Pressan - 16.06.1993, Qupperneq 6
6 PRESSAN
F R É TT I R
Miövikudagurinn 16. Júní 1993
Húsnæðisstofnun ríkisins lónar gjaldþrota manni
Suðureyri
Björn Önundarson tryggingavfírlæknir
Kletturinn í kerfinu
Sumir menn láta sér aldrei
bregða. Það er sama hvað yfír
dynur; alltaf standa þeir eins
og klettar upp úr lífsins ólgu-
sjó. Björn önundarson trygg-
ingayfirlæknir er einn þessara
manna.
Hann hefur setið á friðar-
stóli tryggingayfirlæknis allt
síðan Matthías Bjarnason
Vestíjarðagoði sjanghæjaði
hann þangað inn þvert á ráð-
leggingar annarra. Matthías
vissi hins vegar sínu viti; Björn
var rétti maðurinn í starfið,
enda var hann ólíklegastur til
að fá það. Það er langt síðan
Björn sannaði getu sína sem
yfirlæknir allra öryrkja.
Bjöm hefur nefhilega reynst
einstaklega farsæll við að
glíma við öryrkjana. Það hefúr
löngum verið vitað að hér á
íslandi er komin fram þriðja
kynslóð öryrkja, fólk sem fæð-
ist til að komast á örorkuna og
er ekki í rónni fyrr en því hef-
ur tekist að komast upp um
þessi örfáu prósent sem skilja
á milli lífs og dauða í örork-
unni. Björn hefur tekið á
þessu með festu og ekki látið
undan þrýstingi þeirra sem
minna mega sín, þjóðarbúinu
til hagsbótar. Þeir Sighvatur
og Guðmundur Ámi geta svo
sem reigt sig og teygt, en það
eru inenn eins og Björn sem
vinna verkin. Það er ekki víst
að allir átti sig á því hvað
Björn er mikilvægur í vörn-
inni gegn eyðingaröflunum í
þjóðfélaginu.
Björn hefur einnig reynst
farsæll við að gera þetta lífs-
viðurværi sitt lífvænlegt. Ef
ekki væri fyrir sök dónanna
hjá skattinum væri þetta
endalaus veisla. Hver var að
spyrja þá álits? Hvað voru þeir
að skipta sér af því sem þeim
kom ekki við? Þetta var einka-
„Það er löngu vitað að hér á íslandi er
kominfram þriðja kynslóð öryrkja, fólk
semfœðist til að komast á örorkuna og er
ekki í rónnifyrr en því hefur tekist að
komast upp um þessi örfáu prósent sem
skilja á milli lífs og dauða í örorkunni. “
mál Björns og tryggingafélag-
anna. Það er ekki nema rétt
mátulegt á tryggingafélögin að
borga Birni fyrir að skrifa upp
á tryggingamat frá öðrum
læknum sem hann hafði góð-
fúslega farið yfir. Trygginga-
matið væri hvort eð er aldrei
mat nema af því að Björn
metur það svo. Svo hefur
hann leyfisbréf frá Matthíasi
upp á að hann megi alveg
vinna vinnuna sína í vinnu-
tímanum.
En Björn lætur sem betur
fer ekki slá sig út af laginu.
Hann heldur áfram að vinna
sína vinnu, þjóðarbúinu til
hagsbóta, um leið og hann
vinnur sér í haginn. Sem bet-
ur fer fer það saman.
---------------Ás
„Þetta er mjög gott hús á frá-
bærum stað. Það er alveg eins
hægt að segja að öll hús á Suð-
ureyri séu verðlaus eins og að
segja að þetta sé það,“ segir Þor-
valdur Þór Maríusson, jáma-
maður og eigandi Aðalgötu 47.
Húsnæðisstofriun ríkisins veitti
Þorvaldi rúmlega þriggja millj-
óna króna lán með veði í hús-
inu.
„Hann fer með kerfið eins og
kerfið fór með hann á sínum
tíma,“ segir Gestur Kristinsson,
hreppstjóri á Suðureyri. Hann
er þar að vísa í gjaldþrot Þor-
valdar áður en hann fluttist
tímabundið til Suðureyrar. Þor-
valdur rak áður matvöruversl-
un í Reykjavík, sem hann segir
þó að tengist ekki gjaldþroti
sínu. Þorvaldur segist hafa feng-
ið húseignina á Aðalgötu á góð-
um kjörum og veð Húsnæðis-
stofnunar sé til komið vegna
greiðsluerfiðleikaláns. Það sé
rétt að hann sé ekki í fullum
skilum við Hitaveituna á staðn-
um og Húsnæðisstofnun, sem
stafi af því að hann hafi verið at-
vinnulaus. Hins vegar segist
hann vera búinn að semja um.
greiðslur á lánunum og hefji
greiðslur innan tíðar.
AÐALGATA 47 Húsnæöisstofnun ríkisins veitti 3 milljóna króna lán meö veöi í húsinu, sem er afar illa
fariö aö utan sem innan.
„Auðvitað er fjarri lagi að
húsið sé eitthvað nálægt þrem-
ur milljónum króna að verð-
mæti. Það sem vakti mesta
undrun hér var að sveitar-
stjórninni fannst komið affan
að sér. Hún vildi rífa hjallinn,
en þá komust þeir að því að það
voru milljónir á veðbókarvott-
orðinu. Það hafa margir ævin-
týramenn verið hér og þetta er
nú svo sem ekkert ævintýra-
legra en þegar Sambandið var
og hét og stóð í að bjarga Freyj-
unni. Það léku margir þann leik
að fá miklar fjárhæðir fýrir veð í
húsum sem voru verri en þetta
ef eitthvað er. Kerfið býður upp
á svona lagað,“ segir Gestur
Kristinsson, hreppstjóri á Suð-
ureyri.
Ertu bara að blekkja fólk, Friðrik?
Það getur ekki verið hættulegt að láta dáleiða sig
NAFN: FRIÐRIK PALL
ÁGÚSTSSON
STARF: DÁVALDUR
ALDUR: 23
Óiafur Ólafsson landlæknir
hefur opinberlega borið brigð-
ur á hæfni Friðriks Páls Ág-
ústssonar sem „dáleiðslumeð-
feröaraðila". Menntun hans sé
ekki viðurkennd í Bandaríkjun-
um en Friðrik Páll hefur stað-
hæft í fjölmiðlum að svo sé.
„Alls ekki. Ég hef mín rétt-
indi, mín próf og skírteini sem
sýna ffarn á það. Það sem Ól-
afur vill meina er að þau séu
ekki nógu góð, en ég veit ekki
á hvaða mælikvarða hann er
að leita því þau eru gild af
fýlkisyfirvöldum og það gilda
strangar reglur um þetta í
Bandaríkjunum.“
Nú segir landlæknir það
rangt sem þú staðhæfir að
þessi menntun sé viður-
kennd í Bandarikjunum. Er
þetta bara staðhæfing
gegn staðhæfingu?
„Já, þetta er staðhæfing
gegn staðhæfingu, því hann
kemur með eitt aðildarfélag,
FRIÐRIK PALL
ÁGÚSTSSON
SVARAR FYRIR
FÚSK
sem eingöngu læknar eru við-
urkenndir í, og þeir hafa sinn
hag í heiðri. Mín aðildarfélög,
sem ég er viðurkenndur í,
hafa bæði lækna, sálfræðinga
og dáleiðslumeðferðaraðila.
Það eru þúsundir aðildarfé-
laga og þetta er einfaldlega
staðhæfing gegn staðhæf-
ingu.“
Fyrir hvað standa þessir
titlar, RPH og CHT?
„Registered Professional
Hypnotherapist og Certified
Hypnotherapist, sem er lög-
gildur titill. Það er löggiltur og
lögskráður dáleiðslumeðferð-
araðili. Lögverndaður þýðir
að hann er verndaður fyrir
lögum."
Hvar tókstu þessi próf?
„Til dæmis í Cincinatti
School of Hypnosis og einnig
AIH, American Institution of
Hypnotherapists."
Er ekki stórhættulegt að
fara í dáleiðslumeðferð til
einhvers sem kann ekki til
verka?
„Nei. Það getur ekki verið
hættulegt að láta dáleiða sig,
en dáleiðslumeðferð er vand-
meðfarin. Það er rétt hjá land-
lækni.“
Em þetta ofsóknir í þinn
garð af hendi lækna og sáÞ
fræöinga?
„Ég vil kannski ekki kalla
þetta ofsóknir, heldur er þetta
ótti um sitt, og það er verið að
grafa undan mér án þess að
hafa of mikil læti um það.“
Heldurðu að þessi umræða
eigi eftir að hafa mikil áhríf
á starf þitt?
„Já, það er strax farið að
vera meira að gera hjá mér.
Fólk er orðið leitt á hömlum
og að hafa ekki valfrelsi. Fólk
er líka orðið leitt á sífelldum
skotum um að eitt sé betra en
annað.“
Þú óttast ekki aö það sé
veríð að knésetja þig á ein-
hvem hátt?
„Nei ef það er gert þá er
verið að bijóta mannréttindi.“
verðlaust hús á
Fékk 3 milljóna
króna lán úl á