Pressan - 16.06.1993, Page 10

Pressan - 16.06.1993, Page 10
10 PRESSAN FÍKNIEFNI Á ÍSLANDI Miövikudagurinn 16. júní 1993 Fíkniefnahelmurinn verður æ harðsvíraðri og betur skipulagður með mikilli hagnaðarvon Talið er að nálcegt 300 kílóum affíkniefnum sé árlega flutt ólöglega inn til landsins og söluverðmceti efnanna sé nálcegt hálfum milljarði króna. Öll viðskipti með fíkniefni og neysla þeirra er ólögleg en það kemur ekki í vegfyrir blómleg viðskipti. Hagnaðarvon innflytjenda mcelist í milljónum ogjafnvel tugmilljónum ogþví er mikið í húfi. Hagsmunirnir eru miklir ogþeir eru varð- ir með kjafti og klóm í orðsins fyllstu merkingu. Ofbeldi fcerist stöðugt í vöxt í fíkniefnaheiminum ogvcendi virðist óhjákvcemilegur fylgifiskur. Fjárþörf fikniefna- neytenda er gífurleg ogþví mikið um auðgunarbrot. Milljónahagnaöur inn- flytjenda Innflutningur á fíknieíhum getur verið mjög ábatasamur. Eins og annars staðar kemur fram berst langstærstur hluti fíkniefnanna til landsins frá Hollandi og stærstu sending- arnar koma sjóleiðina með frakt- og fiskiskipum. Ekki er óalgengt að efnunum sé kast- að frá borði áður en komið er til lands og smærri bátar látnir sækja efnið að næturlagi, þeg- ar löggæsla er lítil eða engin. Innflytjandi í góðum sam- böndum getur keypt kílóið af hassi á 150-200 þúsund krón- ur í Hollandi en söluverðmæti þess magns á götunni hér heima er ein og hálf milljón króna. Áhættan er hins vegar fyrst og fremst í smásölunni og þvr er algengast að innflytj- andinn losi sig við efnið í stór- um skömmtum eða í heilu lagi til dreifingaraðila. Þá verður hann vitanlega að slá af verðinu. Algengt verð á 100 grömmum eða meiru er um 750-900 krónur á hvert gramm. Kílóið, sem keypt er á 150-200 þúsund, selst því án mikillar áhættu á um 850 þús- und. Sjaldgæft er að hass sé drýgt hérlendis, enda nokkr- um erfiðleikum háð og land- inn góðu vanur hvað gæði hassins varðar. Langalgengast er að efnið sé frá Marokkó. Magnið getur þó verið mun meira en kíló. f málningar- fötumálinu svonefnda höfðu verið flutt inn sjötíu kíló í samtals níu sendingum. Mið- að við þetta verðdæmi gæti ágóðinn hafa verið nálægt 45 milljónum króna. Áhættusöm hagnaöar- von í amfetamíni Mun meiri hagnaðarvon er í innflutningi á amfetamíni, en áhættan er einnig meiri. Fyrir mann sem þekkir vel til í GUÐJÓN MARTEINSSON Þaö hefur enginn oröiö ríkur á Innflutningi og sölu fíkniefna fíkniefnaheiminum er kíló- verð af 80-90 prósent hreinu efni í Amsterdam um 300-500 þúsund. Þegar það er komið á götuna hér heima er algengt að búið sé að „kötta“ það niður í allt að 20 prósent hreinleika. Kíló af mjög hreinu efni væri því orðið að 3—4 kílóum sem seldust á 15-20 milljónir króna. Vilji innflytjandinn losna við áhættuna sem felst í dreifingu og sölu efnisins getur hann selt dreifingaraðila það gegn afslætti en samt haft nálægt sjö milljónum króna upp úr krafsinu. Algengt verð til heildsala á ódrýgðu amfetam- íni, eða „hraða“ eins og efhið er kallað, er um 7.000 krónur á grammið, en ef hann hefúr drýgt grammið til helminga gæti hann fengið 3.500-4.000 krónur fýrir það. Verðið er hins vegar mjög sveiflukennt og getur farið allt niður í 2.500 krónur ef mikið ffamboð er af „hraða“ í bænum. Lánsviöskipti og tapaö fé Allar þessar tölur miðast hins vegar við að allt gangi upp og enginn kostnaður er meðtahnn. Óvanari menn láta plata inn á sig ónýtt efhi, trú- mennska og heiðarleiki eru ekki lykilorð í þessum heimi og löggæsluaðilar leggja hald á hluta efnanna. Þá eru þessir aðilar nær undantekningar- laust neytendur sjálfir sem lifa hátt og fæstir eru í stöðugri vinnu. Hassinnflutningurinn er áhættuminni, bæði af því að nokkur þurrð hefur verið á markaðinum síðustu tvö árin og neytendur kannabisefna eru þægilegri að eiga við. Einnig er amfetamín flokkað sem hættulegra efni og öll refsing mun þyngri en ef um kannabis er að ræða. Amfet- amínheimurinn er einnig of- beldisfýllri, óheiðarlegri og fólkið sem þar lifir og hrærist oft meira eða minna truflað á geðsmunum. Hér á landi eru lánsviðskipti algengari en víð- ast hvar annars staðar. Svik og gjaldþrot eru síst færri í við- skiptum með amfetamín en í öðrum greinum viðskipta og afföll geta því orðið mikil. Seljendur reyna oft að ljúga því að þeir hafi verið „böstað- ir“ til að losna við að greiða skuldir. Því er orðið algengt að milliliðir borgi að minnsta kosti innkaupsverðið við af- hendingu efnanna. 300 kíló fyrir hálfan milljarö árlega Mjög erfitt er að gera sér grein fýrir hversu mikið magn fíkniefna berst til landsins, enda koma þau hingað ólög- lega og margir ótengdir aðilar sjá um innflutninginn. Er- lendis er það víða notað sem þumalputtaregla að lagt sé hald á um fimm prósent efn- anna og markaðurinn er svo metinn eftir því. Hér á landi er erfitt að nota slíka reglu þar sem markaðurinn er lítill og ein stór haldlögð sending get- ur skekkt myndina verulega. Þeir sem til þekkja hafa þó reynt að meta stærð markað- arins. Þannig hefur PRESSAN heyrt tölur um árlegan hass innflutning frá 100 kílóum upp í 400 kíló. Markaður fýrir amfetamín er einnig verulegur og þar voru nefndar tölur frá sex kilóum árlega og upp í fimmtán. Margir töldu inn- flutninginn nema nálægt einu kílói á mánuði. Kókaínmark- aðurinn er mun minni og er hann talinn vera eitt til fjögur kíló. Til hægðarauka er hér miðað við að árlegur innflum- ingur sé um 250 kíló af hassi, tólf kíló af amfetamíni og tvö kíló af kókaíni. Markaðsverð á því magni væri um 450 millj- ónir króna. Mun minna er af öðrum efnum í umferð. Marijuana var mjög vinsælt um og upp úr 1970, en tengd- ist talsvert herstöðinni við Keflavíkurflugvöll. Efhið er fyrirferðarmikið miðað við verðmæti og innflutningur því óhagstæður. Engu að síð- ur er alltaf nokkuð af efninu í umferð. Ofskynjunarlyfið LSD skýtur alltaf upp kollin- um öðru hverju en hverfúr þess á milli. Það hefur verið nokkuð áberandi síðustu tvö ár eins og ofskynjunarlyfið Ecstasy. Það fannst fýrst hér á landi fýrir tveimur árum, en Ecstasy er ofskynjunarlyf með örvandi verkun. Heróín er lit- ið þekkt hér á landi og kóka- ínblandan krakk hefur aldrei fundist. Ekki er fjarri lagi að áætla að heildarsala fíkniefúa nemi nálægt hálfúm miUjarði króna. Skipulag markaöarins Fíkniefnamarkaðurinn á sér rúmlega tveggja áratuga sögu og til eru aðilar sem allan þann tíma hafa stundað við- skipti með fíkniefni. Þó er ekki talið að um eiginlegt samráð sé að ræða á markað- inum eða að honum sé stjóm- að á einhvem hátt. Fíkniefna- markaðurinn byggist upp á misfjölmennum klíkum sem hafa lítið eða óreglulegt sam- band sín á miUi. Fjármögnun Gunnlaugur Stefánsson „Stórefla veröur allar varnir gegn innflutningi pg þar held ég aö notkun hunds sé lykilatriöi. “ og innflutningur á fíkniefnum er talinn talsvert skipulagður, enda hagnaðarvonin mest í þeim geira. Þess þekkjast dæmi að menn hafi hagnast vel á slíkum viðskiptum en margir hafa gengið götuna án árangurs. Fjármögnun, inn- flutningur, dreifing og sala er sjaldnast á sömu hendi. Fjár- mögnunin er áhættuminnst og innflutningurinn er einnig tiltölulega áhættulítiU. Dreif- ing efnanna er mun áhættu- samari og smásalan sjálf er eðU sínu samkvæmt varasöm- usL Það er aUtaf áberandi þeg- ar margir aðilar þurfa að koma á sama staðinn og staldra stutt við. Því er orðið algengt að veitingahús séu notuð við smásöluna. Fíkniefnakaup meö VISA-korti Innflytjendur fíkniefna skiptast í meginatriðum í tvo hópa. Annars vegar eru það þeir sem hafa atvinnu af fíkni- efnaviðskiptum, og meðal þeirra leynast nokkur stór nöfn sem hafa hagnast vel á þeim viðskiptum. Hins vegar er um að ræða menn í tíma- bundnum peningavandræð- um, ævintýramenn og ungt fólk sem eiga það sammerkt að hafa takmörkuð eða engin sambönd. Síðamefndi hópur- inn nær afar sjaldan að hagn- ast á ævintýrinu. Flestir reyna að fjármagna innkaupsferðina og okurlán eru algeng í þess- um geira. Síðari ár hefúr það færst mjög í vöxt að menn „straui“ alla ferðina, utan- landsferðina, uppihaldið og núorðið er jafnvel hægt að setja fíkniefnakaupin sjálf á greiðslukort. Ekki hafa allir farið vel út úr slíkri ævintýra- mennsku. Glæpamenn, mellur og viröulegir heimllisfeöur Neytendur fíkniefna er ekki hægt að flokka saman í einn flokk, þeir eru jafnmismun- andi og mennimir em margir. Kannanir sýna að um þriðj- ungur íslendinga á þrítugs- aldri hefur prófað kannabis- efni og um fimm prósent hafa prófað amfetamín, en mun færri nota þessi efni að stað- aldri. Margir hafa neytt fíkni- efna um langt skeið án þess að brjóta af sér að öðm leyti og em jafnvel virðulegt heimilis- fólk. Eins og tölur sýna eru einnig margir sem fikta við þessi efni en hætta því eftir stutt kynni. Vandinn er hins vegar fólginn hjá því fólki sem neytir efnanna að staðaldri og tengist jafnffamt ýmsum öðr- um lögbrotum. Þetta fólk er oft atvinnulaust og dregur fram lífið á sölu fíkniefna, innbrotum, vændi og öðmm auðgunarbrotum. Aukiö ofbeldi í geötrufl- uöum heimi I hinum harða heimi fíkni- efha snýst veröldin aðeins um eitt, fíkniefni. Miklir fjármun- ir em í húfi og skipulag starf- seminnar er oft á tíðum mik- ið. Harðsvíraðir glæpamenn stjórna atburðarásinni og menn víla ekki fyrir sér að beita harkalegu ofbeldi til að koma vilja sínum fram. Of- beldinu er beitt til að vekja ótta meðal viðskiptavina og samkeppnisaðila. Þeir sem fyrir því verða eru sjálfir brotamenn og þora sjaldnast að kæra verknaðinn. Langvar- andi neyslu sterkra fíkniefna fýlgir bæði árásarhneigð og ofsóknarbrjálæði, sem getur brotist út í sjúklegri hræðslu við umhverfið. Lögreglan er vitanlega óvinur númer eitt og því telja margir fíkniefnadeild- ina mun fjölmennari en hún í raun og veru er. Þá eru til- hæfúlaus ofbeldisverk og kyn- ferðisafbrot einnig fýlgifiskar þessa fólks. Hundrað fíkni- efnaneytendur hafa látist fýrir aldur ffarn frá 1974 og er meðalaldur þeirra innan við þrítugt. Sjálfsmorð vega þar þyngst en einnig hafa margir drukknað, orðið úti eða látrist í umferðarslysi. Þeir hafa einnig verið drepnir, látist eftir átök og dáið úr eyðni. PálmiJónasson I I I I 1 I I 1 I í I I I I I

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.