríksson i Timanum. „Hrafn er búinn að fá sér barðahatt að hætti Jóns Bald- vins og gengur síðan undir nafninu litli Jón." — Timinn. „Pólitískir flokkar eru þannigí laginu að ef þeir eiga að verða stórir verða þeir að bjóða alla vel- komna." „Bresku fótbolta- bullurnar œtla sér að streyma til ítal- íu. Þeirra í mill- r.W'tcr0 „Sólbekkjagægir handsamað- ur." — Morgunblaðið. „Verst að fréttahaukar skuli ekki sjá púörið í listrænum rassa og tippasýningum á al- mannafæri og sýna það tján- ingarform söguþjóðarinnar í geimsjónvörpum heimsins. Þess í stað margsýna frunt- arnir ómerkilegan striplara sem hleypur um í þjóöbúningi innfæddra á fótboltaleikjum með gjörsamlega ólistræna lögregluþjóna á eftir sér." — Timinn. um gengur sú ferð undir heitinu: „Enska innrásin í Ítalíu árið 1990“. Og flestir búast við að hamagang- urinn verði mest- ur þegar Englend- ingar mœta Hol- lendingum. Þá hittir andskotinn ömmu sína.“ — Alþýðublaðið. „Salrænt mikilvægt að vera innan rauðu strikanna." — Morgunblaðið. Steingrímur Her- mannsson um framfærsluvísitöl- una. „Hörgull á stúlkum á giftingar- aldri er orðinn alvarlegt vandamál í Kína og eru engar líkur á batnandi ástandi í þeim efnum næstu tvo áratugina, nema síður sé." — Þjóðviljinn.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.