Pressan - 10.03.1994, Síða 9
Sjálfsagt hefur engin hljómsveit fengið eins miklar og tvíræð-
ar andlátsfregnir og Todmobile. Rannski Bítlarnir. Nú er nýr
bræðingur úr Todmobile, dúettinn Tweedy, að undirbúa
komu sína. Andrea Gylfadóttir og Þorvaldur Bjarni skipa
Tweety.
ÞORVALDUR og ANDREA í banaham við gerð myndbands.
Tweety er samkvæmt ensk-ís-
lensku orðabókinni tíst í
fugli. Þorvaldur Bjarni segir
að þeim hafi fundist það viðeigandi
í ljósi þess að þetta sé nýtt dæmi,
fugl sem er rétt skriðinn úr egginu.
Tweety er nú að vinna að gerð
myndbands með Júlíusi Kemp við
lagið „So cool“ en það kemur til
með að heyrast á útvarpsstöðvum
fljódega. Lagið verður að finna á
safnplötu sem Spor gefur út nú um
páskana og heitir Ringulreif. Að
sögn þeirra Andreu og Þorvaldar
gæti tónlistin flokkast undir dans-
tónlist, mikið „beat“, „en það verð-
ur að koma fram að þetta er ekki
neitt píkupopp, þetta er röff tón-
list“, segir Þorvaldur. Þau semja
lögin saman og annast allan söng
og hljóðfæraleik sjálf og semja sam-
an, Andrea með texta en Þorvaldur
semur lög. Núna eru þau í stúdíó
Grjótnámu að vinna efni á plötu
sem er væntanleg í haust.
Andrea segir breytinguna frá því
að vera í tríói eins og Todmobile og
að starfa í dúett einkum felast í því
að það sé einum færra að rífast við.
Eins og fram kemur á síðunni hér á
móti er þeirra gamli félagi úr
Todmobile, Eyþór Arnalds, einnig í
Dagskrá í Langholtskirkju
Skæruhernaður
gegn ólæsi
PRESSUNNI barst orðsending frá
Andspyrnuhreyfingu gegn ólæsi.
Dagskrá í Langholtskirkju undir
yfirskriftinni „Lífið er LESTUR“.
Fjöldi manns á öllum aldri kemur
saman og les upp ljóð: Níu ára
börn, rútíneruð ljóðskáld á borð
við Þórarin Eldjárn, Ingibjörgu
Haraldsdóttur og Vilborgu Dag-
bjartsdóttur, skólaskáld nútímans
og fleira.
SJÓN segir að ekkert hafi enn
komið fram sem taki lestri
fram í einstæðu samspili aug-
ans og blaðsíðunnar.
Kynnir er Sjón. Hvað er að ger-
ast?
„Andspyrnuhreyfing gegn ólæsi
er andlitslaus neðanjarðarhreyfing
sem starfar með mikilli leynd og
fær til liðs við sig hina og þessa sem
má ætla að séu á móti ólæsi.“
Afhverju þessi leynd?
„Það sem mér hefur tekist að
toga upp úr meðlimum er að þetta
er að vissu leyti andsvar gegn opin-
berum nefhdum og apparötum
sem yfirleitt eru sett af stað. I stað
þess að starfa með bægslagangi og
lítilli útkomu hefur þessi hreyfing
kosið að starfa með leynd en miða
að hámarksárangri.“
Sjón segir að þetta sé eina mark-
mið hreyfingarinnar, auk þess að
vilja auka lestur og ánægju af lestri.
Þetta er í annað skipti sem hreyf-
ingin lætur til skarar skríða, hin
uppákoman var í Perlunni íyrir
skömmu þar sem stefnt var saman
poppurum og pólitíkusum sem
lásu hver fyrir annan og fyrir annað
fólk. Hefurðu einhverja hugmynd
um hversu umfangsmikil hreyfing-
in er, Sjón?
„Ég hef bara hitt hópinn sem
skipuleggur þessa dagskrá og ég má
ekkert gefa uppi um hvað margir
eru í honum. Það sem mér finnst
spennandi í þessu er viðfangsefnið.
Það fer tvennum sögum af því
hversu mikið ólæsi er á landinu.
Sumir halda því ffarn að þetta fari
vaxandi og fólk sé hætt að nota
bækur sem afþreyingu, eins og
komið hefur í ljós með útlán á
bókasöfhum. Fólk virðist snúa sér
frekar að sjónrænu áreiti. Þetta er
spurning um að halda fólki með-
vituðu um að það er ekkert sjálfgef-
ið að hafa aðgang að bókum og
bókum sem næringu. Af því að við
lifum í frjálsu landi þykir okkur
sjálfsagt að okkur standi allar bæk-
ur opnar og hér sé engin ritskoðun
og að hér eru ekki börn sem vaxa
úr grasi án þess að komast nokkurn
tíma í snertingu við bók. Þetta er
blákaldur veruleikinn annars stað-
ar, en hér hættir fólki til að gleyma
því vegna þess að þetta virðist sjálf-
sagður hlutur.“
Er þá 1984 biblía hjá hreyfing-
unni?
dúett. Það er ekki hægt annað en
að spyrja hvernig það sé að vera í
samkeppni, ja, nánast við líkið af
sjálfum sér eins og einhver orðaði
það?
„Ég lít nú ekkert á það þannig,“
segir Andrea. „Mér finnst það bara
skemmtilegt. Við erum ekki á önd-
verðum meiði músíklega séð, bæði
erum við inni á danstónlistinni.
Þetta er þó rokkaðra dæmi hjá
okkur, meiri groddi. Ég á erfitt
með að hemja mig, það verða að
koma öskur inn á milli.“
Todmobile vakti meðal annars
athygli fyrir útlit sem virtist útpælt
og nánast hluti af tónlistinni.
Hvernig er það hjá Tweety, eru þau
atriði hugsuð jaftiframt tónlistar-
sköpun?
„Það er misskilningur að „lúk-
kið“ á Todmobile hafi verið út-
hugsað. Það lagði hver til sína til-
finningu og það þróaðist af sjálfu
sér. Ég hugsa að þannig verði það
áffam. Það hefur aldrei verið hjá
okkur — ókei, nú erum við rokk-
arar og þá þurfum við að vera í
svona buxum og svona skóm með
sítt hár eða stutt. Við erum bara
við,“ sagði Andrea að lokum.
„Ég þori ekki að segja um það,
en það kæmi mér ekki á óvart.“
En er þetta ekki bölvuð aftur-
haldssemi að halda í lestur sem hið
eina rétta?
„Það er spurning hvort það kem-
ur eitthvað í staðinn vegna þess að
heimurinn sem lifnar við í rýminu
milli augans og blaðsíðunnar er
skapaður í samvinnu rithöfundar
og lesanda. Kvikmyndin hefur ekki
þennan möguleika og ég veit ekki
um neinn miðil sem býður upp á
þessa heimssköpun. Lestur er ein-
stakur máti og því er þetta ekki
íhaldssemi — það hefur ekkert
breyst í því. Tungumálið er nokkuð
sem við eigum öll saman. Ég var að
lesa nýlega að málþroski hæfist
fjögurra mánaða í móðurkviði. Þá
byrjar fóstrið að greina rytmann í
móðurmálinu sjálfu. Þetta er eitt-
hvað það fyrsta sem okkur er gefið
og um að gera að njóta þess, —
ekki bara í gegnum samræður við
annað fólk heldur einnig í samræð-
um við blaðsíðuna þar sem þú get-
ur verið einn og unnið úr því.“
Það er einkennileg tílhneiging
fólks að hrúgast alltaf á sama
staðinn meðan ágætisbarir
eru hálftómir. Þessi síldartunnu-
komplex er í raun óskiljanlegur
nema maður sé pervert. Ég var bú-
inn að mæla mér mót við Gauja á
einum af þessum cafésnottístöðum
og tafðist eitthvað á Keisaranum.
Þegar ég kem þá er röð — ohhh.
Nú, Gaui hefði svo sem mátt sigla
sinn sjó, en hann ætiaði að borga
mér sjöþúsundkallinn sem hann
skuldaði mér og ég var eitthvað
sjort á kassi. Þar sem ég stend og
reyni að lifa þetta af byijar einhver
hópur í röðinni að syngja. Kræst.
Leiðinlegustu lögjn tekin eins Mar-
ía María og öll serían. Þetta minnti
meira á rútuferðalag í grunnskóla
en fúllorðið fólk á leið á barinn.
Þegar línan „sælt er að vera fátækur
elsku Dísa mín“ varkyrjuð, eitt-
hvert mesta bull sem Davíð samdi
og er hún þó ærin steypan frá hon-
um víða, var mér nógboðið og ætl-
aði að halda mína leið. En þá kom
hreyfing á röðína og ég slapp inn.
Og þar tók ekki betra við því inni
voru tómar listaspírur og rútubíla-
söngvararnir breyttust eins og
hendi væri veifað í menningar-
snobbara. Gauja djöfúl var hvergi
að sjá og ég olnbogaði mig að bam-
um, þurfti sannarlega á einum viskí
að halda. „Fyrirgefðu, þú ert ekki
næstur," sagði barþjónninn, frem-
ur hommalegur náungj með sítt
hár. Síðan tók hann að blanda ein-
hverja rjómalíkjörablöndukokkt-
eila ofan í fimm tískudruslur sem
þóttust vera á undan mér. Þetta tók
óratíma og þegar loks kom að mér
bað ég um að fá að opna reikning,
það stæði þannig á hjá mér. Þjónn-
inn fór og náði í eigandann, sem
var útlendingur með sérlega gúddi
fés. En það var sama hvað ég
reyndi; hann þóttíst ekki skilja mig,
alveg sama hvaða tungumál ég
reyndi: „É iggi skilja,“ voru einu
svörin sem ég fékk og þar með eng-
an viskíinn. Það var farið að síga
þétt í mig og mér tókst að rekast ut-
an í þrjú glös á leiðinni út. Ég hitti
. Gauja á Keisaranum dagjnn eftir,
tók hann haustaki og sagðist drepa
hann ef hann gerði mér þetta aftur.
Hann var fljótur að borga mér og
bauð mér upp á tvo bjóra í kaup-
bætí. Fátt er svo með öllu illt
... Að Gísli „flauta" Helgason verði ráðinn sem fastur
pistlahöfundur á Moggann. Gísla liggur greinilega ýmislegt á hjarta en
hefur hingað til verið skákað í Velvakanda. Á laugardaginn var grein eftir
hann undir fyrirsögninni „Hver er ég, hvað heiti ég?“. Það vantar fleiri
menn sem velta tilvistarlegum spurningum á borð við þessa fyrir sér.
... Að verð á notuðum bílum sé sett í samhengi við verð á nýj-
um bílum. Það er sillí að setja nánast jafhmikið á tveggja ára gamlan bíl
og nýjan sömu tegundar. Þið þarna sem eruð að selja bflinn! Áttið ykkur
á afföllum og lækkuðu bílverði.
... Jarlinum. Staðurinn er ekki á fallegasta stað í bænum, útsýnið er
reyndar pínlega ósmekklegt. Né heldur eru innréttingarnar smekklegar
— og þó, þær fara hringinn. En nautasteikurnar á þessum grillstað eru
góðar.
... Að karlmenn falli ekki í þá gryfju að fara að stofiia félög í
massavís sem hafa það að markmiði að ræða tilfinningar sínar á opinn
hátt.
... Gömlu góðu kúluspilunum. Þessir grafisku tölvuleikir eru
ágætir fyrir sinn hatt en þeir koma aldrei til með að slá góðu kúluspili
við.
... Að Davíð segi við Heimi: "Heimir, ekki fara til
Gautaborgar!" Þá má ganga út frá því sem vísu að Heimir í þvermóðsku
sinni láti sig hafa það að sækja um þessa klerkastöðu.
• Amma Lú Aggi Slæ og Tamlarnir
ásamt Erni Árnasyni og Jónasi Þóri á
föstudagskvöld. Bergþór Pálsson
verður hins vegar meö Agga Slæ og
Tamlasveitinni á laugardagskvöld. A
fjmmtudag og sunnudag er hluti
Ömmu Lú opinn fyrir þá sem vilja á
barinn.
• Barrokk Snarkandi arineidur og
rómantík. Án hávaða.
• Bóhem Honey and the T-bone hér
á landi eina ferðina enn. Alla helgina
á Bóhem.
• Blúsbarinn Vinir Dóra á réttum
stað frá fimmtudegi fram á laugar-
dag.
• Café Romance lan heitir Englend-
ingurinn sem syngur og leikur Ro-
mance-megin um helgina. Hinum
megin við þilið spilar Hjörtur Howser
af fingrumfram.
• Feiti dvergurinn Kvennakvöld með
strippi og líkjörum á föstudagskvöld,
að ógieymdum Fánum. Fánar aftur á
laugardagskvöid en þá án strippara.
• Fossinn, Garðabæ Þuríður Sigurð-
ardóttir ásamt Vönum mönnum á
föstudag. KK ætlar að leggja lag sitt
við Garðbæinga á laugardagskvöld.
• Fógetinn Djass á fimmtudagskvöld
með Dan Cassidy, Kristjáni Guð-
mundssyni og Þórði Högna á háaloft-
inu. Haraldur Reynisson, sem loks er
kominn heim, á föstudags- og laugar-
dagskvöid. Músíktilraunir með nýjum
og nýjum á sunnudagskvöldum í
framtíðinni.
• Gaukur á Stöng Synir Raspútins
hefja helgina á fimmtudagskvöldi.
Bláeygt sakleysi sýnir á sér nýjar
hliðar á föstudags- og laugardags-
kvöld. K-tune lokar helginni.
• Hótel ísland Bítlahátíð á föstu-
dagskvöld með fullt af gömlum kemp-
um auk Stefáns Hilmarssonar. Þrjár
bítlamyndir á stóra tjatdinu. Sýning á
laugardagskvöld með hinni ótrúlega
þrautseigu Sumargleði sem inniheld-
ur sem fyrr Bessa Bjarnason, Magn-
ús Ólafsson, Hemma Gunn og fleiri.
Hljómsveit kvöldsins er sveit Siggu
Beinteins.
• Hótel Saga Sýning hinnar miklu
hátíðar Halla, Ladda, Sigga og Eddu á
laugardagskvöld. Saga Class leikur
fyrir dansi. Matur og afnot af dans-
gólfi. Gunnar Tryggvason og Þorvald-
ur Halldórsson á Mímisbar á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
• Hressó Tónleikar með hljómsveit-
inni 13 á stóra sviði Hressó i kvöld.
Verslingar í aðalhlutverki á föstu-
dagskvöld. Hvur veit nema Varalita-
elskhugarnir líti inn. Vorsýning frá
Plexiglas á laugardagskvöld, sem
þýðir væntanlega að Hressó er
trendi. Skárr'en ekkert-tríóið spilar
ekta franska kaffihúsatónlist með
hnallþórum á sunnudagseftirmiðdag.
Um kvöldið verða tónleikar með neta-
gerðarmanninum, togarasjómannin-
um og sjarmörnum Bjarna (ekki
Bjarka) Tryggvasyni.
• Rauða Ijónið Sín, með einföldu, á
föstudags- og laugardagskvöld.
• Sólon Islandus JJ soul á djasslin-
unni á laugardagskvöld. Sveinn Óli
Jónsson leikur á píanó á sunnudags-
kvöld.
• Tveir vinir Frítt inn á Vini vors og
blóma — sem maður ímyndar sér að
séu litlir álfar — á föstudagskvöld.
Lizt leikur á laugardagskvöld, en það
er hljómsveit sem hefur spilað í und-
anúrslitum söngkeppni framhalds-
skólanna. Diskó-, fönk- og danstón-
list
• Þjóðleikhúskjallarinn Dansiball
með Leikhúsbandinu á föstudags- og
laugardagskvöld. Óskabörnin á föstu-
dagskvöld. Þýðendakvöld hjá Lista-
klúbbnum á mánudagskvöld.
SVEITABOLL
• Langisandur, Akranesi Orkin hans
Nóa leikur.
• Sjallinn, Akureyri Allt vitlaust að
venju með Geirmundi á laugardags-
kvöld.
• Skíðaskálinn Hveradölum Sigrún
Eva Ármannsdóttir júróvisjónsöng-
kona er þar með annan fótinn.
FIMMTUDAGURINN 10. MARS 1994 PRESSAN 9B