Pressan - 16.05.1991, Blaðsíða 16
16,
FIMMTUDAGUR PRESSAN 16. MAI 1991
Madur verdur
að framkvæma
ádur en madur
fellur á tíma
— segir útvarpsmadurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson í
viötali um fjölmiöla, köttinn Tomma, knattspyrnufer-
ilinn og allt það sem gerst hefur í þessu lífi.
Hann er þegar buinn að
koma gér fyrir á Borginni
þegar blaðamaður birtist.
Hann er einn í salnum og
akýringuna á því má sjálf-
sagt finna í því tónaflóði
sem berst úr danssalnum.
Ég sest og við leggjmw báð-
ir við hlustir. Við erutn
fljótir að komast að niður-
stöðu — förum á annað
kaffihús.
Þorsteinn J. Vilhjálms-
son útvarpsmaður var að
ljúka síðasta laugardags-
þætti sínum af þessu lífi.
Það liggur beint við að
spyrja hann hvort það sé
líf eftir þetta líf?
„Jú vissulega — þetta er
bara spurning um ...“
— Ekki tala eins og stjórn-
málamadur.
„Allt í lagi. Jú vissulega,
mér finnst lífið gott eins og
Steinn Steinarr sagði ein-
hvern tímann. Það er svo
margt sem maður er að gera
að það er yfrið nóg af verk-
efnum."
— Kemur þátturinn aftur á
dagskrá?
„Ég veit það ekki. Það
verður bara að ráðast. Ég er
lítið fyrir að skipuleggja hlut-
ina. Eg verð að vinna á Dæg-
urmálaútvarpinu í sumar og
svo verður þetta bara að
koma í ljós.“
— Talandi um Dœgurmála-
útvarpiö — þid eru vodalega
ánœgd med ykkur þar?
„Við eða hlustendur?"
— Ja, bœöi og, aöallega
þiö.
„Ég veit ekki alveg hvað þú
átt við. Markmiðið er að taka
hlutina af fullum krafti. Það
ber að hafa í huga að við er-
um ekki fréttastofa heldur
bland í poka af „human inter-
est“ og fréttaefni — stjórnmál
og mannlíf — og við getum
þar af leiðandi leyft okkur
miklu meira heldur en venju-
leg fréttastofa. Við erum ein-
faldlega að reyna að búa til
gott útvarp. Það hefur ekkert
með sjálfsánægju að gera."
— Stefán Jón — er hann
þessi einrœöisherra sem
hann segir stundum sjálfur
aö hann sé?
„Stefán Jón er besti stjórn-
andi sem ég hef unnið hjá.
Hjá honum er markmiðið
það að koma því besta sem
þú hefur í útvarpið, gera alltaf
eins vel og hægt er og helst
betur. Hann er fyrst og fremst
mikill keppnismaður. Það
kann ég vel við. Þegar maður
er að undirbúa þátt sættir
maður sig ekki við neitt
nema besta efni sem völ er á.“
— Fá menn aö gera þaö
sem þeim dettur í hug?
„í Dægurmálaútvarpinu
meinar þú — já, en það er alit
rætt á fundum. Hugmyndir
sem eru ekki nógu góðar eru
bara skotnar í kaf þannig að
stundum jaðrar við handa-
lögmálum. Það er bara gott
mál.“
SVITNA EKKI YFIR ÞVÍ
HVORT RÁS 2
VERÐUR SELD
— Eg ákveö aö slá á sjálfs-
ánœgju ríksstarfsmannsins:
En hvernig er þaö, má ekki
bara selja Rás 2?
„Menn verða fyrst að gera
upp við sig hvað þeir vilja
selja. Rás 2 er dreifikerfi vers-
us starfsliðið."
— En nú eru fyrirtœki oft
seld og starfsfólkiö fylgir þá
meö ef þaö vill eöa hœttir?
„Við erum að tala um fleiri
hundruð milljónir þarna."
— Stórir og fjölmennir
vinnustaöir hafa nú veriö
seldir áöur.
„Jú, jú, en hvort Rás 2 verð-
ur seld eða ekki fæ ég bara
engu um ráðið. Þetta er
spurning um pólitík. Ég ligg
að minnsta kosti ekki heima
og svitna yfir því hvort Rás 2
verður seld eða ekki — engan
veginn."
Viö stoppum í smástund og
gagnrýnum stjórnmál og
misvitra stjórnmálamenn. —
Erum alveg hrϚilega sam-
mála þar. — Og allt í einu er-
um viö farnir aö tala um út-
varpsráö.
— Já, segöu eitthvaö Ijótt
um útvarpsráö.
„Æi, nei. Útvarpsráð er svo
undarlegt að ég get helst ekki
talað um það. Ráðið hefur svo
sem ekkert verið að angra
mig en margar af ályktunum
og ákvörðunum þess eru ægi-
lega einkennilegar. En það er
alveg undursamlegt að lesa
fundargerðir þess.“
VANDRÆÐAGANGURINN
Á BYLGJUNNI
— Bylgjudagar þínir —
segöu mér eitthvaö um þá?
„Já, ég veit ekki hverju
þetta frjálsræði í fjölmiðlum
hefur skilað. Ég varð fyrir
miklum vonbrigðum með
það. Miðað við markmið og
hugsjónir sem loguðu í brjóst-
um þeirra sem byrjuðu á
Bylgjunni þá varð lítið úr
því •
— Eg gríp frammí og spyr:
Eiga fjölmiölamenn aö vera
hugsjónamenn?
„Annað er ekki hægt. Það
verður að vera í þessu af öllu
hjarta."
— Er þaö ekki bara eins og
flestum öörum störfum?
„Jú kannski. En ég er í
þessu af því ég held að ég haf i
eitthvað að segja. Það er auð-
vitað hugsjón út af fyrir sig.“
—■ Fjölmiölafólk er nú allt-
af dálítiö gott meö sig?
„Það er misjafnt. Sumir eru
kannski í þessu til þess að
vera aðalnúmerið í ferming-
arveislum. Ég hef svo sem
enga skoðun á því. Ég geri að
minnsta kosti lítið af því að
praktisera sjálfsánægju."
— Þegar þú varst á Bylgj-
unni — var lítiö um hugsjónir
þar?
„Nei alls ekki. Það var hús-
fyllir af hugsjónum þar —
allavega framan af. Vand-
ræðagangurinn á Bylgjunni
birtist í því að stjórnuninni
þar er ábótavant. Menn hafa
ekki gert upp við sig hvers-
konar útvarpsstöð þeir vilja
reka þar. Ég sat í nefnd með
Stefáni Jökulssyni, Jóni Gúst-
afssyni og einhverjum fleir-
um tveimur árum eftir að
Bylgjan byrjaði. Ég var ein-
mitt að fletta í gegnum tillög-
ur okkar um daginn og þær
hafa örugglega ekki verið
lesnar af neinum sem ræður
á Bylgjunni."
— Eru semsagt ennþá
vandamál á Bylgjunni?
„Tvímælalaust. Af hverju
væri fólk annars að hringja
frá Bylgjunni upp á Rás 2 og
biðja um vinnu? Það segir
manni að það sé eitthvað að.
En ég er enn sömu skoðunar
og þegar ég byrjaði á Bylgj-
unni — hún hefur alla mögu-
leika til að verða góð útvarps-
stöð. En það þarf þá að vinna
rétt að hlutunum."
KÖTTURINN TOMMI
OG HIN HARÐA
FRÉTTAMENNSKA
— Snúum okkur aö ööru
— þú vannst einu sinni á DV
og einhverra hluta vegna
kemur kötturinn Tommi upp
í hugann.
„Já, Tommi fullvissaði mig
um að hin harða frétta-
mennska á ekki við mig. Ég
er miklu spenntari fyrir smáu
hlutunum, sem eru alveg á
mörkum þess að vera frétt. —
Eins og með köttinn Tomma.
Það varð úr þessu hið allra
skemmtilegasta mál. Þetta
stóð í margar vikur. Við fór-
um og mynduðum Tomma og
kettlingana hans og ég bjó til
mikinn félagslegan pakka um
vandræði Tomma sem lét
ekki læðurnar í vesturbæn-
um í friði. Þetta var auðvitað
skrítin frétt og skrítin frétta-
mennska — ég verð fyrsti
maður til að viðurkenna
það.“
— Hvernig var aö koma til
vinnu á morgnana og velta
fyrir sér: Hvaö gerum viö viö
Tomma í dag?
„í einu orði sagt var það
stórskemmtilegt."
— En hvaö varö um
Tomma?
„Mig dreymdi hann einu
sinni en að öðru leyti hef ég
ekkert haft af honum að
segja. Ég ætti kannski að leita
hann uppi. Það gæti orðið
gott efni í Dægurmálaútvarp-
inu.“
SÉ EKKERT EFTIR
FÓTBOLTANUM
— En hvaö meö knatt-
spyrnumanninn Þorstein J.
Vilhjálmsson? Ættir þú ekki
aö vera á leiöinni í atvinnu-
mennskuna?
„Ég skal segja þér eins og
er, að ég er ekki nema rétt
sæmilegur fótboltamaður. Ég
held að minn frami hefði
aldrei orðið meiri en hann þó
varð. Mitt happ var að vera í
góðu liði.“
— Þú ert þá búinn aö sœtta
þig viö þaö í dag?
„Já, ég hætti bara að spila
fótbolta si svona og mér
fannst það allt í lagi.“
— Þú ert þá ekki einn af
þeim sem vœlir á fylleríum
um þaö sem þú heföir getaö
oröiö í knattspyrnunni?
„Nei, nei, ég stend eftir
með þetta um 50 leiki fyrir
Fram og eitt, tvö sjálfsmörk.
Já, ojg einn unglingalands-
leik. Eg er bara ánægður með
það. En í alvöru. Ég spilaði
Evrópuleik, bikarúrslitaleik,
varð íslandsmeistari, bikar-
meistari og Reykjavíkur-
meistari, ég veit ekki hvað
oft. Ég var búinn að vinna allt
og búinn að fá það út úr þessu
sem mig langaði til. Mig lang-
aði frekar að snúa mér að því
að vinna í einhverju öðru og
ná árangri þar heldur en að
vera hálfur í fótboltanum og
hálfur í einhverju öðru. Ég sé
ekkert eftir fótboltanum —
þetta var gaman á meðan á
því stóð. Svo gerir maður eitt-
hvað annað."
AF MJÚKUM MÖNNUM
— Mig hefur alltaf langaö
til aö koma meö svona spurn-
ingu: Ertu mjúkur maöur
Þorsteinn?
„Ég segi eins og stjórn-
málamaður: Ég skil ekki
spurninguna."
Viötaliö tekur nú stuttan
krók og viö rœöum um
skemmtanalíf í þessu lífi og
markmiö og leiöir þar. Þor-
steinn fœr þó aö heyra aö
hann sleppi ekki viö aö svara
spurningunni.
„Ég eiginlega veit það
ekki. Ég held að ég sé bara
nettmjúkur en ég hef aldrei
velt því sérstaklega fyrir mér.
Þetta er spurning held ég, um
að koma fram við fólk af
ákveðinni virðingu — hvort
sem það er konan manns,
barnið eða einhver annar. Ég
geri bara mitt besta.
Þetta er svipað og með lífið
sjálft. Maður verður að gera
sitt besta og framkvæma þá
hluti sem maður vill gera, á
meðan það er tími til, ekki
sitja of lengi og spá í hlutina.
Ég segi fyrir mig; ég verð að
framkvæma hlutina áður en
ég fell á tíma."
Sigurður Már Jónsson
•i' ....