Pressan - 16.06.1993, Síða 14

Pressan - 16.06.1993, Síða 14
SKOÐA N I R 14 PRESSAN Miðvikudagurinn 16. júní 1993 PRESSAN Utgefandi Blaö hf. Ritstjóri Karl Th. Birgisson Ritstjórnarfulltrúi Siguröur Már Jónsson Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14 -16, sími 64 30 80 Faxnúmer: Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborös: Ritstjórn 64 30 85, dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87 Áskriftargjald 700 kr. á mánuöi ef greitt er meö VISA/EURO en 750 kr. á mánuöi annars. PRESSAN kostar 230 krónurí lausasölu Þegar eftirlit bregst I PRESSUNNI í dag eru rakin tvö skýr dæmi um embætt- ismenn sem geta ekki sinnt störfum sínum. Annar vegna veikinda, hinn vegna misbrests í siðferðismati. I sjálfu sér er það ekki aðalmálið heldur hvernig hið opinbera stendur sig í eftirliti með þessum mönnum. Það blasir við að eftirlitið hefur klárlega brugðist í hvorum tveggja tilfellunum. Landlæknisembættið og heilbrigðisráðu- neytið hafa setið með hendur í skauti á meðan sá, sem hafði þó manndóm í sér til að benda á vandann, var hrakinn ffá vegna hreppapólitíkur sem ekkert átti skylt við kjama máls- ins. Misbrestir í eftirlitshlutverki dómsmálaráðuneytisins eru engin ný tíðindi. Landsmenn hafa horft í forundran á alls- konar uppákomur í kringum dómstóla landsins þar sem dómsmálaráðuneytið virðist heyra síðast allra um augljósa vanrækslu og vanhæfni. Á tímabili virtist meðferð fíkniefha- mála vera dottin upp fýrir án þess að eftirlitsmenn í dóms- málaráðuneytinu tækju eftir því. Almenningur hefur undan- farið orðið vitni að tiltekt á þessu sviði, sem er vel, en um leið hefur það vakið áleitnar spurningar um hvað fór ffam áður. Það dugar ekki að benda á mannlegan breyskleika, einfald- lega af því að við státum af kerfi sem á að duga. Nokkur dæmi hafa einnig komið upp í kringum sýslu- mannsembætti landsins, þótt engin séu eins sláandi og það sem nú er að gerast á Siglufirði. Þar virðist um skeið hafa ríkt ástand sem enginn þekkir hliðstæðu um hér á landi án þess að eftir því hafi verið tekið af effirlitsaðilum í dómsmálaráðu- neytinu. Nýlega var sagt frá uppákomu í kringum sýslumannsemb- ættið á Eskifirði. Þó að hún virðist mun smærri í sniðum er það sammerkt með báðum þessum málum að hvorugt þeirra komst upp fýrr en ábending barst utan ffá um að ekki væri allt með felldu. Eftirlitsaðilamir geta þannig ekki þakkað reglubundnu eftirliti sínu. Þetta hlýtur að leiða hugann að því hvort ekki sé þörf á að endurskoða eitthvað málin inni í dómsmálaráðuneytinu sjálfú. Það virðist ekki duga að skipta um ráðherra og aðstoð- armann hans með reglulegu millibili. Kerfið virðist lifa það allt af. Það er reyndar áleitin spurning hvort það er rétt kerfi að láta embættismenn fýlgjast hvem með öðrum. Sagan segir okkur að það ber ekki tilætlaðan árangur. BLAÐAMENN Bergljót Friöriksdóttir, Friörik Þór Guðmundsson, Guörún Kristjánsdóttir, Gunnar Haraldsson, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuOur, Jónas Sigurgeirsson, Jim Smart Ijós- myndari, Kristján Þór Árnason myndvinnslumaöur, Pálmi Jónasson, Sigríöur H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Snorri Ægisson útlitshönnuöur, Telma L. Tómasson. PENNAR Stjórnmál: Árni Páll Árnason, Einar Örn Benediktsson Einar Karl Haraldsson, Guömundur Einarsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson.Hrafn Jökulsson, Hreinn Loftsson, Möröur Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Össur Skarphéöinsson. Listir: Guömundur Ólafsson, kvikmyndir, Gunnar Árnason, mynd- list, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bók- menntir, Martin Regal Ieiklist. Telkningar: Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Árnason Snorri Ægisson Setning og umbrot: PRESSAN Rlmuvinnsla, plötugerö og prentun: ODDI STJÓRNMÁL Ráðið í haustdjobb „En að öllu gamni slepptu. Erþetta nokk- ur aðferð til að ráða menn í vinnu: Að líta fyrst á flokksskírteinið ogsíðan á aðra þá eiginleika, sem maðurinn kann að hafa til brunns að bera til að gegna því starfi sem hann er ráðinn til að gegna - - oftar en ekki til œviloka?“ Fyrir tæpum áratug geyst- ust kratar um landið og spurðu landslýð spurningar- innar „Hver á ísland?“ Núna í vikunni var þeirri spurningu svarað: Auðvitað kratar. Eða að minnsta kosti það sem þeir kæra sig um af því. Hratið geta aðrir fengið. Komnir eru á kreik gamlir brandarar ffá Viðreisnarárunum, eins og hvort kratar muni endalaust eiga mannskap til að fýlla allar þær stöður sem þeir eiga ráðningarvald á? Svarið er já. Þótt skoðanakönnun Félags- vísindastofnunar fýrir Morg- unblaðið leiði í ljós að aðeins 30 prósent þeirra, sem kusu krata síðast, hyggist kjósa þá næst, þá er samt mikið flæði til Alþýðuflokksins, einkum frá Sjálfstæðisflokknum. Því væri ffekar ástæða til að efast um að til væru stöður handa öllum þessum mannskap sem virðist eiga leið um hlaðið hjá Alþýðuflokknum. En þá bár- ust líka þær gleðifféttir að nú er íslenskur eðalkrati að setjast í ffamkvæmdastjórastól hjá EFTA. Þar kunna því að vera að opnast upp endalausar gresjur guðdómsins, sem verulega gætu létt beitarálagið á átthögunum. Þar gætu stór- ar kratahjarðir gengið sjálfala sumar sem vetur, enda drýpur smjör af hverju strái í EES, eins og allir vita. Það er sagt að Jesús hafi á tímum kraftaverkanna mettað fimm þúsundir með tveimur fiskum og fimm brauðum. Hér hefur tekist að skapa endalausa röð atvinnutæki- færa úr því eina djobbi, sem losnar við brottför JóhanúesáT Nordals úr Seðlabankanum. Auðséð er að ef kratarnir fá frjálsar hendur verður þeim eldd skotaskuld úr að útrýma atvinnuleysinu á nó tæm. Einum kunningja minna varð að orði, þegar hann sá hinn stórfenglega kapal krat- anna ganga upp frammi fýrir augum spenntrar alþjóðar, að þar með hefðu kratar endan- lega meldað sig út úr pólitík og ákveðið að renna saman við stjórnsýsluna í landinu. Kæmust einhverntíma aðrir flokkar í ríkisstjórn yrðu þeir að láta sér það hlutverk lynda að verkstýra krötunum í toppembættunum. Þetta er náttúrulega misskilningur, því að alltaf má beita þeirri að- ferð, sem nú þegar er í tísku, að tvöfalda í hverri stöðu: senda þá í frí, sem fýrir eru, ffamhaldsnám eða í „sérverk- efhi“. Þannig gætu flokkarnir endalaust látið kjósa sig á víxl til að útrýma fjárlagahallanum og skellt svo liðinu á beit í sjóðum Hins opinbera. Og þótt lítt gengi á fjárlagahallann með því móti mætti þó smám saman vinna bug á atvinnu- leysinu. Og hver nennir að rexa í fjárlagahalla, sem hefur vinnu á annað borð? En að öllu gamni slepptu. Er þetta nokkur aðferð til að ráða menn í vinnu: Að líta fýrst á flokksskírteinið og síð- an á aðra þá eiginleika, sem maðurinn kann að hafa til brunns að bera til að gegna því starfi sem hann er ráðinn til að gegna — offar en ekld til æviloka? Forsætisráðherrann sagði í sjónvarpsviðtali í fýrradag, að þetta væri nú einu sinni hin gamla íslenska aðferð. Eini munurinn væri sá að nú hefði störfum verið ráðstafað óvenjumörgum á einu og sama brettinu. Síðan kom hinn gamli sultarsöngur pólit- íkusanna, að erlendis ættu stjómmálamenn um margt að velja að loknum stjórnmála- ferli, en hér væru menn settir á guð og gaddinn. Af því mátti skilja að ráðstöfúnarvald pól- itíkusanna á hæstu sem lægstu stöðum á vegum hins opin- bera yrði áfram að vera í þeirra eigin höndum. Til að koma í veg fyrir að þeir og fjölskyldur þeirra yrðu svelt í hel af vanþakklátum almenn- ingi. Það er rétt hjá forsætisráð- herra að þetta er liin gamla ís- lenska aðferð. Menn þurfa ekki nema líta yfir sýslu- manns- og skattstjóraembætt- in til að sjá að þau hafa um langt árabil verið einkaeign Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokks. Og ótal embætti önn- ur. Til skamms tíma gilti það sama um allar meiriháttar skólastjórastöður. Sums stað- ar hefur þó reglan verið á undanhaldi. Útibússtjórastöð- ur bankanna og stöður hér- aðslækna munu ekki lengur taldar eign stjórnamálaflokk- anna til ráðstöfunar fyrir tryggð og vel unnin flokks- störf. Því taldi maður að að- eins væri farið að rofa til í þessum efnum. Ungt, vel menntað og hæfileikaríkt fólk gæti fengið störf á sínu sviði, án tillits til þess hvort það hefði snefil af áhuga á pólitík, og án þess að þyrfti að ganga upp í gegnum ffamakerfi eins eða annars stjórnamálaflokks: stuttbuxnadeild, háskólapólit- ík, flokksfélög, fulltrúa- og kjördæmisráð. Hætt er við að margir muni jafnvel frekar vinna til að starfa erlendis en að vinna það til að ganga und- ir pólitískt jarðarmen tíl þess eins að fá embættisgengi sitt viðurkennt. Auk þess sem auðvelt er að misreikna sig á því hvaða flokkur er hentug- astur til að tryggja ffamgang í starfi. Er nú ekki kominn tími til að taka upp háttu annarra þjóða í þessu efni? Hæfúipróf- un fyrir fólk sem leitar starfa hjá því opinbera? Framgangs- kerfi í höndum óvilhallra nefnda, sem lúta ströngum og þröngum starfsreglum? Skil- greiningu á þeim störfum, sem mega teljast herfang þeirra flokka sem völdum ná hverju sinni, enda losni þær stöður þá um leið og valda- tíma þeirra er lokið? Og ein- hverjar lágmarksreglur um mannasiði við embættisveit- ingar? Það er athyglisvert, að stjórnarandstöðuflokkarnir, sem nú fara hamförum gegn subbuskap kratanna í þessum efúum, varast að nefna það að taka upp aðra hætti, þegar — og ef — kjósendur skola þeim upp í stjómarstólana. Hitt er líldegra að þeir hugsi krötum þegjandi þörfina með því að ganga sjálfir feti lengra þegar færi gefst. Svona til að jafna metin. Það er gamla sagan um apann og ostbitann._________ Höfundur er biaðamaður. SIGURJÓN PÉTURSSON ÁLIT ÞOR SIGFÚSSON SIGURÐUR L. SKARPHÉÐINSSON KRISTIN A. ÓLAFSDÓTTIR JULIUS HAFSTEIN Fréttir þess efnis að breyta ætti Strætisvögn- um Reykjavíkur í hlutafé- lag hafa vakiö mlklar dellur í borginni og sýnist sitt hverjum um afleiöing- arnar fyrir neytendur og starfsfólk. breyta SVR í hlutafélag? Er rétt að Þór Sigfússon hagfræðingun „Ég hef trú á að þessi breyting leiði til þess að áframhald verði á umbótum í rekstri fýrirtækisins. Hlutafélags- formið hefur yfirburði yfír önnur rekstrarform, það hef- ur sýnt sig um allan heim. Að mínu mati er alveg ljóst að þessi breyting getur gert það sama við þetta fýrirtæki og það hefur gert við önnur fýr- irtæki annars staðar; leitt til aukinnar skilvirkni í rekstri, fært stjórnendum aulcna ábyrgð um leið og sjálfstæði þeirra er aukið, komið pólit- íkinni út úr rekstrinum og gert starfsfólk og viðskipta- vini ánægðari." Sigurjón Pétursson borgar- fulltrúi: „Eins og þetta er hugsað, ef Reykjavíkurborg á að eiga öll hlutabréfin, þá er enginn sjá- anlegur tilgangur með þessu. Ekki nolckur einasti. Því er lofað að starfsmenn haldi störfúm sínum, óbreyttum launum og starfskjörum og óbreyttum lífeyrissjóði. Það á semsagt engu að breyta nema nafnmuThf., og svo hinu, að borgarstjóri einn mun skipa alla stjórnina í stað þess að nú er hún kjörin með lýðræðis- legum hætti í borgarstjórn. Og ef einhver heldur því ffam að Markús öm Antonsson sé ópólitískur, og þarafleiðandi verði stjómin ópólitísk, er ég því algerlega ósammála." Kristín Á. Ólafsdóttir borg- arfulltrúi: „Ég lít svo á að þessi tillaga sem von er á og hefur verið útskýrð sé óheiðarleg blekk- ing og ásetningur sjálfstæðis- manna sé að einkavæða strætisvagnana þótt þeir vilji fresta því framyfír kosningar. Ég er á móti einkavæðingu strætó vegna þess að ég er sannfærð um að það mun þýða annaðhvort lakari þjón- ustu eða miklu hærri fargjöld, nema hvort tveggja verði. Ef ekld væri meiningin að einka- væða strætó, heldur einungis gera það sem þeir hafa boðað í tillögu, þá er það að mínu mati óskiljanlegt mgl. Þá fýrst og fremst í því ljósi að þeir segja að þrátt fýrir hlutafélag- ið eigi borgaryfirvöld, í gegn- um nýja nefnd og borgar- stjóm, að ákveða bæði tekju- hlið fyrirtækisins, það er að segja fargjöld og framlög borgarinnar, og útgjaldahlið, þar sem borgaryfirvöld og þessi nýja stjórnarnefnd eiga að ákvarða um leiðakerfi og þjónustu vagnanna. Þannig að dæmið gengur hvergi upp. Eina breytingin í rauninni væri að í staðinn fyrir að borgarstjórn kjósi fulltrúa til að stjóma strætó á einn mað- ur, sem er pólitískur oddviti sjálfstæðismanna, að skipa menn í þessa stjórn og það sýnir milda tilhneigingu til einræðis en ekki lýðræðis. Það er milcilvægt að borgaryf- irvöld hafi fulla stjórn á al- menningssamgöngum í borginni. Meðal annars til að geta spornað gegn þessari miklu einkabílavæðingu, en höfuðborgarsvæðið hér hefúr álíka mikla einkabílaumferð og 300.000 manna samfélög annars staðar.“ Sigurður I. Skarphéðinsson gatnamálastjóri: „Þetta er mjög fjarri því sem ég er að gera dags daglega og ég hef enga skoðun á því. Þetta er fýrst og fremst pólit- ísk ákvörðun, sem ég legg elckert mat á. Það skiptir mig í starfi mínu því engu máli hvort Strætisvagnar Reykja- víkur eru reknir sem einka- fýrirtæki eða borgarfýrirtæki. Þetta er fýrst og fremst spum- ing um að setja leikreglur, og svo lengi sem menn geta sett leikreglur sem em viðunandi, bæði fýrir þá sem reka og þá sem nota fyrirtækið, sé ég ekkert athugavert við að breyta því í hlutafélag. Það er einungis hægt að líta á þetta sem pólitíska ákvörðun og ég get ekki séð að það eigi að leiða til verri þjónustu, svo lengi sem leikreglurnar sem menn setja sér eru í lagi.“ Júlíus Hafstein borgarfull- trúi: „Ég sé ekkert nema gott við það að breyta Strætisvögnum Reykjavíkur í hlutafélag og er því fylgjandi. Það verður auð- vitað að gerast með þeim hætti að starfsfólki séu tryggð sömu réttindi og það hefúr í dag. Fyrirtækið og rekstur þess eru sett í hlutafélag, en aftur á móti verður hin pólit- íska ákvörðun borgarinnar um almenningssamgöngur í sérstakri stjómarnefnd sem heyrir beint undir borgarráð. Það er því ekki rétt þegar sagt er að hér sé einungis um nafnbreytingu að ræða. Auð- vitað er verið að hugsa til framtíðar. Með þessum hætti er hægt að gera meiri kröfúr til frekari arðsemi þegar ffarn líða stundir. Við erum ekki að hugsa um að láta fýrirtæk- ið af hendi að svo komnu máli, en ég sé ekki annað en mjög góða hluti gerast í kringum þetta mál. Það má heldur elcki gleyma því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft á stefnu sinni og sagt kjósendum, fýrir hverjar kosningar, að þessa leið vilji flokkurinn fara. Því þurfa menn ekkert að verða undr- andi og gera úlfalda úr mý- flugu þegar við tökum okkur til og framfylgjum stefnu okkar flolcks."

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.