Pressan - 09.12.1993, Blaðsíða 24

Pressan - 09.12.1993, Blaðsíða 24
HRAUNALFAR 24 PRESSAN Fimmtudagurinn 9. desember 1993 NÁIN KYNNI Skrúðmælgi fer mér illa. Þegar ég beiti henni fyrir mig í ein- hverju samtalinu fer yfirleitt illa fyrir mér, hitti oftast á and- iegan ofjarl minn í skrúðmælgi. Þó er sennilegast að ég gæti kýlt hann kaldan ef því er að skipta. Fyrir utan allt þá er fyrir mér Skrúður bar á Hótel Sögu og mælgi fornt afbrigöi af hinni löngu týndu sögn sem útskýrði að æla og mæla í sömu and- rá. Fyrirbrigði sem landinn skilur enn svo ósköp vel. „Ef það er ekki eitt þá er það annaö,“ sagði stúlkan sem fékk blóðnasirnar. Ég var aldrei viss hvað þetta þýddi og fannst alltaf heldur lélegur brandari. En honum skaut upp í hugann nýveriö. Einungis vegna þess hve ég sakna bókaaug- lýsinga í sjónvarpinu. Desember og ekki minnst á bók! í þeim auglýsingum fór nú fyrir skrúðmælginni. Nú fæ ég bara mis- vitrar geislaplötuauglýsingar, vertíðin er byrjuð. En hvaö er ég að segja? Fyrir tilstuölan auglýsinga er ég orðinn meövitaðri um nokkur önnur leyndarmál lífsins. Aldrei vissi ég að dömubindi gætu flogið. Þau eru víst komin með vængi. Þaö hlýtur að vera mikill léttir að þau skuli fást meö vængjum. Upplýsingagildiö er ótvírætt. Nú loksins get ég, rembusvíniö, skilið að það er ekkí hægt aö gera dodo af því konan er ekki lent vegna þess að hún er á flugi með bindi. Þetta er myndrænt. Loksins er hægt að tala um hlutina án skrúðmælgi. Laus við: „þessi tími mánaðarins", o.s.frv. Önnur upplifun er bleyjurnar. Ég hef ekki farið varhluta af þvi síðasta eina og hálfa árið að sonur minn hefur hægðir. Ég kalla það bara að kúka. Hann gerir það í þar til gerðan áfest- anlegan klút kallaöan bleyju. Ein auglýsingin kallar þetta óhapp. Mér finnst það ekkert óhapp að kúka. Það er bara nauösynleg framkvæmd til að halda lífi. En ég er upplýstur eftir þessar auglýsingar. Hvað myndum viö gera án þeirra? Ég dáist að þessu fólki í auglýsingunum sem segir blákalt frá því aö eftir að það „kynntist" túrbleyjum og kúkteppum þá hafi líf þess breyst til muna. Djöfull hefur það lifað leiðinlegu og flóknu lífi fyrir. Af öllum sólarmerkjum aö dæma má draga þá ályktun aö dagarnir hjá þeim hafi veriö hreinn hryliingur og greinilega átt í hinum mestu raunum. Þeirra „kynni" eru jafn upplýsandi og: „Frá því að ég kynntist gráum sokkum hef ég aldrei gengiö betur. Með gráum sokkum geng ég betur og allt gengur bet- ur. Gráir sokkar sýna mér hvað lífið gengur betur. Ég mundi ekki ganga í neinu öðru en gráum sokkum. Fólk hefur tekið eftir því hvað ég geng betur í gráum sokkum. Þetta er jafn stjúpid og að syngja um hvað ég elska konuna heitt og hvað það var frábært að eignast barn. Ó! Ó! Ó! Voru ekki einhverjir popparar að senda frá sér afurðir í geislaplötu- formi um svipað efni? Ó jú. Einhverjir rithöfundar sjálfsagt líka. En því miður ekki auglýst í sjónvarpi. En þeirra boðskapur er jafn nauðsynlegur og upplýsingar um flúgandi túrteppi og saurdregla. Hafa þeir virkilega rétt á því að baula og gaula sem hýenur yf- ir mig um hvað það er frábært, einstakt aö eignast barn eöa elska konu eða mann. Einsog það hafi aldrei gerst áðurl? Gimmí a breik. Ég væri Ijóti aulinn að trúa þessu kjaftæöi, hvort sem það er í auglýsingu eða popptexta, að þetta væru mín „kynni“ af líf- inu. En allir veröa að hafa ofan í sig og á. Þessar tilfinninga- skertu verur sem framleiöa og útvarpa þeirri lífsspeki að lífið og svör viö betra lífi séu bundin í tuttugu sekúndna auglýs- ingu eða í popplagi eru hreinlega uppvís að því að halda að við séum öll aumingjar og þeirra heilaga skylda sé því að sjá okkur fyrir andlegu fóðri. Af því þau kunna að koma orðum að hlutunuml? Andlegt fóður? Nó vei! Einar Ben Hlaðvarpinn: Persónuleg og óháð bók- og plötusala Það eru ekki einasta bóka- búðir og stórverslanir sem selja jólabækurnar í ár heldur einnig Hlaðvarpinn. Þar er að vísu ekki alla titlana að finna, aðeins þá sem eru frá minni bókaútgáfum og þeim sem ströggla við að gefa út bækur sínar sjálfir. Einnig kemur plötuútgáfan Smekkleysa til með að selja í Hlaðvarpanum geislaplötur, bæði gamlar og nýjar. En hver er tilgangurinn? „Tilgangurinn er eingöngu að auka fjölbreytnina. Við er- um að auki með listamarkað- inn og jólatréssölu og státum af því að selja ódýrustu jóla- trén í bænum, eins og kom fram í nýlegri könnun,“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, ffamkvæmdastjóri Hlaðvarp- ans, sem borið hefur hitann og þungann af þvi að fá alla þessa aðila til liðs við sig. Þeir eru bókaútgáfan Bjartur, sem gefur m.a. út Braga Ólafsson; Birtingur, sem gefur að mestu út nýaldarbókmenntir; systkinin Elísabet Jökulsdótt- ir með Galdrabók Ellu Stínu og Hrafn Jökulsson með ljóðabókina Þegar hendur okkar snertast; nýir og gamlir titlar frá bókaútgáfunum Rauða húsinu, Skýi og Örlag- inu; Anna S. Björnsdóttir með nýju ljóðabókina sína, Sldlurðu steinhjartað?; Þórð- ur Helgason með sína nýj- ustu, sem heitir Aftur að vori; Eyvindur Eiríksson og dóttir hans, Rósa Eyvindsdóttir, með eldri bækur sem og Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir. „Rithöfiindarnir og útgef- endurnir munu sjálfir skipt- ast á að vakta markaðinn. Þarna verður upplestur og fleira til. Þetta gerum við til að skapa stemmningu.“ Þá má geta þess að nýlega er búið að breyta og endur- bæta kaffistofuna í Hlaðvarp- anum, sem heitir nú Betri stofan. MVND: JIM SMART SIGRÍÐUR INGIBJORG INGADÓTTIR. Hún segir að skapa eigi stemmningu með höfundum og útgefendum bókanna sem fást á bókamarkaðnum. MYNDLIST Hraunummyndanir HALLDÓR ÁSGEIRSSON, LISTASAFNI ASÍ í stuttu máli: Bráðið hraun leikur aðalhlutverkið í per- sónulegri og sérstæðri sýn- ingu. Myndlist Halldórs Ásgeirs- sonar hefur tekið töluverðum stakkaskiptum á undanförn- um árum. Hann var einkum þekktur fyrir líflegar línuteik- ingar þar sem fígúrur og myndtákn flæddu um litríka fleti. En þá kom eldurinn í spilið. Á sýningu í Nýlista- safninu fyrir tveimur árum höfðu orðið mikil umskipti, þar sem við blöstu sviðnir drumbar og sótug klæði. Gáskinn hafði fuðrað upp og í staðinn voru komin dökk, þung og forneskjuleg verk. Aðdáendur Halldórs voru orðnir uggandi um hvert stefndi. En hann var greini- lega staðráðinn í að nota eld- inn til sköpunar og beindi nú loganum að hraungrýti, bræddi yfirborð hraunsteina þannig að úr varð gljáandi glerjungur og lét bráðið hraunið leka og drjúpa á til- ædaða staði. Ekki náði hann strax tökum á því að notfæra sér hraunbráðina og ýmsar tilraunir og þreifingar voru ekki sannfærandi — fyrr en nú. Sýning Halldórs í Lista- safni ASI kemur á óvart, blærinn yfir sýningunni er allt annar en hefúr verið áberandi í verkum Halldórs undanfar- in ár. Þau eru miklu opnari og léttari, eins og hann hafi aftur náð sambandi við stemmninguna í fyrri verk- um. GUNNAR ÁRNASON Ástæðuna er m.a. að finna í því hvernig Halldór fellir saman gjörólíka eiginleika innan sömu heildar. Svartar hraunsletturnar, sem varð- veita augnablik storknunar- innar, eru rammaðar inn í stabíl form, gegnsæja diska og reglubundna uppröðun. Hraunbráðin er algjörlega ka- ótísk, efhi án nokkurs forms sem heitið getur, frá sumum dropunum liggja þræðir sem bókstaflega hverfa út í loftið. f einu verkinu hefur hann mál- að hraunslettumar þannig að maður villist auðveldlega á raunverulegum hraunslettum og myndum af þeim, sem gera þessi undarlegu and- form enn óraunverulegri. f myndröð hefur hann teiknað með trélitum fjölda lítilla mynda af hraunslettum, sem hann kallar „hraunálfa“, og birtast eins og sýnir úr öðmm heimi. Stærsta verkið á sýning- unni heitir „Við hraunmúr- inn“, og er mannhæðarhár veggur hlaðinn úr Mát-stein- um, steyptum múrsteinum úr rauðamöl. Halldór hefur ráðist á vegginn og hreinlega brætt sig inn í hann og skilið eftir sig stóra svarta hringi. Eiginleikar efnisins, sem er lokað inni í múrsteinunum, eru þvingaðir ffarn úr grám- öttu yfirborðinu. Úr þessu verður ekki aðeins svartur blettur á yfuborði múrsins, heldur skapast sérkennileg sjónblekking þar sem hringurinn virðist svífa laus á bak við línurnar sem myndast af hleðslunni, eins og svart tungl. Það er athyglis- vert að hafa verk Jóhanns Eyfells í huga þegar sýning- in er skoðuð, því það má finna vissar hliðstæður milli verka hans og Hall- dórs; báðir nota logsuðutæki og bræða efnið. Það má líka finna and- stæðurnar milli forms og form- leysu, tilvísanir í orku og tímavíddir. En þó er töluvert ólíkur andi í þess- um verkum. Hall- dór virðist laðast að dulspekilegri sýn á náttúruna, einhvers konar alkemíu, með frumelement- unum fjórum; eldi, efni, vatni og lofti. Hin alkemísku effii brennisteinn og salt koma einnig fyrir og í verkinu „Frjóvgun“ t.d. virðist hann hallast að hug- mynd um innri sköpunar- og lífskraft náttúrunnar. Umbrotaskeiðið í list Hall- dórs Ásgeirssonar er ekki al- veg til lykta leitt, en sýningin gefur skýrar vísbendingar um að spennandi hlutir eru í MYND: JIM SMJRT „Sýning Halldórs kemur á óvart, blœrinn yfir sýningunni er allt annar en hefur verið áberandi í verkum hans undanfarin ár. “ vændum. Sum verkin eru lakari, einkum stakir bræddir hraunsteinar á gólfinu og log- soðið hraun sem er stillt upp í glerkössum eins og sýnum á náttúrugripasafni. Hið brædda yfirborð steinanna og sérkennileg form nægja ekld ein sér til að mynda áhuga- vert listaverk En það gerir lít- ið til í þessu tdlviki vegna þess að sýningin myndar sterka heild sem grípur augað um leið og gengið er inn í salinn.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.