Pressan - 24.03.1994, Qupperneq 10
Le i lch ú s
• Gauragangur. ★★1/2 Mér er
óskiljanlegt hvers vegna verkið
var ekki bara látið gerast um 1970,
það hefði verið mun trúverðugra,
enda eiga klisjurnar sem vaða
uppi í því uppruna sinn á þeim
tíma. (FB)
Þjóðleikhúsinu fim. og lau. kl. 20.
• Blóðbrullaup, ★★★ Ef þeim
Ingvari og Steinunni Ólínu tækist
að kveikja eldinn á milli sín væri
ég til í að sjá þessa sýningu aftur
og aftur og aftur. (FB)
Þjóðleikhúsinu, Smíðaverkstæði,
fös. og sun. kl. 20
• Seiður skugganna. ★★★★
Það er ekkert falið, engin fjarlægð
frá ömurleikanum, þú gengur inn í
verkið og engist í klóm þessarar
fjölskyldu, sem að meira eða
minna leyti erfjölskylda okkar
allra.(FB)
Þjóðleikhúsinu, Litla sviðinu, lau.
kl. 20. Aukasýning.
• Allir synir mínir. ★★★ í þessu
merka verki Millers er reynt að
takast á við hugmyndir hans um
glæp, ábyrgð, fjölskyldutengsl og
fleira, og allt sem þau mál snertir
er prýðilega vel túlkað. (MR)
Þjóðleikhúsinu fös. kl. 20.
• Skilaboðaskjóðan. Nýtt íslenskt
barnaleikrit eftir Þorvald Þor-
steinsson.
Þjóðleikhúsinu sun. kl. 14.
• íslenski dansflokkurinn. Ball-
ettar eftir Auði Bjarnadóttur, Mar-
íu Gísladóttur, Lambros Lambrou
og Stephen Mills.
Þjóðleikhúsinu lau. kl. 14
• Gleðigjafarnir. ★★ Það á
margur eftir að hlæja hjartanlega
í Borgarleikhúsinu, en án þeirra
Bessa og Árna er ég hrædd um
að sýningin yrði ansi snautleg.
(FB)
Borgarleikhúsinu lau. kl. 20..
• Eva Luna. ★★★★ Kjartan
Ragnarsson leikstjóri sannar hér
svo ekki verður um villst hæfni
sína sem leikhúsmanns. Hvert
smáatriði í sýningunni er úthugs-
að og fágað, hún rennur hratt og
áreynslulaust í rúma þrjá tíma, lif-
andi og gjöful og aldrei dauður
punktur. (FB)
Borgarleikhúsinu fim. fös. og sun.
kl. 20.
• Leiklestur. Grísku harmleikirnir
Ifigenía, Agamemnon og Elektra.
Borgarleikhúsinu lau. kl. 15, 17.15
og 20.
• Óperudraugurinn. eftir Ken Hill.
Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir.
Leikfélag Akureyrar fös. {frumsýn-
ing) og lau. kl. 20.30.
• Bar-par. eftir Jim Cartwright.
Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson.
Leikarar: Sunna Borg og Þráínn
Karlsson.
Leikfélag Akureyrar, Sýntí Þorp-
inu fös. og lau. kl. 20.30.
• Vörulyftan. ★★★★ Þeir Þórar-
inn Eyfjörð og Halldór Björnsson
eiga undirstjórn Péturs Einars-
sonar sannkallaðan stjörnuleik í
þessum hlutverkum. Það er hreín
unun að sjá svona vinnu. (FB)
íslenska leikhúsið, Hinu húsinu,
fös., lau. og sun. kl. 20.
• Dónalega dúkkan. ★★ 1/2
Samstarf þeirra Jóhönnu og Mar-
íu Reyndal leikstjóra hefur boriö
góðan ávöxt og það vekur manni
djúpa virðingu að þessar ungu
konur skuli óhræddar takast á við
svo erfitt verkefni.
Skjallbandalagið, Héðinshúsinu,
fös., lau. og sun. kl. 20.30.
Gleraugnahönnun á íslandi
Með
listaverk
á nefinu
Það er ekki langt síðan þeir sem báru gleraugu voru
taldir til nörda. En á síðari tímum hefur fjölgað svo
gríðarlega í gleraugnaglámastéttinni að það gengur
orðið ekki lengur. Þessi stefnubreyting hefur meira
að segja gengið svo langt að það þykir töff að ganga
með gleraugu. 16. apríl opnar Óskar Guðmundsson
gleraugnahönnuður gleraugnasýningu á Sólon ís-
landus.
ÓSKAR GUÐMUNDSSON gieraugnasmiður með gleraugu sem hann
hefur hannað, en hann er sá eini á íslandi sem fæst við slíkt.
eir sem ganga með gleraugu
taka því sem hverju öðru
hundsbiti og pæla sjálfsagt
flestir hverjir lítt í þeirri vinnu sem
býr að baki því að búa til gleraugu.
Þó eru gleraugu órjúfanlegur þátt-
ur daglegrar tilveru og útlits við-
komandi. Sýning Óskars ætti því
að vekja með þeim nokkra forvitni.
En hvurslags sýning erþetta?
„Þetta verður sýning á þeim
gleraugnaumgjörðum sem ég hef
smíðað í gegnum tíðina. Þetta
verður eins konar tilraun, hvort
þetta gengur eða ekki. Ég legg tals-
Tvífarar
Tvífarar vikunnar eru báðir menn sem láta til sin taka í þjóðlífinu. Jó-
hann Pétur Sveinsson er ívið frjálslegri í fasi þó að hann sé í Fram-
sóknarflokknum og lætur toppinn liggja bítlalega fram á enni meðan tví-
fari hans Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
greiðir frá enninu. Annar er munurinn ekki. Báðir hafa verið í miðstjórn
síns flokks, annar er viðskiptafræðingur — hinn iíka o.s.frv., o.s.frv. Ef
ekki væri fyrir tittlingaskít eins og þann að annar er með bindi meðan
hinn gengur alltaf með slaufu, þá væri ekki hægt að þekkja þá í sundur.
vert upp úr því að sýningin verði
listræn, að þarna verði ekki nokkr-
ar umgjarðir á stangli. Ég hef verið
að fikta við þetta í nokkur ár. Ég
fór til Stuttgart 1989 og var þar við
nám í þrjú ár í sjóntækjafræði. Það
nám tekur að vísu ekki til gler-
augnahönnunar heldur hefur með
sjón og gler að gera. En þarna ytra
datt ég nánast fýrir tilviljun inn í
hönnunina, sem hefúr verið aðal-
hobbí hjá mér síðan.“
Óskar er, eftir því sem næst
verður komist, sá eini á íslandi sem
fæst við hönnun gleraugnaum-
gjarða. Hann tók þátt í keppni á
því sviði í Köln í hitteðfýrra og
lenti í fimmta sæti af tæplega 350
keppendum. Það var honum
hvatning til að halda áffam. En hef-
ur hann enga sértœka menntun að
baki í hönnun umgjarða?
„Nei, í sjálfu sér ekki og ég veit
ekki hvort það er til neinn hönn-
unarskóli fyrir akkúrat þetta. Hins
vegar hef ég ágætis grunn, sem felst
í því að vera með gleraugu milli
handanna nánast afian liðlangan
daginn, en ég vinn í gleraugna-
versluninni Linsunni. Þannig
kemst maður fljótt upp á lagið
með hvernig gleraugu sitja og
hvernig á að smíða þau.“
Nú er fólk óendanlega fjölbreyti-
lega vaxið til andlitsins. Setur það
ekki strik í reikninginn?'
„Jú, það getur verið mjög fjöl-
■ ■
Oflugur félagsskapur
Sungið, dansað og
ouzo kneyfað
Grikklandsvinafélagið heldur árshátíð sína næstkomandi föstu-
dagskvöld í Víkingasal Hótels Loftleiða og að þessu sinni ber
gleðskapinn upp á þjóðhátíðardag Grikkja, 25. mars. Þau eru all-
mörg félögin af þessum toga á íslandi en Grikklandsvinafélagið,
sem er níu ára gamalt, er þeirra langöflugast og stendur fyrir sam-
fagnaði 5-6 sinnum á ári. í félaginu eru um 150 starfandi félagar og
eru allir brenndir ódrepandi áhuga á öllu því sem grískt er.
Á árshátíðinni verður kynning á grískum mat og veigum og í
framhaldi af því munu ýmsir koma fram og skemmta: Leikarar úr
Borgarleikhúsinu kynna atriði úr verki Evrípídesar, Ífígeníu í Ális,
Auður Bjarnadóttir sýnir dans, Alda Arnardóttir les upp og grískir
söngvar verða kyrjaðir við undirleik Hákonar Leifssonar. Að sjálfsögðu verður Sigurður A. Magnússon
rithöfundur forsöngvari, en hann er líklega þekktasti Grikklandsvinur á íslandi. Hann var og formaður fé-
lagsins fyrstu þrjú árin en þá tók Kristján Árnason, bókmenntafræðingur og skáld, við, en hann verður
veislustjóri.
breytilegt — þú getur verið með
andlit þar sem aðeins eitt form
gleraugna passar, allt annað fer illa.
Svo geturðu verið með andlit og
það er alveg sama hvað þar fer á
nefið — allt passar. En það er allt
til og þú reynir að spila út frá and-
litsfallinu sem getur verið kúlulaga,
langleitt, kassalaga og svo framveg-
is.“
Þegar Óskar sérhannar á fólk tek-
ur hann myndir afþví ogframkallar
í réttri stcerð. Síðan leggur hann
glœrur yfir og teknar í gríð og erg
þar til rétta lögunin er fundin. En
eitthvað hlýtur sérhönnun gler-
augna að kosta?
„Það er mjög misjafnt og fer eftir
því hvað liggur mikið í smíðinni.
Það einfaldasta er einhvers staðar í
kringum tuttugu þúsundin. Ég hef
verið í samstarfi við skartgripa-
verslun og hef sett skart í umgjarðir
líka og þá er dæmið náttúrulega
orðið talsvert dýrara.“
Þegar komið er í gleraugnaversl-
un blasir jafnan við ógnarffamboð
af umgjörðum, en þær eru allar
komnar erlendis ffá. Óskar segir að
líkt og í hátískuklæðnaði séu
Frakkar og ítalir fremstir í hönnun
gleraugnaumgjarða. Það hefur orð-
ið mikil viðhorfsbreyting meðal al-
mennings. Gleraugu eru orðin
hluti af tísku og fólk almennt djarf-
ara þegar það velur sér gleraugu.
Hver skyldi vera eftirlætisgler-
augnahönnuður Óskars?
„Ja, Alain Mikli er í mildu uppá-
haldi hjá mér. Hann er ffanskur og
býr yfir óþrjótandi hugmyndaflugi
— ég hef alltaf verið mjög spennt-
ur fýrir hans umgjörðum. Hann er
mjög virtur og kvikmyndaffam-
leiðendur hafa til dæmis mikið leit-
að til hans í sambandi við gleraugu.
En þegar ég smíða reyni ég og
rembist við að ná ffam einhverjum
eigin einkennum.“
Nú er svo einkennilegt að Óskar
notar ekki gleraugu sjálfur og manni
finnst einkennilegt að gleraugu njóti
mikils áhuga meðal þeirra sem ekki
nota þau. Hvað kom til að Óskar
lagði þettafyrir sig?
„Ég hef stundum verið að velta
þessu fýrir mér. Það eru ótal
möguleikar þegar maður veltir fýr-
ir sér sérhæfingu. Hjá mér stóð val-
ið milli einhvers sem hefur með
handavinnu að gera. Ég hef alltaf
haft gaman af því að skapa eitthvað
í höndunum. Ég var í Myndlista-
og handíðaskólanum og hef alltaf
teiknað mildð og föndrað. Þetta er
í raun ffamhald af því og ég sé ekki
eftir að hafa farið út í hönnun gler-
augna, sem býður upp á ótal
möguleika á skapandi máta — ég
hef mjög gaman af að smíða gler-
augu. Gleraugu eru ekki lengur
einhverjir vírhlemmar sem skellt er
á andlitið, heldur má líta á hönnun
þeirra sem eins konar list.“
mœlum með:
... 5aft-taca-réttinum á Hard Rock Café. Makalaust hvað þetta
mexíkóska öreigafóður bragðast vel hér uppi á íslandi. Það verður þó ekki mælt
með því að halda upp á afmæli sitt þarna á staðnum né sagt að margendurtekinn
„þau eiga ammæli í dag...“ sé staðnum til vegsemdar.
... Aé það verði fundin einhver leið til þess að manni líði ekki alltaf
eins og glæpamanni þegar maður skrifar ávísun. Þarf kannski ekki endilega að
vera sú að bankamir neyði mann til að taka upp debetkort með því að hætta að
gefa út bankakort.
... Að kúrekatÍ5kan verði endurvakin. Þetta er tilgerðarlaus tíska og á
ekki vel við hana svo sem að vera í þessum dálki, en hún lætur dæmalaust vel við
íslenska veðráttu hversu einkennilega sem það nú kann að hljóma. Hér er ekki átt
við Roy Rogers kúrekastílinn heldur Clint og Shepard línuna.
... Að Signý Sen standi fast á sínu og láti veitingamenn ekki komast
upp með að rýmka opnunartíma sinn um páskana. Þá verða einmitt lang-
skemmtilegustu partýin, þegar fólk er ekki að æða á bari út í eitt.
... Húrrandi endurfundum þeirra sem voru í Flensborg á 8. áratugnum
á föstudagskveldi hjá Sigurjóni Didda uppi á Hrauni.
10B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 24. MARS 1994