Pressan - 28.01.1993, Blaðsíða 27

Pressan - 28.01.1993, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. JANÚAR 1993 B f Ó 27 POPP VEITINGAHÚS B A R I R ÚR SVEIFLU I ROKKSVEIFLU Júpíters heíja sig til flugs Það hefur bæði lítið heyrst og frést af stórsveitinni Júpíters að undanförnu, utan þess er hún sletti ærlega úr klaufunum á ára- mótadansleik í Tunglinu. Þar sýndu þeir félagar og sönnuðu að hljómsveitin er síður en svo dauð úr öllum æðum. „Við tókum okk- ur eins og hálfs mánaðar pásu í haust en höfum æft allt að þrisvar í viku frá í desember. Um helgina byrjum við svo að spila á fullu og verðum líklega að langt frameffir sumri,“ segir Jón skuggi, bassa- leikari Júpíters, sem spila á Hressó um helgina. Má merkja einhverjar breyt- ingar áykkur eftir pásuna? „Þetta verður byggt á sama kraftinum og áður, en við komum til með að vera örlitlu rokkaðri. Okkur finnst bara gaman að breyta til; spila fleira en sömbur.“ Segja má að hljómsveitin Júpít- ers hafi verið stofnuð af fjórum saxófónleikurum á AA-fundi fyrir nokkrum árum. Þeir uppþurrk- uðu bættu þó fljótlega við sig trompetleikara og fóru að spila í galleríum. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar, því fjölmargir liprir tónlistarmenn — ýmist tón- listar- eða sjálfmenntaðir — hafa bæst í hópinn. „Það má segja að núverandi mynd hafi komist á hljómsveitina fyrir tveimur árum. I dag er hún ýmist skipuð tólf eða fjórtán hljóðfæraleikurum frá 18 til 54 ára. Það eru mildl tengsl inn- an hljómsveitarinnar en engin blóðtengsl. Þetta er eins og einn stór ættbáfkur.“ Júpíters skipa nú þeir Halldór Lárusson trommuleikari, Sölvi Blöndal er nýr slagverksleikari með hljómsveitinni, Jón Skuggi spilar sem fyrr á bassann, gítar- leikarar eru þeir Steingrímur E. Guðmundsson og Kristinn Árna- son, á Hammondorgelinu er Hörður Bragason, Rúnar Gunn- arsson spilar á barítónsaxófón, Þorgeir Kjartansson á tenórsax- ófón og Eiríkur Stephensen á alt- saxófón, Einar Jónsson er básúnu- leikari og þeir Örn lubbi og Hjalti Jónsson blása í trompetinn, ekki þó þann sama. Á síðasta ári spilaði Sigtryggur sykurmoli með Júpíters en að sögn hefúr hann ekki borið sitt barr eftir að Bogomil Font yfirtók hann. Semma sumars kom út fyrsta plata Júpíters, sem þeir nefndu einfaldlega Tjatjatja. Hún vakti verðskuldaða athygli og varð að sönnu sveifla sumarsins. Er ný plata vœtanleg? „Já, fíklega, en það er allt á vinnslustigi ennþá. Við eigum efhi á að minnsta kosti tvær aðrar plöt- ur og getum því valið það besta úr. Ef hún kemur út verður það á þessu ári.“ Þegar er búið að bóka hljóm- sveitina á Tvo vini þann 20. febrú- ar, Púfsinn verður einnig sóttur heim sem og fjölmörg sveitasetur úti á landi. „Ég var úti að labba áðan. Það var komið vor í loftið. Ég er viss um að það er eitthvað að gerast. Við verðum örugglega áberandi á þessu ári.“ Þetta voru lokaorð Jóns Skugga. BARIR • Sú var tíðin að sérstakt orð fór af íslenskum stúdentum fyrir að vera ölkærir í meira lagi. I íslenzkri fyndni var þáttur stúdenta eigi lítiil og ávallt þegar þá og afrek þeirra bar á góma var Bakkus vinur með í för. (sjálfu sér er þetta ekkert séríslenskt fyrir- bæri. Um gervalla Evrópu hafa stúdentar haft á sér orð fyrir slark. Þannig á það vita- skuld að vera, gaudeamus ig- itur og það allt. Og um aldir gekk þetta eftir. í Skálholti drukku sveinar og biskup þusaði. I Latínuskólanum sat rektor ávallt á friðarstóli þar til hann fór að fetta fingur út í bindindi skólasveina eða öllu heldur vöntun á því. En hver er raunin í dag? Jújú, stúdent- ar drekka, en þeir fara bara voða fínt með það. Uppá- klæddir fara þeir á staði eins og Glaumbar og Casablanca, sem út af fyrir sig er ekki hægt að setja út á. Fram- kvæmd vínhneigðarinnar tengist veru þeirra í Háskól- anum bara ekki neitt og fyrir vikið er maður alveg hættur að heyra um dýónísosk afrek stúdenta. Það, sem hefur breyst, er að háskólanám er orðið svo algengt, að allt hjal um menntaelítu verður út í hött að nokkrum árum liðn- um. Þetta fólk verður ekki lengurflokkað sem stúdentar sérstaklega heldur bara sem fólk á þrítugsaldri. Hugtakið „stúdent" gefur bara til kynna dagvist í menntaskóla en ekki að viðkomandi til- heyri einhverri stétt. Nema náttúrulega þegar hin hrín- andi dekurbörn í HÍ grenja um sameiginleg hagsmuna- mál eins og alltof lág náms- lán og alltof fá bílastæði. Greinilegust er þessi upp- lausn menntastéttarinnar í þeim auma og yfirgefna bar Stúdentakjallaranum. Sá staður hefur allt við sig, sem ætti að tryggja blómstrandi drykkjuskap. Þar er ódýrasta áfengi í bænum (þó sortirnar séu sárafáar), hann er eins ná- lægt háskólanum og hugsast getur, hann er vel settur gagnvart samgöngum og er rekinn af blóma viðskipta- fræðinema þjóðarinnar. Samt er aðsóknin ekki meiri en i meðalgrafhýsi. Stúdentarnir koma einfaldlega ekki. Há- skólarektor og forystusauðir stúdenta geta sparað sér heitstrengingar um að þeir muni verja háskólasamfélag- iðfram í rauðan dauðann, því það er ekkert að verja. Drykkjumaður PRESSUNNAR kemur þeirri ábendingu hér með til forstöðumanna Stúd- entakjallarans að þeir breyti nafninu í „Fallistakjallarann" og rói fremur á þau fengsælu mið. ★ Miklu betri kaup í stáltunnubjór Mikil eftirspurn er í ríkinu eftir svokölluðum stáltunnubjór. Alls fást nú af honum sjö mismunandi tegundir sem eingöngu eru af- greiddar í áfengisversluninni á Stuðlahálsi 2. Bjórinn sem fæst í tunnunum er Löwenbráu, Viking bjór, Pripps, Egils gull og dökkur, Becks og Bitburger og fæst ýmist í nítján, þrjátíu eða fimmtíu lítra kútum. Dælurnar, sem þarf til að koma bjórnum upp úr kútunum og væntanlega ofan í bjórunnend- ur, verður hins vegar að nálgast hjá umboðsaðilum, sem eru Gos- an og Viking brugg fyrir Löwen- bráu og Viking-bjórinn, Vífilfell fyrir Pripps, Egill Skallagrímsson fyrir Egils-bjórinn, Bræðurnir Ormsson eru umboðsaðilar Becks og Þorsteinn Halldórsson hefur umboð fyrir Bitburger. Eftir- spurnin er orðin það mikil að þeir sem ætla til dæmis að hafa eins og eina eða fleiri slíkar tunnur í af- mælisboðinu verða að hafa nokk- urn fyrirvara á að næla sér í dælu — væntanlega dugir ein! Þá eru það einnig góð kaup að fá sér kút til einkaneyslu, hlutfalls- lega miklu betri kaup en í flöskum eða dósum. Eins og sjá má á list- anum kostar lítrinn, sem er á við þrjár bjórflöskur, frá 278 krónum upp í 405 krónur, sem samsvarar því að hver 33 cl bjórflaska kosti frá 92 krónum upp í 135 krónur. Ekkert þarf að borga fyrir leigu á kútum og dælum en þeim ber að skila aftur í áfengisverslunina eða til umboðsaðila. Tegundir Lítrar Verb Alk. innih. Verb pr. 1. Löwenbrau 30 10,990.- 5.0% 366,- Viking bjór 30 10,990.- 5,0% 366.- Pripps 30 8,340.- 4,4% 278.- Egils gull 19 6,870.- 5,0% 361, \ Egils dökkur 19 7,700.- 5,0% 405, \ Becks 50 17,700.- 5,0% 344, \ Bitburger 50 18,940.- 4,6% 379, Passenger 57 ★★ Wesley Snipes starir, spyrnir og sparkar sig í gegnum rullu hryðjuverkasérfræðings. Sum hasaratriðin eru góð. Lífvörðurinn The Bodyguard ★ Ef strákarnir gætu ekki horft á Whitney Houston og stelpurnar á Costner mundu sjálfsagt allir sofna. Þetta er ékki góð mynd. Aleinn heima 2 - Týndur í I New York Home Alone 2 ■ Lost in New York ★★★★ Frábær skemmtun. Paradise ★★ Hugljúf mynd með hjónakornunum Don og Melanie. Jólasaga Prúðuleikaranna The Muppet Christmas Carol ★★★ Fríða og dýrið The Beauty and the Beast ★★★ Lífvörðurinn The Bodyguard ★ Systragervi Sister Act ★★ Eilífðardrykkurinn Death Becomes Her ic-k Aleinn heima 2 - Týndur í I New York Home Alone 2 ■ Lost in New York ★★★★ Burknagil, síðasti regn- skógurinn ★★ H ASKOLABIO Raddir í myrkri Wispers in the Dark ★★ Sálfræðing grunar að hún deili elskhuga með sjúklingi sínum sem lýsir hálftrylltum kynlífsleikjum sínum og ástmannsins á bekknum hjá sála. Forboðin spor Strictly Ballroom ★★★ Góð skemmtun fyrir unglinga og þá sem enn hafa minnstu trú á sakleysislegri ást. Karlakórinn Hekla ★ Mynd eftir handriti sem hefði að ósekju mátt vera lengur í j vinnslu. Howard’s End ★★★★ Frá- bær mynd. Sigur fyrir leik- stjórann Ivory, handritshöf- undinn Jhabvala og framleið- andann Merchant. Dýragrafreiturinn 2 Pet Se- matary Two ★ Hryllingur. Hákon Hákonsen ★★ Boomerang ★ Svo á jörðu sem á himni ★ ★★ LAUGARÁSBÍÓ Krakkar í kuldanum Frosen Assets ®Ófyndin. Nemo litli ★★★ Ævintýri eins og þau gerast best í tölvuleikjunum. Eilífðardrykkurinn Death Becomes Hcr ★★ Tálbeitan Deep Cover ★★ REGNBOGINN Síðasti móhíkaninn The Last of the Mohicans ★★★ Daniel Day Lewis er rosaflott- ur. Miðjarðarhafið Mediterr- aneo ★★★ Tommi og Jenni ★★★ Á réttri bylgjulengd Stay | Tuned ★ Leikmaðurinn The Player | ★★★★ Sódóma Reykjavík ★★★ Prinsessan og durtarnir ★★★ Heiðursmenn A Few Cood | Men ★★★ Fagmannlega gert réttardrama. Tom Cruise frábæran leik og skyggir meira að segja á Nicholson, sem fer í gegnum myndina á sama sjálfumglaða sjarman- um og hann hefur beitt fyrir sig undanfarin ár. Meðleigjandi óskast Single White Female irk-k Spenn- andi, eilítið smart og ágæt- lega óhugnanleg. Bitur máni Bitter Moon ★★★ Börn náttúrunnar ★★★ SOGUBIO Passenger57 ★★ Svikarefir Midniglit Sting ★ ★ Aleinn heima 2 - Týndur í New York Home Alotte 2 - Lost in New York ★★★★ Jólasaga Prúðuleikaranna The Muppet Christmas Carol ★ ★★ KÞA/l/93

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.