Pressan - 16.12.1993, Qupperneq 8
8 PRESSAN
F R ETT I R
Fimmtudagurinn 16. desember 1993
Hríðversnandi staða kaupfélaganna kallar á fjársöfnun meðal félagsmanna
Sækja hlutafé bakdyramegln
Kfl: Skuldar 1,3 milljarða og þarf aukið hlutafé.
SÍS: Ný lög til að auðvelda samvinnufélögum að auka hlutafé sitt komu of seint
fyrir Sambandið.
Kaupfélag Árnesinga vinn-
ur nú að því að selja B-hlut-
deildarskírteini til að fá fé inn
í fyrirtækið. Er ædun félagsins
að selja skírteini fyrir 65 millj-
ónir króna fyrir áramót.
Verðbréfaþing Islands telur að
salan sé í andstöðu við reglu-
gerð um útboð hlutabréfa, en
Bankaeftirlit Seðlabankans
hefur neitað að hafa afskipti af
málinu þrátt fyrir tilmæli for-
ráðamanna Verðbréfaþings
íslands.
Nokkur kaupfélög hafa nú
þegar gripið til þess ráðs að
selja B-hlutdeildarskírteini til
að efla eiginfjárstöðu sína, en
þetta varð heimilt með nýjum
lögum um samvinnufélög frá
árinu 1990. Auk KÁ seldu
bæði Kaupfélag Eyfirðinga og
Kaupfélag Húnvetninga slík
skírteini í fyrra þó að aðferðin
hafi verið mjög ólík. Einnig
seldi Sláturfélag Suðurlands
slík skírteini meðal annars
gegn loforði um forgang við
stórgripaslátrun, sem hlýtur
að vekja furðu. Þá heyrast
fréttir af því að mörg önnur
kaupfélög og samvinnufyrir-
tæki ætli að grípa til þessa ráðs
til að reyna að rétta við fjár-
haginn.
Staöa kaupfélag-
anna mjög slæm
Það hefur ekki farið fram-
hjá neinum að staða Sam-
vinnuhreyfmgarinnar í heild
hefur verið slæm á undan-
förnum árum. Lætur nærri að
Samband íslenskra samvinnu-
félaga hafi tapað einum millj-
arði króna á ári í mörg ár og á
það nú ekki fýrir skuldum.
Kaupfélögin í land-
inu hafa ekki farið var-
hluta af þessu, en á sex
ára tímabili frá árinu
1986 hefur þeim fækk-
að úr 42 í 25 en síðast
varð Kaupfélag
Strandamanna gjald-
þrota. í september síð-
astliðnum mátti lesa
samantekt í Vísbend-
ingu þar sem kom fram
að kaupfélögin í heild
hefðu tapað 632 millj-
ónum króna árið 1991
og 374 milljónum árið
1992. Þar var reynt að finna út
raunverulegt tap út frá sam-
stæðureikningi, þar sem af-
koma skyldra félaga kemur
fram, en í raun hafa slíkar
upplýsingar ekki legið fyrir
áður. Samkvæmt uppgjörsað-
ferð SÍS, sem lengst af hefur
safnað saman upplýsingum úr
ársreikningum kaupfélag-
anna, var tap ársins 1991 að-
eins 414 milljónir eða 218
milljónum króna minna en
Vísbending sýndi fram á,
enda ekki tekið tillit til heild-
arafkomu kaupfélaganna.
Þetta tap kaupfélaganna er
búið að vera nokkuð samfellt í
fjölda ára með undantekn-
inguárið 1990.
Það bendir margt til þess að
rekstur kaupfélaganna yerði
erfiður í ár og taprekstur
margra þeirra haldi áfram.
(EA: Gengisfellingin ruglaði arðsem-
ishorfurnar.
Eiga þau flest eftir að afskrifa
eignarhlut sinn í stofnsjóði
SÍS, auk hlutafjár í ýmsum
dótturfyrirtækjum Sam-
bandsins, en tvö þeirra hafa
orðið gjaldþrota á árinu. I átta
mánaða uppgjöri KEA kemur
ffam að tapið er 105 milljónir
króna og ekki er gert ráð fyrir
að seinnihluti ársins bæti
stöðuna neitt. Það er ekki
beinlínis það sem kynnt var
fyrir kaupendum B-hlutdeild-
arskírteina í fyrra.
Gengisfellingin rask-
aöi forsendum KEA-
manna
KEA-menn stóðu að sínu
útboði eins og um alvöru-
hlutabréfaútboð væri að ræða
og létu skrásett verðbréfafyrir-
tæki, Kaupþing, sjá um út-
boðið. Ákveðin tengsl má
reyndar sjá á milli fyrirtækj-
anna, þar sem KEA á hlut í
dótturfyrirtæki Kaupþings,
Kaupþingi Norðurlands hf.
Útboðslýsingin er mikil að
umfangi og má þar meðal
annars finna ársreikninga
KEA. Það kom ffam hjá Stef-
áni Halldórssyni hjá Kaup-
þingi að minni má upplýs-
ingagjöfin ekki vera, sem hlýt-
ur að vera athyglisvert ef tak-
markaðar upplýsingar við út-
boð KÁ eru skoðaðar.
KEA seldi hlutafé að nafn-
KH: Betur stæða samvinnufélagið
keypti í því gjaldþrota.
verði 50 milljónir á genginu
2,25 og hefúr það gengi hald-
ist nokkuð stöðugt. 260 aðilar
keyptu hlutaféð, bæði stórir
fjárfestar og einstaklingar,
enda veittur skattafsláttur. Að
sögn Stefáns er rekstraraf-
koma fyrirtækisins, að slepptri
gengisfellingu, í samræmi við
spár. Gengisfellingin hefur
hins vegar ruglað myndina,
enda skuldir félagsins að tölu-
verðu leyti í erlendum gjald-
miðlum.
Örvæntingarfullt út-
boð KÁ
Síðustu vikur hafa forráða-
menn Kaupfélags Árnesinga
gengið hart fram í að selja B-
hlutdeildarskírteini. Eins og
áður sagði telja forráðamenn
Verðbréfaþings Islands þetta
útboð þurfa nánari skoðunar
við. KÁ-menn selja sjálfir
bréfin en þeir ætla að selja 50
milljónir að nafhvirði á geng-
inu 1,3, sem á að færa fyrir-
tækinu 65 milljónir króna.
Ef útboðslýsingin er borin
saman við útboðslýsingu KEA
kemur í ljós að upplýsinga-
gjöfin er mjög ólík. Ef litið er á
blaðsíðufjöldann einan og sér
þá er í sölulýsingu KEÁ 31
síða á meðan sölulýsing KÁ er
upp á 8 síður, þar af eru að-
eins 3 síður sem segja eitthvað
um afkomu fyrirtækisins og
það í mjög takmörkuðum
mæli, það er helst að fyrirtæk-
ið birti eitthvað um „fram-
legð“ sína, sem ein og sér segir
ekkert.
PRESSAN hefur heimildir
fyrir því að mjög hörð sölu-
starfsemi sé í gangi og jafhvel
starfsmenn sem komnir eru á
eftirlaun settir í að endurnýja
persónuleg tengsl til að koma
út hlutdeildarskirteinum.
KÁ rekur enn innlánadeild
og hefur átt í vandræðum
með að uppfylla skilyrði
Bankaeftirlitsins um eigið fé
til að geta haldið áfram starf-
semi deildarinnar. Það eru
fyrst og fremst félagsmenn
sem eiga þar inni fjármuni og
hefúr þeirn meðal annars ver-
ið boðið að breyta þeim í
hlutdeildarskírteini. Einnig
hefúr fyrirtækjum og einstak-
lingum sem KÁ skuldar verið
boðið að breyta skuldum í
hlutdeildarskírteini.
Horfur eru á að KÁ tapi
þriðja árið í röð, en tap ársins
í fyrra var 54,3 milljónir og ár-
ið 1991 tapaði félagið.37,9
milljónum. Að auki á fyrir-
tækið eftir að afskrifa tugi
milljóna vegna stofnsjóðs
Sambandsins og annarra
hlutafélaga. Þá hafa menn
sem rýnt hafa í ársreikninga
félagsins greint breytingu á af-
skriftarreglum þess, sem eru
KB: íhugar að selja skírteini en
spurning hvað verður eftir annað en
skuldir.
til þess gerðar að bæta eigin-
fjárhlutfallið. Hefúr fyrningar-
hlutfall verið lækkað um 25
prósent á inilli ára, sem gerir
að verkum að minna er fært
til afskriftar.
Útboðin á skjön viö
regiugerö
I reglugerð um almenn út-
boð verðbréfa, sem gefin var
út 11. ágúst síðastliðinn, eru
sett mikil takmörk á hve við-
tækt útboð megi vera ef ekki
er notuð milliganga verð-
bréfafyrirtækja. I stuttu máli
má segja að fjöldi sá er selt er
til megi ekki fara yfir 200 að-
ila, ef ekki á að koma til opin-
ber útboðsgerð með milli-
göngu verðbréfafyrirtækis.
Utboðsgögn hjá KÁ voru hins
vegar send félagsmönnum KÁ
(sem eru 2.827 talsins), starfs-
mönnum félagsins (sem eru
376 talsins), bæjar- og sveitar-
félögum á Suðurlandi, verka-
lýðsfélögum, lífeyrissjóðum,
ýmsum samstarfsfyrirtækjum
KÁ og viðskiptatengdum fé-
lagasamtökum.
Eins og rakið var í PRESS-
UNNI fyrir ári voru þá seld B-
hlutdeildarskírteini í Kaupfé-
lagi Húnvetninga. Var selt fýr-
ir 105 milljónir og var stærsti
SS: Seldu skírteini meðal annars út á
forgangsröð við stórgripaslátrun.
kaupandinn Sölufélag Austur-
Húnvetninga, sem er nátengt
félag, enda félögin með sömu
skrifstofu og sama fram-
kvæmdastjóra. Sölufélagið
keypti tæplega 80 prósent af
hlutafénu og þá rann sveitar-
félögum og skyldum aðilum í
nágrenninu blóðið til skyld-
unnar og keyptu afganginn,
enda kaupfélagið nánast
gjaldþrota. Var söfnunin því
líkari atvinnuátaki en sölu
hlutabréfa.
Þá íhuga stjórnarmenn hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga sölu
B-hlutdeildarskírteina, en
mikil uppstokkun er fram-
undan hjá fyrirtækinu. Sam-
kvæmt uppíýsingum Davíðs
Aðalsteinssonar, stjómarfor-
manns KB, er rætt um að
stofna hlutafélag utan um
kjötvinnslu fyrirtækisins. Þá
er spurningin hvað stendur
eftir af samvinnustarfsemi til
að selja skírteini út á og hvað
þar verður af skuldum, en
skuldir KB um síðustu áramót
vom 554 milljónir og áffarn-
haldandi taprekstur í ár.
Siguröur Már Jónsson
Baáberinn snari
nashuatec P295 faxtækln
snarar baáum þínum hratt
ag arugglega hvert sem er
</ Un/al faxtækja fyrir venjulegan pappír
/ Faxtæki vinnustaóarins
/ Faxtækl heimlllsins
OPTSMA
m)
.
KAFFIBRENNSLA
AKUREYRAR HF