Pressan - 24.03.1994, Blaðsíða 6

Pressan - 24.03.1994, Blaðsíða 6
 ■ Portrettið S ii Wmímm I Magnús Þór Þorbergsson (bara nemi) um myndina af sjalfum sér: „Þetta er greinilega maður í klemmu, staða handanna ber vott um að hann sé innilok- aður. Hins vegar er augnaráðið nett kæruleysislegt og hann tekur klemmunni létt. Þessi innilokun markast einnig af þessu fyrirbæri sem hann er ofan í sem virðist vera einhver plasthólkur — hann er fastur í einhverjum gerviheimi. Úrið segir sína sögu, þarna má greina CCC — það hlýtur að vera P fyrir aftan, frá Sovétríkjunum. Þar má því einnig greina hlekki og þá við leifar af horfnum heimi. Þetta er maður sem hlustar og fylgist með, hann horfir beint í linsuna, það er viss einlægni í því. Þó svo að hann búi við þessa innilokun líðurttonum ekkert illa. Þessi maður hlýtur að fástvið eitthvað mjög einkennilegt. Hann gæti ekki verið embættismaður né feng- ist við stjórnmál — hann er illa rakaður og svo þetta kæruleysi. Hann gengur ör- ugglega bara um og fílósóferar. Það er erfitt að greina hugsanir hans, það er ákveðinn gljái á augunum sem virkar eins og spegill og því erfitt að gægjast innfyr- ir — maður sér bara sjálfan sig. Þarna er viss tvíræðni: Hann notar þessi skæru augu, sem ekkert virðast hafa að fela, til þess að fela. Ég gæti trúað að þetta væri maður sem lítur út fyrir að vera einlægur en innst inni er eitthvað sem enginn þekkir, jafnvel ekki hann sjálfur. Ég hugsa að það sé eins með hann og persónur Becketts, sem eru fastar í einskisnýtum heimi en eru meðvitaðar um það og láta sér fátt um finnast: Það þýðir ekkert að bíða eftir einhverjum Godot. Þrátt fyrir allt þetta gæti ég alveg trúað þessum manni til að geta af sér stóra fjölskyldu. Maður sér að hólkurinn sveigist út að neðan og þar gætu verið útgönguleiðir fyrir af- kvæmi. Þessar þykku augabrúnir lýsa vissu trausti og þrátt fyrir kæruleysið stend- ur hann við sitt. Ég væri alveg til í að kynnast honum ef það er þá hægt. Ég gæti trúað hann væri alltaf að fara nýjar leiðir. Þegar hann er kominn að einhverju vissu marki snýr hann við og fer aðra leið. Staða fingranna bendir til þess að hann sé að missa takið — eins og hann haldi í eitthvert hálmstrá — en hann er sannfærður um að hann muni bjargast." Leiðin til lífsins SUMARGESTIR MAXÍM GORKÍ NEMENDALEIKHÚSIÐ ★★★ Sí og æ þessi hvunndagsleiki! Manneskjur, hugsanir, at- burðir, allt svo ofur hvunn- | dagslegt! En hvar finnum við I hvatningu til skapandi lífs, hvar er I hugrekki kennt, hvar eru hin sterku orð sem ljá sálinni vængi?“ Þannig fórust rússneska skáldinu Maxím Gorkí orð í ritgerð sem hann reit árið 1898 og Árni Berg- mann vitnar til í ágætri grein um feril Gorkís í leikskrá Sumargesta, sem Nemendaleikhúsið sýnir nú í Lindarbæ. Þetta er síðasta verkefhi þessa glæsilega hóps og verður ekki annað sagt en að þau ljúki leikár- inu með sama glæsibrag og þau hófu það. Leikstjóri Sumargesta er Kjartan Ragnarsson og hann hefur einnig, ásamt leikhópnum, unnið nýja leikgerð verksins upp úr leik- , gerð Peters Stein og Bothos Strauss. Árni Bergmann þýðir, vel að vanda, og Stígur Steinþórsson hefur gert eina þá fallegustu leik- mynd sem ég hef nokkru sinni séð. L E I K H Ú S FRIÐRIKA BEIMÓIMÝS Leikmynd sem endurspeglar vel þá hnignun og upplausn sem ríkir í lífi persónanna, rússneskra smá- borgara fýrir níutíu árum, en er um leið blandin þeirri dulúð og rómantík sem okkur nútímasmá- borgurum þykir svo heillandi hluti af þessu tímabili. Og lýsing Egils Ingibergssonar magnar dulúðina og skerpir andstæðurnar. Það er merkilegt hvað lífsleiði og stefnuleysi rússneskra leikpersóna ffá því í kringum aldamótin höfðar sterkt til okkar í nútímanum. Er- um við kannski í sömu sporum? Synir og dætur alþýðunnar, sem höfum hlotið menntun, sem full- nægir okkur ekki og stuðlar helst að því að okkur hætti til að gleyma hvaðan við komum og hvert við erum að fara? Það er margt sem vekur til umhugsunar um stöðu okkar í dag í þessu níutíu ára gamla leikriti Gorkís og virkilega mann- bætandi að ganga inn í heim hans eina kvöldstund með þessum glæsilegu nýútskrifuðu leikurum. Hlutverkin í Sumargestum eru það mörg að ungu leikararnir átta hafa þurft að fá til liðs við sig fjóra „gamla“ leikara frá Borgarleikhús- inu. Sigurður Karlsson leikur öld- unginn í sýningunni, Dvoétotsje, ágætlega, en mér fannst hann helst til unglegur til að vera þetta lífslúna hró sem „ffændi“ telur sig vera. Magnús Jónsson leikur skáldið Sjalímof og er afskaplega róman- tískur og sjarmerandi á að líta, en ekki fannst mér honum takast að ljá þessari persónu trúverðugt líf. Sasja, gamla fóstran, er leikin af 6B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 24. MARS 1994 Margréti Helgu Jóhannsdóttur sem dregur upp afskaplega einfalda en hugljúfa mynd af þessari gömlu konu sem lifir fýrir „drenginn sinn“, þótt hann sé orðinn rígfull- orðinn rnaður. Verkffæðingurinn Súslof er ffá höfundarins hendi einna ógeðfelldastur af persónum verksins, en í túlkun Þrastar Leós Gunnarssonar verður hann svo sterkur og lifandi að maður hefur samúð með honum og göllum hans, ffekar en að áfellast hann. Að öðrum ólöstuðum fannst mér Margrét Vilhjálmsdóttir vera stjama þessarar sýningar, raddbeit- ing hennar, limaburður, svipbrigði og öll túlkun á Varvöm er þraut- unnin í hverju smáatriði ffá upp- hafi til enda og greinilegt að hér er á ferð leikkona sem mikils má vænta af í ffamtíðinni. Benedikt Erlingsson leikur Basof, mann hennar, og fellur nokkuð í skugg- ann af henni, en skilar þó sínu með mikilli prýði. Gerir þennan undir- förula og slóttuga mann, sem er svo lítill inn við beinið, fyllilega sannfærandi. Hilmir Snær Guðna- son sýndi það í Konum og stríði að hann er jafhvígur á skop og harm í leik sínum og hér staðfestir hann það. Æringinn Vlas verður í hans ,yAö öðrum ólöstuðum er Margrét Vil- hjálmsdóttir stjarna þess- arar sýning- meðförum hið dæmigerða ung- menni, sem sveiflast milli hláturs og gráts á örskotsstundu og þorir hvorki né getur markað lífi sínu stefnu, nema með aðstoð annarra. Þórhallur Gunnarsson fer að mínu mati með vanþakklátasta hlutverk- ið, Dúdakof lækni, sem er slíkt smámenni að dæmafátt er. Þór- hallur túlkar hann mjög vel og ger- ir mynd hans heilsteypta, en mér fannst leikstjórinn leggja of mikla áherslu á hið skoplega, bæði í fari hans og Olgu konu hans, sem Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikur af mikilli fæmi. Fiðrildið Júlía, eig- inkona Súslofs, er mjög vel túlkuð af Sigrúnu Ólafsdóttur, sem tekst, þrátt fyrir kæruleysi Júlíu og yfir- borðsglaðværð, að sýna okkur sárs- aukann og leiðann sem rekur hana áffam. Málpípa höfundarins í verkinu er læknirinn María Lvovna, sem leikin er af Höllu Margréti Jóhannesdóttur. Halla Margrét vinnur þetta hlutverk mjög vel, en heldur skortir þó á að sannfæringarkraftur og fortölu- máttur þessarar sterku konu kom- ist til skila, hún verður meira eins og lítil feimin stelpa. Það er sem sagt virkilega gaman í Nemendaleikhúsinu um þessar mundir og óhætt að halda því ffam að enginn verði svikinn af ferð þangað. /

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.