Pressan - 03.03.1994, Síða 17
• Rauða skikkjan ★★ á
RÚV á fimmtudagskvöld.
Dönsk/íslensk kvikmynd frá
1968. Þessi mynd býr yfir ákveðnum sjokk-effekt
— í myndinni leika m.a. Flosi Ólafsson, Gísli Al-
freðsson og Borgar Garðarsson og svei mér ef þeir
eru ekki bara spengilegir!
Varíst:
kvöld. Spennu-
mynd með fyndrænu ívafi. Daniels og
Goodman svíkja ekki. Og vel á minnst,
Goodman er undantekningin sem sannar
regluna, sjónvarpsstjarna sem gengur upp í
• Glópagull ★★★ Fo-
ol’s Gold: The Story of the
' Brink’s-Mat Rohbery á
RÚV á föstudagskvöld. Byggt á raunverulegum
atburðum: Breskir glæponar bísa 26 milljóna
punda virði af gulistöngum. Sannfærandi tiilkun
á skömbóum í London.
• Hættuleg tegund ★★★ Arachnophobia á
Stöð 2 á föstudags-
bíó.
»Léttlynda Rósa ★★★ Rambling Rose á
Stöð 2 á laugardagskvöld. Allt í góðu með að eyða tíma
með henni þessari.
Það er að vísu huggun að \ita af Baldri sem pródúsent
umrœðuþátta sem gerðir eru á vegum framkvœmdastjóra
ett það er bara á engan hátt fullnœgjandi fyrir jjölmarga
aðdáendur Baldurs setn vilja fá hann í trtynd. Baldur!
Baldur! Baldur!
• Innbrotsþjófurinn ®
Burglar á RÚV á föstudags-
kvöld. Whoopi Goldberg var ágæt í Color Purple en
fékk einhvern veginn þá flugu í höfuðið að hún væri
fyndin. Síðan hafa komið ókjör af hörmulegum
myndum með henni í aðalhlutverki og þessi er ein
af þeim. Hvorki fugl né fiskur, reynir að vcra spenn-
andi og fyndin í senn en er hvorugt.
^ • Tina Tumer ® What’s Love Got to Do With it?
á RÚV á föstudagskvöld. Tina Tumer er hrútleiðin-
legur tónlistarmaður, einhæf með afbrigðum, og allt umburðarlyndi, sem
er til komið af því að Ike var að beija hana á sínum tíma, er komið út í
ystu myrkur eftir hálft lag.
• Falin myndavél ® ® Candid Camera II á
Stöð 2 á laugardagskvöld. Gersamlega laust við
að vcra fyndið og gestgjafinn Dom DeLuise
feitilíus er sérlega óviðfelldinn í rembingsleg-
um tilraunum sínum til skemmtilegheita.
Hann býr yfir versta eiginleika leikarans, sem
er að pína áhorfandann tii hláturs, sem er í
raun andleg nauðgun. Athvarfið ætti að taka á
þessu máli. Það er vonandi að Stöð 2 fari ckki
að elta uppi þessa lágkúm á sama hátt og með
„Fyndnar“ fjölskyldumyndir, þ.e. að fara áð gera íslenska útgáfú afþess--
umósköpum.
• Rauði þráðurinn ® Traces of Red á Stöð
2 á laugardagskvöld. Ófrumleg mynd sem
byrjar allt í lagi, svona eins og fyrsti bitinn af
djúpsteikta skyndibitakjúklingnum í þynn-
kunni, en svo fer myndin út í móa og manni
verður óglatl.
Réttlætið, það sigraði
HEITT
• NETSOKKABUXUR hvort heldur
er á karlmenn eða kvenfólk. Karl-
menn eru ekki síðri en konur í
þeim innanundir plaststuttbuxum.
Þeir sem muna eftir Tim Curry í
h I u t v e r k i
Franks 'N Furt-
Rocky !
Horror Picture
Show ættu að
kannast við ^
málið.
• BAKPOKAR það hlýtur að vera
því nýlega sást Móeiður með einn
slíkan á bakinu og vel að merkja
vinkona hennar einnig á kaffibar
að kveldi til í miðbænum. Svo má
líka lesa um þetta í Vogue.
• FRIKKA-KAFFI sem er einhvers
konar sambland af Cafe au Lait og
Cappucino og fæst eingöngu á
kaffibar Frikka og dýrsins. Einhver
skemmtilegasta kaffiuppfinning
seinni ára.
• FJÖGURRA TALNA JAKKAR á
karlmenn jafnframt því að losa um
skyrtukragann, leggja bindinu og
bregða sér í sandala. Þá er nóttin
þín.
ÞREYTT
• AÐ LEGGJA AÐ JOFNU FEMIN-
ISMA OG KARLRREMBU þeir sem
það gera hafa augljóslega ekki
ástundað heimalærdóminn.
Meirihluti karla og kvenna er
nefnilega að einhverju
leyti femínistar í sér.
Það eitt að vilja bæta
hag kvenna, þó ekki
væri nema að styrkj
sjálfstraust þeirra
(slíkt hefur m.a. oft sést
á stefnuskrám Sjálf-
stæðisflokksins), er femínísk til-
hneiging. Kvenremba er svo.allt
annað mál. Og má leggja að jöfnu
við karlrembu.
• DRAKÚLA DRAG eða allt það
sem heitir að vera hvítur í fram-
an, í svörtum klæðum og með
rauðar varir.
• RÍKISSTJÓRNIN ef hún spring-
ur er það fínt að því leyti að þá
það skapast spenna í loftinu. Nýj-
ungagjarnir íslendingar hefðu ör-
ugglega ekkert á móti daglegum
rikisstjórnarmyndunarþreifingum.
Að ekki sé talað um kosninga-
nóttina sem á undan kæmi.
að lokum...
KVIKMYNDIR
HALLUR
HELGASON
T í *fp w*
Enn og aftur hnjótum við um það í tvíförum vikunnar að form og
innihald fer saman. Rowan Atkinson, sem er frægastur fyrir að
leika Herra Bean, hyggst nú færa sig upp á skaftið og reyna fyrir
sér í kvikmyndum. Sighvatur Björgvinsson hefur þegar látið verða
af því að hækka sig um skör úr heilbrigðis- í viðskiptaráðherra-
stólinn. En svo kemur náttúrulega á móti að myndin af Sighvati er
eldri. Báðir eru þeir frábærir djókarar og um útlitið þarf vart að
fjölyrða: Eini munurinn er sá að annar er með slaufu en hinn bindi.
í nafni föðurins
HÁSKÓLABÍÓI
★★★★
egar írski lýðveldisherinn
sprengdi hermannakrá í Gu-
ildford árið 1974 fylltist
Bíó
• Kryddlegin hjörtu ★★★★
Stórskemmtileg mexíkósk kvik-
mynd og vel heppnaður óður til
konunnar.
Regnboganum
• Frú Doubtfire ★★★ Robin
Williams er drepfyndinn í þessari
mynd, bæði sem kona og karl.
Sambíóunum
• Njósnaramir ® Undercover
Blues Það er eitthvað að efhaffæð-
inni í henni sem gerir hana bjána-
lega en ekki skemmtilega.
BíóhöUinni
• Króginn ★★★ The Snapper
Satt best að segja var ég að hugsa
um að fara út eftdr fyrstu tíu mín-
útumar. En svo kemur í ljós stór-
skemmtileg mynd.
Háskólabíói
• Leið Carlitos ★★★ A1 Pac-
ino hefúr á tjaldinu návist sem er
mögnuð birting ffumkrafta karl-
dýrsins.
Háskólabíói
• Hús andanna ★★★★ Til-
finningaþmngnustu atriðin
sleppa við að vera væmin, þótt
þau kalli á vasaklúL
Sambíóunum
• Sagan af Qiu Jiu ★★★★
Hún er fyndin og einlæg og ættu
kvikmyndasælkerar, ferðaáhuga-
fólk og aðrir sem láta sig fagur-
kvikmyndú emhveiju skipta ekki
að láta þessa ffamhjá sér fara.
Háskólabiói
• Banvæn móðir ★ Hún er
uppfull af gömlum þriller-töktum
og ffekar slaklega leikin af annars
ágætum leikurum.
Laugarásbíói
breskur almenningur hatrammri
reiði og vildi sjá ódæðismennina
hengda. í örvæntingarfullri leit að
sökudólgunum rambaði lögreglan
á Gerard Conlon (Daniel Day-Le-
wis), smáþjóf ffá Belfast, sem var á
vergangi í Lundúnum. Gerard var
tekinn og fenginn með kúnstum til
að játa að hann hefði ffamið glæp-
inn. Ekki nóg með það; eftir að bú-
ið var að þræla út úr honum játn-
ingu var hann spurður hveijir
hefðu verið í vitorði með honum.
Til að reyna að sýna ffam á fárán-
leikann í þessum yfirheyrslum
benti hann m.a. á miðaldra frænku
sína, konu sem dáði bæði kon-
ungsfjölskylduna og Churchill og
hafði myndir af því mæta fólki upp
um alla veggi hjá sér. En viti menn;
lögreglunni tókst að „sanna“ að
þessi ágæta kona, sem ekki mátti
vamm sitt vita, og öll hennar fjöl-
skylda væru stórhættulegir
sprengjugerðarmenn á vegum IRA.
Þegar ráðist var til atlögu við heim-
ili ffænkunnar í Lundúnum var
þar einnig staddur faðir Gerards,
Giuseppe, sem kominn var ffá Bel-
fast til að tryggja að vandræða-
gemsinn sonur hans fengi sæmi-
lega lögffæðiaðstoð í máli sínu. En
að sjálfsögðu „sannaðist“ að hann
væri sendiboði IRA.
Auk þessara ættingja lentu félagi
Gerards og vinkona úr hippalífinu
í Lundúnum í fangelsi effir að búið
var að færa „sönnur" á þeirra hlut í
sprengjutilræðinu.
Þessi skrípaleikur er sönn saga.
Hann er eitthvert mesta hneyksli
sem riðið hefúr breskum réttarfars-
húsum frá því pyntingar og lim-
lestingar voru stundaðar í Tower of
London. Harmsaga Conlon-íjöl-
skyldunnar, Maguire-fjölskyldunn-
ar (ffænkan og hennar fólk) og
vina Gerards er með ólíkindum.
Faðir hans, Giuseppe, lést í fangels-
inu, hinir eru allir tiltölulega ný-
lausir úr fangelsi.
Að gera mynd um þetta efúi er
mjög viðkvæmt mál. Eðli málsins
samkvæmt þarf að hnika til stað-
reyndum þegar verið er að sjóða
tuttugu ára sögu margra aðila nið-
ur í tveggja og hálfs tíma mynd.
Aðstandendur myndarinnar hafa
hins vegar verið sakaðir um það í
breskum blöðum að leika sama leik
með söguefnið og lögregluyfirvöld
léku með sannleikann á sínum
tíma. Það er staðreynd að ekki er
allt í myndinni eins og það gerðist í
raunveruleikanum, spumingin er:
Gengu höfundar myndarinnar of
langt?
Leikstjórinn Jim Sheridan, sem
jafúframt er annar handritshöf-
unda og ffamleiðandi, hefúr látið
hafa eftir sér að þó að þeir hafi fært
suma atburði til í tíma og hnikað
til öðrum smáatriðum hafi slíkt
einungis þjónað þeim tilgangi að
koma sem mestu á ffamfæri á sem
skemmstum tíma. Þessar tilhliðr-
anir breyti því ekki að þegar upp er
staðið séu heildaráhrifin mjög ná-
lægt sannleilcanum.
Það er einhvem veginn sjálfgefið
að myndin skapi umræður af þessu
tagi í Bretlandi. Það breytir þvi ekki
að hún er feikisterk. Jim Sheridan,
sem sló í gegn með myndinni My
Left Foot, þar sem Daniel Day-Le-
wis lék einmitt aðalfilutverldð líka,
sýnir hér að hann er sögumaður í
meistaraflokki. Honum hefur tek-
ist að samræma alla þætti sem þarf
til að búa til heilsteypta og áhuga-
verða bíómynd úr óheyrilega
mildu efúi. Sjálfsagt er einmitt
mesti vandinn við gerð myndar
eins og þessarar að ákveða hvað á
að vera í myndinni og hvað ekki.
Hvaða þættir em nauðsynlegir til
að segja söguna? Hann leyfir sér að
hafa myndina nokkuð langa til að
koma meiru fýrir og maður er feg-
inn að hann gerði það. Þessi mynd
heldur hveija einustu mínútu.
Daniel Day-Lewis er mjög sann-
færandi í hlutverki sínu. Hann tók
sér tíma til að eyða fleiri vikum
með hinum raunverulega Gerard,
stúdera hann og spjalla um tíma-
bilið sem myndin fjallar um, sú
vinna hefúr skilað sér.
í miðju umrótinu í kringum
málaferlin fjallar myndin ekki síður
um samskipti Conlon-feðganna.
Eftir áralangar eijur ná feðgamir
sáttum þegar þeir em komnir sak-
lausir saman í fangelsi. Pabbinn er
leikinn af Pete Postlethwaite. Hann
er ekki síðri en Daniel í þessari
mynd. Hann er svipmikill kall sem
gæðir persónuna sem hann túlkar
lífi ffá toppi til táar, ffá upphafi tif*
enda.
Emma Thompson er sennilega
ffægust þeirra sem fara með auka-
hlutverk í myndinni. Hlutverk
hennar ræður engum úrslitum,
enda hefúr hún látið hafa effir sér
að það skipti hana engu máli. Hún
vildi bara fá að taka þátt í þessari
mynd. Kvikmyndatímaritið Premi-
ere hafði effir henni: „Ég vona að
ég fái að vinna með Jim aftur.
Kannski ég verði að sofa hjá hon-
um.“ Ætli Kenneth hafi heyrt af
þessu?
m 1 • p •
1 æKitæri
CITIZEN KAIME
HÁSKÓLABÍÓI SUNNUDAGINN 6. MARS KL. 21.00
★★★★
T>
Jl
að cr rétt að vekja athygli kvikmyndaáhugamanna á því að nýtt
eintak af þessari einni mest lofuðu kvikmynd allra tíma er á land-
inu og verður sýnt á einni sýningu eftir að PÆESSA/Vkemur út.
„Sheridan leyfir sér að hafa mynd-
ina nokkuð langa til að koma
meiru fyrir og maður er feginn að
hann gerði það. Þessi mynd heldur
hverja einustu mínútu. “
FIMMTUDAGURINN 3. MARS 1994 PRESSAN 17B