Pressan - 30.12.1993, Síða 3
I
I
I
I
I
I
I
>
>
>
I
Fjárfestingarfélagið Skandia hf er alfarið í eigu Skandia-samsteypunnar
Fimmtudagurinn 30. desember 1993
PRESSAN 3
lllftll
j^Jýstofnað hagsmunafélag
landeigenda við Þingvallavatn
hafur vekið athygli, en for-
maður félagsins er Björn
Helgason, jarðfræðingur á
Keldnaholti.
Landeigend-
ur hafa með
vaxandi
áhyggjum
fylgst með
starfi þeirra
Guðrúnar
Jónsdóttur
arkitekts og
Auðar Sveinsdóttur lands-
lagsarkitekts, sem vinna að
svæðaskipulagi fyrir hreppana
þrjá við vatnið. Ganga tillögur
þeirra langt í friðun og þykir
landeigendum sýnt að með
þessu fylgi eignaupptaka án
mikilla bóta. Má gera ráð fýrir
að þetta verði nokkurt hita-
mál á næstunni...
Skandia
Fjárfestingarfélagið Skandia hf.
Löggilt verðbréfafyrirtæki • Laugavegi 170, Sími 61 97 00
Útibú: Kringlunni, Sími 68 97 00 • Akureyri, Sími 1 22 22
A,
^ndrés B. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Alpan,
mun láta af þeim störfum um
áramót. Fyrirtækið Alpan hef-
ur framleitt álpönnur og -
potta um árabil en reksturinn
ekki gengið sem skyldi. Tapið
var 20 milljónir króna á síð-
asta ári og fullyrt að það verði
ekki minna í ár. Einnig er full-
yrt að helstu ástæðuna fyrir
erfiðleikunum sé að finna í
framleiðslunni sjálfri. Verk-
smiðjan var á sínum tfma
keypt ffá Danmörku, en þar
var fyrir önnur verksmiðja
sem heitir Skanpan. Hún
ffamleiðir alveg sambærilega
vöru en býr yfir tækni til að
loka málminum og hefur
einkaleyfi á því. Þeir sem hafa
keypt framleiðslu Alpan
þekkja flestir að pönnurnar
vilja bólna upp og flagna og
þykir það ekki heilsusamlegt.
Meðal forsprakkanna voru
iHaraldur
IHaralds-
son í
Andra og
Önundur
lÁsgeirsson
|í Olís, en
Byggða-
Istofnun er
ínú orðin
stór hluthafi. Upphaflega var
gert ráð fyrir útflutningi á
Ameríkumarkað í stórum stíl,
en Skanpan situr að mestu að
þeim markaði. Einnig ætlaði
verksmiðjan að kaupa allt ál
ffá Álverinu í Straumsvík en
flytur nú inn uppbrætt ál frá
Bretlandi...
vJíðastliðið sumar kom upp
sérstætt mál á Ólafsvík þegar
lögreglan þar þurfti að hafa
afskipti af vopnaburði Sig-
urðar Baldurssonar, yfir-
læknis við heilsugæslustöðina.
Hafði hann í hótunum við
vegfarendur og beindi í áfeng-
isvímu að þeim haglabyssu.
Fundust um fjörutíu skot á
honum við leit. Eftir langt ffí
er yfirlæknirinn kominn aftur
til starfa. Það hefiir hins vegar
vakið athygli heimamanna að
ekkert virðist ætla að verða úr
rannsókn málsins ffá í sumar
og bendir flest til þess að því
hafi verið stungið undir
stól...
S K I L A B O Ð
Deutsche BankAG í Frankfurt
VILTÞU
EIGNAST
HLUT I DEUTSCHE
BANKAG?
Fjárfestingarfélagið Skandia greiðir götu
þína á alþjóðlegum verðbréfamarkaði
Fjölmargir viðskiptavinir Fjárfestingarfélagsins
Skandia hf. hafa þegar kynnst því hversu einfalt
það er að fjárfesta hluta eigna sinna í erlendum
verðbréfum. Flestir þeirra hafa fengið raun-
ávöxtun sem er verulega umfram það sem gerist
og gengur hér heima. Jafnframt hafa þeir náð
betri og skynsamlegri áhættudreifingu á sparifé
sitt þar sem þeir treysta ekki lengur eingöngu á
verðgildi íslensku krónunnar.
Þú þarft ekki endilega að kaupa hlut í Deutsche
Bank eða áþekku fyrirtæki til að fjárfesta áhættu-
lítið erlendis. Þú getur valið á milli margra mis-
munandi verðbréfasjóða, þar sem áhætta er í lágmarki.
T.d. er það markmið sumra verðbréfasjóða að
fjárfesta einungis í öruggum verðbréfum, svo
sem ríkisbréfum á meðan aðrir leitast við að ná
hárri ávöxtun með fjárfestingu í efnilegum
fyrirtækjum.
Fjárfestingarfélagið Skandia er umboðsaðili
fyrir ýmis eignaumsýslufélög sem njóta mikils
trausts á heimsmarkaði og bjóða þau öll sjóði
með góðri áhættudreifingu.
Ráðgjafar Skandia aðstoða þig fúslega við
að finna rétta verðbréfasjóðinn fyrir þig.