Pressan - 24.02.1994, Side 18

Pressan - 24.02.1994, Side 18
Poppað á fj ölunum NÝDÖNSK OG LEIKARAR ÚR ÞJÓÐLEIKHÚSINU GAURAGANGUR ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ/SKÍFAN ★★★ Eftir margra ára sveita- og skólaballakeyrslu komst Ný- dönsk í feitt að fá að poppa í Þjóðleikhúsinu. Það var aldeilis gullið tækifæri til að stokka spilin og takast á við nýtt verkefni. Band- ið tekur virkan þátt í leiksýning- unni. Jón, Stefán og Ólafur djamma í stúkunum og Björn og Daníel kikja út úr kústaskápum sitt hvorum megin við sviðið. Stund- urn eru þeir allir á sviðinu í stuði með hinum „unglingunum", en mest sannfærandi er bandið þegar það leikur sjálft sig á skólabafii. Þá hefði verið snjallt ef þeir hefðu spilað gamalt nýdanskt-lag til að negla verkið í tíma, því eins og Friðrika Benónýs benti réttilega á í síðustu PRESSU er of mikill „se- ventís“-bólubóhemakeimur af leikritinu. Gauragangur er annars ágætis skemmtun, þótt grunn sé, með miklum söng og fjöldasenum sem jafnast á við það besta sem gert var í Fame-þáttunum í sjón- varpinu. Nýdönsk hefúr hrist vel í þenn- an reynda söngleikjafíling. Þeir semja hér tónlist sem ber fá ein- kenni gamla nýdanska poppsins, þótt vörumerkið — „ba-baba- baaa“ — spretti stundum upp. Þeir hafa leyst dagskipunina fag- mannlega af hendi og tónlistin fell- ur oftast vel að stórgóðum textum Ólafs Hauks. Heildartónn Gauragangs er létt leikhúspopp með smávægilegum áttaskekkjum. Ekki hefur Ný- UNDERWORLD DUB NO BASSWITH MYHEAD MAN ★★★★ Taktmikil tónlist er inni. Tækjó, hipp-hopp og trans þykja brúklegt dansmeti á böllum. Hljómsveitin Underworld fellur tæknilega séð í dansgeirann, en á þessari plötu gefa þeir skít í klisjurnar: formúlubítin, grunnu viðlögin og auðveldu flokkunina. - ' Þegar best lætur sprengir tónlist Underw.orld sér leið úr Idisjukvóta danstónlistarinnar, hér kveður við nýjan tón. Underworld er tríó og Dub no Bass with My Head Man er plata númer þrjú. Meðlimirnir skamm- ast sín fyrir fyrstu tvær plöturnar sem á sínum tíma var líkt við Thompson Twins: „Þær voru öm- urlegar,“ segja þeir. Það getur hvaða unglingur sem er með réttu græjurnar búið til danstónlist, en þegar „ffæðilegan“ grundvöll vant- „Heildartónn Gauragangs er létt leikhúspopp með smávægilegum áttaskekkjum. “ danskri tekist að gera frumlega hluti í þetta skiptið og sumt hljóm- ar eins og Ólafúr Haukur hafi verið með í ráðum, svo nálægt „Eniga meniga“ og „Hatti og Fatti“ er tón- listin í tíma og anda. Maður sér t.d. Olgu Guðrúnu ljóslifandi fyrir sér í viðlaginu í „Málum bæinn rauð- an“. Leikararnir eru upp til hópa prýðisgóðir söngvarar. Það geislar af Steinunni Ólínu og hún kæmist umsvifalaust í popphljómsveit ef hún fengi leið á leikhúsinu. Ingvar á ágæta spretti þótt máttleysis gæti stundum í barkanum á honum. Hjálmar Hjálmarsson er Bubbi Morthens í örstuttum’ en fyndnum blús og gamalreyndur mónótónn Flosa stendur fyrir sínu. I söng- leikjum er víst lenska að „allir syngi“ í viðlögunum, og það er þessi fjöldasöngur sem einna helst dregur plötuna niður. Þetta er leiðigjörn leikhúsklisja sem ber of mikið á hér. Flest lögin eru fin og ávallt innan ramma efnisins. „Hreystikallið" er stórkarlalegur leikfimikennara- ar er útkoman oft innantómt hnoð. Meðlimir Underworld koma úr ólíkum áttum. Darren er hinn sígildi tækja-unglingur sem ólst upp við taktinn og plötu- snúðsdútl. Karl var leigugítarleikari og hefur spilað með Debbie Harry, vinum Prince í Paisley Park og hangið með Iggy Pop. Rick er stúdíó- og tækjakall og var með Eurythmics á síðasta Ameríkutúr þeirra. Karl og Rick voru orðnir leiðir á einfeldninni sem fylgir hefðbundnum lagasmíðum og vildu snúa sér að rótunum —j takt- inum. Samstarf þeirra við Darren er því fúllkomin blanda; af rokk- aðri rót og næringu takthefða sprettur ný og spennandi tónlist sem án efa á eftir að verða vinnu- teikning danstónlistarpælara fram- tíðarinnar. Platan er heljarinnar flykki sent spannar níu lög og 73 mínútur. Það besta við hana er fjölbreytnin og sá gáski sem skín af nýjunga- girninni. Lögin eru rekin áfram af margbreytilegum takti og næmri söngur, „Kennararaunir“ mæðu- legur kennarasöngur og „Skál fyrir Þorláki!“ nett jólalag, eða Þorláks- messulag öllu heldur. Leikhúslegt unglingastuðið fær svo útrás í ágætum fjörkálfum — „Algjör Ormur“ og „Klofstuttir karlar“ eru skemmtilegustu dæmin — og gelgjuástin er túlkuð í þokkalegum ballöðum. Það er þónokkur fengur í geislaplötunni, sérstaklega fyrir þá sem hafa séð leikritið. Aðrir geta hæglega orðið úti á þekju þótt plat- an veki eflaust áhuga á leikhúsferð. P I ö t u d ó m a r dr. Gunna Sigtryggur dyravörður Mr. Empty ★★ „Sigtryggur dyravörður spilar dálit- ið fölnað graðhestarokk, meðlimim- ir halda í hin gömlu gildi Guns’n Roses og kó án þess að reyna mikið fyrir sér með frumlegar pælingar.“ Púff, Curver, Silluppsteypa og Kol- rassa krókríðandi Fire ■kirk „Þótt sveitimar velji sér sameigin- legt „framboð“, til að eiga meiri séns, eiga þær fátt sameiginlegt mús- íklega nema auðvitað að spila eins- hvers konar undirheimarokk og vera ungar og ákafar.“ Texas Jesús Nammsla Tjammsla ★★★ „Sveitin njörvar sig ekki niður í einni tegund tónlistar, en mestu gæðum nær hún í léttu en frumlegu poppi sem velkist órætt á mörkum bamatónlistar, a-evrópskrar teikni- myndatónlistar og ffamúrstefnu- rokks.“ Helgi og hljóðfæraleikararnir Helgi og hljóðfceraleikararnir ★ „Lögin sextán haltra áfram í fá- breytileika vankunnáttunnar — drengimir em ekki snillingar á hljóðfærin sín — og lagasmíðamar em oftast of einfaldar og langdregn- ar til að hafda athyglinni.11 Guns’n Roses The Spaghetti Incident? ★ „Það eina sem Hólkamir bæta við em lengri og leiðinlegri gítarsóló og veinið í Axl Rose, sem hljómar oftast eins og álappaleg hæna í þessu klass- íska pönkumhverfi.“ tilfinningu fyrir sámruna melódía og „grúfs“. Ballaðan „River of Bass“ minnir á fílinginn í þeirri þýsku gæðasveit Can, og oft má finna vísbendingar um aðdáun Underworld á annarri þýskri gæðasveit, Kraffwerk, afa nútíma- danstónlistar. „Cowgirl" er ffábært lag og besta tilraun sem ég hef heyrt til að framleiða dáleiðandi danstónlist, en hið svokailaða „hypno“ (dáleiðó?j virkar oftar en ekki hálfhallærislega á mann. Það er sama hvar gripið er niður á þessari plötu; alls staðar mætir manni spennandi frumleiki. Hér er komin æðisleg plata sem fleiri og fleiri munu uppgötva á komandi misserum. Spennandi frumleiki 20 vinsælustu lögin á íslandi Vikur Sæti Lag Hljómsveit á lista 1. (5) Lodi Dodi ................................Snoop Doggy Dogg 2 2. (4) Barney (and me) ...........................The Boo Radleys 2 3. (2) Another Body Murdered .......Faith No More og Boo Yaa Tribe 2 4. (8) Disarm ..................................Smashing Pumpkins 2 5. (—) Nowhere ..........................................Therapy 1 6. (3) Cannonball ...................................The Breeders 2 7. (20) Vocab .......................................... Fugees 2 8. (11) City Sickness ..............................Tendersticks 2 9. (-) Violently Happy 10. (-) Your Ghost ... 11. (10) Ghetto Bird 12. (-) Skyscraper I Lo1 13. (12) All Apologies 14. (13) Rats 15. (1) Wopbalubop ... . 16. (-) Line Up 17. (-) Pale Movie .... 18. (14) Where I'm From 19. (-) No Excuses .... 20. (-) Mutha Made'em PARTY ZONE LISTINN Garage-House Listi Margeirs 1. Blue Lotus ..Essence of Nature 1. I'm Grateful 2. Feet (Slam Mix) 2. Love Thang 3. Trip to Space . 3. Unreleased Project 5 Todd Terry 4. Don't Look Back in Anger 4. So Glad (I Found in You) .Shi-Take .Earl Bennett 5. Víhy Why Why.......... Deja Vu 5. More E.P............Eric Morillo Vinsældalisti X-ins og PRESSUNNAR er leikinn á X-inu klukkan tólf á hádegi á hverjum fimmtudegi þegar PRESSAN er komin út. Vinsældavalið fer fram í síma 626977 virka daga klukkan 9-17. Vertu með í að velja tuttugu vinsælustu lögin á íslandi. Vínsældalisti X-ins og PRESSUIMIMAR er valinn af hlustendum X-ins, atkvæðum framhaldsskólanemenda í samvinnu við listafélög skólanna og upplýsingum plötusnúða á danshúsum bæjarins um vinsælustu lögin. Númer ■ sviga vísa til sætis á lista í síðustu viku.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.