Pressan - 03.03.1994, Blaðsíða 8

Pressan - 03.03.1994, Blaðsíða 8
( LÍFIÐ EFTIR VIIMIMU ) Miklu betra en nokkuð annað Hressingarskálinn er allur að koma til; stórafmælið er ffamundan og í tilefni þess hafa ungskáldin verið beðin að skrifa eins og kom fram í síðustu PRESSU. En fleiri uppákomur eru einnig í bígerð því á sunnudagseft- irmiðdáginn verður tertuhlaðborð á milli klukkan þrjú og fimm með gömlu góðu ógleymanlegu Hress- ingarskálahnallþórunum. Á meðan á árásinni á þær stendur spilar tríó- ið Skárr’en ekkert, sem óhætt er að segja að sé eitt umtalaðasta bandið um þessar mundir. Eftir því sem PRESSAN kemst næst sómir tríóið sér jafn vel sem rómantískt kaffi- húsaband á miðvikudagskvöldi Eiríkur Þórleifsson mundar kontrabassann. Þeir þrír spila undir hnallþóruáti og kakó- drykkju á Hressó á sunnudags- eftirmiðdögum. TÖtlLflKftP 9*. ORfín flSKPIfíflPPÖÐ HÁSKÓLABÍÖI tÍiLí'í " ' Wmu¥W/‘ii< ' ' ,4 i $ i í, fimmtudaginn 10. mars, kl. 20.00 Hljómsueitarstjóri: Oliver Gilmore Einíeikari: Ashildur Haraldsdóttir niSSKÞfl arður Öm Pálsson: ARK Jacques Ibert: Flautukonsert i Rimskij Korsakoff: Scheherazade Sími *V#Y Guðmundur Steingrímsson á nikkunni. „Það eru sosum eng- ir stórbrotnir listamenn í ætt- inni.“ sem eftir hádegi á sunnudegi þegar ömmurnar mæta með grislingana í tertu og kakó. Miklu betra en nokkuð annað hefur þótt sæma hljómsveitinni betur en Skárr’en ekkert, því tríóið er eitt sinnar teg- undar hér á landi; svona ffanskt kaffihúsaband sem þeir á Hressó vilja ekki nefna annað en húsband- ið. Það er helst að Spaðarnir, sem þó er breiðari hópur og með söngvara, komist næst þeim. En hvað spila drengirnir í raun og veru þótt tilfinningin kunni að vera sú að hérsé umfranska kaffihúsatónlist að rœða? „Aðallega lög úr Fellini- myndunum, þar sem höfund- urinn er ítalskur. Minnst af þessu er franskt en við erum einnig að hugsa um að fara að skoða rússneska tónlist,“ segir Guðmundur Steingrímsson Hermannssonar sem þrýstir á hármonikkuna en auk hans skipa sveitina þeir Frank Hall og Eiríkur Þórleifsson; allt gamlir félagar úr MR sem segja má að hafi hafi samstarf- ið fyrir tveimur árum. Hajrð þið hara kotnið fram á Hressó? „Nei, nei, við höfúm spilað í brúðkaupum og á árshátíðum fyrir háskólanema og meira að segja haldið úti heilu balli fyrir Kramhúsið. Við ætlum að spila áfram á sunnudagseftir- miðdögum á Hressó þótt ann- að geti jafnvel komið til greina.“ Af því við vorum að nefna að Guðmundur Steingrímsson S er sonur forsœtisráðherrans , - fyrrverandi má geta þess að Ei- 1 ríkur er sonur Elísabetar Eiríks- dóttur óperusöngkonu og svo að Frank verði ekki undanskil- inn má alveg eins nefna það að systir hans er Katrín Hall ball- ettdansari í Þýskalandi. En hvaðan koma tónlistarhœfileik- ar Guðmundar, er það úr móður- éðaföðurœtt? „Það eru sosum engir stór- brotnir listamenn í ættinni en móðir mín spilar á píanó. Sjálfur hef ég verið að læra klassískan píanóleik." i Frank Hall plokkar gítarinn. / 8B PRESSAN Lusty B. Anderson í kvikmyndinni Harðsoðinn, sem fjallar um einkaspæjara í kreppu. Iaöur hefur oft velt því fyrir sér hversu stuttmynd megi vera löng til aö fá aö telj- ast stuttmynd. Að því var auðvelt að komast hjá Kaos-drengjunum sem í kvöld, fimmtudagskvöld, standa fyrir Kaos-kvöldi á Bíóbarn- um þar sem frumsýndar verða þrjár stuttmyndir; Kaffi, spjall og sígarettur (Kynlíf, lygar og mynd- bönd), The Return of Little Albert og Harðsoðinn. Allt eru þetta útpældar myndir að sögn, til dæmis myndin um Albert litla, sem var skilyrtur af vísindamanninum Wat- son sem tókst að gera hann hræddan við allt sem er loðið. Eng- ar fregnir hafa borist af því að hann hafi verið afskilyrtur. í mynd- Helmingur kvikmyndagengisins úr Kaos film, sem ætlar að efna til fleiri hátíða á næstunni. inni er einmitt líklegum örlögum hins skilyrta velt upp. Að sögn Huldars Breiðfjörð, sem er í tíu manna Kaosgenginu, er hér um að ræða afrakstur fé- lagsins í það hálfa ár sem félagið hefur starfað. Upphaf þess var þegar gengið tók upp á því að leggja í púkk fyrir kvikmyndagræj- um upp á tvö hundruð þúsund krónur. Svarið er: Stuttmynd má eigi vera lengri en 45 mínútur. Ég hef einkar fagra féf ieggi Bakhliðin Ragnhildi Vigfúsdóttur, annarri tveggja ritstýra Veru, verður sjaldan svaraíátt. Sjálfsagt er það þess vegna sem blaðamenn leita svo oft á náðir hennar. Hún er þegar búin að vera í Iöngu viðtali í PRESSUNNI og nú síðast upplýsti hún okkur um hvemig ætti að slíta ástarsam- bandi. En hún hefúr aldrei áður sýnt á sér bakhliðina. Fyrr en nú... Hvert er eftirlœtisfarartœkið? „Flugvél á leið út í heim.“ Ertu hlyrmt fjölveri? „Ein kona með marga karla... sosum í lagi mín vegna ef allir aðilar em sáttir við það.“ Hefurþú verið í skátunum? „Nei, slíkt þekktist ekki í heimabæ mínum. Fyrir bragðið hef ég aldrei lært að hnýta almennilega hnúta.“ Hvers konar gœludýr vœrirðu helst til í að Italda? „Ekkert. Ég hef átt hund, hest og fiska og er búin með þann kafla i lífi mínu.“ Hvað fcrðu oft í leikhús á ári? „Næsta laugardag fer ég á elleftu sýn- inguna á þessum vetri — ég fer allt of sjaldan í leikhús." Finnst þér Markús Örn Antonsson sjarmerandi tý'pa? „Ekki í fjölmiðlum, en ég veit ekki hvernig hann er prívat.“ Hvaða skónúmer notarðu? „7 1/2 b.“ Hefur þig dreymt furðulega drauma utn frœgt fólk? „Já.“ Hver er eftirlætismeðlimur þinn í Ríó- tríóinu? „f eina tíð hélt ég mest upp á Óla Þórðar, en get ekki sagt að ég hafi fylgst með þeim félögum hin síðari ár.“ Daðrarþú í vinnunni? „Já og hef gaman af.“ Hver er uppáhaldsbókin? „Rubyfruit Jungle, eftir Ritu Mae Brown.“ Hefðirðu viljað kjósa nýja rikisstjórn núna? „Nei, ekki fyrir borgarstjórnarkosn- ingar.“ Hvor finnst þér fyndnari: Egill Jónsson eða Halldór Blöndal? „Þeir em báðir hlægilegir." Hver er leiðinlegasta íslenska bíómynd settt þú Iteftir séð? „Sóley.“ Hvaða villta dýrategund vildirðu helst vera? „Fugl í suðurhöfúm — sem ekki er í útrýmingarhættu." Hvað telurðu þig hafa fengið helst í vöggugjöffrá móðurþinni annars vegar og frá föður þínum hins vegar? „Ég er listakokkur eins og móðir ntín, ég hef ekki aðeins fengið nefið ffá föður mínum heldur einnig þann leiða sið að láta hversdagslega hluti fara í taugamar á mér.“ Áttu fræga forfeður? „Já, t.d. var föðurafi minn, Magnús Vigfússon, vel þekktur húsasmíðameist- ari. Ég lendi enn á gömlum leigubílstjór- um sem segja mér sögur af honum.“ Hvað varstu gömul þegar þú dastjýrst t það? „Ég hef aldrei dottið „almennilega“ í það. En um verslunarmannahelgina 1984 hafði ég unnið sleitulaust í nær sólar- hring við að servera Ringo Starr. Um kvöldið fengum við okkur Irish Coffee og ég hef sjaldan orðið drukknari. Nem- endur mínir, sem ég hitti í Atlavík síðar um nóttina, sáu hvers kyns var af því ég var svo þögul.“ Hver er uppáhaldslíkamsparturinn þinn? „Ég hef einkar fagra fótleggi.“ Stundarðu einhverja líkamsrœkt? „Samkvæmisdansa, skvass, golf og sund, en enga að staðaldri.“ Hvert ferðu þegar þú vilt láta þig hverfa? „Það er leyndarmál." Hvort mundirðu heldur vilja vera Bubbi, TollieðaArthúrMorthens? „Þvílíkt val. Enginn takk fyrir.“ Hvaða persónu sögunnar líturðu helst upp til? „Þær em margar, ætli ég nefni ekki Margaret Sanger, sem barðist fyrir því að notkun getnaðarvama yrði Ieyfð — og að veita mætti fólki fræðslu um takmarkanir barneigna. Svo hef ég alltaf dáðst að Soujoumer Truth. Af íslenskum sögu- persónum rís Bríet Bjamhéðinsdóttir einna ha^t.“ FIMMTUDAGURINN 3. MARS 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.