Pressan - 03.03.1994, Blaðsíða 16
Heimilisvínið
Vínkjallari
Jóns Ásbergssonar
Flestir eiga vínskáp. Ekki Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs.
Hann hefur yfir vínkjallara að ráða. Ekki þó vínkjallara í hefðbundnum skilningi
þess orðs heldur geymir hann vínbirgðir sínar í geymslu á neðri hæð hússins þar
sem hann býr, innan um skíðaskó og viðleguútbúnað. Þegar PRESSAN fór að hnýsast
ffekar í málið sagði Jón að svona litu hefðbundnar vínbirgðir heimilisins út. „Það má
segja að þarna séu í rennandi umferð rauðvínsflöskurnar tvær og ginið,“ upplýsir
hann. „I raun er mjög óeðlilegt að ginflöskurnar skuli vera tvær.“ Jón útskýrir málið.
„Það kemur þannig til að ég var á ferðalagi nýlega og þetta er tollur úr þeirri ferð. Svo á
ég þarna norskt ákavíti, sem ég hef átt síðan í fyrrahaust, og þarna er einnig eldgömul
lögg af íslensku ákavíti sem ég er búinn að eiga í tvö ár.“
Ertu nokkuð aðfela þettafyrir unglingum með því að hafa það ígeymslunni?
„Nei, reyndar ekki. Ég á nokkra, en þess þarf ekki. Þetta verður að hafa sinn gang.“
JÓN ÁSBERGSSON. Framkvaemdastjóri Útflutnings-
ráðs innan um vínbirgðirnar í „vínkjallaranum"
heima hjá sér. „Pað er í raun mjög óeðlilegt að
ginflöskurnar skuli vera tvær,“ segir hann
Enginn er eins
Hard Rock Café
Kringlunni
Sími 689888
★★★
að þarf ekki að fara mörgum
orðum um hamborgarana á
Hard Rock. Þeir eru einfald-
lega undantelcningarlaust góðir,
enda matreiddir eftir Hard Rock-
standardinum sem hvergi hefur
brugðist PRESSUNNI. Það er
framreitt óhemjumikið af mat á
þessum veitingastað — og mjög
hratt — og hamborgarar eru rétt-
ur sem þolir vel slíka framreiðslu.
Þeir eru líka til í nógu mörgum út-
gáfum — blackburger, barbeque,
texmex, o.s.frv. — til að hægt sé að
borða þá jafnvel tvo, þrjá daga í
röð.
Það eru ffelcar aðrir réttir, eins
og lasagna, sem þessi fjöldaffam-
leiðslukeimur bitnar á og veldur
ítrekað vonbrigðum. Sama má
segja um forrétti á borð við nachos
og djúpsteiktar ostastangir. Það
fyrra er bragðlítið og óspennandi,
„Eitt þolir PRESS-
AN alls ekki við
Hard Rock. Það
er þessi eilífi söng-
ur sem þjónar
gala yfir gesti sem
eiga afinæli þann
daginn. “
en osturinn í stöngunum er ekki
nógu góður eða bragðsterkur til að
henta í réttinn. Annað er pantað
nógu sjaldan til að kokkarnir
leggja sig meira ffam. Það á til
dæmis við um mexíkóskar fajítas
(með kjúklingi eða nautakjöti og
öllu meðlæti sem tilheyrir) sem
eru á fastaseðli staðarins og eru í
einu orði sagt ffábærar. Lesendur
eru þó varaðir við að þetta er mik-
ill matur og ekki fyrir hvern sem er
að hesthúsa það. Með á auðvitað
að dreklca Corona eða annan
mexíkóskan bjór með lime-drop-
um.
Eitt þolir PRESSAN alls ekld við
Hard Rock. Það er þessi eilífi söng-
ur sem þjónar gala yfir gesti sem
eiga afmæli þann daginn. Þeir
koma með ís með logandi stjörnu-
ljósi til afmælisbarnsins, syngja há-
stöfúm og baula hamingjuóskir í
hátalarakerfið, svo fólk á næstu
borðum neyðist til að hætta sam-
ræðum meðan á þessu stendur.
Svo leggur fnykinn af stjörnuljós-
unum yfir salinn. Þetta væri
kannski þolandi einu sinni á
kvöldi, en þegar þetta gerist allt að
sex eða sjö sinnum á sama klukku-
tímanum er það hætt að vera
fýndið.
Þetta er náttúrlega amerísk hug-
mynd, byggð á prinsippinu „ev-
erybody is special" eða „enginn er
eins“ í þýðingu Stuðmanna; af-
mælisbarninu á að finnast það
vera „spes“ og til þess er leikurinn
gerður. Það má vera að þetta virki
að einhverju leyti, en einhvern
veginn læðist sá grunur að, að við-
komandi hljóti að finnast hann
voða lítið spes þegar sex aðrir í
kringum hann eru meðhöndlaðir
sem jafnspes — á samá klukku-
tímanum.
En það er svo til sama hvaða
skoðun PRESSAN eða aðrir hafa á
Hard Rock — staðurinn mælir
með sér sjálfur, sem sést af því að
það er alltaf troðfúllt þar. Það er
hægt að ganga að góðum mat,
framreiddum fljótt og vel (og af
fallegustu þjónustustúlkum í bæn-
um). Verðið er eins og landbúnað-
arkerfið býður upp á — of hátt —
en sker Hard Rock þó ekki ffá öðr-
um svipuðum stöðum.
Himneskur matur frá HHexikó
Hátækni-
kynlíf
áratugi hafa rithöfundar og kvik-
myndagerðarmenn reynt að gera sér í
hugarlund hvaða tækniundur gæti
fullnægt kynlífsþörf mannkyns með
sama hætti og um „náttúrulegt" kynlíf
væri að ræða. Rithöfundurinn Aldous
Huxley kom með hugmyndina um þrívíddar-
myndir sem hann kallaði „Feeles" í bók sinni
Brave New Worid; Jane Fonda var árið 1960 framtíðardrottningin
Barbarella, sem fyrirleit kynlíf upp á gamla móðinn og vildi frek-
ar láta tengja sig fullnægingarvélum; og svo má geta þess að
einn af karakterum Woodys Allen í kvikmynd hans Sleeper varð
afar upptekinn af „orgasmatron", einhvers konar fullnægingar-
kassa.
En þó hefur Skaggs, sem kallaður hefur verið skæruliði fjöl-
miðlaheimsins, náð lengst. Hann hefur fengið trúgjarna frétta-
menn til að láta blekkjast af ótrúlegustu sögum. Nýverið komst
Skaggs upp með þá lygi að hann væri búinn að finna upp kynlífs-
vél. Kynlífsvélina Sexonix mætti mata með villtustu kynórum og
nýta síðan til að fá fullnægjandi útrás. Allt væri leyfilegt og un-
aðurinn fullkominn. Sexonix var kynnt sem fyrsta kynlífsvélin
sem væri að auki sú fyrsta sinnar tegundar til að nýta svokallað-
an sýndarveruleika, svipað því þegar herflugmenn eru þjálfaðir í
flughermi. Góðar viðtökur Ijósvakamiðla við fréttinni hvöttu
skæruliðann til enn frekari dáða. Svik komust þó upp um síðir,
því þegar sýna átti fyrirbærið kom í Ijós að það var aldrei til.
Hvorki hugmynd Skaggs né hinna hugmyndasmiðanna hefur
enn náð að rætast, en engu að síður hefur áhugi á hátæknikynlífi
ekki dalað. Sérstaklega á þessu svokallaða sýndarveruleikakyn-
lífi, sem óneitanlega gæti einn góðan veðurdag orðið að veru-
leika og, vel að merkja, fríað mannkynið frá tilfinningalegum
flækjum og þeim líkamlegu hættum sem kynlíf í samneyti við
aðra getur haft í för með sér.
Áhugi á sýndarveruleika í formi hermivéla er ekki síst mikill
hjá kaupsýslumönnum og mönnum í læknisfræðigeiranum. Þótt
Skaggs hafi ekki haft rétt fyrir í þetta sinn binda menn vonir við
að sýndarveruleikinn eigi eftir að þjóna kynlífsþyrstum í framtíð-
inni. Hið óleysta vandamál á þessari stundu er að tilfinningin er
ekki sú sama og um eðlilegt kynlíf væri að ræða. Þeir bjartsýn-
ustu binda þó vonir við að áreitnin í gegnum hátækni-
kynlíf geti orðið enn meiri en flugmenn upplifa í flug-
hermum.
jft
Sólin og heiðskíran síðustu
daga hefur væntanlega yljað
mörgum um hjartarætur. Þeir
sem vöknuðu snemma um helgina
börðu augum heiðan og rauðbleik-
an himin með appelsínugulum tón
sem endurspeglaðist í augum hús-
anna. Andartak kyrrðar í málverki
náttúrunnar. Aðrir vöknuðu seint
cftir mexíkóska fíestu á Loftleiðum
með verk í höfði vegna barsmíða
dularfullra agnarsmárra manna
með hamra og annarra agnar-
smárra manna með ryðgaðar sagir
spilandi á viðkvæmt taugakerfið.
Þeir sem komust ekki á mexí-
kósku fíestuna á Loftleiðum halda
bara sína heima hjá sér og bjóða
bestu vinum sínum og vinkonum
til að kalla fram hlátrasköll og
skemmtilegar umræður yfir borð-
um og undir ljúfri Inka-tónlist s.s.
Incantation.
Forréttur: Cebiche, krydd-
legið fisksalat
I þénnan rétt notum við bita af
meðalstórri heilagfiskitegund,
jibkkrar úthafsrækjur og hörpu-
skelfisk. Ath. fiskurinn er ósoðinn.
Safi úr u.þ.b. fimm ferskum lime-
ávöxtum settur í skál ásamt safa úr
einni tómatdós, 6 msk. ólífuolíu, 2
stk. af smátt skornum ferskum
grænum chilipipar (fræ tekin úr
áður) og tsk. af Worchestershire-
sósu. Ef safinn er ekki nægur má
bæta dálitlu af þynntu kryddediki
út í. 2 msk. af smátt skornum lauk,
2 meðalstórum, niðurskornum
tómötum og handfylli af grænum
eða svörtum ólífum bætt í. Saltað
örlítið og piprað með svörtum pip-
ar. Sjávarkonfektinu bætt út í og
allt látið liggja í kryddleginum í
a.m.k. sólarhring. Rétturinn er
borinn fram í grunnum skálum á
Nautnin mín...
...er — fyrir utan þessar
augljósu — að hlœja.
Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari.
jöklasalatblaði með avocado-, sítr-
ónu- eða limebátum og skreytt
með steinselju.
Guacamole: ídýfa úr
avocado
3-4 bátar af hvítlauk, handfylli af
ferskum kóríanderlaufum, 1-2
ferskur grænn chili-pipar
smátt skorinn (með ffæj-
um) og 3 fullþroskaðir
avocadoávextir settir
í blandara. Safi af 2
limeávöxtum
kreistur út í auk
2-3 msk. af vatni
og slettu af
ólífúolíu. Allt
hrært vel sam-
an. Borið fram
með taco-flög-
um. Ef ekki er til
ferskur kóríander
má nota 1/3 af
myntulaufum og 2/3
af steinselju.
Aðalréttur: Carne
adobadas
í þennan rétt má nota hvaða kjöt
sem er en við ætlum að nota grísa-
skanka í þetta sinn sem við sjóðum
daginn áður. Skankarnir eru soðnir
í vatni ásamt hálfum poka af chili
con carne-kryddblöndunni, u.þ.b.
4 msk. af tómatkrafti og salti. Soðið
í 1 og 1/2 klukkustund. Skankarnir
eru teknir úr soðinu og settir í ís-
skáp. Tveimur klukkustundum
fyrir borðhald eru þeir bakaðir í
ofni þar til puran verður stökk og
þeir heitir í gegn.
Mole de guajolote o polle:
Kjúklingabitar í sætkrydd-
aðri chilisósu
Þessi réttur er alveg frábær og
byggist á dálítið flókinni sósu en er
þess virði
a ð
reyna.
Kjúklingabitarnir
eru steiktir í ofni í bökunarpotti
með smávatni í botninn. Gulrótar-
bitum, grófskornum lauk og hvít-
lauk raðað með. Saltað og piprað
með svörtum pipar. Gjarnan má
bæta við 1-2 lárviðarlaufum. Sós-
an: Til að gera hana sem einfaldasta
setjum við kryddið; 1 tsk. chiliduft,
2 tsk. möluð kóríanderfræ, hnífs-
odd af negul og fennel og 2 cm
kanelstöng sem hefur verið brotin
niður. Hitum olíu á pönnu og
steikjum 1 smátt skorinn lauk,
kryddinu stráð út á. Bætum u.þ.b.
200 g af möndlum, 75 g af rúsín-
um, 75 g af graskersfræjum ásamt
strimlum af tortilla-brauði (eða
franskbrauði) sem við skerum nið-
ur. Hrærum vel, bætum við 2-3
msk. af kryddediki og 25 g af suðu-
súkkulaði. Ef vökvinn er ekki nægj-
anlegur bætum við vatni út í. Lát-
um malla í 20 til 30 mínútur.
Bætum vatni út í eftir þörfum.
AUt er síðan sett í mixara og
mulið niður og hitað aftur
upp á pönnunni rétt áður
en sósan er sett yfir hvern
kjúklingabita. Skreytt með
sesamfræjum.
Meðlæti getur verið hrís-
grjón, ferskt salat, sýrður
rjómi tortillabrauð og chili-
sósa, t.d. samansett úr 2 dós-
um af tómötum, 2 msk. af
tómatkraffi, bolla af vatni,
jurtakrafti, 1 msk. bolognese-
kryddblöndu, 1 msk. af muldum
kóríander, handfylli af ferskum
smátt skornum kóríanderlaufum
og 2 tsk. af chilidufti. Allt soðið
niður í 20 til 30 mínútur. Einnig
gott með grísaskönkunum.
Eftirréttur: Frost og funi
Kaupum einn lítra af ís í næstu
ísbúð, setjum hann í blandara,
bætum hálfri tsk. af chilidufti út í
og látum blandast vel saman. Sett
inn í ffysti í smátíma. Borið ffarn
með ávöxtum. Þessi ís hitar en kæl-
ir ekki og hefúr verið leyniuppskrift
Pottagaldra til nokkurra ára.
16B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 3. MARS 1994