Pressan


Pressan - 16.06.1993, Qupperneq 39

Pressan - 16.06.1993, Qupperneq 39
 árg. f^B F* *5 ^7^9 l\l^™r ®m tÆr,'VMt! M— as^—ÆS bkl—Æm Mf rmml pressaw tyigir BH Wm M& ffiBiMI W ■&!» W án HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJOMAR Nýjar upplýsingar um krassið á Þingvöllum Heilu skáldsögurnar skrifaðar í hraunið Þingvöllum, 15. júní. „Það liggur nú fyrir að Þingvellir eru mun merkilegri en áður var tal- ið. Séð úr 25 þúsund feta hæð ffá ákveðnu sjónarhomi má lesa heilu skáldsögurnar úr berginu þar,“ sagði Hanna María Pétursdóttir, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, vegna nýrra og sláandi upplýsinga um Þingvelli. Eins og komið hefúr frarn má lesa áletrunina Blómsturberg út úr berg- inu við Almannagjá. Áletrunin virð- ist vera hiuti af mun stærra ritverki en í fyrstu var talið og Þingvellir allir útkrassaðir. „Ég veit nú ekki hvort þetta em mjög merkilegar bókmenntir en auðvitað er gaman að hafa þetta^ þarna,“ sagði Bjöm Th. Björnsson, helsti sérffæðingur þjóðarinnar um Þingvelli. Hprð barátta um stöðu ráðherrabílstjóra hjá krötum Ami úti í kuldanum Rósinni, 15. júní. „Það væri náttúrulega mjög leið- inlegt ef sú staðreynd að ég er dapur bílstjóri yrði til þess að ég skemmdi umhverfið,“ sagði Össur Skarphéð- insson og hló þegar hann var spurður út í fréttir um harðvítug innanflokksátök um hver yrði bíl- stjóri hans. Sem kunnugt er þá er Össur mjög lélegur bílstjóri og því talið nauðsynlegt að hann fái sér bílstjóra. Hafa þeir Ámundi Ámundason og Hrafn Jökulsson gengið hart fram í baráttunni um embættið og meðal annars skráð sig í ökuleiknikeppnir víða um land. Nú hefur hins vegar Einar Er- lendsson, krati af Austíjörðum, sett óvænta fiækju í málið. „Ég er búinn að vera í þessum andskotans flokki í sjö mánuði án þess að fá neitt emb- ætti. Menn skulu ekki halda að ég nenni að hanga hér inni vegna hugsjónanna, þannig að ef ég fæ ekki þennan bitling þá er ég far- inn í einhvem annan flokk,“ sagði Einar og bætti við: „Ég gekk í Alþýðuflokldnn af því að ég vissi að þar er lítið af fólki en mikið af embættum — ég vona að ég hafi ekki verið blekktur.“ Þá hefur GULA PRESS- AN heimildir fýrir því að mikill titringur sé í flokkn- um vegna þess að þeir Guð- mundur Árni og Óssur lof- uðu embættum á báða bóga í baráttunnni um ráðherra- stólana. Einar Erlendsson, kratl af Austfjörðum, er tal- inn líklegastur til að fá ráðherrabílstjóraemb- ættið. Breytingar hjá sjálfstæðismönnum Davíð fær sér nýjan hund Jón Baldvin og Össur notuðu opinbert fé til að róa konurnar í flokknum Gáfu Jóhönnu andlitslyftingu Reykjavík, 15. júní. „Ég hvorki neita þessu né játa,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra þegar GUIA PRESSAN hafði samband við hann út af orðrómi þess eðlis að kratar hefðu notað opinbert fé til að róa kvennaarm Alþýðuflokksins. Sam- kvæmt heimildum blaðsins var Jó- hanna Sigurðardóttir send aftur af landi brott og að þessu sinni í and- litslyftingu. Mun hugmynd þess eðlis hafa komið upp í allri umræð- unni um að ríkisstjórnin þyrfti á andlitslyftingu að halda. „Ég get auðvitað tjáð mig um málið út ffá umhverfissjónarmið- um. Þannig á litið finnst mér þessi breyting mjög til bóta en lögð var sérstök áhersla á að bros yrði sett á Jóhönnu,“ sagði össur Skarphéð- insson umhverfisráðherra, sem mun vera arkitektinn að þessari hugmynd. Svona leit Jóhanna Slgurðardóttir út þegar hún mætti til vinnu í morgun. Blaðamenn vöktu athygli forsætis- ráðherra á að nýi hundurinn væri dálítið óvenjulegur. „Ja, eins og þið vitið þá var ég nú fúx í skóla þannig að dýraffæðinni er nú ábótavant hjá mér. Ég reynd- ar sagði við Þorstein að mér fýndist dýrið minna um margt á ljón,“ sagði Davíð. „Davíð hefur horft á of margar dýralífsmyndir,“ var það eina sem Þorsteinn Pálsson vildi láta hafa eftir sér um málið. Sighvatur boðar áframhaldandi niðurskurð í nýju ráðuneyti Nýstárieg kæra vegna kynferðislegrar áreitni á vinnustað Fonstjopinn vildi teikna einkennisbúningana „Tanni er sá eini sem vildi fórna sér og ég ræð enn al- mennilega yfir/' sagir Davíð Odds- son forsætisráð- herra. Stjómarráðinu, 15. júní. Davíð Oddsson forsætisráðherra tilkynnti á blaðamannafundi í gær að engar breytingar yrðu á ráð- herraliði flokksins, en hins vegar hefði hann ákveðið að fá sér nýjan hund. „Til að sýna að Sjálfstæðisflokk- urinn er einnig flokkur breytinga hef ég ákveðið að láta hann Tanna minn fara. Það hefur auðvitað áhrif að Tanni er sá eini sem vildi fóma sér sem ég ræð enn almennilega yf- ir,“ sagði Davíð á fúndinum. Davíö Oddsson með nýja „hundinn" sem Þorsteinn Pálsson gat honum. Reykjavík, 15 júní. „Við urðum auðvitað mjög ánægðar þegar forstjórinn tilkynnti að hann ætlaði að gefa okkur nýja einkennisbúninga. Okkur fannst það reyndar dálítið skrítið þegar hann sagðist ætla að teikna þá sjálf- ur, en þar sem hann er nú laghent- ur maður settum við það ekki fýrir okkur. Það var síðan þegar hann sagði okkur að fara úr sem við skildum hvað fýrir honum vakti,“ sagði Þómnn Óskarsdóttir, trúnað- armaður starfsmanna hjá innflutn- ingsfýrirtækinu INN og ÚT hf., sem hafa nú kært forstjóra fýrirtækisins, Jón Pálsson, fýrir kynferðislega áreitni. Meintur glæpur Jóns er að hafa ætlað sér að teikna föt á stúlk- urnar naktar og láta þær ganga þannig um skrifstofúna. „Ég skil ekki hvaða læti þetta eru,“ sagði Jón Pálsson við GULU PRESSUNA og hélt áfram: „Ég hlýt að ráða sjálfur hvernig einkennis- búningar starfsfólksins líta út og svo hafði ég hugsað mér að kynda nóg á vinnustað þannig að þetta getur tæpast verið neitt heilsufarsmál.“ Sunna Pálsdóttir í einum einkennis- búninganna sem Jón Pálsson for- stjóri teiknaði á hana. Nýstárlegar niðurstöður um útvarpsstöðina Úranus Hefur aldrei mælst með hlustun Reykjavík, 15. júní. „Jú, auðvitað eru þetta dálítið slá- andi niðurstöður. Við tókum þá stefnu í upphafi að ná sérstöðu á markanum og þó að þetta hafi ekki beinlínis verið ætlunin má segja að við höfum náð markmiði okkar,“ sagði Jón Egilsson, útvarpsstjóri á útvarpsstöðinni Úranusi. Frá því stöðin tók til starfa fýrir tveimur árum hefur aldrei mælst nein hlustun hjá henni. Enginn kannast við að hafa heyrt í stöðinni og enginn þekkir neinn sem hefúr heyrt í henni. „Auðvitað hafa aug- lýsendur kvartað, en Róm var nú ekki byggð á einum degi,“ sagði Jón Egilsson. Jón Egilsson útvarpsstjóri kennlr lagavalinu um. „Þetta er allt sama læknamafían“ - heyrðist öskrað innan úr ráðherra- herberginu segir ráðuneytisstjórinn. Reykjavík, 15. júní. „Þeir í heilbrigðisráðuneytinu voru búnir að vara okkur við hon- um en við vissum ekki að hann væri svona veikur. Eftir að Jón var búinn að rétta honum lyklana og allir famir heyrðist öskrað innan úr her- berginu: Þetta er allt sama lækn- amafían,“ sagði Bjöm Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneyt- inu. I gær kom Sighvatur Björgvins- son til starfa í viðskipta- og iðnaðar- ráðuneytinu og virðist mönnum að hann ætli lítið að breyta um vinnu- brögð. Á fundi með starfsmönnum í gær hélt hann harðvítuga skammar- ræðu þar sem hann boðaði mikinn niðurskurð; var haft eftir ráðherr- anum að allt of margir ynnu við iðnað, þetta væru meira og minna afætur og tími væri kominn til að spara. „Mér fannst óhugnanlegt í hvaða ástandi maðurinn kom hingað. Hann var greinilega úttaugaður, tal- aði við sjálfan sig og rak upp öskur ef á hann var yrt,“ sagði heimilda- maður úr ráðuneytinu. „Það getur hver maður séð að þetta gengur ekki lengur. Ekkert land í heimi getur haldið uppi svona iðnaði eins og við ger- um. Við ferðumst á fyrsta farrými í iðnaði án þess að hafa efúi á því,“ sagð: Sighvatur Björgvinsson í samtali við GP. „Ég treysti Sighvati til allra góða verka. Hann hefur sýnt að hann er ákaflega fær maður. Þar að auki má hann gera það sem hann vill við þetta ráðuneyti,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Sighvatur Björgvinsson viðskipta- og iðnaðarráðherra hefur strax boðað mikinn niðurskurð í sínum málaflokkum. i*

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.