Pressan - 14.06.1990, Page 13

Pressan - 14.06.1990, Page 13
Fimmtudagur 14. júní 1990 13 Ceausescu létjafna 20 þúsund hús við jörðu til að rýma fyrir íburðarmikilli höll, sem skreytt er gulli og marmara SEM SEST FRA TUNGLINU Eitt af síðustu brjálæðisverkum harð- stjórans Ceausescus, forseta Rúmeníu, var að byggja höll sem hýsa átti skrifstofur æðstu embættismanna rúmenska alþýðu- lýðveldisins. Höllin mikla er enn eitt dæmiö um stórmennskubrjálæði Ceausescus, en þaö er m.a. rakið til minnimáttarkemdar vegna alþýölegs uppruna. Enræðisherrann lét t.d. myröa flesta sem þekktu hann í æsku. Hann notaði allan fáanleg- an marmara sem til var í höll- ina með þeim afleiðingum að legsteinar fengust aðeins fyr- ir hátt verð á svörtum mark- aði. Hann sagði arkitektum sínum að höllin ætti að vera svo stór að hún sæist frá tunglinu. Ti! að umhverfið yrði sem glæsilegast jafnaði hann 20 þúsund hús við jörðu, þar af 16 kirkjur og 3 gyðingleg samkunduhús. Höllin er 270 metra löng og 230 metra breið. í henni eru 1000 herbergi, þar af 64 stór- ir salir og eitt leikhús. Milljón verkamenn komu við sögu hallarinnar og húsanna í kring og þegar Ceausescu var steypt af stóli hafði hann eytt 120 milljörðum króna í hana. Höllin er þó aðeins hálfklár- uð að innan og ef Rúmenar vilja nýta hana þarf að verja milljörðum til viðbótar í að fullgera hana. Það kostar 10 lei, sex krón- ur, að skoða höllina, eða þann hluta sem opinn er al- menningi. Það er aðeins fremri hluti jarðhæðar og annarrar hæðar sem búið var að klára að mestu í desember, þegar Ceausescu var steypt af stóli í byltingu. Samt sem áð- ur mega gestir reikna með drjúgri klukkustund til að hanga um þessa sali og skoða þá. 38 Ijósakrónur í „Iitlum“ sal Gestum er hleypt inn um hliðardyr. Eigi að síður ganga þeir beint inn í um 500 fer- metra hol þar sem skógur af marmarasúlum blasir við. Úr loftinu miðju hangir kristals- Ijósakróna, sem aðeins er hægt að lýsa með orðinu „ótrúleg". Hún er að minnsta kosti einn metri í þvermál skreytt með gylltum vírum. Það er erfitt að flokka hana eftir stíl en eitthvað á borð við klunnalegan barokkstíl kemur upp í hugann. Allt í kringum hana hanga minni ljósakrónur úr kristal og út við vegginn má sá þær gægj- ast fram milli súlna. í fyrsta herbergi á hringferðinni, frekar litlu herbergi, taldi ég 38 slíkar Ijósakrónur. Á meöan alþýöan beið í 200 metra löngum biöröðum eftir brauði var veriö aö skreyta marmarasúlur meö gulli í „Húsi fólksins" í miöri Búka- rest. Tonn afgulli? í súlnaskóginum ægir sam- an öllum gerðum af súlum. Sumar eru í sígildum stíl, eins og finna má í grískum hofum, aðrar eru með einhvers kon- ar austrænu skrauti, sem mun vera að nörður-kóreskri fyrirmynd. I holinumá einnig sjá ferkantaðar súlur. Sameig- inlegar öllum súlunum eru gullskreytingar. Súlur og loft í höllinni eru skreytt gullrák- um og -laufum — líklega drjúgur þáttur í kostnaði við byggingu hallarinnar. Það er ómögulegt að áætla hve mik- ið gull hafi farið í að skreyta hana en borið saman við aðr- ar hallir og stórhýsi í Evrópu má búast við að það hafi ver- ið talið í tonnum. Það vekur fljótlega athygli manns að hér er marmara og gifsi blandað saman og hvort tveggja gullskreytt. Arkitekt- arnir hafa ekki alls staðar verið jafnvandlátir. Hurðirn- ar eru líka fjöldaframleiddar en hafa sums staðar verið skreyttar gylltu munstri í stíl við súlurnar og gifsið. Mergsaug landið og fólkið Rúmenar streyma inn í höllina að skoða þessa hít sem saug upp alla þá fjár- muni sem ekki fóru í að greiða erlendar skuldir lands- ins eða standa undir hóglífi forsetafjölskyldunnar. Það er eins og þeir trúi ekki sínum eigin augum. Meðan þeir stóðu í 200 metra löngum biðröðum eftir brauði og beittu öllum brögðum til að komast yfir kjötbita á svört- um markaði var verið að skreyta marmarasúlur gulli í miðri Búkarest. Meðan þeir leituðu án árangurs að eggi eða mjólkurdropa handa börnum sínum voru risastór- ar kristalsljósakrónur festar upp í því sem átti að vera skrifstofur æðstu embættis- mannanna. Meðan þeir settu nýfædd börn á munaðarleys- ingjahæli af því að þeir gatu ekki framfleytt fleiri börnum byggði Ceaucescu leikhús fyrir þúsund manns inni í höllinni, sem hann kallaði Casa popolorui, Hús fólksins. Undrun Rúmenanna breytist í reiði eftir því sem líður á gönguna um „Hús fólksins". Hver salurinn á fætur öðrum, marmarinn, kristallinn og gullið, staðfestir geðveiki mannsins sem gerði líf þeirra að martröð í áratugi — og undir lokin eru þeir farnir að benda á skrautið og hlæja. Hataði allt sem var ekki eftir hann sjálfan Af svölum fyrstu hæðar er horft niður breiðgötu sem Nicolai Ceaucescu lét byggja um leið og Hús fólksins. Eftir miðri götunni eru gosbrunn- ar með jöfnu millibili sem skilja að akreinarnar. Blokk- irnar beggja vegna eru hvítar og byggðar í stíl sem minnir á nýklassískan stíl en er þó frá- brugðinn. Þetta er stíll ein- valdsins. Samskonar hús má sjá víða um Búkarest þar sem þúsundir annarra bygginga hafa verið jafnaðar við jörðu til að byggja þessi hvítu fjöl- býlishús. „Hann hataði allt sem var ekki eftir hann sjálf- an,“ sagði miðaldra Rúmeni. „Þegar hann gat ekki rifið niður verk annarra reyndi hann að hylja þau. Hann gat ekki rifið niður þinghúsið og kirkju erkibiskupsins, sem eru bæði upp á hæð, svo hann byggði stórar blokkir fyrir framan, þannig að hvorugt húsið sést.“ Frá svölunum má auðveld- lega sjá hvaða hús hefðu næst verið jöfnuð við jörðu. Öll hús sem á einhvern hátt spilltu heilsteyptri, einsleitri mynd á götunni sem Ceau- cescu kallaði „Sigur sósíal- ismans". Gosbrunnarnir eru skreytt- ir með austurlensku munstri sem forsetinn fyrrverandi hafði séð í Norður-Kóreu þeg- ar hann heimsótti kollega sinn Kim II Sung. Rúmenskir leiðsögumenn segja að Ceau- cescu hafi komið heim frá Kóreu með stjörnur í augum og hafið mikla skreytingaher- ferð á kostnað heilu hverf- anna. Lagði heilu þorpin í rúst En þessi hugmyndaglaði harðstjóri lagði ekki bara hverfi í Búkarest í rúst. Hann hrinti í framkvæmd áætlun um að þurrkcp út sveitaþorp víðsvegar um landið og flytja alla íbúana í blokkir. Með þessu misstu margar fjöl- skyldur raunverulegt lífsvið- urværi sitt, sem voru garð- skikar við sveitabæina sem þær gátu ræktað sjálfar. Þar fékk dugmikið bændafólk þrjár uppskerur á ári sem það gat bæði selt og nýtt til eigin framleiðslu. Áætlun forsetans var því tekið með ótta og reiði. Sums staðar reyndu menn að standa í vegi fyrir framkvæmdum, ti! dæmis með því að neita að yfirgefa húsin. Afleiðingarnar voru hörmulegar — fólk var hrein- lega grafið lifandi. Menn hafa velt því fyrir sér hvers vegna Ceausescu hafi verið svona illa við sveitabæi og meðal skýringa er sú kenning a4 með því að þurrka út sveitabæi hafi hann verið að þurrka út fortíð sína. Hann var kominn af bláfá- tæku sveitafólki, en reyndi að breiða yfir þann uppruna sinn síðar á ævinni, meðal annars með því að láta myrða flesta þá sem þekktu hann í æsku. Þegar ferill Ceausescus er skoðaður má sjá margt sem bendir til ákafrar minnimátt- arkenndar sem birtist í stór- mennskubrjálæði. Löngunin til að vera eitthvað annað en ómenntaður bóndasonur frá fátækasta héraði Rúmeníu speglast í sölum Casa popo- lorui, þar sem hann hefur stóra skrifstofu á hverri hæð og í móttökusalnum má sjá stað þar sem virðist gert ráð fyrir hásæti. Endalok hans stinga átakanlega í stúf við þessa drauma — hann var tekinn af lífi eftir byltingu og grafinn á laun undir dulnefni ásamt konu sinni í kirkju- garði í skugga marmarahall- arinnar miklu. Grafirnar eru eins og holur sem þrýst hefur verið milli annarra, stórra grafa og virðast til þess ætl- aðar að týnast og gleymast. Reisti sér minnis- varða Við útgöngudyr í Casa popolorui er stílabók þar sem menn eru beðnir að skrifa hvað þeim finnst um bygging- una. Það er oft biðröð við bókina meðan Rúmenar fylla hverja blaðsíðuna á fætur annarri. Menn mega líka koma með tillögur um nýt- ingu hússins og meðal til- lagna er að það verði gefið Alþjóða rauðakrossinum, notað sem friðarhöll fyrir all- ar þjóðir eða gert að spilavíti. Hvað sem um það verður er víst að með byggingu þess hefur Ceausescu reist sér minnisvarða sem erfitt er að má burt. Næstu áratugi verð- ur þetta minnisvarði um ógn- arstjórn sem á sér fáar hlið- stæður í Evrópu á 20. öld. Þegar fram líða stundir fer að fyrnast yfir harðræðið og eft- ir stendur höllin. Það er kald- hæðnislegt, en hugsanlega koma ferðamenn framtíðar- innar til Búkarest til að líta þetta feiknastóra hús augum og dást að því, líkt og menn skoða Versali eða pýramíd- ana. Fórnir almúgans, sem leið við bygginai stórvirkj- anna, eru löngír gleymdar. Eftir standa hallir — og í Rúmeníu stendur eftir minn- ismerki sem sést frá tunglinu.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.