Pressan - 28.01.1993, Blaðsíða 32

Pressan - 28.01.1993, Blaðsíða 32
_L yrir skömmu var þinglýst í héraðs- dómi máli Landsbankans á hendur Bjama P. Magnússyni, fyrrum eiganda bleyjuverksmiðjunnar Bossa og núverandi sveitarstjóri í Reykhóla- hreppi. Landsbankinn vill innheimta 9 milljón króna skuldabréf sem gefið var út rétt fyrir árslok 1990. Það sem vekur athygli er að bréfið ber aðeins 2 prósent fasta nafnvexti, er án nokkurra veða og undir það skrifa engir ábyrgða- menn, aðeins Bjarni sjálfur... F * tnn og aftur hefur verið ákveðið að gera róttækar breytingar á Alþýðublað- inu. Nú stendur til að fjölga blaða- mönnum í fjóra. Nýjir I aðilar taka við umbroti ' blaðsins og setningu, en ; það var áður í höndum I Leturvals hf. Ennfrem- ; ur stendur til að endur- | nýja tölvukerfi blaðsins svo og gera gagngerar breytingar á húsnæði. Þá hefur Hrafn Jökulsson blaðamaður tekið við stöðu fréttastjóra, en Sigurður Tómas Björg- vinsson, framkvæmdastjóri Alþýðu- flokksins, verður áfram titlaður ritstjóri blaðsins... F _L jórði lögmaðurinn sem gerður er gjaldþrota á skömmum tíma, Guð- mundur Þórðarson, hefur víða komið við í viðskiptum. Hann var einn aðstand- enda fasteignasölunnar Óðals og tengdist hlutafélaginu Stórhýsi hf„ sem um tíma átti hús Kaupfélags Hafnfirðinga við Strandgötu í Hafnarfirði. Fyrir nokkrum árum var hann fjármálastjóri Þýsk-ís- lenska hf. og hlaut dóm í þeim sögulegu málaferlum ásamt Ómari Kristjáns- syni... r utanríkisráðuneytinu berast þær fréttir að sendiráð íslands erlendis hafi ekki farið varhluta af þrýstingi um að- gerðir í máli Evalds Miksons. Sendiráðið í Washington mun hafa fengið nokkurn fjölda bréfa, bæði ffá almenn- ingi og ffá ræðismanni fslands í Toronto, Jóni Ragnari Johnson, sem lagði áherslu á að málið væri tekið al- varlega í íslenska stjórnkerfinu. f Svíþjóð hefur fyrrum aðstoðarforsætisráðherra landsins, Per Ahlmark, lýst áhyggjum sínum af sinnuleysi stjórnvalda og heim- ildir okkar herma að eistnesk stjórnvöld hafi einnig látið í sér heyra, en þar í landi er nú hafin rannsókn á meintum stríðs- glæpum Miksons og félaga hans... sunnudag mátti sjá tvær auglýsingar frá laxveiðimönnum sem óskuðu eftir tilboð- um ffá sölumönnum. Önnur auglýsingin var ffá Helga Eiríkssyni í Lúmex og fé- lögum hans, sem óskuðu eftir tilboðum í veiðileyfi í ffambærilegri á ásamt fæði og húsnæði. Helgi staðfesti að nokkrum dög- um hefðu allnokkrir haft samband, veiði- leyfahafar í mjög frambærilegum og landskunnum ám, og verðlagið hóflegt miðað við það sem á undan er gengið... ýverið fjallaði DV um nýja íslenska kvikmynd, Stuttur ffakki, sem til stendur að frumsýna á næstunni. Þar var lýst hvernig Brynjar Þór Þórhallsson og Kristinn Þórðarson rúlluðu hugmynd- inni að myndinni til Gísla Snæs Er- lendssonar leikstjóra og þaðan fór hún til bróður hans, Friðriks Erlendssonar handritshöfundar. Rétt er að Brynjar Þór heitir Bjarni Þór. Þá eru Gísli Snær leik- stjóri og Friðrik handritshöfundur rangt feðraðir, þeir eru Erlingssynir en ekki Er- lendssynir. Þetta eru þó aðeins smámunir í samanburði við að DV-höfundur tekur sér einnig það bessaleyfi að gera þá Gísla og Friðrik að bræðrum, en hvorugur þeirra kannast við þann skyldleika... A 1L \.lla jafna hafa laxveiðimenn sem áhuga hafa á góðum laxveiðiám ekki verið í þeirri aðstöðu að geta „prúttað" við sölumenn veiðileyfa um verð. Hingað til hafa sölumennirnir einfaldlega sett upp sinn okurprís og ekkert múður. En þetta er að breytast. I Mogganum síðasta ÍSkplflbrtil veitingastaður -þar sem hjartað slær- Borðapantanir í síma 62 44 55 V J KAOP Á DIET-COKE ER EKKI SKILYRÐi FYRIR ÞÁTTTÖKU í LEIKNUM -SKÍDI & KÓMANTÍK-. HÆGT F.R AÐ HRINGJA EÐA SKRIFA TIL VÍFILFELSS HF., STUDLAHÁLSI 12, SÍMI 607500 OG ÓSKA EFTIR SPURNINGA- OG SVARSEDLI. J/í/Ja/e/ff tiLAsþefi Ballettstjörnur hressa sig á Diet-Coke Þessi mynd var tekin þegar rússnesku Kirov og Bolshoi ballettflokkamir komu til landsins á síöasta ári og aö sjálfsögðu fengu dansaramir sér góða hressingu aö sýningu lokinni.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.