Pressan - 30.12.1993, Side 18
Það markverðasta og ómerkilegasta í bókmenntum ársins.
Þegar litið er á skáldverk ársins
1993 er ekki hlaupið að því að
greina þar ákveðna strauma eða
stefnur. Efnisvalið virðist æði fjöl-
breytt en ef eitthvað er virðist sem
ástin hafi einhverja yfirburði. Hún
var þráðurinn í fjórutn skáldsögum
ársins: Ástin fiskanna, Borg, Hengi-
flugið og Sú kvalda ást sem hugar-
fylgsnin geyma. Ástin fiskanna eftir
Steinunni Sigurðardóttur var róm-
antískust og fallegust þessara bóka,
ómenguð ástarsaga sem ógiftar
konur á fertugsaldri lifa sig mjög
inn í, eða svo segir mín reynsla.
Sjóarasögur voru einhverjar, en
engin þeirra áberandi tilþrifamikil.
Enn aðrir höfundar einbeittu sér
að myrkum efnum. Illugi Jökulsson
skrifaði mjög óvenjulega bók um
grimmd og stríðsógnir. Bókin varð
þó aldrei fyililega sannfærandi. Ein-
ari Má tókst hins vegar frábærlega
að skrifa um hugarheim geðsjúk-
lings í bókinni Englum alheimsins.
Það var meiri stilling í ljóðrænu og
þunglyndislegu verki Gyrðis Elías-
sonar Tregahorninu (titili bókar-
innar gefur efni hennar svo sannar-
lega til kynna).
Björn Th. Björnsson var á allt
öðru róli en allir hinir í sögulegri
skáldsögu, Falsaranum, og þar hitti
hann á einhverja þjóðartaug því bók
hans rokseldist. Falsarinn er ein
þeirra bóka sem óhætt er að gefa
nær hverjum sem er, það er nær ör-
uggt að hún muni falla í kramið.
Þetta er sérlega vel skrifuð bók, full
af ævintýrum og spennu og allt
meira og minna sannleikanum
—^amkvæmt.
Bók Björns hlaut lofsamlega
dóma gagnrýnenda og var tilnefnd
til Islensku bókmenntaverðlaun-
anna. Fyrsta skáldsaga Birgis Sig-
urðssonar hlaut einnig einróma lof,
kannski er þar sú skáldsaga ársins
sem lofsamlegasta dóma hlaut. Það
olli víða undrun þegar bókin var
ekki tilnefnd til íslensku bók-
menntaverðlaunanna. Sú sem þetta
ritar viðurkennir að bók Birgis hafi
komið sér mest á óvart um þessi jól
og er það ekki sagt í jákvæðasta
skilningi. Miðað við hið gífurlega
lof sem bókin hlaut virtist raunhæft
að gera ráð fýrir tilþrifamiklu verki.
En bókin er verk sem er ekki nema í
meðallagi gott. Hún er löng og hæg
og í ffásögninni er vel greinanlegur
UNNNI þar sem hún þótti tilgerð-
arleg og leiðinleg, verðlaunalegt en
þó ekki lífvænlegt bókmenntaverk.
Bókin var tilnefhd til íslensku bók-
menntaverðlaunanna og er ekki
ólíklegt að hún hreppi þau verðlaun
þrátt fyrir efasemdir þessa gagnrýn-
anda.
Sú bók sem mest kom á óvart að
finna í hópi skáldverka sem tilnefnd
voru til íslensku bókmenntaverð-
launanna var skáldsagan Borg eftir
Rögnu Sigurðardóttur. Það er erfitt
að sjá hvað varð til þess að hún varð
fyrir valinu því verkið líður sárlega
fýrir tilgerð og er greinilegt byrj-
andaverk.
Englar alheimsins, skáldsaga Ein-
ars Más Guðmundssonar, var ekki
tilnefnd til íslensku bókmennta-
verðlaunanna og það kom mörgum
þeim sem lesið höfðu bókina
óþægilega á óvart. Þessi skáldsaga
Einars Más er tvímælalaust hans
besta bók, svo áhrifamikil að hún
kemur lesandanum beinlínis úr
jafnvægi. Textinn er oft undrafalleg-
ur og stundum mjög fyndinn. Þetta
er bók sem ætti að vinna til verð-
launa.
Bók Einars Más er að öllum lík-
indum áhrifamesta skáldverk ársins
en smásagnasafn Gyrðis Elíassonar
er það prósaverk ársins sem unnið
var af mestri listrænni ögun. Ég kýs
að kalla það fullkomið verk. Það er
dapurlegt að í ágætri bókavertíð
skuli hafa farið svo lítið fyrir þessu
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
Sú skáldkona okkar sem skrifar læsilegastan og bestan stíl.
gaman.
Bók Guð-
bergs var all- BIRGIR SIGURÐSSON
ó v e n j u 1 e g Ofmetnasta skáldverk ársins.
predikunar- og vandlætingartónn.
Þetta er gamaldags skáldsaga í sið-
bótarstíl. Það má hafa nokkurt
gaman af henni sem slíkri en hún er
ekki sérlega eftirminnileg. Og mið-
að við þá dóma sem hún hlaut er
hún að mínu mati ofmetnasta
skáldverk þessa árs.
Guðbergur Bergsson átti marga
fína spretti í skáldsögu sinni Sú
kvalda ást sem hugarfylgsnin
geyma. Þessi saga um ástarsamband
tveggja karlmanna varð þó hvorki
sérlega ögr-
andi né djörf
en oft ákaf-
lega fyndin.
Öðru hvoru
hætti Guð-
bergi til að
teygja lopann
og í bókinni
er nokkuð
um óþarfa og
þreytandi
blaður. Þetta
er ekki með
betri bókum
Guðbergs en
það má þó
hafa af henni
n o k k u r t
ástarsaga en saga Steinunnar Sig-
urðardóttur Ástin fiskanna var lítil
en mjög eftirminnileg ástarsaga.
Síðustu árin hefur Steinunn verið
vaxandi höfúndur. Hún er ákaflega
vandvirk og skrifar af feikilegu ör-
yggi og er örugglega sú skáldkona
okkar sem skrifar læsilegastan og
bestan stíl.
Önnur virt skáldkona, Álfrún
Gunnlaugsdóttir, sendi frá sér bók-
ina Hvatt að rúnum sem hlaut af-
bragðsdóma nema hér í PRESS-
HÁTÍÐARKVEÐJUR
Gleðileg jól
og heillaríkt komandi ár
Þökkum viðskiptir. i
árinu sem er að iíða.
vtsA \f7LY*wpnrjTTTtm
EINAR MAR GUÐMUNDSSON
Bók sem ætti að vlnna til verðlauna.
verki, það hlaut bæði litla auglýs-
ingu og fátæklega umfjöllun. Við
erum kannski orðin svo vön því að
Gyrðir vinni vel að okkur þykir
óþarfi að hafa sérstakt orð á því. En
svo er einnig á ferð hugmynd um
að skáld verði sífellt að breyta til og
gera allt annað en það hefur áður
gert. Það heyrast raddir sem segja í
óþoli að þetta sé jú allt gott en nú
þurfi Gyrðir að fara að gera eitthvað
annað, þetta sé allt orðið hvað öðrú
líkt hjá honum. Ég er ffernur treg til
að taka undir þetta viðhorf, eitthvað
þessu líkt mætti allt eins segja um
skáldskap Steins Steinarr og fleiri
snillinga.
Tregahornið er að mínu mati
besta verk Gyrðis Elíassonar og verk
sem ásamt skáldsögu Einars Más á
eftir að lifa.
Það sama má segja um Ijóðabók
Hannesar Péturssonar Eldhyl en
eins og Hrafn Jökulsson sagði svo
vel þá eru ljóð Hannesar „völundar-
smíðar og meistaraverk“.
Það var einnig Hrafn Jökulsson
sem sagði um ungskáldið Svein
Yngva Egilsson „hér er komið
skáld“. Að vísu stal hann þessum
orðum úr ritdómi mínum um
Braga Ólafsson en við Hrafn getum
svosem átt þessar uppgötvanir okk-
ar saman því í Braga Ólafssyni og
Sveini Yngva eru svo sannarlega
komin skáld sem skipta máli.
Af öðrum viðburðum í ljóða-
deildinni voru þeir helstir að Sig-
urður Pálsson sendi frá sér fina bók
með mælskuljóðum, Ljóðlínudans.
Og Kristín Ómarsdóttir átti fallega
og sjarmerandi ljóðabók, Þernu á
gömlu veitingahúsi.
Háskólaprófessorinn Þorsteinn
Gylfason sendi frá sér vandaðar
ljóðaþýðingar í bókinni Sprekum af
reka og tileinkaði bókina Helga
Hálfdanarsyni. Helgi, sem er vaskur
maður, átti þýðingu á Kóraninum
en það var ekki það eina sem hann
kom í verk. Hann gaf út hina kostu-
legu ljóðabók Ljóðmæli undir nafn-
inu Hrólfur Sveinsson. Það er ekki
oft sem lesa má úr ritdómum að
gagnrýnendur skemmti sér í starfi
en þeir iðuðu greinilega margir af
ánægju þegar þeir tóku að sér að
segja Hrólfi til í skáldskaparfræðum.
I ævisagnadeildinni sló Jóhanna
Kristjónsdóttir í gegn með bók sinni
um eiginmann sinn fyrrverandi,
Jökul Jakobsson, bók sem er vel
skrifuð og af skynsemi. En enginn
gat keppt við Þorgrím Þráinsson
sem virðist einungis þurfa að lyfta
penna og þá streymir til hans gullið.
Af erlendum skáldverkum má
nefna bók Rabalais Gargantúa og
Pantagrúll og Bókina um hlátur og
gleymsku eftir hinn óviðjafrianlega
MiÍan Kundera, vitaskuld í þýðingu
Friðriks Rafnssonar. Það var hið
metnaðarfúlla forlag Mál og menn-
ing sem færði okkar þessar bækur
og einnig annað bindið af Ódysseifi
í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar
og hina dásamlega fyndnu bók Lít-
inn heimur eftir David Lodge þar
sem gert er stólpagrín að „húmors-
lausa fræðimannaliðinu“ (eins og
Dagný Kristjánsdóttir orðaði það í
fremur fúllyndri bókmenntagrein í
Morgunblaðinu).
Það hafði verið draumur margra
þeirra sem á unglingsárum brutust í
gegnum Hringadróttinssögu að fá
hana þýdda og þeim varð nú að ósk
sinni.
Af fræðibókum má nefna hina
miklu bók Árna Bjömssonar Sögu
daganna, annað hefti íslenskrar
bókmenntasögu og bók Þórðar í
Skógum Sjósókn og sjávarfang og er
þá fátt eitt talið til.
Þrátt fyrir hrakspár og einhvern
mótbyr voru þetta bókajól sem
komu þægilega á óvart. Bóksala
varð meiri en bjartsýnustu menn
höfðu þorað að vona og það mátti
finna margar ágætar bækur. En nú
getum við farið að hlakka til næstu
jóla. Ég ætla að leyfa mér að spá því
að þau verði þau athyglisverðustu
(og væntanlega bestu) í langan
tíma, en þá munu væntanlega mæta
í sölubaráttu: Einar Kárason, Hall-
grímur Helgason, Pétur Gunnars-
son, Thor Vilhjálmsson og Vigdís
Grímsdóttir. Óg einhver var að
hvísla að mér nöftium Ólafs Gunn-
arssonar og Þórarins Eldjáms.
Kolbrún Bergþórsdóttir