Pressan - 10.03.1994, Síða 19

Pressan - 10.03.1994, Síða 19
( ( ( i 1 I sjónvarpsþulu, Hverjir voru hvar? Tómas Andrés Tómasson stórvert eyddi svo aö segja helginni á Kaffibar Frikka og Dýrsins, því bæöi sást til hans þar á föstudags- og laug- ardagskvöld. Þar var líka Gunnar Smári Egilsson bæöi kvöldin. Á föstudagskvöldiö var hann síö- hærður en á laugardagskvöld stutthærður. Eitt- hvaö hefur því gengið á millitíðinni. Á föstudags- kvöldið voru líka þar að skemmta sér Ásgeir Frið- geirsson ritstjóri lceland Rewiew, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Jó- hann Sigurðarson leikari, yngismærin Heiðrún Anna Björnsdóttir ungfrúferða- heimureitthvað ásamt Baltasar Kormáki, Hlynur Óskarsson kvik- myndamógúll, Húbert Nói, Jón Óskar og Hulda Hákon, óútskrifaðir ungleikarar í tugavís sem og útskrifaðir á uppleið. Á laugar- dagskvöldið voru þar að sögn Árni Þórarins ritstjóri, Halldór Halldórsson, Mörður Árna og Linda Vil- hjálmsdóttir, Ásgeir Tómasson fréttamáður á RÚV og Elín Albertsdóttir á DV, Ól- afur Hauksson einn fyrsti opin- beri frjálshyggjumaðurinn á íslandi og svo mætti lengi telja. Ræktin í Frostaskjóli er greinilega að svolítið trendí staður því si. sunnudag þar Jón Ásbergsson framkvæmdastjóra Út- flutningsráðs, Pálma Gestsson leik- ara og Svölu Arnardóttur öll á sama tíma. í fimmbíó á sunnudag á kvikmyndinni Ir the name of the father var m.a Jón Múli Árnason útvarpsþulur og leikritaskáld meiru og þarna var einnig María Maríus- dóttir pródúsent á Stöð 2 og slatti af ungum og ekki ungum ástföngnum pörum. Morgunblaðsfólk hélt árshátíð sína á ekki minni stað en í Hlégarði í Mosfellsbæ á laug- ardagskvöldið. Á fimmtudaginn sást til Styrm- is Gunnarssonar ritstjóra lauma sér inn til Sævars Karls í Bankastræti. Flestir héldu að hann væri að fata sig upp fyrir árshátíðina en svo var ekki, því að venju létu ritstjórarnir sig vanta. Þarna voru þó þau Agnes Bragadóttir, Haraldur Sveinsson, Helgi Bjarnason, Hjört- ur Gíslason, Sindri Freysson og Helga Vala Helgadóttir svo nokkrir séu nefndir. Rauðir kj ólar og bláir „Pólverji að najhi Jan Krenz var við stjórnvölinn í petta sinn og hann hreifmig upp úr skónum.“ Beethoven voru þarafleiðandi með leikunum var lokið svifu áheyrend- því besta sem Sinfónían hefur látið ur út í svartnættið, brosandi á ffá sér fara í vetur, og þegar tón- bleiku skýi. JÓIMAS SEI\I SINFÓNÍUHLJÓM- SVEIT ÍSLANDS Schubert: Rosamunde-forleikur Mozart: Sinfonia Concertante Beethoven: Sinfónía nr. 3 „Ero- ica" op. 55 Einleikarar: Gréta Guðna- dóttir, fiðla, og Svava Bernharðsdóttir, lágfiðla. Hljómsveitarstjóri: Jan Krenz Tvær konur, önnur í rauðum kjól en hin í bláum, voru einleikarar með Sinfóníu- hljómsveit íslands síðastliðið fimmtudagskvöld. Þetta voru þær Gréta Guðnadóttir fiðluleikari og Svava Bernharðsdóttir sem lék á lágfiðlu. Þær voru í aðalhlutverk- unum í „Sinfonia Concertante11 eftir Mozart, en það er verk fyrir fiðlu, lágfiðlu og hljómsveit. Tón- smíð þessi krefst mikillar ná- kvæmni í flutningi, því fiðlan og lágfiðlan eiga að renna saman í eitt, ef svo má að orði komast. Það er til marks um hve samleikurinn tókst vel að mér er ómögulegt að muna hvor var í rauðum kjól og hvor í bláum. f minningu minni um tón- leikana eru Gréta og Svava síams- tvíburar í skærfjólubláum samfest- ingi. Því miður er gott samspil þó ekki nóg til að þetta verk eftir Moz- art hljómi sannfærandi; það verður líka að gefa því sál með leikgleði og gáska. Einhvers konar himneskur léttleiki er nefnilega einkennandi fyrir Mozart, svo það er ekki beint við hæfi að vera dauðyflislegur þegar hann er á efhisskránni. Þetta vildi þó brenna við þá um kvöldið, þótt Svava og Gréta hafi sótt í sig veðrið eftir því sem á leið. Tónleikagestum var boðið upp á tvö önnur verk, Rosamunde-for- leikinn eftir Schubert og þriðju sin- fóníu Beethovens. Þessar tónsmíð- ar eru hljómsveitarverk án einleik- ara, en þeir sem eru fákunnandi í klassíkinni vita það kannski ekki. f slíkum verkum beinist athyglin fyrst og ffemst að hljómsveitar- stjóranum; hann ber ábyrgðina á túlkuninni, en mistök og feilnótur ýmissa hljóðfæraleikara eru þó ekki alltaf honum að kenna. Pól- verji að nafni Jan Krenz var við stjórnvölinn í þetta sinn og það er skemmst frá því að segja að hann hreif mig upp úr skónum. Per- sónulega finnst mér að lítillæti sé einkenni mikilmennis í tónlistar- flutningi; slíkur flytjandi er gagn- tekinn af viðfangsefni sínu og er nokkurs konar miðill fyrir tónlist- argyðjuna. Hann hverfur í skugg- ann fyrir tónlistinni og það var ein- mitt það sem gerðist á þessum tón- leikum. Ég hef nefhÓega sjaldan upplifað að hljómsveitarstjóri verði ósýnilegur á meðan hann stjórnar og var mjög ánægjulegt að verða vitni að því þetta kvöld. Auðvitað heyrði maður hnökra úr ýmsum hornum, en þegar tónlistarflutn- ingurinn er einlægur skipta mistök engu máli. Verkin eftir Schubert og Til stúlknanna þriggj a sem heimsóttu mig aðfaranótt laugardags ( ( f > I i Ágætu stúlkur sem heimsóttuð mig aðfaranótt laugardags. Eg skrifa ykkur til að þakka ykk- ur fyrir síðast. Það væri þó fullbratt að hefja bréfið á þeim þökkum því þær þarfhast útskýringa. Þess vegna er betur við hæfi að enda bréfið á þeim. Því í raun er það ekki sjálf samverustund okkar sem mig lang- ar að þakka fyrir eins og þetta ein- stæða tækifæri til að kynnast fram- andi menningarheimi og hugsana- ferli gerólíku mínu eigin. Slíkt er afar þroskandi. Vissulega bauð ég ykkur í heim- sókn. Þið virtust allar vera kurteisar og siðprúðar reykvískar stúlkur, einmitt stúlkur sem maður býður heim í bjórglas og nachos eftir ball á föstudagskvöldi. Þannig m.a. kynnist maður fólki og ekkert er við það að athuga. Áhugi minn fyr- ir ffekári kynnum varð þó fljótt að- eins visindalegs eðlis. Sömuleiðis sá ég strax að ykkur fannst bjórinn mun áhugaverðari en ég, enda var hann uppurinn á örskotsstund. Þegar hér var komið sögu sveif á ykkur svefnhöfgi í sófanum, enda orðið framorðið, og gekk ég því til náða einnig. Ég gerði mér enga grein fyrir því hvílíkir morgunhan- ar þið væruð því þið fóruð aftur á stjá. Tillitssemi ykkar er þó við- brugðið þvi ekki sáuð þið ástæðu til að trufla minn væra svefh þótt þið væruð farnar á fætur. Hugmyndir ykkar um mannleg samskipti vekja verulega athygli ÞOR IIMSSOIM nautnalega við vélindað á leið sinni niður í magann. Það er mjög bragðgott og laust við þennan beiska keim sem mér líkar ekki við léttari og glað- lyndari rauðvín, svo ég tali nú ekki um gosból- urnar í ákveðinni ítalskri sort. Þessir eig- inleikar þess gera að verkum að það er líf- ^ fræðilega hægt að þamba þetta vín eins og berja- v saft, sem þið af .öllum sólar- merkjum að dæma gerðuð. Þegar ég vaknaði á laugardags- morgni og þið voruð famar stóð ég ffammi fyrir tveimur viðamiklum spurningum sem hafa síðan leitað á mig í síauknum mæli og ég fæ engan botn í. Einhver kynni að draga af þessu fljótfærnis- legar ályktanir en ég er ekki maður sem kýs að trúa alltaf því versta upp á náungann. I fyrsta lagi: Hvers vegna brutuð þið allar ljósaperumar í stand- lampanum mínum? Hægt er að slökkva á þessum standlampa á þrjá vegu. Á honum er rofi sem rýf- ur rafsambandið við pemrnar og eins er hægt að taka hann úr sam- bandi. Þið völduð þriðju og áhrifa- ríkustu aðferðina því ekki hefur verið kveikt á þessum standlampa síðan. Voruð þið svo ósáttar við lýsinguna að drastískra aðgerða var þörf? Hin spurningin er þó enn ágeng- ari. Hvers vegna drápuð þið í sígar- einbúum er tamt að vaska ekki upp daglega? Aðkoman tryggði nefini- lega að ég vaskaði vandlega upp samdægurs, en það hefði ég hugs- anlega dregið hefði hún ekki valdið mér ógleði. Ég er í algerri sjálfheldu varðandi þetta og þætti vænt um að fá greitt „Ég sá strax að ykkur fannst bjórinn mun áhugaverðari en ég, enda var hann uppur- inn á örskotsstund. “ ettunum ykkar í drykkjar- og matarílátun- um á borð- inu þegar á því miðju var stór hálftómur ösku- bakki? Var þetta einhver yfirlýsing af ykkar hálfu um gæði veitinganna og þjónust- unnar eða vissuð þið sem var að úr þessari flækju. Áreiðanlega flokkast þessi hegðun undir nor- mið í því samfélagi sem þið komið frá, en hvar er það eiginlega að finna? Þið vitið hvar ég á heima og mér þætti gaman að hitta ykkur afíur til að fá forvitni minni svalað og eins til að fá hanskana mína aftur. Takk fyrir síðast, Davíð Þór Jónsson. mína því einhver ykkar, væntan- lega á leið sinni á salernið, hefur rambað á rauðvínsflösku sem ég átti inni í eldhússkáp. Auðvitað eru alltaf líkur á að eldhússkápar opnist af sjálfu sér þegar gengið er framhjá þeim en ég kýs að túlka þetta öðru- vísi. Smekkur fólks segir nefnilega mikið til um persónuleika þess. Áhuginn sem ég átti allt eins von á að þið sýnduð mér hefur líklega brotist út í forvitni um smekk minn á leirtaui. Innihald eldhús- skápanna hefur greinilega drepið allan áhuga ykkar á persónu minni hafi hann yfirhöfuð verið nokkur. Smekkur minn á rauðvíni hafði þaðan af síður nokkur áhrif á ykk- ur, sem mér virðist vera meira en hægt er að segja um sjálft rauðvín- ið. Þetta var ungverskt rauðvín. Mér skilst að nafn þess merki „nauta- blóð“. Vínið er bragðmikið og þungt, það seytlar mjúklega um munnholið, kitlar og ertir bragð- laukana og daðrar allt að því H FIMMTUDAGURINN 10. MARS 1994 PRESSAN 19B

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.