Pressan - 16.05.1991, Blaðsíða 28

Pressan - 16.05.1991, Blaðsíða 28
Lejtið upplýsintja NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN Mi ■ 101 liykjnt ■ SW: (91) ÍIÍ3H 8,710 Seydc^örðu. Síoii:(97121111 # |J rgentínskt ‘ eldhús -á íslenska vísu Víðtæk fjölskyldu- vemd VÍS. alið er að Árni Sigfússon hafi meirihiuta innan borgarstjórnar- flokks Sjálfstæðisflokksins þó naumur sé. En þó Árni hafi nauman meirihluta er and- staðan gegn honum sterk og beita sumir borgarstjórnarmenn sér mjög hart gegn honum. Þar er fremstur í flokki Júlíus Hafstein. Þykir stuðningsmönnum Árna það hart þar sem Júlíus fékk að fljóta með á síðasta framboðslista meira fyrir náð og misku nn í kjölfar skand- alsins með lóðabraskið við Lágmúl- vær öndvegissúlur jafnaðar- manna, þeir Ámundi Ámundason umboðsmaður og Ólafur Ragnar Grímsson fyrrver- andi fjármálaráð- herra, eiga báðir af- mæli 14. maí. Síð- ustu tvö ár hafa þeir Ámundi og Ólafur gefið sér tíma til að hittast á afmælis- daginn og borðað saman innbakaða lúðu eða gratineraða ýsu. Sama mun hafa verið upp á teningnum síðastliðinn þriðjudag, er þeir félag- ar héidu upp á 97 ára afmælið ... i s okkar litla samfélagi er stundum ekki hægt annað en að vera góður við ættingja sína. Þessu fékk Einar Halldórsson Laxness, sagnfræð- ingur og forseti Menningarsjóðs, að kynnast þegar hann úthlutaði nokkrum styrkjum á vegum sjóðs- ins fyrir stuttu. Sonur hans, Halldór Einarsson Laxness leikstjóri, fékk nefnilega 100.000 króna ferðastyrk úr höndum pabba... "á sem helst hefur verið nefndur sem líklegur aðstoðarmaður Frið- riks Sophussonar er Steingrímur Ari Arason, hag- fræðingur Skrifstofu viðskiptalífsins, þar sem hann hefur unnið undir Vil- hjálmi Egilssyni, nýkjörnum þing- manni. Auk Stein- gríms Ara hefur nafn Markúsar Möller borið á góma í þessu sam- bandi en hann þykir ólíklegri kand- ídat en Steingrímur Ari . . . lenn velta enn fyrir sér hverjir verði aðstoðarmenn ráð- herranna, þar sem það gefur til kynna hvaða ungir menn innan flokk- anna eru í náðinni. Eðlilega er mesta spennan um aðstoð- armann Davíðs Oddssonar meðal sjálfstæðismanna. Sá sem oftast er nefndur nú er Hreinn Loftsson, fyrrum aðstoðar- maður Geirs Hallgrímssonar og Matthíasar Á. Mathiesen í utan- ríkisráðuneytinu. Hreinn bauð sig sem kunnugt er fram í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir kosningarnar og beið hálfgert af- hroð eins og aðrir fyrrum aðstoðar- menn ráðherra; þeir Guðmundur Magnússon og Ölafur ísleifsson. Þrátt fyrir það er talið líklegt að Hreinn verði aðstoðarmaður aftur, ef ekki hjá Davíð þá Þorsteini Páls- syni... B ' ónda á Fáskrúðsfirði brá held- ur betur í brún er hann leit í spegil síðastliðinn sunnudag. Kvöldið áður hafði hann setið að sumbli með fé- laga sínum og dó brennivínsdauða. Við svo búið tók vinur hans sig til og klippti af honum tígulegt skegg og hár, en skildi nokkrar lufsur eftir á stangli. Þar sem enginn rakari er á Fá- skrúðsfirði brá bóndi á það ráð að kalla á leigubíl sem keyrði með hann í snarhasti til Eskifjarðar þar sem lagfæringar fóru fram. Þaðan fór hann með gljáfægðan skallann. Sá sem framdi verkið hafði hringt í umsjónarmann hundabaða í sveit- inni helgina áður og tjáð honum að hann væri að baða bónda. Erindið var að spyrja hvað hann ætti að láta hann liggja lengi i baðinu... ■ yrir nokkrum dögum lagðist Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra á sjúkrahús vegna veik- inda. Um er að ræða vírus ekki óskyldan þeim sem Davíð Oddsson fékk fyrir borgarstjórnarkosn- ingar í fyrra. Síðustu daga hefur Þor- steinn mætt til vinnu, í trássi við ráðleggingar lækna ... HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 621373 öluverðar líkur eru á því að Lárus Jónsson fyrrverandi alþing- ismaður og bankastjóri taki að sér formennsku í Lána- sjóði íslenskra námsmanna. Ólafur G. Einarsson menntamálaráð- herra mun hafa lagt að Lárusi að taka að sér formennskuna og vinna að þeirri uppstokkun sem stjórnarflokkarnir stefna að hjá sjóðnum. Einnig hefur heyrst að Halldór Blöndal samgönguráð- herra hafi óskað eftir því við Lárus, að hann kæmi sér til aðstoðar í sam- gönguráðuneytinu ... ■inn er ekki ákveðið hver verður aðstoðarmaður Friðriks Sophus- sonar fjármálaráðherra, en Páll Kr. Pálsson forstjóri Iðntæknistofnunar hefur verið orðaður sem pólitískur ráð- gjafi Friðriks ... /a<?° l»ú færð hvergi jafn öfluga tölvu fyrir eins GÖTTVERÐ! Acrotech 286AT 20MHz kostar kr. 117.800 Acrotech 386SX 16MHz kostar kr. 139.614 InnifaliÖ í verði: VSK, Super VGA litaskjár, 1 Mb innra minni, 40 Mb harður diskur og MS-DOS 4.01. Ótrúlegt verð fyrir óviðjafnanlega tölvu. Opið laugardag frá kl. 10:00 til 16:00. — BALTI hf. r: 1 ■ — ÁRMÚLA 1 SÍMI (91) 8 25 55 SÍMI (91)812555 Verðsamanburður hefur sannfært tölvunotendur um að erfitt er að gera betri kaup en einmitt í Acrotech tölvunum, þar sem saman fara gæði, góð vinnslugeta og makalaust verð. Rað er einnig alkunna að nýja 20MHz Acrotech 286AT er hraðvirkasta AT tölvan á markaðinum. Ress vegna kunna tölvunotendur að meta Acrotech tölvurnar. Nú átt þú auðvelt með að bætast í hóp Acrotech eigenda, því verðið er hreint með ólíkindum. i

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.