Pressan - 16.12.1993, Síða 20

Pressan - 16.12.1993, Síða 20
Tœlensk matargerð á sér langa sögu. Tœlendingar leggja mikið upp úr fjölbreyttu úrvali hráefhis í rétti sína og er samspil ávaxta og gmnmetis í skreytingum afar myndmnt og „lystaukandi“. Tœlenskur matur er bragðmikill, en ekki endilega bragðsterkur. Styrkleiki kryddsins fer alveg eftir smekk og óskum hvers og eins. Veitingahúsið Banthai býður upp á fjölbreytt úrval rétta og eru þeir bornir fram áfati, þannig að hver og einn getur bragðað á öllum réttunum sem pantaðir eru. A efri hæð veitingahússins getum við boðið hópum séraðstöðu í hlýlega innréttuðum sölum (herbergjum), allt frá 6 og upp í 30 manns. Verið velkomin! Laugavegi130, sími 13622 HWLUUIii FmE b! i T 1 1 i 1 SGO kránur i lausasalu (Vikuritiá PRESSAN fylgir án endurgjalds) R HLJÓMAR Skoðanakönnun GP meðal forstjóra Flestir vilja reka skúringakonuna ef hún skúrar ekki þrjá daga í röð Reykjavík, 1-5. desember._ I nýlegri skoðanakönnun sem gerð hefur verið fyrir GULU PRESSUNA meðal forstjóra kemur fram að mik- ill meirihluti þeirra telur rétt að reka skúringakonuna ef hún skúrar ekki þrjá daga í röð. Einnig telja forstjórarnir rétt að reka matráðskonuna ef hún brennir matinn tvo daga í röð eða eldar fisk oftar en tvisvar í viku. Þá telja þeir rétt að reka sendilinn ef hann er of seinn þrjá daga í röð. Þá kemur fram að flestir forstjórarnir telja sig með of lág laun og að fyrirtækjunum væri mun betur stjórnað ef þeir fengju betri bíl. 75 pró- sent forstjóra telja að ef þeir fengju hærri laun væru fyrir- tækin sömuleiðis betur rekin og þá væri jafnvel hægt að gera kröfú til þess að þau væru rekin með hagnaði. 68 prój sent forstjóra telja að aðrir starfsmenn séu með of há laun og allir forstjórarnir í könnuninni töldu að aðrir forstjórar hefðu of há laun. Qvænt úrslit í Moskvu Olafur Ragnar kosinn á rússneska þingið - „sýnir aö útflutningsleiöin er rétta leiöin," segir Úlafur Ragnar að Olafur Ragnar var í boði. Moskvu, 14. desember. Ovænt úrslit hafa borist frá kosningum á rússneska þingið sem fóru fram um helgina. Svo virðist sem Ól- afúr Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, hafi fengið bindandi kosn- ingu á þingið þar. „Þetta kemur gleðilega á óvart og sýnir bara að út- flutningsleiðin er rétta leið- in,“ sagði Ólafur Ragnar í símasamtali við GULU PRESSUNA. „Þessi kosning verður í næstu brandarabók minni,“ segir Magnús Óskarsson, borgarlögmaður og ferðafé- lagi Ólafs Ragnars. „Ég ætla að leggja til að keypt verði íbúð handa Ól- afi Ragnari í Moskvu þannig að hann þurfi ekki að koma heim,“ sagði Svavar Gests- son, þingmaður Alþýðu- bandalagsins. Stríð kaupmanna tekur á sig nýja mynd Bjóða upp á sérstakan jóla- svein fyrir pabbana Reykjgvík, 15. desember. _ „Það kom í Ijós að pabbarnir eru afskaplega afskiptir í jólaösinni og hafa litlá gleði af ráfi um verslanim- ar. Þess vegna ætlar hún Gunnþór- unn okkar að hugsa um pabbana á meðan mömmurnar versla,“ sagði Sigurður Gísli Pálmason í Kringl- unni, en barátta kaupmanna um viðskiptavini hefúr tekið á sig nýja mynd. Auk hins hefðbundna jóla- sveins fyrir börnin verður boðið upp á Gunnþóru, sem svarar spum- ingum pabbanna á meðan konurn- ar versla. Gunnþórun Bára Vilhjálms- dóttir var að koma sér fyrir í Kringlunni í gær þegar ijós- myndari GP smellti þessari mynd af henni. Talaðu við okkur um BÍLARÉTTINGAR ' ASPRAUTUN Varmi Auðbrekku 14, sími 64 21 41 Miklar breytingar á forystu Framsóknar Steingrímur kominn með nýj'a klippingu „Það er ekki rétt að ég sé steinrunninn í embætti for- manns,“ sagði Steingrímur Her- mannsson þegar hann kynnti fréttamönnum nýja og róttæka klippingu. „Ég vona að þetta þaggi niður i henni Agnesi," bætti snoðhaus- inn við. «

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.