Pressan - 28.01.1993, Side 12

Pressan - 28.01.1993, Side 12
12 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993 PRESSAN Útgefandi Ritstjóri Ritstjórnarfulltrúi Blað hf. GunnarSmári Egilsson SigurðurMár Jónsson Hvers vegna ekki einstaka lög um réttarbætur innan um efnahagsaðgerðirnar? í PRESSUNNI er í dag fjallað ítarlega um innheimtu miskabóta sem fórnarlömbum nauðgara hafa verið dæmdar. Þar kemur fram að fátítt er að þessar bætur innheimtist. Einnig kemur ffam að lögmenn telja innheimtu slíkra bóta nánast dauðadæmt mál, enda sýni reynslan að afbrotamenn- irnir eru í fæstum tilfellum borgunarmenn fyrir þeim. Þeir benda einnig á að 150 þúsund króna tryggingargjald, sem sá sem krefst gjaldþrotaskipta þarf að reiða fram, komi í raun í veg fyrir að hægt sé að ganga að þessum mönnum af ein- hverri hörku. I tillögum sem svokölluð nauðgunarnefnd skilaði af sér árið 1989 segir um bótagreiðslur: „Nauðsynlegt er að mati nefndarinnar að tryggja það með einhverjum hætti, að brotaþoli/kona fái þær bætur, sem dómstólar dæma henni. Sársaukaminnsta aðferðin fyrir brotaþola er sú, að ríkið taki á sig að greiða slíkar bætur og endurkrefja síðan dómþola. Sanngjarnt hlýtur að teljast, að rfkið taki á sig þetta auka ómak og jafnframt áhættuna, ef svo skyldi fara, að dómþoli reyndist ekki borgunarmaður fyrir bótunum.“ Þessi tillaga nauðgunarnefndarinnar hefur legið í salti síð- an 1989, eins og aðrar tillögur hennar til réttarbóta fyrir fórnarlömb nauðgana. í umfjöllun PRESSUNNAR í dag kemur fram að engar ráðagerðir eru uppi í dómsmálaráðu- neytinu um að hrinda þeim í framkvæmd. IPRESSUNNI í dag er einnig greint frá því að um 30 konur hafa leitað á náðir kvennaathvarfsins vegna ofsókna manna sem leggja þær í einelti, beita þær ofbeldi, njósna um þær og hóta þeim. Þessi mál eru ákaflega erfið viðureignar þar sem erfitt getur reynst að sanna athæfi mannanna. í grein PRESSUNNAR er bent á að svokallað nálgunar- bann gæti komið þessum konum til hjálpar. Það felst í því að þeim sem grunaður er um að ofsækja konu er bannað að nálgast hana. Það eru nokkur ár síðan kröfúr komu upp um að stjórnvöld settu lög um slíkt nálgunarbann. Af því hefur ekki orðið enn. Sem kunnugt er hafa alþingismenn og ríkisstjórn verið upptekin af því að deila um fjárlög og setja lög um efnahags- aðgerðir marga undanfarna áratugi. Það er í sjálfú sér góðra gjalda vert þótt fáir leggi enn trúnað á að þessum aðilum takist að bæta afkomu almennings eða fýrirtækja með þess- um aðgerðum sínum. En það er ekki ranglát krafa að Al- þingi og ríkisstjórn beiti sér jafnframt fyrir réttarfarsbótum sem öllum almenningi þykir sjálfsagt mál. Ef miðað er við tímann sem þingmenn hafa hingað til eytt í umræður um slík mál ætti það ekki að taka langan tíma. Því miður er það svo að smæstu málin taka yfirleitt mestan tíma frá þingmönnum en þeir eyða minna púðri í mál sem sannarlega gætu bætt hag fólks og aðstöðu. Það er því tillaga PRESSUNNAR að ríkisstjórnin beiti sér fýrir lagasetningu sem gæti bætt hag fórnarlamba nauðgara og hugsanlega gert líf þeirra kvenna sem búa við ofsóknir bærilegt. Þótt ráðherrarnir geti ekki látið eins og þeir séu að bjarga efnahagslífinu, þjóðarskútunni eða jafnvel heiminum með shkum lagasetningum þá hefðu þær hugsanlega raun- verulegri áhrif á líf þessara kvenna en margt af því sem þeir hafa eytt tíma sínum í að undanförnu. Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14-16, sími 64 30 80 Faxnúmen Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90,auglýsingar643076 Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 64 30 85, dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87. Áskriftargjald 700 kr. á mánuðiefgreittermeöVISA/EURO/SAMKORT en750kr.á mánuöi annars. PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu BLAÐAMENN: Bergljót Friðriksdóttir, Friðrik Þór Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuður, Jónas Sigurgeirsson, Jim Smart Ijósmyndari, Karl Th. Birgisson, Sigrfður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L Tómasson. PENNAR: Stjórnmál og viðskipti; Árni Páll Árnason, Guðrnundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Jeane Kirkpatrick, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Össur Skarphéðinsson. Listir; Gunnar Ámason myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Hrafn Jökulsson, Jón Hallur Stefánsson og Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Lárus Ýmir Óskarsson leiklist. Teikningar; Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Ámason. Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI Mér skilst að það sé núna ein helsta skemmtun óbreyttra í Al- þýðuflokknum að óska leiðtogum sínum til hamingju... með gengi bróðurflokksins í Danmörku. Viðbrögð þingmanna og ráðherra eru víst misdapurleg, en mesta sportið á að vera að hrósa Poul Nyrup Rasmussen og félögum uppí hástert og horfa á meðan fast í augun á Jóni Sigurðssyni og bíða eftir skylduræknu samsinni frá þjóðhagsstjóranum sem Jón Bald- vin gerði að viðskiptaráðherra jafnaðarmanna. Það er svo eitt af táknum tím- anna að Poul Nyrup Rasmussen sem nú hefur myndað ríkisstjórn gegn íhaldinu í Danmörku, — hann var spurður um það af blaðamönnum hvort efnahags- pólitík hans væri ekki ættuð beina leið frá Clinton þeim sem um dag- inn tók við í Hvita húsinu. Bæði danski kratinn og sax- ófónforsetinn bandaríski hafa hafnað þeim kennisetningum í efnahagsmálum og almennri pól- itík sem settu öðru fremur svip á síðasta áratug, og Alþýðuflokkur- inn með öll sín tilbrigði af Jóni Sigurðssyni stendur uppi með pólitík sem nú er orðin gamaldags vestanhafs og austan, — ekki bara púkó heldur líka gagnslaus. Að því leyti sem forysta Al- þýðuflokksins var yfirhöfuð eitt- hvað að meina með núverandi stjómarsamstarfi þá var meining- in sú að ráðast að ýmsum arfgeng- um sjúkdómum í íslensku samfé- lagi, dellumakeríi og sukki, með því að brjóta niður þann þátt þess sem þeim hefur virst bæði ískyggilegastur og árennilegastur, nefnilega ríkisvaldið og ítök þess. Og á það fallast flestir að á fslandi hafi hið opinbera — res publica — verið ofnotað og misnotað, — sérhagsmunaöfl og pólitíkusar satt að segja hrakið rem publicam islandicam, barið og svelt hvað eftir annað, og auðvitað einkum þær yfirstéttarmafíur sem telja sig hafa hina eilífu prókúru fyrir þennan vesalings aumingja. Ráðagerð Alþýðuflokksins með því að taka saman við Sjálfstæðis- flokkinn — sem Jón Baldvin kenndi einmitt við mexíkanskan bófaflokk í upphafi samstarfs — var að búa til einskonar bandalag hrekkjusvínanna, og bæta úr göll- um hins opinbera á Islandi með því að minnka það einsog verða mætti, koma verkefnum þess burt, setja ábyrgð þess á markað- inn, brjóta niður tiltrú sem það hefur notið. Svona svipað og að bregðast við viðkvæmu vand- ræðabami með því að leggja það í einelti. Fyrirmynd Alþýðufloklcsforyst- unnar er auðfundin á áratugnum sem var, sú hugmyndafræði í enskumælandi ríkjum báðumegin Atlantshafs sem nú er að hníga til viðar og gerir ráð fyrir því að res publica sé alstaðar til óþurftar. En kannski hafa þeir meðvitað og ómeðvitað horft eftir fyrirmynd- um í Austur- Evrópu. Þar hafa menn nýverið lagt af misheppnað ríkismódel sem gerði ráð fyrir einskonar alríki sem allt átti að annast og var í upphafi sínu afurð bjartsýnnar tæknihyggju 19. ald- armanna en snerist í martröð á hinni 20. Og víðast í Austur-Evr- ópu, einna skýrast í Póllandi og Tékkó, hafa stjórnendur brugðið á einmitt það ráð að brjóta fullkom- lega niður gamla apparatið og taka stefnuna 180 gráður á amer- íska drauminn um ríkið sem eins- konar hóldinkompaní utanum þjóðfána og Iögreglustöð. Einhvernveginn hefur íslenska Alþýðuflokknum gleymst það í hamagangnum að íslenska ríkis- gerðin hefur þrátt fyrir allt verið af þriðju gerðinni við hliðina á al- ríkinu og ó-ríkinu, nefnilega sam- rtkið, sem einmitt vestræn jafnað- arstefna hefur fyrr og síðar átt mestan þátt í að byggja. Hér hefur aldrei verið kommúnismi, annar en sá mannlegi frumkommún- ismi sem hófst með hreppakerf- inu í Grágás og enn stendur með blóma í ýmissi samhjálp utankerf- is og innan, og rennur fagurlega samanvið hugmyndir jafnaðar- manna um velferðarsamfélag. Efst á dagskrá jafnaðarmanna „Hér hefur aldrei verið kommúnismi, annar en sá mann- legi frumkommún- ismi sem hófst með hreppakerfinu í Grá- gás og rennurfagur- lega samanvið hug- myndir jafnaðar- manna.“ og framfarasinna á núna að vera að endurbæta þessa skástu hug- mynd um gangvirki hins opin- bera, og ekki að Ieggja ríkið í rúst með sighvösku brauki og bramli. Það er þetta sem nýir stefnukúrsar hjá Clinton og hjá Rasmussen ganga út á, bæði í velferðarmálum og efhahagsmálum, og það er at- hyglisvert að hvorugur þeirra hef- ur sérstaka trú á aðstoð íhalds- flokka við þetta verkefhi. Forystumenn krata kunna að láta blekkjast af könnunum sem sýna að Alþýðuflokkurinn hagn- ast í svip á fylgisflótta frá Sjálf- stæðisflokknum. Og þeir sem enn eru með fullu pólitísku viti í Al- þýðuflokknum kunna að halda í vonina um að mannabreytingar á miðju ári, þær sem tilkynning Jó- hannesar Nordals boðar, kunni að bæta ásýnd ríkisstjórnarinnar og möguleika flokksins. Getur meira að segja verið að flokknum takist að sparka sjálfum Jóni Sigurðssyni uppávið. En með vitlaust forrit í kollin- um komast menn til lengdar ekk- ert annað en í strand. Höfundut et islenskufræðingut. FJÖLMIÐLAR Hvers vegna þaga aðrirfjölmiðlar um Mikson-málið? fm li m0 I M í ad úpíft*ÍKtjpti Eins og margsinnis hefur verið bent á ÍPRESSUNNI er ekki hœgt að líta á Miksoti-málið sem einkamál gamals manns. í raun gildir einu hversu gam- all hann er, hversu vel okkur er við börnin hans eða hvort hann var lyftistöngfyrir íslenskan körfubolta. Þetta mál jjallar um íslensk stjórnvöld og með hvaða hœtti þau hafa brugðist við stríðsglæpamönn- um ogfórnarlömbum þeirra; bœði í dag og einsfyrir hálfri öld. “ Það er margt sem ég skil ekki — og eitt af því tengist Mikson- málinu. Frá því ég man eftir mér hafa íslenskir fjölmiðlar verið ötulir við að færa heim fféttir erlendra blaða um ísland og íslensk mál- efni. Stundum er nóg að hag- ffæðiritið The Economist geti Is- lands í framhjáhlaupi í saman- burði sínum á skuldastöðu ríkja, verðbólgu eða tekjum. Einnig ef eittlivert austurrískt blað minnist á Kristján Jóhannsson. Eða ef einhver útlendur fjölmiðill minn- ist á Island í sambandi við ál eða ef breskur blaðamaður fer á fyll- erí í miðbæ Reykjavíkur og skrif- arumþaðgrein. Allt er þetta gott og blessað og í raun ómissandi. Minnimáttar- kenndin ristir svo djúpt í þjóðar- sál okkar fslendinga að við erum ffiðlausir ef við heyrum ekki um álit útlendinga á okkur. Við vilj- um vita hvernig við komum al- menningi í öðrum löndum fyrir sjónir. Það yljar okkur ef ein- hverjum þykir Geysir fallegur hver eða Kristján Jóhannsson eða Björk Guðmundsdóttir hafa góða rödd. Eins hryggir það okkur ef útlendingar bera það út að við kunnum ekki að fara með vín eða að við kunnum hvorki á vest- ræna hagffæði né höfum skilning á grundvallarmannréttindum. Fréttir af fréttum útlendra fjöl- miðla af íslandi og íslendingum eru því ekki aðeins skemmtilegar. Þær eru okkur lífsnauðsyn. Þess vegna skil ég ekki hvers vegna PRESSAN er eini íslenski fjölmiðillinn sem hefur fyrir því að færa heim fréttir frá fsrael, Danmörku og Eistlandi af Mik- son-málinu. Ef til vill eru aðrir fjölmiðlar búnir að svipta Mikson íslenska ríkisborgararéttinum og telja því fréttir af málum hans ekki eiga neitt erindi hingað upp. Það er þó ekki fullgild ástæða, því fréttir í þessum löndum snúast að stóru leyti um samvisku ís- lensku þjóðarinnar. Inn í þær hafa blandast ljótar sögur af með- ferð íslenskra stjómvalda á land- flótta gyðingum fyrir síðasta stríð. Einnig hafa núverandi stjórnvöld verið harðlega gagn- rýnd fyrir ffamgang sinn í Mik- son-málinu. Eins og margsinnis hefur verið bent á í PRESSUNNI er því ekki hægt að líta á Mikson-málið sem einkamál gamals manns. í raun gildir einu hversu gamall hann er, hversu vel okkur er við börnin hans eða hvort hann var lyfti- stöng fyrir íslenskan körfubolta. Þetta mál fjallar um íslensk stjórnvöld og með hvaða hætti þau hafa brugðist við stríðs- glæpamönnum og fórnarlömb- um þeirra; bæði í dag og eins fyr- ir hálffi öld. Mér er þess vegna ómögulegt að skilja hvers vegna aðrir fjöl- miðlar hafa kosið að taka á þessu máli eins og það sé tuð í einhverj- um sérvitringi úti í heimi. Hugs- anlega er það vegna tepruskapar; að þeir veigri sér við að fjalla um mál sem einhverjum kunna að vera óþægileg. Hugsanlega er það vegna misskilins þjóðemisremb- ings; að útlendingar eigi ekki að vera að skipta sér af þessu ffekar en hvalveiðum. En það skiptir engu hversu mikið maður veltir þessu fyrir sér. Það verður á eng- an hátt skiljanlegra. Gunnar Smári Egilsson

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.