Pressan - 16.05.1991, Blaðsíða 9

Pressan - 16.05.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRBSSAN 16. MAÍ 1991 9 Að Austurmörk 2 í HveragerAi eiga sjálfseignarstofnanir Gísla 169 fer- metra af verálunar- og iðnaðarhúsi. Buick Stillark 1985, önnur bifreiða í eigu Grundar, fyrir utan hús forstjór- ans að Hverahlíð 4 í Hveragerði. og Áss eru því afar takmarkaðar. Svo sem fyrr hefur komið fram er engra upplýsinga að vænta frá að- standendum Grundar og Áss um „líknarsjóðinn" eða umfangsmikil fasteignakaup þessara sjálfseignar- stofnana. Ársreikningar með upp- lýsingum um eignir, skuldir, tekjur og gjöld liggja ekki á lausu. Sjálfs- eignarstofnanir „eiga sig sjálfar" og bera engar tilkynningarskyldur til Hlutafélagaskrár, firmaskráa fógeta eða til hins opinbera yfirleitt. Þó er ljóst að stofnanir þessar eru meðal eignamestu lögaðila landsins, með eignir sem að líkindum liggja á bil- inu 600 til 700 milljónir króna. Nokkrar af fasteignum Grundar og Áss í Hveragerði og Reykjavík. Við Brávallagötu í Reykjavík er Grund skréður eigandi fast- eigna númer 30,40,42, 44 og 50. Dætur Gísla, Guðrún og Helga, eru skráðar til heimiiis í húsunum númer 40 (vinstri) og 44 (hægri). að grípa til samþykktar forkaups- réttar á fasteignum bæjarins og hægði þá mjög á f járfestingum Gísla í bænum. Samþykkt bæjarfélagsins var ekki síst rakin til fjárfestinga Gisla á Grund. Það verður af umtals- verðum tekjum vegna skattfríðinda þessara stofnana. Þær greiða ekkert útsvar og aðstöðugjöld og takmörk- uð fasteignagjöld. Ef einungis er lit- ið til íbúðanna 48 má áætla að bæj- arfélagið verði af fasteignagjöldum upp á 2 til 3 milljónir króna á ári vegna þeirra. Stofnanirnar hafa á hinn bóginn komið til móts við Hveragerðisbæ með gjöfum. Þannig styrkti Ás ný- lega kaup á slökkviliðsbíl og sl. haust gaf stofnunin bænum rafstöð. Ekki er því peningaskprti fyrir að fara og þau gjöld sem Ás og Grund eiga á annað borð að greiða eru allt- af greidd á réttum tíma. NÆR 500 VISTMENN - AFAR LÁG DAGGJÖLD Á Grund í Reykjavík og Ási i Hveragerði eru rými fyrir tæplega 500 vistmenn. Stofnanirnar eru (ath 1987) reknar á daggjaldakerfinu. Mat daggjaldanefndar fyrir þessar stofnanir hefur alltaf verið lágt og þó hafa þær aldrei sótt um svoköll- uð halladaggjöld. Daggjöldin eru/voru 33%—60% af því sem gekk og gerðist hjá Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði og svo SÁÁ. I heild voru daggjöldin hjá Grund/Ási um 400 milljónir árin um 1987 og þótti viðmælendum á þeim tíma furðulegt að Gísli gæti rekið stofnanirnar fyrir svo lítinn pening — hvað þá að eiga síðan pening til að standa í umfangsmiklum fjárfest- ingum. Þó var Gísli á þeim tíma með um 30 prósent af öllu rými fyrir aldraða. Á síðasta ári greiddi Trygginga- stofnun ríkisins Grund 210,6 millj- ónir vegna langlegusjúklinga ein- göngu og Ás fékk 67,6 milljónir. Tii samanburðar fékk Hrafnista í Reykjavík 334,8 milljónir vegna langlegusjúklinga og Hrafnista í Hafnarfirði 296,6 milljónir króna. EKKERT EFTIRLIT - SKATTGREIÐSLUR TAKMARKAÐAR Sjálfseignarstofnanir eins og Grund og Ás falla ekki undir opin- bert eftirlit. Flest allir svokallaðir styrktar- og minningarsjóðir þurfa staðfestingar við og lenda þá á sjóðaskrá, en þar er Styrktarsjóð líknar- og mannúðarmála ekki að finna, heldur er um einkasjóð Grundar að ræða. í sjóðaskrá er hins vegar að finna Líknarsjóð íslands, sem ekki deilir út fé, en á 3 milljóna króna eignir á bók í Búnaðarbanka. Sjálfseignarstofnanir sem starfa á vettvangi sjúkramála fá sérmeðferð hvað skatta varðar. Nánar tiltekið eru Grund og Ás undanþegin tekju- og eignaskatti hvað ríkið varðar og útsvari hvað sveitarfélög varðar. Einnig er afar takmarkað hvað þess- ar stofnanir greiða af fasteignagjöld- um og ekki greiða þær aðstöðu- gjöld. Skattgreiðslur af umfangs- miklum rekstri og eignum Grundar Rekstur Gísla Sigurbjörnssonar á elliheimilunum Grund og Ási hefur hlaðið upp 600 milljón króna eignaveldi á undan- förnum áratugum. Eignirnar eru á nafni sjálfseignar- stofnunar, sem er skattfijáls og eftir- litslaus stofnun. Þrátt fyrir það nota Gísli og fjölskylda eignir hennar til eigin nota. Gísli og íjölskylda hans neita að gefa upp- lýsingar um hvern- ig þetta eignaveldi hefur hlaðist upp, en líkast til er hér kominn uppsafn- aður hagnaður af því að reka sjálf- stæða stofnun á daggjöldum frá ríkinu. ^Eins og fram hefur komið ætia framsóknarmenn að fara að for- dæmi stjórnarmálaflokkanna í Bret- landi og úthluta nokkrum þing- mönnum sínum ímynduðum ráð- herrastólum í svo- kölluðum skugga- ráðuneytum. Ef marka má úthlutun framsóknarmanna á ráðherrastól- um þá er Steingrímur Hermanns- son formaður flokksins hættur við að hætta í pólitík nema það hafi aldrei staðið til. Að minnsta kosti hefur verið haft eftir Páli Péturs- syni formanni þingflokksins að Steingrímur verði talsmaður flokks- ins í utanríkismálum og efnahags- málum ... V, araformaður Framsóknar- flokksins, Halldór Ásgrímsson fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, verður áfram tals- maður flokksins í sjávarútvegsmálum, en auk þess verður hann fulltrúi flokks- ins í fjárhags- og við- skiptanefnd og þar með sérstakur tals- maður fiokksins í skattamálum ... u ■ wMeira um skuggaráðuneyti Framsóknarflokksins. Guðmundur Bjarnason fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra verður aðal talsmaður flokksins í fjármálum ríkisins, að skattamálunum undanskildum. Og Jón Helgason frá Seglbúðum, fyrr- verandi landbúnaðaráðherra, verð- ur sem fyrr talsmaður flokksins í landbúnaðarmálum. Póll Péturs- son verður hins vegar áfram for- maður þingflokks og því ekki með neinn sérstakan ráðherrastól í skuggaráðuneytinu, nema ef vera skyldi stól samstarfsráðherra Norð- urlanda... að hefur gustað um nýja Þjóð- ieikhússtjórann Stefán Baldurs- son, þótt ekki hafi hann ennþá tek- ið formlega við stöð- unni. Brottrekstur nokkurra leikara og leikstjóra hefur vak- ið reiði marga vina viðkomandi. Ekki eru þó allir ósáttir við aðgerðir Stefáns. Fjórða deild leikara, sem eru laus- ráðnir leikarar, hafa skrifað honum bréf, þar sem þeir lýsa yfir stuðningi sínum við hann. Meðal þeirra sem skrifa undir bréfið eru Pálmi Gestsson og Jóhann Sigurðar- son... l PRESSUNNI í síðustu viku sagði að Þröstur Ólafsson yrði aðstoðar- maður Jóns Baldvins Hannibals- sonar utanríkisráð- herra, en Þröstur hefur sinnt sérverk- efnum fyrir ráðherr- ann síðustu mánuði. Þetta mun hins veg- ar ekki vera frá- gengið og er Birg- ir Dýrfjörð því enn aðstoðarmaður og mun jafnvel verða það áfram ...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.