Pressan - 14.06.1990, Síða 27
1
088i irt'ji 4 i viVúO'iTi'i
Fimmtudagur 14. júní 1990
kvikmyndir helgarinnar
FiMMTUDAGUR
14. júní
Stöö 2 kl. 22.15
SKILNAÐUR ***
(Interiors)
Bandarísk bíómynd frá 1978
Leikstjóri: Woody Allen
Aðalhlutverk: Diane Keaton,
Richard Jordan og Christine
Griffith
Þetta er hreint út sagt frábær mynd
að allri gerð þótt hún falli kannski
ekki öllum í geð. Hér er fjallað á „all-
enskan"» máta um áhrif skilnaðar
foreldranna á þrjár uppkomnar syst-
ur. Auk þess að leikstýra skrifaði
Woody Allen handritið að mynd-
inni.
Stöö 2 kl. 23.45
í HEFNDARHUG *1/2
(Heated Vengeance)
Bandarísk gerð 1986
Aðalhlutverk: Richard Hatch,
Jolina Mitchell Collins og Dennis
Patrick
Víetnamstríðið erundirtónn þessar-
ar myndar sem fjallar um fyrrver-
andi bandarískan hermann, sem
snýr aftur til Laos í Kambódíu til að
leita uppi unnustu sína sem hann yf-
irgaf 13 árum áður. Fljólega snýst
förin upp í eltingaleik upp á líf og
dauða.
FOSTUDAGUR
15. júní
Stöö 2 kl. 21.20
FRAMADRAUMAR * *
(I Ought to Be in Pictures)
Bandarísk bíómynd gerð 1982
Leikstjóri: Herbert Ross
Aðalhlutverk: Walter Matthau og
Ann-Margret
Þessi lunkna gamanmynd er byggð
á vinsælu leikriti eftir Neil Simon.
Ung stúlka ferðast yfir endilöng
Bandaríkin til þess að leita sér
frama í kvikmyndabransanum og
hefur uppi á föður sínum, sem er
fyrrum handritshöfundur sem hefst
lítið annað að en drekka og stunda
fjárhættubúllur. Þegar stúlkan birt-
ist skyndilega á tröppunum hjá karli
er ekki laust við að rót komist á líf
hans. Walter Matthau svíkur engan
í bráðfyndnu hlutverki.
Ríkissjónvarpið kl. 22.15
LIJLA STÚLKAN
MÍN **,/z
(My Little Girl)
Bandarísk bíómynd frá 1986
Leikstjóri: Connie Kaiserman
Aðalhlutverk: Marie Stuart Master-
son, James Earl Jones, Geraldine
Page og Pamela Fbyton Wright
Ung stúlka, í góðum efnum, gerist
sjálfboðaliði í bamaathvarfi sumar
nokkurt. Þar kynnist hún nýrri hlið
á tilverunni og vandræðaungling-
um sem hafa sterk áhrif á hana.
Þessi mynd er stórvel leikin og boð-
skapurinn hugvekjandi. Við mælum
með henni.
Stöö 2 kl. 23.30
ALCAPONE0
(Capone)
Bandarísk bíómynd gerð 1975
Leikstjóri: Steve Carver
Aðalhlutverk: Sylvester Stallone,
John Cassavetes og Susan Blakely
Glæpaforinginn A1 Capone og upp-
gangsár hans í illagerðri og oft á tíð-
um illskiljanlegri mynd, sem leggur
meiri áherslu á töffaratal og ofbeldi
en vitglóru í sögujjræðinum. Strang-
lega bönnuð börnum.
Stöð 2 kl. 01.05
ALDREIAÐ VITA ***
(Heaven Knows, Mr. Allison)
Bandarísk bíómynd frá 1957
Leikstjóri: John Huston
Aðalhlutverk: Robert Mitchum og
Deborah Kerr
Bandarískur sjómaður og nunna
lenda saman á ^ju í Kyrrahafinu
þegar síðari heimsstyrjöldin stend-
ur sem hæst og í ofanálag eru þau
umkringd japönskum hermönnum.
Það er vert að maela vel með þessari
mynd Johns Huston og leikstjörn-
urnar skila sínu með prýði.
LAUGARDAGUR
16. júní
Stöö 2 kl. 15.00
ISKÓLANN Á NÝ ***
(Back to School)
Bandarísk bíómynd frá 1986
Leikstjóri: Alan Metter
Aðalhlutverk: Sally Kellerman og
Burt Young
Þetta er gamanmynd um allsérstæð-
an föður sem ákveður að finna ný-
stárlega leið til þess að vera syni sín-
um stoð og stytta í framhaldsskóla.
Hann skráir sig í sama skóla. Vel
heppnuð og ágætlega skemmtileg
mynd.
Stöö 2 kl. 20.50
HÚNÁV0N
Á BARNI **1/2
(She's Having a Baby)
Bandarísk bíómynd gerð 1988
Leikstjóri: John Hughes
Aðalhlutverk: Keuin Bacon og
Elizabeth McGovern
Leikstjórinn er kunnur fyrir vel
heppnaðar unglingamyndir og
greinir hér frá ungu pari sem er að
feta sig inn á brautir hjónabandsins,
en kemst fljótlega að því að það er
ekki alltaf dans á rósum og freisting-
ar löngum innan.seilingar.
Ríkissjónvarpiö kl. 22.25
HJÓNABAND
TIL HAGRÆÐIS **1/2
(Getting Married
in Buffalo Jump)
Kanadísk sjónvarpsmynd frá 1989
Leikstjóri: Eric TiU
Aðalhlutverk: Wendy Crewson,
Paul Gross og Marion Gilsenan
Ung stúlka býr á bóndabæ ásamt
móður sinni. Þær ráða til sín vinnu-
mann og á það eftir að draga dilk á
eftir sér. Byggt á sögu eftir Susan
Charlotte Haley. Hlýleg og vönduð
mynd um óvenjulegt ástarsamband.
Stöö 2 kl. 23.00
BLÁA ELDINGIN *1/2
Blue Lightning)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1986
Leikstjóri: Lee Philips
Aðalhlutverk: Sam Elliot, Rebecca
Gillin og Robert Culp
Ævintýramaður nokkur heldur til
Astralíu til að endurheimta ómetan-
legan ópalstein, sem óprúttinn
glæpaforingi hefur í fórum sínum.
Atök upp á líf og dauða í þessari all-
þokkalegu spennumynd. Vel þess
virði að fylgjast með.
Ríkissjónvarpið kl. 00.05
SVARTKLÆDDA
K0NAN ***
(Woman in Black)
Ný bresk sjónvarpsmynd
Leikstjóri: Herbert Wise
Aðalhlutverk: Adrian Rawlins
Hér segir frá ungum lögfræðingi ár-
ið 1925 sem þarf að sinna erinda-
gjörðum í smábæ en sérkennilegir
atburðir gerast sem breyta öllum
áformum. Lögfræðingurinn þvælist
inn í ógnvekjandi atburðarás og
spennan heltekuráhorfandann þeg-
ar líða tekur á. Afbragðsspennu-
mynd byggð á sögu eftir Susan Hill
og er hér í höndum afburðakvik-
myndagerðarmanna; Herberts
Wise (I, Claudius) og framleiðand-
ans Chris Burt (m.a. Inspector
Morse).
Stöð 2 kl. 01.20
L^NGI LIFIR í
G0MLUM GLÆÐUM **
(Once Upon a Texas Train)
Bandarískur sjónvarpsvestri gerö-
ur 1988
Leikstjóri: Burt Kennedy
Aðalhlutverk: Willie Nelson,
Richard Widmark og Angie
Dickinson
Vestri í léttum dúr þar sem safnað
hefur verið saman nokkrum klass-
ískum vestrahetjum. Söguþráður-
inn er á þá leið að kúrekahetja sem
farin er að reskjast og hefur afplán-
að langan fangelsisdóm hóar saman
gamla flokknum sínum til að fremja
sitt síðasta og stærsta lestarrán.
Þokkalegasta afþreying.
SUNNUDAGUR
17. júní
Ríkissjónvarpið kl. 23.05
KATA PRINSESSA **
(Touch the Sun: Princess Kate)
Nýleg áströlsk sjónvarpsmynd
Leikstjóri: George Ogilvie
Aðalhlutverk: Justine Clarke,
Lyndell Rowe ogAlan Cassel
Ung stúlka, einkabarn, nýtur mikils
ástríkis og því kemur það miklu róti
á líf hennar þegar hún kemst að því
að hún er ættleidd og á aðra for-
eldra. Eftir því sem næst verður
komist er þetta hugljúf og smekk-
lega unnin mynd en skilur kannski
ekki mikið eftir sig.
Stöð 2 kl. 23.10
MILAGR0 ***1/z
(The Milagro Beanfield War)
Bandarísk bíómynd frá 1988
Leikstjóri: Robert Redford
Aðalhlutverk: Christopher Walken,
Sonja Braga og Ruben Blades
Missið ekki af þessari! Hér er á ferð-
inni þrælgóð mynd sem hefur enda
fengið mikið lof og tekst stórstjörn-
unni Robert Redford mjög vel upp
við leikstjórn. Segir frá baráttu fá-
tækra landeigenda í Nýju-Mexíkó
við verktaka sem hyggjast sölsa
undir sig landið. Náttúruvernd und-
irtónn í myndinni sem er frábærlega
tekin og ekki spillir tónlist djassar-
ans Daves Grusinsfyrir. Myndin fær
okkar bestu meðmæli.
reinK'9
eftir Mike Atkinson
FINNST (SAMAN Aí?
(fOFFA 'A KKAK.KANA /'
FÖTBOLTA
cs
27
dagbókin
hennar
Ég er skíthrædd um að hann
pabbi fremji morð á allra næstu dög-
um. Hann er sko algjörlega á nipp-
inu og það er allt mömmu að kenna
eftir að hún byrjaði að röfla um fólk-
ið í næsta húsi.
„Fyrirmyndarfjölskyldan” flutti
inn síðasta haust og síðan hefur
mamma verið með þau á heilanum.
Hún fylgist með hverri hreyfingu í
húsinu og veit nánast hvað liðið
skiptir oft um nærbuxur. Ég skil
ekki hvers vegna hún er að kvelja
sig með þessu glápi og eilífum sam-
anburði við lífið hjá okkur, sem er
einmitt ástæðan fyrir því að pabbi
er kominn með morðglampa í aug-
Frá fyrstu mínútu sá fyrirmyndar-
faðirinn um að aldrei sæist svo mik-
ið sem eitt snjókorn á tröppunum.
Hann var bókstaflega fastur liður úti
á tröppum þangað til fór að hlýna
og oftast voru litlu fyrirmyndar-
krakkarnir að leika sér í kringum
hann á meðan. (Hann notaði ekki
níðþunga og ryðgaða skóflu, eins og
við eigum, heldur lauflétta og þægi-
lega snjósköfu!) Kallinn var líka
voða duglegur að draga þau um allt
hverfið á sleðum og byggja fyrir þau
snjóhús og svoleiðis og þá var fyrir-
myndarfrúin oftast með í hópnum.
Þau eiga sko öll eldrauða skíðagalla
— m.a.s. kallinn.
í vor voru síðan settar upp sjúk-
lega flottar rólur og meiriháttar
sandkassi og núna er fyrirmyndarf-
amilían alltaf að dúlla sér eitthvað
fyrir utan — í blágrænum jogg-
ing-göllum. Grasið fær ekki frið til
að vaxa, því kallinn er alltaf áð slá,
og kellingin er næstum komin inn
úr lakkinu á bílnum, því hún er alltaf
að þvo hann og bóna. Svo skiptast
þau á um að ýta krökkunum í ról-
unni og byggja hús í sandkassanum,
á milli þess sem þau reyta ósýnileg-
an arfa í óhugnanlega tipp-topp
blómabeðum og þvo gluggana. Þau
eru þar að auki búin að skrúbba
öskutunnurnar oftar en einu sinni!
Öllu þessu fylgist mamma með á
bakvið gardínurnar, svo henni ferst
(eða hitt þó heldur) að kalla ömmu
á Einimelnum „lifandi blómapott”.
Hún er orðin nákvæmlega eins. Og
svo fær pabbi alltaf skýrslu á hálf-
tíma fresti og það eru einmitt þessi
fréttaskeyti, sem eru að gera hann
brjálaðan. Hann er farinn að hata
fyrirmyndarpakkið (eins og hann
kallar þau) út af lífinu og ætlaði að
kála kallinum, þegar hann mætti
hingað og spurði hvort ekki stæði til
að mála bráðum girðinguna. Pabbi
sagði, að honum kæmi barasta ekk-
ert við hvenær við máluðum okkar
girðingar og skellti hurðinni. Og
hafi hann ætlað að mála er núna
pottþétt að það verður EKKI gert í
sumar!
Annars segist pabbi klár á því að
það sé eitthvað verulega gruggugt
við þetta fólk. Það sé ekki eðlilegt
að svona ung hjón geti keypt sér-
hæð með bílskúr á besta stað í Vest-
urbænum. Kallinn hljóti að svindla
svakalega undan skatti eða þá að
þau eigi varla krónu í þessu og geti
ekki staðið undir afborgununum
nema i nokkra mánuði áður en allt
springur og þau fari á framfæri fé-
lagsmálastofnunar. Pabbi segist líka
hafa grun um að kallinn sé kókaín-
innflytjandi og bullandi alki. En
mamma trúir ekki orði af þessu.
Hún segist ekki vita hvenær hann á
að vera fullur, þegar hann er nær
allan sólarhringinn úti í garði að
dútla. Og hún blæs á söguna um að
fyrirmyndarfrúin selji sig á Hótel Is-
landi um helgar.
a •
V'