Pressan - 14.06.1990, Síða 24

Pressan - 14.06.1990, Síða 24
24 i framhjáhlaupi Gunnlaugur Guömundsson stjörnuspekingur „Þoli ekki fuskarð" — Hvaða persóna hefur haft mest áhrif á þig og af hverju? „Sennilega hún amma mín. Ég var mikið hjá henni í bemsku, á viðkvæmum aldri. Hún var ákaf- lega falleg kona, heiöarleg, góð og trúuð. Hún lét mig fara með bænir og sagði mér sögur af Jesú og gerðum hans. Trú henn- ar tók mið af kærleika, en var laus við kreddurog bókstafi. Ég tel að hún hafi hlúð að því besta sem býr innra með mér." — Hvað finnst þér leiðinleg- ast að gera? „Mér finnst erfiðast að fara á fætur á morgnana og leiðinlegt að ég skuli ekki hafa meiri kraft en raun ber vitni til að sigrast á þeim veikleika." — En skemmtilegast? „ Að fara út að borða með góð- um vinum eða horfa á spenn- andi kappleik." — Við hvaöa aðstæður líður þér best? „Mér líður best í góðu veðri heima hjá mér." — Geturðu nefnt einn kost þinn og einn galla? „Ég hef marga kosti, er t.d. skipulagður, duglegur og hug- myndaríkur. Helstu veikleikar eru fljótfærni, tilhneiging til að taka of mikið að mér og eiga erf- itt með að segja nei." — Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þeiira sem þú átt samskipti við? „Mér er illa við óstundvísi, við fólk sem nennir ekki að vinna þá vinnu sem það tekur að sér og við fúskara sem þykjast kunna það sem þeir kunna ekki." — Hvaða starfsgrein mynd- irðu velja þér ef þú yrðir að skipta um starf? „Starfsmannaráðgjöf eða blaðamennsku." — Hvernig vildirðu helst verja sumarleyfinu í ár? „Ferðast með bíl í gegnum Frakkland, Ítalíu og Sviss." — Hver er eftirlætisbílteg- undin þín? „Volvo." — Hefurðu farið á miðils- fund? „Nei. Ég hef farið á einn skyggnilýsingarfund hjá indælli og skemmtilegri enskri konu. Ég átti erfitt meö að sjá tilganginn með fundinum. Af því að ég vinn við stjörnuspeki halda margir að ég sé á kafi í alls konar andlegum málum. Það er ekki rétt. Ég er jarðbundið Naut og hef lítinn áhuga á því sem ekki er áþreifan- legt. Ég lít á stjörnuspeki sem sálfræði persónuleikans og trúi ekki á annað í því fagi en það sem ég sé í farifólks í hinum ein- stöku merkjum. Ég reyni síðan að miðla þeirri vitneskju til ann- arra, því ég tel það af hinu góða að menn þekki sjálfa sig. Með þessu er ég ekki að fordæma miðilsfundi og skyggnilýsingar. Eitt af vandamálum þessa heims er að við erum of fljót að dæma skynjun annars fólks sem vitleysu. Slíkt skapar tortryggni og úlfúð og á ekki rétt á sér, því við erum ekki fær um að dæma það sem við þekkjum ekki." — Hvaða hugmyndir gerirðu þér um líf eftir dauðann? „Ég veit að lífið heldur áfram eftir dauðann, en ég geri mér engar sérstakar hugmyndir um eðli þess. Ég er viss um að þar er á ferðinni eitthvað sem skilning- arvit mín í dag eru ekki fær um að greina. Auk þess tel ég það tímasóun að spá í slíkt. Eg tel merkilegra að finna hlutverk mitt í núverandi lífi og rækja það eftir bestu getu. Nútíðin er það eina sem ég hef." kynlifsdálkurinn Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undir dulnefni. Utanáskriftin er: PRESSAN — kynlífsdálkurinn, Ár- múla 36, 108 Reykjavík. Að fyrirbyggja nauðgun Það er ótrúlega margt í kynlífi sem snertir okkur á óþægilegan hátt og kynferðislegt ofbeldi er eitt af því. Konur hafa misjafnar hug- myndir um nauðgun. Til dæmis dettur mér alltaf í hug atriði úr kvik- mynd eftir Ingmar Bergman þar sem Liv Ullman lék konu sem var nauðgað heima hjá sér. Nauðgun er nokkuð sem allar konur óttast — meðvitað eða ómeð- vitað. Okkur er líka kennt að forðast aðstæður sem geta leitt til nauðgun- ar. Það getur veriðnámskeið í sjálfs- vörn eða að klæðast „skynsam- lega”. Námskeið geta vissulega auk- ið sjálfstraustið þurfi konan að verja sig gegn árás en fatasmekkur hefur ekkert að segja ætli einhver að nauðga konu á annað borð. Ég rakst á bók um daginn sem fjallar um kynferðislegt ofbeldi — „Sexual violence — The reality for women" (Womens Press, London 1988). í bókinni erað finna upptaln- ingu á því hvernig konur geta forð- ast nauðgun. Því miður væri það að æra óstöðugan ef konur færu eftir öllum reglunum í því sambandi. Þessar reglur eru vísvitandi settar upp á kaldhæðnislegan máta vegna þess að hver einasta kona sem er nauðgað hefur brotið einhverja þeirra. Þær sem verða fyrir því ofbeldi sem nauögun er finnst oft eins og nauðgunin haldi áfram í óeiginleg- um skilningi leggi þær fram kæru. Ástæðan er sú að viðmót aðila í skýrslutöku og læknisskoðun er oft- ast ekki neitt til aö hrópa húrra fvrir. Kæri konan eða fari i mál má hún búast við að verða vefengd á ein- hvern hátt og þá er oft fundið eitt- hvað sem getur sannaö að hún hafi átt einhverja sök á verknaðinum — hafi á einhvern hátt ýtt karlmannin- um út í að nauðga sér. Þessi rök- semdafærsla er fjarstæða því ábyrgðin er alltaf hjá þeim sem gengur yfir kynhelgi hins. Vorkvöld í Reykjavík í skýrslu nauðgunarmálanefndar (dómsmálaráðuneytið 1989) kemur fram að aðdragandi nauðgunar og atburðarásin eru oft svipuð þegar dregin er upp mynd af nauðgunar- reynslu tuttugu og fjögurra ís- lenskra kvenna. Ung stúíka á aldrin- um 17—23 ára ferá helgarball. Hún er i framhaldsskóla eða farin að vinna eftir grunnskólann. Hún hefur upplifað sína fyrstu kynlífsreynslu en er ólofuð. Á ballinu eða eftir ball hittir hún karlmann undir áhrifum áfengis. Hann reynir við hana og vill að hún komi meðsér afsíðis, inn í bíl eða inn á heimili. Hún hefur drukk- ið 1—3 hvítvínsglös og tekur þátt í leiknum þar til vinsamleg fram- koma hans snýst upp í grófa árás. Hún verður skelfingu lostin og átök hefjast. Ekki vera til Lítum á þessar reglur: ekki vera fáklædd (það virkar ögrandi á suma karlmenn), ekki vera mikið klædd (það gerir suma karlmenn forvitna), ekki vera ein úti á kvöldin (það virk- ar ögrandi á karlmenn), aldrei vera ein á ferð (þá býður þú hættunni heim), ekki fara út með vinkonu þinni (sumum karlmönnum finnst æsandi að horfa á tvær stúlkur), ekki fara út með karlkyns vini (sum- ir karlkyns vinir nauðga), ekki dvelja á heimili þínu (ættingjar og innbrots'þjófar geta nauðgað), ekki vera Barn (sumir nauðgarar örvast af litlum stelpum), ekki eldast (sum- ar nauðgarar ,,kjósa“ frekar eldri konur), ekki eiga föður, afa, frænda eða bróður — (þetta eru þeir ætt- ingjar sem oftast nauðga), ekki hafa nágranna (þeir nauðga), ekki giftast (það er ekki hægt að kæra nauðgun í hjónabandi), ekki vera ólofuð og á aldrinum 17—23 ára, ekki fara á helgarball eða taka mann tali á ball- inu — til að vera alveg viss — ekki vera til! Eins og sjá má þjóna þessar reglur engum öðrum tilgangi en að varpa ábyrgðinni frá gerandanum. Nauðg- un er kynferðisglæpur, ekki ástríðu- glæpur, sem felur oft á tíðum í sér líkamlegar misþyrmingar. Konur, sem er nauðgað, óttast um eigið lif. Ein af goðsögnunum um nauðgun hljómar einmitt eitthvað á þá leið að innst inni njóti konur þess bara að vera nauðgað! Ef kona notar hugar- óra sem tengjast nauðgun til að örvast kynferðislega er það afar ólikt raunverulegri nauðgun. í fantasíunni hefurkonan stjórn á þvi hvað gerist en ekki í raunveruleik- anum. Fimmtudagur 14. júní 1990 spáiw 14. — 20. júni /2/. murs—li(J. upril) Hafðu gát á fjármálunim. Þér býðst brátt að taka þátt í ábatasömu verkefni en þá verð- urðu að vera vel undiibúinn. Þú hefur ekki verið sérstaklega tillitssamur við þina nán- ustu að undanförnu. Bættu úr því hið snar- asta. 121. upril—20. mui) Til að halda andlegri heilsu er nauðsynlegt fyrir þig að halda góðu jafnvægi á miMi vinnu og frítima. Þú verður að draga úr stressinu og finna þér jafnvel eitthvert rólegt frí- stundaföndur. Hannyrðir eða fluguhnýting- ar eru kjörið viðfangsefni. (21. mui—21. júni) Tvíburar eru gjarnir áað snúa við finni þeir fyrir andstreymi í lífhu. Nú býðst þér brátt tækifæri til að sýna fvað í þér býr. Stattu á þínu og þú munt uppskera i samræmi við pað. (22. júní—22. júli) Utivera á vel við þig i friinu i sumar. Vertu fullkomlega hlutlaus í deilum sem koma upp meðal kunningja. Siðar verður leitað til þin og þá er eins gott að þú leysir vel úr málinu. Dómgreind þín er rik og þú getur þurft að taka afdrifarikar ákvarðanir sem snerta við- kvæma hagsmuni. Þér ætti ekki að verða skotaskuld ur að snúaþér rétt i þessum mál- um. (22. júli—22. úf(úst) Helgin sem gengur igarð nýtist þér best ef þú tekur lifinu með róheima við. Dyttaðu að heimilinu eða garðinuTi. Lestu góða hók og hafðu það huggulegt Forðastu skemmtanir enda missirðu ekki af neinu þrátt fyrir ákveðnar freistingar. (23. úttúst — 23. scpt.) Ef þú hefur dregið á langinn að leita til lækn- is af heilsufarsástæðum er ekki seinna vænna að drifa sig. Aðöðru leyti skaltu hara lifa lifinu eins og þér ertamt. Gættu þess þó að hlaupa ekki í kappivið tímann. Aöal þitt þessa dagana er yfirvegun og rósemi. (22. sepl.—24. okt.) Nú gildir að skipuleggja fremur en fram- kvæma. Gættu þess að þaö sem þú tekst á hendur sé úthugsað og réttlætanlegt. Um helgina verður þer trdega boðið i heimahús og þá skaltu vera orðtar og hógvær. Einhver ættingi þinn vill geraþér lifið leitt en þegar upp verður staðið ert þú með pálmann í höndunum. TU (24. Þú hefur sökkt þér niður i verkefni að undan- förnu. Nú er rétti timinn til að lita upp og huga að fjölskyldunri og fjármálunum. Þu átt skilið upplyftingu og skalt notfæra þér fyrsta tilboð sem þér týðst til að skemmta þér ærlega. (22. núu.—2l. des.) Samstarf við vinnufélaga mun veita þér óvenjulega gleði og gera þér gott. Það mun skila þér meiru en ef þú hefðir reynt að standa einn að verkinu Rómantík svifur yfir helginni og þú skalt undirbúa þig vel áður en þú ferð út á lifið um helgina svo þú njótir hennar til fullnustu. m N ' T (22. des.—20. jun.) Ef þú vilt forðast vanckæði skaltu ekki láta alltof mikið uppi um ráðagerðir þinar. Þú stendur frammi fyrir óvenjulegri kröfu og skalt ekki hika við aðleita ráða. Ef þú spilar rétt úr stöðunni áttu uan á að hljóta umtals- verðan hagnað og komast til áhrifa sem þú hefur lengi sóst eftir. ðh (21. junúur—ld (ebrúur) Reiði nágranna þins iþinn garð gæti brotist út i hreinu hatri og illdeilum ef þú breytir ekki um viðmót gagnvart honum. Þú hefur ekki alltaf verið sanngjarn og skalt bæta úr þvi. Innan skamms býðst þér að fara i ferðalag og það kann að hafa \eruleg umskipti í för með sér i lifi þinu. Þú mættir líka huga að því að fara nú að taka virkan þátt í félagsstarf- semi. Þú hefur gott af þvi enda hefurðu ver- ið undir talsverðu álad að undanförnu og þarft á tilbreytingu 30113103. (20. (ebrúur—20. mars) Þú ert ekki í skapi til að fara mikið út á meðal kunningja þessa dagana. Þér veitist hins vegar örðugt að sannfæra þá um þetta. Pirr- ingur þinn stafar likæt til af fjármálunum. Það mun rætast úr þessu án þess að þú þurfir að hafa mikið fyrir því. Útivera og lik- amsrækt eru blátt áfram nauðsynleg fyrir þig ef þú ætlar ekki að guggna og missa heilsuna.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.