Pressan - 14.06.1990, Side 22

Pressan - 14.06.1990, Side 22
22 OLE KRARUP LAGAPRÓFESSOR UM Fimmtudagur 14. júní 1990 TREHOLT-MÁLIÐ: Mál Arnes Treholt, skrifstofustjóra í norska utanríkisráðuneytinu, sem dæmd- ur var í 20 ára fangelsi fyrir njósnir í júní 1985, er enn í brennidepli. Margt bendir til að Noregur súpi seyðið af þessu máli út þessa öld og jafnvel langt fram á þá næstu. Þeim fjölgar sem gagnrýna dóminn ognýj- ar upplýsingar koma fram í dagsljósið. En málið er ekki bara norskt, það er norrænt. EFTIR: INGIBJÖRGU SÓLRÚNU GÍSLADÓTTUR 1 október 1988 var stofnuð norræn Treholt-nefnd að frum- kvæði nokkurra lögfræðinga. Ole Krarup, prófessor við laga- deild Kaupmannahafnarháskóla, starfar með nefndinni og hef- ur unnið mikið að málum Arnes Treholt á undanförnum árum. PRESSAN ræddi við hann fyrir nokkrum dögum. ,,I stuttu máli má segja að markmiðið sé að koma á framfæri upplýsingum um Treholt-málið vegna þess að þó ekki sé hægt að segja að þar hafi beinlínis verið framið réttarmorð, því mað- urinn var sekur að vissu marki, þá var meðferð þess þannig að hann átti aldrei nokkurn möguleika á réttlátri málsmeðferð. Við höfum reynt að komamálinu á dagskráeftir réttarfarsleg- um leiðum og í því sambandi má nefna að við höfum sent tvær kærur til mannréttindanefndar Evrópu, við fórum fram á það nú í maí að málið yrði tekið upp aftur fyrir norskum dómstól- um og við erum nú að safna undirskriftum þar sem þess er far- ið á leit við norsku ríkisstjórnina að Treholt verði náðaður nú, þegar hann hefur setið af sér þriðjung dómsins." Nýjar upplýsingar Árið 1985 fóru verjendur Treholt fram á að málið yrði tekið upp að nýju en þeirri beiðni var hafnað. Égspurði Ole Krarup hvaða ástæðu nefndin hefði til að ætla að það fengist frekar fram nú enþá. Eru komnarfram einhverjarnýjar upplýsingar í málinu? ,,Já. Beiðnin núna byggist annars vegar á því að samkvæmt norsku réttarkerfi eru talsvert miklir möguleikar á því að fá refsimál tekin upp aftur og hins vegar hafa komið fram nýjar upplýsingar sem við teljum að muni breyta ýmsu. I því sam- bandi má nefna að hægt er að sýna fram á að sannanirnar — sem að mínu áliti eru reyndar engar sannanir — fyrir því að Treholt hafi tekið við tilteknum fjármunum voru fengnar með vafasömum aðferðum sem tvímælalaust eru í andstöðu við norskar réttarreglur. Þá náði lögfræðingur Treholts, Arne Haugestad, sambandi við Genadji Titov og fékk hjá honum upplýsingar um samband hans við Treholt og þessar upplýs- ingar endurtók Titov í viðtali í TV 2 í Svíþjóð sem og í danska útvarpinu og Arbeiterbladet í Noregi. Þar lýsir hann sambandi sínu við Treholt og fullyrðir að hann hafi ekki verið neinn njósnari. Mér vitanlega er þetta í fyrsta sinn sem virkur emb- ættismaður í KGB kemur fram í dagsljósið og tjáir sig um slíka hluti. Að lokum má svo nefna að þyngd refsingarinnar yfir Tre- holt var ákvörðuð á grundvelli upplýsinga frá þáverandi yfir- manni norska hersins. Þær voru á þá leið að ef Treholt hefði komið á framfæri upplýsingum sem hann fékk meðan hann var nemandi í skóla hersins, þá væri tjónið að hluta til óbætan- legt og að hluta til slíkt að það myndi kosta herinn útgjöld sem svöruðu til nokkurra ara fjárframlaga eða m.ö.o. um 30 millj- arða norskra króna. í þessu Ijósi er auðvitað athyglisvert að það hefur ekki verið sótt um eina einustu krónu í aukafjárveit- ingu og að yfirmenn hersins viðurkenna nú að Treholt sé ekki lengur nein ógnun við herinn. Þetta getur ekki þýtt annað en það, að þær upplýsingar sem hann var dæmdur fyrir að láta af hendi — sem hann sjálfur aldrei viðurkenndi — hafa ekki verið eins alvarlegar og ákærendur hans hafa viljað vera láta.“ En hvað með kærurnar til mannréttindanefndar Evrópu — út á hvað ganga þær? „Önnur var vegna dómsins og hin vegna þeirrar meðferðar sem Treholt hefur þurft að sæta við afplánunina. Nefndin vís- aði fyrri kærunni frá á þeirri forsendu að Arne Treholt dró til baka áfrýjun sína til Hæstaréttar á sínum tíma þannig að end- anlegur dómur í málinu var kveðinn upp af undirrétti árið 1985 og samkvæmt samþykktum nefndarinnar er kærufrestur því útrunninn. Mín rök í málinu voru aftur á móti þau að frest- urinn ætti að reiknast frá þeim tíma þegar Hæstiréttur hafnaði beiðninni um að taka málið upp aftur, en nefndin vildi ekki fall- ast á þau rök. Hin kæran, sem ég sendi inn í desember 1988, er enn til meðferðar hjá nefndinni. Hún var m.a. send norsku ríkisstjórninni til umsagnar og hún sendi frá sér 50 blaðsíðna skýrslu þar sem hún telur að meðferðin sé ekki í andstöðu við þriðju grein mannréttindayfirlýsingarinnar. Þeirri skýrslu varð ég aftur að svara og nú situr nefndin yfir þessu og mun að öll- um líkindum úrskurða í málinu í haust.“ Hvernig stóð á því að Treholt féll frá áfrýjuninni til Hæsta- réttar á sínum tíma? „Ein af ástæðunum var sú að Hæstiréttur hafnaði því að það færu fram nýjar vitnaleiðslur í málinu og hann hafði enga trú á að málið fengi réttláta meðferð fyrir Hæstarétti. Þetta var kannski ekki nógu yfirveguð ákvörðun en þetta gerði hann nú samt." Lagastofnun Kaupmannahafnarháskóla gaf árið 1989 út gagna- og greinasafn um Treholt-málið og þar kemur víða fram sú skoðun að Treholt hafi gerst sekur umað brjóta lög um réttindi og skyldur opinberta starfsmanna en hann sé saklaus af kærunni um njósnir. Er Ole Krarup þeirrar skoðunar? „Já. Hann er greinilegabrotlegur við lög um opinbera starfs- menn og hann braut gegn þagnarskyldunni. Fyrir slíkt er hægt að dæma menn í sex mánaða til þriggja ára fangelsi en það eru himinn og haf sem skilja að það lagabrot og svo aftur hitt að vera njósnari." Öfl sem þurftu á óvinaímynd að halda í inngangi að fyrrnefndu greinasafni er því haldið fram að ef tekið sé mið af þeim sem kváðu upp dóminn yfir Arne Treholt þá hafi hann aldrei átt neinn möguleika á sanngjarnri máls- meðferð. Hann var þekktur fyrir að standa vinstra megin í norska Verkamannaflokknum en forseti dómsins var fyrrver- andi varaþingmaður Kaares Willoch, þáverandi forsætisráð- herra í ríkisstjórn hægrimanna, en auk hans kváðu upp dóm- inn lögmaður sem hafði gegnt æðstu stöðu innan hersins og tveir lögmenn sem hafa verið virkir þátttakendur á hægri væng stjórnmálanna. Þá er því haldið fram að það hafi þjónað ákveðnum pólitískum og hernaðarlegum hagsmunum að negla Arne Treholt. Þetta vekur óneitanlega þá spurningu hvort dómurinn yfir honum hafi öðru fremur verið pólitískur? „Ég er sannfærður um að þetta var pólitískur dómur,” segir Ole Krarup. „Ég ersannfærður um að það eru, eða réttara sagt voru, mörg öfl í norska ríkiskerfinu sem leiddu málið í tiltekna átt. I fyrsta lagi hafa leyniþjónustur allra landa hag af því að mál eins og þetta komi upp, því það er sönnun fyrir tilverurétti þeirra. í öðru lagi átti herferð fjölmiðla stóran þátt í þeim fyrir- framdómi sem felldur var yfir Treholt og þetta var ótrúlega gott mál fyrir þá. Þetta voru góðir dagar fyrir blöðin sem seld- ust í 50 þúsund fleiri eintökum en venjulega. Njósnamál er auðvitað miklu meira spennandi lesefni en saga um opinberan starfsmann sem gerist brotlegur í starfi, ekki satt? í þriðja lagi er ég þeirrar skoðunar að það hafi verið mjögsterk öfl að verki í norskum stjórnmálum sem þurftu á óvinaimynd að halda. Þetta gerðist á þeim tíma þegar NATÓ og stefna þess í kjarn- orkuvopnamálum urðu fyrir mikilli gagnrýni og á norska þing- inu munaði aðeins einu atkvæði að tillaga um kjarnorku- vopnalaus Norðurlönd yrði samþykkt. Það var auðvitað stor- kostlegt fyrir andstæðinga tillögunar þegar upp kom mál þar sem einn helsti talsmaður hennar, þ.e.a.s. Ame Treholt, var af- hjúpaður sem njósnari fyrir KGB. Það er mín skoðun að þetta mál hafi í grundvallaratriðum verið sett á svið. Heppni norskra stjórnvalda lá svo í því að það var auðvelt að fá almenning til að trúa því. Þegar maður eins og Treholt heldur fundi með Titov og er í tengslum við íraka þá er það svo óvenjulegt að auðvelt er að fá fólk til að trúa því að fleira sé á ferðinni. Hann hafði ekki sagt yfirmönnum sínum frá þessum tengslum og fólk á mjög auðvelt með að trúa því að sá sem breiðir yfir eitt- hvað hann ljúgi og sá sem ljúgi hann steli o.s.frv. Það þarf þó ekkert að vera undarlegt að hann leyndi þessum tengslum því hann var í pólitískum minnihluta, bæði í ráðuneytinu og Verkamannaflokknum. Hægri armurinn í norska Verka- mannaflokknum var t.d. andvígur kröfunni um kjarnorku- vopnalaus Norðurlönd ogTreholt var ekkert sérlega vinsæll í þeim hópi. Við getum kannski sagt að hann hafi rekið sjálf- stæða utanríkisstefnu og það getur maður ekki gert." Hlutur fjölmiðla Eins og Ole Krarup minnist á dæmdu norskir fjölmiðlar Arne Treholt sekan allt frá handtöku og áttu þau drýgstan þátt í því að móta viðhorf almennings til málsins. Var afskaplega fáar efasemdaraddir að finna í þeim 560 greinum sem birtust í norskum dagblöðum fyrstu vikuna eftir handtökuna. En hver er afstaða fjölmiðla og almennings í dag? Hefur efasemdarödd- unum fjölgað? „Ég veit ekki hvað skal segja. Vakandi og velupplýstir blaða- lesendur sjá að þarna hefur eitthvað gerst sem ekki er í lagi. Þó sífellt fleiri taki gagnrýna afstöðu til málsins og setji sig í samband við okkur þá hefur þorri fólks ekki orku til að setja >> Islensku dagblöðin: NJÓSNIR OG PÖLITÍK Árið 1986 kom út í Noregi könnun á umfjöllun fjölmiðla og ýmissa opinberra aðila um Treholt-málið. í fjórum stærstu blöðunum birtust í allt 560 greinar um málið fyrstu vikuna (23.-28. janúar 1984). Þessar greinar eiga það nær allar sammerkt að senda mjög skýr og ótvíræð skilaboð til norsku þjóðarinn- ar um að Arne Treholt sé sekur. Hann sé njósnari. Hvergi örlar á gagnrýninni afstöðu til rannsóknar og meðferðar málsins. Treholt-málið fór ekki framhjá íslenskum blaðales- endum. Daglega birtust um það langar greinar, fréttir og viðtöl. Ef að líkum lætur, hef- ur íslenskur fréttaflutningur endurspeglað þann norska. Þannig var fyrirsögnin á fyrstu frétt DV af málinu þann 23. janúar: „Fyrrum að- stoðarráðherra tekinn fyrir njósnir — njósnaði fyrir Rússa og var fyrir Norðmenn í samningum á sama tíma.“ Með mynd af Ame Treholt nokkrum dögum síðar er svo að finna eftirfarandi texta: „Vel greindur, vinsæll og glæsilegur, var vörumerki Arne Treholts áður en hann varð uppvís að landráð- um.“ Fyrsta frétt Þjóðviljans birtist 25. janúar og hún hefst á þessa leið: „Arne Treholt, yfirmaður í upplýsingaþjón- ustu norska utanríkisráðu- neytisins, hefur verið afhjúp- aður sem njósnari fyrir sov; ésku leyniþjónustuna KGB.“ í fréttinni er síðan minnst á að „fégræðgi og spilafíkn" kunni að hafa orðið honum að falli. Daginn eftir birtir Þjóðviljinn litla frétt á forsíðu undir fyrir- sögninni: „Offursti í KGB“. Það blað sem mest skrifar um málið er þó tvímælalaust Morgunblaðið. Málið er á forsíðu daglega auk þess sem 2—4 síður eru lagðar undir það inni í blaðinu. Þá er fjall- að um það í a.m.k. þremur leiðurum. Það þarf þó ekkert að koma á óvart — málið var mikið fréttaefni. Eins og í öðr- um dagblöðum er Treholt sakfelldur. í fyrirsögn á for- síðu þann 24. janúar er vitn- að í Kaare Willoch, þáver- andi forsætisráðherra, með þessum orðum: „Lýsi fullri ábyrgð á hendur Rússum." í sjálfri fréttinni er sagt að Arne Treholt hafi „játað á sig stórfelldar njósnir í þágu sovésku leyniþjónust- unnar KGB“. Þann 27. janúar flytur blaðið svo þá frétt, sem höfð er eftir yfirmanni norskra/landvarna, að „upp- Ijóstranir Arne Treholt. . . Þorsteinn Páls- son um Arne Treholt i Morg- unblaðinu 28. janúar 1984: „Þessi maður hafði samstarf við islenska að- ila. Hann reyndi að hafa áhrif á íslensk stjórn- mál." kalli á nýtt viðvörunarkerfi í norska hernum og í þessu skyni þurfi sérstaka fjárveit- ingu“. Það sem einkennir þó skrif Morgunblaðsins öðrum blöð- um fremur eru þær pólitísku ályktanir sem dregnar eru af málinu. Þann 25. janúar er t.d. þessi fyrirsögn: „Stóð Tre- holt að baki kröfunni um kjarnorkuvopnalausu svæð- in?“ í fréttinni segir frá því að þann 8. okt. 1980 hafi Jan Evensen flutt fyrirlestur þar sem hann krafðist þess að komið yrði á kjarnorku- vopnalausum svæðum á Norðurlöndum. Síðan segir: „Samkvæmt frásögn ýmissa norskra blaða nú var það njósnarinn Arne Treholt, sem samdi fyrirlesturinn fyrir Evensen." Evensen neitaði þessu með öllu og sagðist sjálfur hafa samið sína ræðu. Það breytti þó ekki skoðun Morgunblaðsins og í leiðara þann 27. janúar segir að „margt bendi til þess“ að Arne Treholt hafi samið ræð- una. Hver ábendingin er er ósagt látið. Þorsteinn Pálsson tjáir sig lítillega um málið í blað- inu þann 28. janúar og eftir honum er haft: „Það hefur verið upplýst að þessi maður hafði samstarf við íslenska aðila. Hann reyndi að hafa áhrif á íslensk stjórnmál." Margar fréttir af málinu eru óneitanlega nokkuð skondn- ar þegar haft er í huga að fjöl- miðlar voru að fjalla um „topp-njósnara". Þannig segir frá því í frétt í DV þann 26. janúar að fundist hafi átta skrifborðsskúffur fullar af skjölum og öðrum gögnum í íbúð sem Treholt átti. „íbúð- ina, þar sem skjölin fundust, hafði Treholt nýlega selt, en láðst að fjarlægja ýmsa per- sónulega muni af háaloftinu." Greinilega hirðulaus njósn- ari!

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.