Pressan - 05.05.1994, Side 3
©
Kæra Jelena, sem
verður að teljast eitt
vinsælasta leikrit
Þjóðleikhússins fyrr og síð-
ar, er ekki alveg komið út
af kortinu þrátt fyrir að
sýningum á því hafi lokið í
desember á síðasta ári.
Þegar er búið að kalla leik-
arana saman tO æfinga á
ný, þau; Baltasar Kormák,
Önnu Kristínu Arngríms-
dóttur, Halldóru Bjöms-
dóttur, Ingvar Sigurðsson
og Hilmar Jónsson. TU
stendur að endurfrumsýna
leikritið í sínum gömlu
heimkynnum, á litla svið-
inu, núna um miðjan maí.
Á sýningarnar á Kæru Je-
lenu, sem voru farnar að
nálgast 170, hafa komið yf-
ir 20 þúsund manns og
gekk verkið enn fýrir fullu
húsi á stóra sviðinu þegar
sýningum var hætt. Ástæð-
una fýrir þessari uppvakn-
ingu leikritins má rekja tU
uppsetningar Niflunga-
hringsins eftir Wagner,
sem sýndur verður á veg-
um Listahátíðar á stóra
sviðinu í Þjóðleikhúsinu,
því á meðan á undirbún-
ingi verksins stendur verð-
ur gert sýningarhlé á leUc-
ritum. Kom þá þessi snilld-
arhugmynd fram. Þess má
geta að þrjú ár eru síðan
leikstjórinn Þórhallur Sig-
urðsson hóf vinnu við
verkið og jafnframt er
þetta fyrsta sýningin sem
HaUdóra Björnsdóttir fór
með hlutverk í. Hún hefúr,
eins og hinir leUcararnir í
verkinu, haft nóg að gera
síðan...
Nú hafa átta busar
verið valdir inn í
Leiklistarskóla Is-
lands eftir að síaðir hafa
verið út einir 102 sem
einnig vUdu inn. Þeir
heppnu eru Linda Ásgeirs-
dóttir, Helga Vala Helga-
dóttir (Skúlasonar), Guð-
mundur Ingi Þorvalds-
son, Friðrik Friðriksson,
Edda Björg Eyjólfsdóttir,
Agnar Jón EgUsson, Sjöfin
Everts og Ólafur Darri Ól-
afsson. Það vekur nokkra
athygli að Heiðrún Anna
Bjömsdóttir, sem komst í
sextán manna hópinn, fór
ekki alla leið, en Heiðrún
er fegurðardís og hæfi-
leikamanneskja. En eins og
fram kom í máli amerískra
kvikmyndagerðarmanna
(glöggt er gests augað)
virðist hörgull á fegurðar-
drottningum meðal ís-
lenskra leUckvenna. Annar
maður sem komst í sextán
manna hópinn og var
nógu góður fyrir Hrafn
Gunnlaugsson á sínum
tíma, sjálfur hvíti víkingur-
inn Gottskálk Dagur Sig-
urðsson, hlaut ekki náð
fýrir augum inntöku-
nefndarinnar og varð að
láta sér nægja að naga
þröskuldinn. Inntöku-
nefndina skipuðu: Skóla-
stjórinn Gísli Alfreðs,
Kristín Jóhannesdóttir
f.h. kvikmyndagerðar-
manna, Þórunn Sigurðar-
dóttir f.h. leikstjóra, Krist-
björg Kjeld f.h. leikara og
Pétur Einarsson f.h. kenn-
ara...
Háskólabítles
HASKOLABIO
SÍMI 22140
HASKOLABIO
SÍMI22140
SHERYL LEE
STEPHEN DORFF
Hann varð að velja á milli besta vinar síns
stúlkunnar sem hann elskaði og
vinsælustu rokkhljómsveitar allra tíma.
I melluhverfum Hamborgar árið 1960 spiluðu 5 strákar frá Liverpool rokk 8 kvöld í
viku. 3 þeirra áttu eftir að koma af stað mesta æði sem runnið hefur á æsku
Vesturlanda, sá fjórði var rekinn en sá fimmti yfirgaf bandið fyrir myndlistina og stúlk-
una sem hann barðist um við besta vin sinn. Stúlkan hét Astrid og skapaði stílinn,
myndlistarmaðurinn hét Stu Sutcliffe og gaf þeim sálina, vinurinn hét John Lennon -
hann kastaði sprengjunni. Heimurinn hefur aldrei séð annað eins.
FIMMTUPAGURINN 5..MAÍ 1994 PRESSAN 3B