Pressan - 24.02.1994, Síða 9
B ö I I
Dansflokkurinn
Fjórir ballettar frumsýndir
SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR í TVÍDANSI. Hún segir að ballettverks Auðar Bjarnadóttur sé beðið með mestri eftirvæntingu.
ar sem ekki eru nema 28 dag-
ar í þessum mánuði fer að líða
að stórri stund hjá íslenska
dansflokkunum. Frumsýning verð-
ur á hvorki meira né minna en fjór-
um ballettum á stóra sviði Þjóðleik-
hússins 3. mars. Ballettamir em eft-
ir bandarísku danshöfúndana
Lambros Lambrou og Stephan
Mills auk tveggja nýrra íslenskra
verka eftir þær Auði Bjamadóttur
og Maríu Gísladóttur, sem nú
gegnir stöðu listdansstjóra flokks-
ins. Eins og gefur að skilja koma
margir dansarar við sögu í svo
mörgum verkum. Enginn er þó
meira áberandi en annar enda er Is-
lenski dansflokkurinn að sögn laus
við prímadonnur.
Einn dansaranna sem stíga á svið
eftir barneignarhlé er Sigrún Guð-
mundsdóttir, sem hefúr m.a. starf-
að sem dansari við óperuna í Bonn.
Hún segir verkin mjög fjölbreytt og
spennandi en upplýsir að verks
Auðar sé beðið með mestri eftir-
væntingu. Það var samið við
flautukonsert eftir Atla Heimi
Sveinsson sem hann hlaut fýrir
tónlistarverðlaun Norðurlanda árið
1976.
,Auður hefur verið lengi að
vinna þetta verk en það er sérstak-
lega samið fyrir flokkinn. Verkið
byggist að nokkru upp á spuna en
það er einnig svolítið leikhúsverk.
Hin verkin þrjú eru frekar sem-
íklassísk. T.d. er verkið hennar
Maríu, Vitlaust númer, byggt alger-
lega upp á klassík og í því er mikill
leikur og eitt verkanna fer út í djass.
Þetta er því mjög fjölbreytt sýning.“
Að sögn Sigrúnar byggjast ball-
ettarnir mikið upp á tvídansi auk
smásólóa, sem dansararnir skipta
með sér.
Margir hafa haft á orði að eftir að
María Gfsladóttir tók við sem list-
dansstjóri hafi vegur dansflokksins
aukist. „Það hafa að minnsta kosti
verið fúndin fleiri verkefni. Vinnan
er því jafnari en áður. En það voru
þó oft góðar og spennandi sýningar
áður fyrr, enda höfum við oft verið
mjög heppin með danshöfúnda."
„Tökum viö öllu nema
sé algjört pornó"
Þriggja daga bókmenntahátíð verður síðustu helgina í apríl í tilefni þess að Hressó, sá sögu-
legi staður, er að nálgast sextugt. Lengst af var Hressingarskálinn með sama yfirbragði, sama
þjónustufólkinu og síðast en ekki síst sömu kökunum. í dag — eftir að Valgerður Matt-
híasdóttir endurhannaði staðinn — hefur hann fengið gerólíkan blæ.
í tilefni sextugsafmælisins verður reynt að höfða til allra skálda þjóðfélagsins og
þeir beðnir að skila af sér smásögum, prósa eða ljóðum, sem með einhverjum
hætti tengjast þessum sögulega stað og umhverfi hans. Það ætti að vera hægur
vandi enda þjóðin skáldleg á ýmsum sviðum sem birtist m.a. í að allir eru ým-
ist kvikmyndagerðarmenn, blaðamenn eða ljóðskáld.
Fresturinn til að skila meistaraverkinu er tii loka þessa mánaðar en að sögn
Ara Gísla Bragasonar, annars aðstandenda bókmenntahátíðarinnar, verður allt
birt í einni bók, nema ef til vill ef það er algert pornó.
Við
mœlum með:
... Því aö fólk haldi upp á afmæliö sitt—ja eða bara hvað
sem er — bjóði vinum og vandamönnum til veislu og veiti vel af bjór.
Það er hægt að fá þrælbillega kúta af Pripps- bjór til veislunnar.
... Baldri Hermannssyni og öllu sem frá honum kemur. Hann
má t.d. skrifa miklu meira í blöðin en hann gerir. Baldur, kíp opp þe
gúddvörk!
... Sígarettumunnstykkjum. Það setur nettan klassa á reyking-
arnar og ekki veitir af því á þessum reykingafasistatímum.
... Flögurum. Þessum baráttumönnum sem standa einir eftir gegn
offíki kvenþjóðarinnar, sem að öðru leyti er búin að setja hring í nef
karlpeningsins og snýr hann niður þegar henni sýnist — í tíma og
ótíma.
... Blekpennum. Kúlupennarnir eru eitthvað svo ópersónulegir
og lausir við allan klassa.
Dolli
Eg kalla nú ekki alit ömmu
mína en maður lendir
óhjákvæmilega í leiðind-
um í lífcins ólgusjó. Þannig var
að ég rakst fyrir nokkru inn á bar
á miðjum Laugaveginum sem
heitir 22. Helvíta fi'nn hjallur og
laus við þetta caféhémauppgerð-
arlistatilgerðar... eðlilegur stað-
ur. Við háborðið sat furðufúgl-
inn dr. Bjarni eins og hann ætti
staðinn og allt urn kring var
hirðin hans. Þar mátti sjá tröllið
úr Eyjum sem þykist vera lista-
niaður en væri betur kominn á
sjó. Nú og Ijúflinginn Móða sem
er ekki mikið fyrir að vesenast
með hlutina. Ég hef það fýrir satt
að orkubæturnar hans renni
milliliðalaust á reikning sem
hann hefúr á bamum. Þannig á
þetta líka að vera, það er hafi
maður fundið sinn eina sanna
bar. Það var náttúrulega ekki
hægt að stilla sig um að stríða
drengjunum aðeins á þessari
listaþráhyggju sinni, svoleiðis
erkibjálfar væru best kornnir í
pökkun. Þannig leið drykklöng
stund við skeinmtilegt þras allt
þar til Vestmanneyingurinn var
orðinn fúllfúllur ákefðar, sló í
borðið og heimtar að það sé bor-
in virðing fyrir sér sem lista-
manni. Ég bað hann blessaðan
að halda kjafti en hefði betur
sleppt því vegna þess að dyra-
vörðurinn kom og bað mig að
vera rólegan. Mig? Ég er svo sem
ekki óvanur því að hlutunum sé
klínt á mann en þetta var veru-
lega ósanngjamt, ekki var ég
með æsing. Þessi dyravörður var
ff ekar væskilslegur og ég sagði
honum bara að halda kjafti líka.
Það hefði mátt sleppa þvi líka
vegna þess að hann henti sér á
bakið á mér, náði löggutaki, svo
komu þeir þrír og ég fór öfúgur í
loftinu út um dyrnar. Og þar
sem ég ligg á bakinu í krapinu á
gangstéttinni gengur þá ekki hjá
Jón Baldvin í einhverjum tor-
kennilegum félagsskap. Það átti
nú ekki við mig að liggja við fæt-
ur Jóns, sérílagi eftir að hann fór
út í þessa ÚffeEllemanJensen-
nordískkratahormottu. En sókn
er besta vömin. Ég galaði á hann
og spurði hvort honum fyndist
það sæmandi opinberri fígúm
að vera á flandri um miðbæinn á
þessum tíma sólarhrings veif-
andi þessu yfirskeggi ffaman í al-
mennilegt fóUc. Þá varð undar-
legur atburður nánast eins og í
súrrealískri kvikmynd. Það var
krökkt af fólki á Klapparstígnum
og nú fóru aUir að gera hróp að
JónL Svo man ég ekki meira fyrr
en ég sit í kjaUaranum hjá Gauja
yfir tafli og brennivínsflösku.
• Amma Lú: Aggi Slæ og Tamlarnir
ásamt Erni Árnasyni og Jónasi Þóri á
töstudagskvötd. Bergþór Pálsson verð-
ur hins vegar með Agga Slæ og Tamla-
sveitinni á laugardagskvöld. Á fimmtu-
dag og sunnudag er hluti Ömmu Lú op-
inn fyrir þá sem vilja á barinn.
• Barrokk: Rómantiskt að vanda. Arin-
eldur og vel klætt fólk og ennþá meira
framhjáhald. Enn heyra sumir meira en
aðrir.
• Bóhem: Stóra opnunarhelgin fram-
undan. Hress á neðri hæðinni föstu-
dags- og laugardagskvöld. Diskótek
uppi. Gárungar segja að þetta verði
einn glæsilegasti staður landsins frá og
með næstu helgi.
• Blúsbarinn: Dan Cassidy fiðlari og
Kristján Guðmundsson á fimmtudags-
kvöld. Kredit kemur alla leið frá Akureyri
og spilar á föstudags- og iaugardags-
kvöld.
• Café Romance: lan heitir Englending-
urinn sem syngur og leikur Romance-
megin um helgina. Hinum megin við þil-
ið spilar Hjörtur Howser af fingrum
fram.
• Fjörðurinn: Diskó í Hafnarfirði alla
helgina. Ernokkuð betra?
• Fógetinn: Djass á háaloftinu á
fimmtudagskvöld. Bjössi greifi niðri. Jón
forseti föstudags- og laugardagskvöld.
Hermann Arason, kominn alla leið frá
Akureyri, lokar helginni á sunnudags-
kvöld.
• Gaukur á Stöng: Vinir vors og blóma
á fimmtudagskvöld. Gal í Leó föstudags-
og laugardagskvöld. Eitthvert kombó á
sunnudagskvöld og mánudagskvöld
reyndar einnig.
• Hótel ísland: Bitlahátíð á föstudags-
kvöld með fullt af gömlum kempum auk
Stefáns Hilmarssonar. Þrjár bítlamyndir
á stóra tjaldinu. Þriðja sýningin á laug-
ardagskvöld með hinni ótrúlega þraut-
seigu Sumargleði þeirra Bessa Bjarna-
sonar, Magnúsar Ólafssonar, Hemma
Gunn og fleiri. Hljómsveit kvöldsins er
svBÍt Siggu Beinteins.
• Hótel Saga: Þriðja sýning hinnar
miklu hátíðar Halla, Ladda, Sigurðar og
Eddu á laugardagskvöld. Saga Class
leikur fyrir dansi. Matur og afnot af
dansgólfi. GunnarTryggvason og Þor-
valdur Halldórsson á Mímisbar föstu-
dags- og laugardagkvöld.
• Hressó: Skárr'en ekkert er tríó húss-
ins og spilar ekta franska kaffihúsatón-
listá fimmtudagskvöld.
• Pizza 67: Vinir vors og blóma með Lif-
un á föstudagskvöld. Lifun ein og sér á
laugardagskvöld. Allt ótengt. Spilaborg-
in spilar djass með matnum á sunnu-
dagskvöld.
• Rauða Ijónið: Sin, ekki með ypsiloni, á
föstudags- og laugardagskvöld. 99% lík-
legt.
• Sólon íslandus: Djass- og dægur-
lagahetjuralla helgina.
• Tveir vinir: Bubbi Morthens á fimmtu-
dagskvöld. Rask restina af helginni.
• Þjóðleikhúskjallarinn: Dansiball með
Leikhúsbandinu á föstudags- og laugar-
dagskvöld. Óskabörnin á föstudags-
kvöld. Þýðendakvöld hjá Listaklúbbnum
á mánudagskvöld.
• 22: Árleg söngskemmtan Sköllóttu
trommunnar verður haldin I kvold. Fram
kona dr. Fritz, Stella, Gummi, Kokkur
Kyrjan Kvæsir, R.I.G. Veda 3 og Inferno
5.
SVEITABÖLL
• Hafurbjörninn, Grindavík: Örkin hans
Nóa, nema hvað.
• Sjallinn, Akureyri: Allt vitlaust að
venju með Geirmundi á laugardags-
kvöld.
• Þotan, Keflavík: Blómakvöld á laugar-
dagskvöldið og blómarós kvöldsins val-
in. Vinir vors og blóma spretta upp og
leika um borg og bý þessa helgina.
FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994 PRESSAN 9B