Pressan - 14.06.1990, Qupperneq 26
26
Fimmtudagur 14. júní 1990
*r
dZ;
fiölmidlapSstill
Sjónvarpiö,
miðill augnabliks og tilfinninga
siónvarps-snarl
Ostabrauð Lacatusar
Áhrifavald fjölmiðlanna er
mikið. Ekkert tæki eða stofn-
un í hinum vestræna heimi
hefur eins afgerandi áhrif á
heimsmynd og viðhorf al-
mennings og fjölmiðlarnir. Á
örskömmum tíma í upphafi
síðari heimsstyrjaldar
breyttu bandarískir fjölmiðl-
ar viðhorfi alls þorra Banda-
ríkjamanna til Hitlers-Þýska-
lands úr afstöðuleysi í hat-
ramma andstöðu. Um Hitler
þarf ekki að fjölyrða í þessu
sambandi — hann kunni tök-
in á fjölmiðlunum í sínu
heimalandi. Þess eru líka
dæmi að við meðferð við-
kvæmra sakamála hafi fjöl-
miðlar gegnt afgerandi híut-
verki og, hafa sterk rök verið
færð fyrir því að þeir geti ráð-
ið sekt eða sýknu. Þannig
hefur því verið haldið fram
að þeir hafi haft talsverð áhrif
á framgang Geirfinnsmálsins
hér á landi og niðurstöður
dómsins yfir Arne Treholt í
Noregi, en um jjað mál er
fjallað hér annars staðar í
blaðinu.
Án efa er myndmiðillinn
þ.e. sjónvarpið öðrum miðl-
urn sterkari. Hann er bæði
fljótverkandi og hreyfir öðr-
urn rniðlum fremur við til-
finningum fólks. Áhorfand-
inn hefur ekki töká að staldra
við, skoða aftur það sem sagt
og sýnt var og gera sér sjálf-
stæða mynd af því sem að
baki býr. Hann varð fyrir
áhrifum augnabliksins hvort
sem honum var það Ijúft eða
leitt. Ábyrgð fjölmiðlamanna
er því mikilen hún vill gleym-
ast í sókninni eftir góðu
fréttaefni. Þannig féllu vest-
rænir fjölmiðlamenn á þýð-
ingarmiklu prófi þegar þeir
birtu myndir af tilbúnum
fjöldagröfum í Timisoara á
fyrstu dögum byltingarinnar í
Rúmeníu.
En það þarf ekki blóðugar
byltingar og mannlegar
hörmungar til að fjölmiðla-
menn falli á prófum og gefi
villandi mynd af veruleikan-
um — eða kannski öllu held-
ur þá mynd sem þeir vilja
helst sjá og halda að öðrum.
Hinn hlutlausi myndmiðill
allra landsmanna, ríkissjón-
varpið, byrjaði í mars sl. um-
fjöllun sína um nýafstaðnar
borgarstjómarkosningar á
því að tala við nokkra fulltrúa
meiri- og minnihluta borgar-
stjórnar um stöðu borgar-
mála. Ein af fulltrúum minni-
hlutans lauk máli sínu með
því að lýsa því yfirað illa væri
búið að öldruðy, veiku fólki í
Reykjavík. Varla hafði hún
sleppt orðinu þegar frétta-
maðurinn birtist á skjánum
og hafði hann þá tekið sér
stöðu fyrir framandjúpa holu
niður við Skúlagötu og upp-
hóf þaðan alllanga tölu um
þær framkvæmdir sem
stæðu yfir í þágu aldraðra
Reykvíkinga. Með öðrum
orðum; hann tók sér það hlut-
verk að gefa áhorfendum til
kynna að lítið væri að marka
orð borgarfulltrúans. Hefði
maður að öðru jöfnu talið að
þar væri hann kominn út fyr-
ir verksvið fréttamannsins og
inn á verksvið sjálfstæðis-
manna — nema það sé eitt og
hið sama í þessu tilviki.
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
Á meðan eiginkonan liggur
límd yfir heimsmeistara-
keppninni fer húsbóndinn og
hitar saðsamt og gott osta:
brauð í HM-snarl kvöldsins. í
fyllinguna notar hann:
2 stór heilhveiti-
rúnnstykki eða 4 vænar
brauðsneiðar
smjör
4 sneiðar af reyktu
svínafleski eða skinku
1 hvítlauksrif
2 steinseljugreinar
3 egg
100 g af rifnum osti
ofurlítið af nýmöluðum
pipar
Berið smjör á brauðið og
setjið í heitan ofn, þannig að
það verði þurrt og stökkt.
Bræðið smjör á pönnu. Sker-
ið pöruna af fleskinu ef þið
notið ekki skinku og skerið
það í litla bita ásamt hvít-
lauknum og setjið á pönn-
una. Hrærið því næst eggin
og bætið ostinum út í. Hreins-
ið svo steinseljuna og saxið
hana út á pönnuna. Eggja-
blöndunni er svo hellt yfir og
velt með spaða. Gætið þess
að blandan þorni ekki á
pönnunni. Jafnið síðan
blöndunni yfir heit brauðin
og látið bakast í ofninum í 10
mín., þar til fyllingin er orðin
fallega gulbrún á litinn. Þetta
ætti að bragðast Ijúflega með
bjór eða öðru tilheyrandi
knattspyrnuveislu helgarinn-
ar.
Hjónaband er . . .
29
. . . ad byrja daginn á ad horfa á fai>ra
ásjánu hennar á morífnanu. . .
Hjónaband er ...
. . . ad spyrja hvort honum finnist snjá-
kornin ekki ómótstœöilega falleg. . .