Pressan - 14.06.1990, Qupperneq 11
Fimmtudagur 14. júní 1990
11
ItftÉiklir íþróttaleikar hefjast
28. júní^ nk. á vegum íþróttasam-
bands íslands. Leikarnir eru helg-
aðir æsku landsins og verður lögð
áhersla á að íþróttirnar séu andsvar-
ið við vímuefnunum og svo verður
með sérstökum bæklingi brýnt fyrir
börnunum að borða hollan mat en
láta óhollustu eins og sælgæti og
gos eiga sig. Það hefur því vakið
mikla athygli að börnin, sem þús-
undum saman eiga að flykkjast á
opnunarhátíðina, eiga öll að klæð-
ast íþróttabolum frá ÍSÍ, sem kyrfi-
lega eru merktir augjýsingunni
„Drekkið Coca Cola“! Ábendingu
um ósamræmi þetta hefur verið
komið á framfæritil ÍSÍ, en svarið er
að of seint sé að breyta þessu. Ætli
börnin eigi ekki erfitt með að átta
sig á samhengi hlutanna þegar þau
lesa bæklinginn íklædd bolun-
um ...
s
^^tjórnmálamenn allra flokka í
borginni eru nú í óða önn að raða
fólki í stjórnir, nefndir og ráð. Við
höfum þegar greint frá því að minni-
hlutaflokkarnir séu í stöðugum við-
ræðum um samstarf og lítur út fyrir
að samningar muni takast, en um
skeið leit út fyrir að Nýr vettvang-
ur yrði útilokaður. Nú er togast á
um hverjir fá hvaða nefndir og höf-
um við heyrt að Sigurjón Péturs-
son leggi höfuðáherslu á að halda
sætum sínum í Landsvirkjun og
Sparisjóði Reykjavíkur og nó-
grennis. En eftirspurn er meiri en
framboð í þessum efnum og það á
ekki síður við um niðurröðunina hjá
Sjálfstæðisflokki. Sem dæmi get-
um við nefnt að áður þótti pkki par
fínt eða eftirsóknarvert að vera for-
maður stjórnar Dagvistar barna.
En eftir að menn sáu fráfarandi for-
mann, Önnu Jónsdóttur, fljúga
upp lista sjálfstæðismanna fyrir
kosningarnar er stóll þessi allt í einu
orðinn sá eftirsóttasti í bænum .. .
M
sunnudaginn kom hingað til
lands erlendur ferðamaður, sem
ekki er í frásögur færandi, nema
hvað umrædd manneskja ætlaði að-
eins að dvelja á blandi í einn dag.
Þetta er menningarsinnuð fullorðin
kona, sem óskaði eftir að sjá helstu
söfn borgarinnar og markverða
staði. Vinkona hennar hóf skoðun-
arferðina daginn eftir á því að fara á
Listasafn íslands. Þar var lokað,
sem og á flestum öðrum söfnum
borgarinnar, að Kjarvalsstöðum
undanskildum. Þá var ákveðið að
sjá Reykjavíkurborg ofan úr turni
Hallgrímskirkjuen þar var einnig
komið að lokuðumdyrum. Úrslitin
urðu þau að erlendu konunni var
sýnt stærsta tákn borgarinnar:
Kringlan! Til að gera það besta úr
deginum átti að bjóða henni upp á
íslenskan fisk og haldið á veitinga-
staðinn Við tjörnina. En: þar
reyndist lika vera lokað á mánu-
dögum. Þessi erlenda kona hyggur
á aðra íslandsferð sem mun miðast
við að ekki sé dvalið hér í borginni
á mánudegi. . .
ii
helgina kemur út nýr
Gestgjafi og að Jressu sinni er gest-
gjafinn Valgerður Matthíasdóttir,
dagskrárgerðarmaður á Stöð 2.
Venjulega hafa gestgjafar boðið í
mat til sín nokkrum vinum og gefið
uppskriftir að matnum, en Valgerð-
ur breytir út af jíessari hefð. Hún
fékk til liðs við sig góða vini sína,
sem hver kom með einn rétt. Les-
endur Gestgjafansmunu því eignast
uppskriftir frá fleirum en Valgerði
því í vinahópi hennar eru til dæmis
Edda Björgvinsdóttir leikkona,
Guðmundur Einarsson hjá sálar-
rannsóknarfélaginu, Inger
Anna Aikman, dagskrárgerðar-
máður á Aðalstöðinni, og Guðrún
Óladóttir reikimeistari, annar eig-
enda Hugræktarhússins. Þetta
fólk er einkum þekkt fyrir jákvætt
viðhorf til lífsins og tilheyrir allt
hópi sem ber nafnið Jákvætt
átak. . .
A
^^^furkapp sjálfstæðismanna
á að fá bæjarstjórastóla í myndun
bæjarstjórna með aðild Sjálfstæðis-
flokksins að undanförnu mun vera
yfirveguð stefna, mótuð í höfuð-
stöðvunum sjálfum i Reykjavík.
Munu sjálfstæðismenn reiðubúnir
að kosta miklu til fyrir stólinn á
hverjum stað og hafa þá í huga
hversu vænlegan árangur það gaf
að spila persónupólitík í bæjar-
stjórnarkosningum sbr. vinsældir
Davíðs í Reykjavík og Guðmund-
ar Arna í kratabænum Hafnar-
firði. Þessari stefnu vilja sjálfstæðis-
menn fylgja fram víðar, s.s. í Kefla-
vík, þar sem ofurkapp var lagt á að
Ellert Eiríksson yrði bæjarstjóri.
Úti á landi kunnaþó að gilda önnur
lögmál en í höfuðborginni, þvi fjöl-
miðlanálægð fylgir öðrum reglum
en persónunálægðsmábæjanna . . .
(X Kvenréttindafélags ís-
lands, 19. júní, kemur út um helg-
ina. Efni blaðsins er fjölbreytt að
vanda og komið víða við. Meðal
annars er viðtal við Guðrúnu
Helgadóttur, forseta sameinaðs
þings, sem kemur inn á ýmsa hluti.
Til dæmis það að hún telji að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi fengið at-
kvæði fjölskyldu sinnar þegar hún
var barn, að minnsta kosti lengi vel.
Þá ræðir Guðrún um konurnar á
Alþingi, sem hún segir að eigi það
sameiginlegt að vera málefnalegri
en karlmennirnir og að auki séu
þær almennt betur undirbúnar og
oftast með skrifaðar ræður. . .
á gólf og veggi
Stórglæsilegt flísaúrval.
66 nýtísku litir
Allar okkar flísar eru úr fyrsta úrvalsflokki
og framleiddar hjá virtum ítölskum og
spænskum verksmiðjum.
Bjóðum ma. þrælsterkar, frostþolnar
útiflísar. Sérpöntum Terrazzo og
ítalskan marmara og granit.
Við sögum og borum flísarnar eftir þínum
óskum eða leigjum þér góðan flísaskerara
heim. Bjóðum öll hjálparefni.
15% kynningarafsláttur í júní.
TFPPABOÐIN
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950
• COLUMBIA REIÐHJÓLIN ERU VÖNDUÐ 0G SKEMMTILEG HJÓL
BYGGÐ Á AMERÍSKU HUGVITI 0G REYNSLU FRAMLEIÐENDANNA
SEM ERU MEÐ ÞEIM ELSTU í BANDARÍKJUNUM.
• GÆÐI FYRIR ÓTRÚLEGA LÁGT VERÐ
• FÁANLEG 6 — 18 GÍRA í MÖRGUM ÚTGÁFUM
• HVERGI SAMBÆRILEG KJÖR
• KOMIÐ 0 G SKOÐIÐ GÆÐINGANA EÐA LEITID UPPLÝSINGA
• VIÐGERÐA- 0 G VARAHLUTAÞJÓNUSTA
CáP
G.Á. Pétursson hf
Nútíðinni Faxafeni 14,
sími 68 55 80