Pressan - 14.06.1990, Qupperneq 20
20
Fimmtudagur 14. júní 1990
bridcpe
Þaö urðu snarpar umræður að
loknu spili vikunnar í spilaklúbbi
nýverið. Verið var að spila rúb-
ertu. Til allrar hamingju lét ég lítið
fara fyrir mér, enda áhorfandi, svo
álits míns var hvorki leitað á sögn-
um (sem eru strembnar) né á spila-
mennskunni sem var afleit.
4 ÁK632
V -
♦ ÁK42
4» ÁK52
4 G9854 4 106
V K V ÁD82
♦ 1073 ♦ 9865
4* DG104 4* 986
4 D
V G10976543
♦ DG
4» 73
Allir á, norður gaf og vakti á
tveggja-laufa alkröfu. Höndin er
kannski ekki nógu góð í ,,geim á
einni hendi", en með fjórar fyrstu
fyrirstöður og allar aðrar fyrir-
stöður einnig, ef eyðan er metin
með, er varla hægt að gagnrýna
norður. Suður gaf neikvætt svar
með 2-tígium. Norður upplýsti
spaðalitinn og fékk fyrstu fréttirn-
ar af hjartalanghundinum. Tregur
til að fara upp á 4. sagnþrep reyndi
norður 3-grönd og nú taldi suður
sig í nokkrum vanda.
Háspilin í spaða og tígli mæltu
með passi en hann lét freistast af
lengdinni.. . 4-hjörtu, eins og
margir hefðu valiði hans sporum.
Norður lét eftir, harla tregur þó.
Sagnhafi vann laufútspilið, spil-
aði sig heim á spaða og húrraði út
trompgosa með harla góðar vænt-
ingar um að gefa aðeins þrjá slagi
á tromp. En tapslagirnir á tromp
reyndust nú fjorir.
— ,,Með níu spil í litnum varð ég
að reyna litageimið," varðist suður
væntanlegum árásum. Talning var
ekki hans sterkasta hlið.
— „Áttlitur reyndar," svaraði
norður. — ,,En hvers konar spila-
mennska var þetta . .. ?“
Væntanlega ert þú sammála
norðri? Ef hjörtunskiptast 3—2 er
sama hverju þú spilar út, en hvað
ef þau brotna 4—1?
Ef áttan er stök er vinningsíferð-
in hátt spil en á móti eru þrjú há-
spil sem þú þarft að reikna með.
Lítið tromp að heiman í 3. slag er
því þrisvar sinnum gróðavæn-
skák
Haldid heim til
Bandaríkjanna
Morphy dvaldist nokkrar vikur í
París eftir einvígið við Anderssen,
en þaðan fór hann til Lundúna og
var þar fram á vorið, tefldi við
ýmsa áhugamenn í klúbbum borg-
arinnar og naut lífsins á annan
liátt, því að hann var einnig mjög
vinsæll í höfuðborg Bretaveldis,
En í maí lagði Morphy af stað til
New York. Par var honum tekið
með kostum og kynjum. Honum
voru haldnar veislur miklar og þar
kepptust helstu andans menn
Bandaríkjanna um að hylla hann
með ræðum og kvæðum. Um
þetta skrifar Schönberg í bók
sinni GRANDMASTERS OF
CHESS:
„Þeir sem halda að aldrei hafi
verið tekið á mótí skákhetju með
jafn mikilli viðhöfn og Bobby
Fischer þegar hann kom *frá
Reykjavík árið 1972 ættu að lesa
dagblöðin í New York frá maí og
júní 1859. Bandaríkin stóðu bók-
staflega á öðrum endanum. Alls
kyns vörur voru merktar Morphy:
Morphy-hattar, Morphy-vindlar og
þar fram eftir götum. Endalaus
veisluhöld með löngum og leiðin-
legum ræðum og löngum og lítt
skáldlegum kvæðum . ..“
Morphy dvaldist nokkra mánuði
í Norðurríkjunum við skák og rit-
störf. Honum var boðið mikið fé
fyrir að skrifa um skák í blöð, en
minna varð úr því en menn von-
uðust eftir. Hann bauð hverjum
sem vildi að tefla við sig með peð
og leik í forgjöf, en enginn þekkt-
ist boðið.
í stað þess að sýna einhverja
skák Morphys frá þessum mánuð-
um ætla ég að taka eina frá skák-
þinginu sem haldið var í New York
tæplega tveimur árum áður. Hún
sýndi vel skákstíl Morphys, hve
glöggt auga hans var fyrir tæki-
færum til að opna sér línur til at-
lögu og hve vel hann hélt á sókn-
inni.
Schulten — Morphy
New York 1857
Mótbragð Falkbeers
1 e4 e5 2 f4 d5
Þetta bragð er kennt við Ernst
Falkbeer, austurrúskan skákmann
og blaðamann, en hann var
nokkru eldri en Morphy. Bragðið
er gott úrræði fyrir sókndjarfa
skákmenn en oft hefur verið um
það deilt hvort það standist að
fullu.
3 ed5 e4 4 Rc3 Rf6 5 d3 Bb4 6
Bd2 e3!
Svona tækifæri lætur Morphy
sér ekki úr greipum ganga. Hann
fórnar peði til að vinna tíma og
opna sér atlögulínur.
7 Bxe3 0-0 8 Bd2 Bxc3 9 bc3
He8+ 10 Be2 Bg4 11 c4
Hvítur vill halda í feng sinn.
11 - c6! 12 dc6 Rxc6 13 Kfl
a b c d e f g h
Kóngurinn flytur sig úr skotlín-
unni, en Morphy finnur nýja leið
til leppunar.
13 - Hxe2! 14 Rxe2 Rd4 15 Dbl
Bxe2+ 16 Kf2 Rg4+ 17 Kgl
Við 17 Kel er svarið 17 - Dh4 +
18 g3 De7.
17 -RÍ3 + ! 18 gf3 Dd4+ 19 Kg2
Df2+ 20 Kh3 Dxf3+ 21 Kh4
Rh6 22 Dgl Rf5+ 23 Kg5 Dh5
mát.
GUÐMUNDUR
krossgátan
'bFHJ'ALS
HVETdfl
JlLfl'
ÁEPP
F'H-jU/V
'oHiJbÐ
LÆS/flle,
SL'/TA
Ir
SMflLMI I
AFTUR,-
EtJD/
D'ArJflR.
sysruR
VÉSALfl
f/SKA&
ma/Ms-
HflFN
SKV/rrf-
/ST
SAM-
ítæúía
T/L
VB/íJu.
MECrlN-
SE/T
EKKI
'll'AT/d
I
&ERAST
K'AMA
VF-Q/ÍA
'OSKfl
SKFU/V j
SP/L
k---
S'ALlR
VERK-
F/FRt
FU'dTuK
)LMA
VDtVD
STÚTt/m ií
SAmToT [í
RYKmt/
HYSK/ti
BOLVA
SKBKlMA
Byttu
F/Lfl
R'ódd
rfyKdar
I
TOTRft
LYKT
I
IKJ'oTRA
F'óTuM
St'oR
GP.lLt/1
BfltiD
PLAt/TA
BOADft
ftfFFt/Tu
HlKftKOI
/Æð/
umoæm/
&
HAStJ-
ADUR
SbTT
’PUKAR
SV/K
MJoG
KftLOI
FIKT
GftUfl
FU&L
SKIL
atlafa
'ot/Æftl
HR/FFIIST
bt/fft/Ouft
jfSftft
Souzuð
SpftR-
SAMflR
MLMUR
FRiesoM
KOtVu-
HftFfl/
1 2 3 4 5
17 18 19 20 21
10 11
12
13 14 15 16
. -i,.
vjiiiandarinnar
PS fltirj sugur
Verölaunakrossgáta nr. 90
Skilafrestur er til 23. júní og í verölaun er bókin Söngur villiand-
arinnar og fleiri sögur eftir Einar Kárason. Bókin inniheldur
smúsögur eftir Einar og er þaö Mál og menning sem gefur út. Utan-
úskriftin er: PRESSAN— krossgúta nr. 90, Ármúla 36, 108 Reykjavík.
Dregiö hefur veriö úr réttum lausnum ó 88. krossgútunni. Lnusn-
aroröin voru. Betra erheilten vel gróið. Vinningshafinn erAIex-
andra Högnadóttir, Úthlíð 12, 105 Reykjavík. Fœr hún senda
Bókina um Machintosh eftir Jörgen Pind.