Pressan - 03.03.1994, Side 13

Pressan - 03.03.1994, Side 13
Suður-Ameríka heim í stofu TÓNLISTIN ÚR EVU LUNU EGILL ÓLAFSSON SAMDI LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR / JAPIS ★★★★ Eg veit ekki hvort Egill Ólafs- son hefur farið til S-Amer- íku. Ég veit ekki einu sinni hvort hann hefur pælt mikið í tón- list þaðan. Það hlýtur þó eiginlega að vera, því maður gæti næstum veðjað, eftir hlustun á Evu Lunu- tónlistina hans, að Egill hefði dval- ið langdvölum í læri hjá færustu tónlistarspekingum álfunnar. Plat- P I ö t u d ó m a r dr. Gunna Nýdönsk og leikarar úr Þjóðleik- húsinu Gauragangur ★★★ „í söngleikjum er vist lenska að „aliir syngi“ í viðlögum, og það er þessi fjöldasöngur sem einna helst dregur plötuna niður.“ Sigtryggur dyravörður Mr. Empty ★★ „Sigtryggur dyravörður spilar dá- lítið fölnað graðhestarokk, með- limimir halda í hin gömlu gildi Guns’n Roses og kó án þess að reyna mikið fyrir sér með frumleg- ar pælingar.“ Púff, Curver, Silluppsteypa og Kol- rassa krókríðandi Fire ★★★ „Þótt sveitimar velji sér sameigin- legt „framboð“, til að eiga meiri séns, eiga þær fátt sameiginlegt músíklega, nema auðvitað að spila einhvers konar xmdirheimarokk og vera imgar og ákafar.“ Texas Jesús Nammsla Tjammsla ★★★ „Sveitin njörvar sig ekki niður í einni tegund tónlistar, en mestum gæðum nær hún f léttu en frum- legu poppi sem velkist órætt á mörkum bamatónlistar, a-evr- ópskrar teiknimyndatónlistar og framúrstefnurokks.“ Helgi og hljóðfæraleikararnir Helgi og hljóðfœraleikararnir ★ „Lögin sextán haltra áfram í fá- breytileika vankunnáttunnar — drengirnir em ekki snillingar á hljóðfærin sín — og lagasmíðamar eru oftast of einfaldar og lang- dregnar til að halda athyglinni." Underworld Dub no Bass with my Heaci Man ★★★★ „Lögin em rekin áfram af marg- breytilegum takti og næmri tilfinn- ingu fyrir samruna melódíu og „grúfs“.“ Guns’n Roses The Spaghetti Incident? ★ „Það eina sem Hólkamir bæta við eru lengri og leiðinlegri gítarsóló og veinið í Axl Rose, sem hljómar oftast eins og álappaleg hæna í þessu klassíska pönkumhverfi.“ an rennur ótrúlega trúlega hjá, hér finnur maður örsjaldan sviðasultu- keiminn sem hefur loðað við ís- lensku „latínó“-samsuðuna síð- ustu árin (Bubbi, Júpíters, Bogom- il o.s.ffv.) og ef textarnir væru ekki á íslensku hefði unairritaður trúað því sem nýju neti að hér væri kom- ið sándtrakkið úr uppsetningu borgarleikhússins í Búónes Aires. Egill sannar með þessari plötu að hann er flinkari en flestir aðrir hérlendis í að semja tónlist fýrir leikhús. Um þá æð virðist blóð sköpunargáfu hans renna um þess- ar mundir. Síðasta sólóplata Egils, „Blátt blátt“, reyndi með klúðurs- legum árangri að sameina popp og leikhússtemmningu. Hér er til- gangurinn aftur á móti augljós og niðurstaðan safarík. I leiksýning- unni var tónlist Egils skemmtilegt konfekt í ágætri leiksýningu og mjög vel flutt af sjö manna leik- húsbandi sem Árni Scheving stjórnar. Vegna klúðurs í uppsetn- ingu geislaplötubæklingsins get ég því miður ekki upplýst hverjir leika í þessari sveit, en þar er allt leyst af stökustu smekkvísi og fag- mennsku. Egill reiðir fram sextán lög og söngtexta sem halda sýningunni að miklu leyti saman. Heima í stofu gerir platan líka sitt gagn við að kippa manni í latínóliðinn. Sýn- ingin (og platan) hefst á „Forleik 1“ sem kemur áhorfandanum (og hlustandanum) úr kaldranalegri Kringlusteypunni í þann sólbjarta hugarheim sem íslendingar gera sér af S-Ameríku. Þar, og í „Forleik 11“ sem kemur manni aftur til S- Ameríku eftir hlé, fléttar Egill sam- an nokkur stef sem koma við sögu síðar í verkinu. „Blinda stúlkan" er næst, dramatískt S-Ameríku-popp sem sjónvarpsstjarnan og kyn- skiptingurinn Mimi syngur. Edda Heiðrún Backman leikur Mimi meira en lítið sannfærandi, bæði fyrir og eftir aðgerð. Ég hnippti meira að segja í næsta mann til að spyrja hver léki þennan karl með hártægjurnar. Edda stendur sig ekki síður stórvel á geislanum og engiltær rödd hennar hefur sjaldan notið sín jafnvel. Agli tekst skemmtilega upp í lögunum sem tengjast hóraríinu á Republika- stræti. „AUt í plati — rassagati“ er einmitt hæfilega sjúskað og léttlynt til að virka sannfærandi. Ef við gef- um okkur það að mellur víðsvegar noti ffístundir sínar í samsöng og dansatriði væri þetta örugglega vinsælasta lagið. Karl Guðmunds- son stendur sig stórvel sem Mad- daman glaða. Af tæknilegum ástæðum bregð- ur Egill sér stundum út fyrir S-am- eríska rammann. Þýsku heldrihjú- in Heide og Joakim taka Evu að sér í skúringar og á því heimili er auð- vitað sungin (og jóðluð) alpaleg bjórdrykkjumúsík. Seinna er Eva komin til arabans holgóma og góðlynda, Riads Halabis, sem Egill túlkar mjög vel (þrátt fyrir að leik- húsholgóminn væri líkari Eiríks Fjalars-legum skögultönnum). I kringum þessa dvöl Evu spinnur Egill arabískar stemmur, „Austur- lenska perlan“ færir í söngtexta fyrstu kynni Riads og Evu og kona Riads, Zulema (Steinunn Ólafs- dóttir), skekur sig þokkafullt við tregablandinn magadans, „Dans Zulemu“, sem gefur í skyn hin yfirvofandi dapurlegu örlög. Ef einhver hefur efast um færni Egils til að gera góða leikhústónlist slær þessi útgáfa á alla slíka firru. Tónlistin úr Evu Lunu er einfald- lega fullkomnasta leikhústónlist sem heyrst hefur lengi — og hún er líka þægilega skemmtileg. „Egill sannar með þessari plötu að hann erflinkari en flestir aðrir hérlendis í að semja tón- listfyrir leikhús. Um þá œð virðist blóð sköpunargáfu hans renna um þessar mundir. “ 20 vinsælustu lögin á Islandi Vikur Sæti Lag Hljómsveit á lista 1. (5) Nowhere ......................................Therapy 2 2. (1) Lodi Dodi ............................ Snoop Doggy Dogg 3 3. (2) Barney (and me) ........................The Boo Radleys 3 4. (20) Mutha Made'em ..................Smokin Suckas Wit Logic 2 5. (12) Skyscraper I Love You .....................Underworld 2 6. (16) Line Up .....................................Elastica 2 7. (7) Vocab .........................................Fugees 3 8. (11) Ghetto Bird ..................................Ice Cube 3 9. (10) Your Ghost ..............................Kristin Hersh 2 10. (19) No Excuses .............................Alice in Chains 2 11. (3) Another Body Murdered .....Faith No More og Boo Yaa Tribe 3 12. (6) Cannonball .........................'..........Breeders 3 13. (4) Disarm ..............................Smashing Pumpkins 3 14. (9) Violently Happy (Nellee Höpper full vox mix) ...Björk 2 15. (—) Higher Ground ..................................Sasha 1 16. (—) Stay Together ...................................Suede 1 17. (14) Rats ........................................Pearl Jam 3 . 18. (17) Pale Movie ..............................Saint Etienne 2 19. (-) Spoonman .................................Soundgarden 1 20. (18) Where I'm From ...................*....Digable Planets 3 LISTINN mITIip Oinroinc Hxt List 1. Secret Star .House of Zerekkiya 1. Top Quality ..........Magnum Opus 2. Timeless land ......Yothu Yindy 2. Greg Osbyfeat cl Smooth . . .Race 3. Trip to Space ........Andromeda 3. Nash .......It Ain't Hard to Tell 4. Higher Ground ............Sasha 4. Wu Tang Clan ...............Cream 5. Don't Look Back in Anger 5. Black Moon ........How Many MCs .....................Shio-take Vinsældalisti X-ins og PRESSUNNAR er leikinn á X-inu klukkan tólf á hádegi á hverjum f immtudegi þegar PRESSAN er komin út. Vinsældavalið fer fram í síma 626977 virka daga klukkan 9-17. Vertu með í að velja tuttugu vinsælustu lögin á íslandi. Vinsældalisti X-íns og PRESSUIMIMAR er valinn af hlustendum X-ins, atkvæðum framhaldsskólanemenda í samvinnu við listafélög skólanna og upplýsingum plötusnúða á danshúsum bæjarins um vinsælustu lögin. IMúmer í sviga vísa til sætis á lista I síðustu viku. FIMMTUDAGURINN 3. MARS 1994 PRESSAN 13B

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.