Pressan - 16.06.1993, Side 19

Pressan - 16.06.1993, Side 19
HOFUÐMAL Miövikudagurinn 16. júní 1993 PRESSAN 19 Víð mælum með ... afgreiðslufólkinu í áfengisversl- unum sérstaklega í Kringlunni. Það veit meira um vín.en mann grunar. ... Miklagarði við Sund líklega hefur sú verslun aldrei verið ódýrari en nú. Sannkölluð kreppu- búð. ... að vert verði ráðinn á Sólon Is- landus til að skipuleggja afleita þjónustu og þjálfa upp þjónseðli í starfsfólkinu. ... Alkaseltzer ferði fluttur inn til íslands hann er allra meina bót. inni Jabba-dabba-dú. Steinaldarfllingur. Útdauðir fuglar og risaeðlur eru komin aftur; í bækur og leikfanga- búðir og á fjalir leikhúsanna, og söfh sem hafa að geyma bein þess- ara fúrðuskepna hafa sjaldan verið betur sótt í útlandinu. Sjónvarps- þáttur með skepnunum er vinsæll í Ameríku, sem og áprentaður tísku- fatnaður; ekki bara bolir og húfúr heldur einnig áprentaðir hátfsku- kjólar í anda Dolce & Gabbana. Mynd með risaeðlunum verður ör- ugglega sýnd í einhverju kvik- myndahúsi borgarinnar alveg á næstunni. Mjög líklegt er að á eina þeirra þyrpist múgur og marg- menni, því íslenskir tvíburar hafa /f'erið fengnir til að leika í Steinald- armönnunum. Steinaldartískan hefur ekki risið svona hátt síðan 1950, þegar kvikmyndagerðarmenn reyndu að beina ímyndunarafli fólks út af braut atómbombu- hræðslunnar. Þess má geta að eigin- lega hafa þessi risadýr aldrei yfirgef- ið okkur, því í raun eru fúglar ekk- ert annað en risaeðlur og krókódílar og eðlur eru náskyld fýrirbæri. Fred Flintstone, Wilma og allir hinir eru inni. Og á leið til Islands að taka við af Turtles og öllum þeim. ÖN Hugmyndafræði leiklistarinnar á Is- landi. Leiklistarskóli íslands. I fyrsta lagi að velja aðeins hóp inn í Leiklistarskólann, ekki persónur, — það er afleit hugmynd. Valið um átta leiklistamema úr sextán manna hópi, sem púlað hefur saman um langan tíma, helgast af því að manneskjurnar eru líldegar til að geta hugsanlega starfað saman næstu árin í skólanum; sem hópsál. Það er í raun fráleit hugmynda- fræði. Og einhverra hluta vegna hleypir þessi sama leiklistarelíta svo litlu af föngulegu kvenfólki í gegn að skömm er að. Við, sem höfúm gaman af að fara í leikhús, höfúm lfka gaman af fegurðargyðjunni svona endrum og eins. Hingað til hefúr mörgum karlsjarmörum ver- ið hleypt í gegn en fáum kvensjar- mömm. Skrýtin leiklistarpólitík þar og hryllilega langt úti. \ A U 1 Bræðumir Kristján og Ingólfúr Vilhelmssynir eru, auk þess að vera bræður, hárbræður. Þeir reka með öðrum orðum saman hárgreiðslustofuna Hárbræður á Njálsgötunni. í ofanálag vinna þeir báðir sem dyraverðir á Bíóbarnum og þaðan ættu flestar barflugur bæjarins að kannast við þá. Er þetta eldd þreytandi, farið þið aldrei í hár saman? „Við pössum okkur á að taka aldrei vaktir saman á Bíóbarn- um á kvöldin. Okkur finnst nóg að eyða dögunum saman. Ætli við séum bara ekki of þreyttir til að fara í hár saman. Svefninn hjá okkur er um þessar mundir í fjórða sæti,“ segir Kristján, yngri bróðir, sem er heilum átta árum yngri en Ingólfur. Bræð- urnir eru afkomendur Vilhelms Ingólfsonar í Aristókratanum en hjá föður sínum lærðu þeir báðir hárskurðarlist. Listin sú liggur augljóslega í karlgenunum í íjölskyldunni því karlmenn- irnir hafa eingöngu lært þessa iðn, hvorki systir þeirra né móðir. Skoðið þið mikið hárið á fólki sem sækir Bíóbarinn? „Maður veltir kannski meira fyrir sér týpunum. En þeir sem sækja þennan bar eru á allt frá gúmmískóm og upp í lakkskó. Það koma líka kúnnar af Bíóbarnum til okkar í ldippingu.“ Gerið þið það gott? „Það gengur ágætlega hjá okkur, en það er alltaf spurning um hvað fólk sættir sig við að fá út úr svona rekstri.11 La Prima Vera Innleiða rjómaostinn Mascapone Ættingjar Hauks heitins Morthens urðu heldur betur hissa á dög- unum er þeir fengu veður af allmiklu safni muna sem hinn látni listamaður hafði haldið til haga á leyndum stað. Margt af því sem þama er að finna hefur aldrei komið fyrir augu almenn- ings, en að sögn kunnugra var Haukur Morthens, þrátt fyrir að vera heimsmaður, mikill einfari sem fór dult með einkalíf sitt. I ljós hefur komið að Haukur henti engu og hefúr ný- fundið safn að geyma ómetanlegar heimildir um feril söngvarans sem og annarra. Meðal þess sem fannst er ógrynni ljósmynda sem spanna óllk tímabil íslenskrar dægurlagasögu. Þar getur til dæmis að líta margt mynda ffá því fyrir stríð og einnig margar myndir af Hauki með ýmsum þekkmm listamönn- um af eldri kynslóð. Þá fundust all- nokkrir gamlir samningar sem Haukur gerði við útgefendur, þeirra á meðal Harald í Fálkanum. Miklum fjölda hljómplatna hafði söngvarinn einnig vandlega haldið til haga. Meðal þeirra eru 120 nýjar jólaplötur sem útgáfúfyr- irtæki hans, Faxafónn, gaf út árið 1964. Var talið að plötur þessar væru löngu uppseldar, enda hafði hann sjálfúr látið í veðri vaka að svo væri. Eins er í safhinu að finna 118 eintök af síðustu plötu hans, sem gefin var út árið 1984, en hún hefur um ára- bil verið ófáanleg. Það sem hefur ef til vill hvað mest safngildi er Haukur Morthens geymdi margt muna á leynd- vinnukJæðnaður Hauks, en hann átti söngvarinn í um stad án þess að nokkur madur vissi um. Þar er aO fínna vinnuföt hans, gamla míkró- fóna auk ógrynnis Ijósmynda og hljómplatna sem um árabil hafa veriO ófáanlegar. fórum sínum auk míkrófóna og annarra muna. Það er mikill akkur fýrir fjölskyldu hans að komast yfir þessa dýrgripi, en hún vinnur nú að því að koma reiðu á safnið og skrá munina sem fúndust. Á konsertinum með hinum lífhræddu meðlimum Rage Against the Machine sást til ferða Einars Amar Benediktssonar yfir- nörds, Ingibjargar Stefánsdóttur söngk- vinnu og hennar ekta- maka, Júlíusar Kemp hins stutthærða, Óskars Jónassonar Sódómukalls og secondhand-gæjans Frikka Weisshappel, Kidda kanínu og Gausa og Ollíar. Eftir tón- leikana brugðu meðlimir Rage Against the Machine sér á Bíóbarinn fýlgd lífvarðar síns, sem var engtnn annar en Magnús Ver Magnús- son kraftlyft- ingakappi. Sumir þeirra fóru svo á Hressó með Jet Black Joe. í biðröð fýrir utan Rósenbergkjallarann voru diskótekarinn fr ægi Glenn Gunn er, Óskar Jónas- son kvikmynda- gerðarmaður og Þorsteinn Högni Gunnarsson, blaða- maður með meiru. Friðrik Weisshappel mun og hafa verið þar bæði kvöld- in í góðum filing. Á Tunglinu seint á laugar- dagskveldið sáust svo Þor- steinn Högni Gunnarsson, Sigurður Pálsson ljóð- skáld og hjónakornin Dóra Takefusa og Guðmundur Jónsson svo fáeinir séu nefndir. Á Sólon íslandus sátu um hádegisbil á fimmtu- dag þær Inga Jóna Þórðar- dóttir, fýrrverandi formaður útvarpsráðs, og Jónína Mi- chaelsdóttir, fýrrverandi að- stoðarmaður Þorsteins Páls- sonar. Þar var líka kjaftfúllt um kvöldið þegar sýndar voru vörur ffá hinni smart verslun Marithé Francouis Girbaud. Þar voru stödd kærustuparið Hilmir Guðnason og Bryndís Jónsdóttir, Sigga Vala, Simbi, Bryndís Einarsdóttir reif- drottning, flugkappar og fagr- ar flugfreyjur og Baltasar Kormákur. Ekki langt undan var bamsmóðir hans, Ástrós Gunnarsdóttir, og hjónin Elín Sveinsdóttir og Sigmundur Emir Rúnars- son fréttamað- son veitingamað- ur og Eyjólfur mennirnir getað boðið upp á Mascapone-ostinn. Það sem er þó líklega merkilegast í þessu öllu er að Leifur og Ómar hafa fengið til liðs við sig íslenskan mjólkurfræðing til að búa ostinn til. „Ég vil ekki upplýsa hvaða maður það er, en þótt hann vinni þetta að minni ósk kemur hann sjálfur til með að njóta góðs af því síðar meir,“ segir Leifur Kolbeinsson. Reyndar er margt fleira at- hyglisveit að finna á matseðli La Prima Vera, til að mynda kálfasteikur að hætti ítala og lúbarða nautalund, sem borð- uð er hrá í kryddolíu og þykir eðalréttur. Þá eru á seðlinum ýmsir heimatilbúnir pastarétt- ir, þar á meðal Tagliatelli með hinum fokdýra truffle-jarð- svepp, sem ekki finnst nema með hjálp svína sem látin eru þefa hann uppi með múl fýrir kjaftinum (svo þau eti hann ekki). Af fiskréttum má nefna blálöngu með tómötum, kapers og fúruhnetum. Svo eru vínin mörg hver innflutt af eigendunum. Ef einhver þekkir Bondarda Riserva Special, Monte Calvo eða Tingnanello „Super“ Toscana, þá fást þau þar. Kristjánsson söng maður. Troðið var í Ingólfscafé á laugardags- kvöldið, svo troðið að mann sundlaði þegar maður sá röðina. Inni að skemmta sér voru hins vegar Ijós- myndaranemamir Anna Theódóra Pálmadóttir, Sigrún Magnús- dóttir og Berg- lind Baldurs- dóttir og stjóm- málafræðispekúl- antamir Hrönn og Steinunn. Bjöggi Barðdal seglagerðarkóngur hélt upp á 25 ára afmæli sitt á heimlli sínu og bauð næstum hundr- að manns upp á heilsteikt svín. Eftir matarveisluna miklu var svo haldið í Ing- ólfscafé. Meðal gesta í af- mælinu vom Helgi og Helgi Bjöm og skutlan Jóna Björg. Þar inni var einnig Sólveig Grétars- dóttir og allt hennar gengi sem var að koma úr gæsa- partíi á Selfossi, því Solla ætlar fljótlega að ganga upp að altarinu með honum Hödda sínum. Skúli Helgason út- varpsmaður sást hins veg- ar á vappi fýrir utan Ing- ólfscafé. Að snæða á Pasta Basta á föstudagskvöld var Oddur í Kjallaranum svo og vinkonurnar Thea Sæmundsdóttir rokk, eigin- kona Anthonys Karls Greg- ory, Rósa, Iðunn og Sigríður og fleiri Ijúfar stúlkur. Hver hefði getað ímyndað sér að einhverju nýju væri hægt að bæta við þá ítölsku matargerðarstrauma sem flætt hafa yfir landið? Ómar Strange og Leifur Kolbeins- son, sem reka nýjan veitinga- stað byggðan á gömlum merg, La Prima Vera í Hallargarðin- um, halda því ffam að ekki sé allt búið enn og pastað sé á mikilli uppleið. Að minnsta kosti fýlgir La Prima Vera eitt sem ekki er vitað til að hafi fengist á íslandi en margir hafa þó kynnst á ferðum sín- um erlendis og ekki gleymt. Það er rjómaosturinn Masca- pone, sem er að finna í hinum kunna (og ekta) ítalska ábæt- isrétti Tiramisu. Með hjálp vina og ættingja hafa veitinga- Leifur Kolbeinsson og Ómar Strange Ætla aO innleiöa nýja ítalska strauma. Ég hrá mér í Fjörðinn til að skoða þessa tónleika sem allir voru að tala um. Ég vissi auðvitað að þaryrði ekkert nema krakkar, en ein- hvem veginn verður þeim laus höndin á flösk- unni þegar alheims- stemmning tónleikanna hvolfistyfir þessi grey. Ferðin var árangursrík en mikið er þessi miðnœtursól leiðinleg. Það er eins og maður $é dagdrykkjumaður allan sólarhringinn! Þá verður maður áþreifanlega var við hvað það vantar al- mennileg skuggasund á höfuðhorgarsvœðið. Gamlir inMinir W[<ortliens fnmas

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.