Pressan - 05.05.1994, Page 8

Pressan - 05.05.1994, Page 8
Reykjavík heit í júní Reykjavík breytist í heitasta bæ heimsins tvo daga í júní því nýlega gekk Listahátíð frá tvennum stórtónleikum. Föstu- dagskvöldið 3. júní kemur æðisleg- asta poppband Englands, Saint Eti- enne, og spilar í nýju húsnæði Kolaportsins. Hljómsveitin er tríó en hingað kemur þó tólf manna hópur: tríóið, fimm aukaspilarar og fjórir aðstoðarmenn. Hljóm- sveitirnar Bubbleflies og Bong munu hita upp hvor í sínu lagi og saman sem Bobb. Sunnudags- kvöldið 19. heldur Björk svo sína fýrstu tónleika á íslandi síðan hún varð að súperstjörnu með „De- but“. Þetta verða fýrstu tónleikar hennar á klakanum síðan Sykur- molarnir spiluðu á Tunglinu í des- P I ö t u d ó m a r dr. Gunna Magnús og Jóhann Magnús og Jóhann ★★ „Oft fara félagamir fullnærri hættu- mörkum væmninnar og skjóta yfir strikið með sykurfroðu og vörumerkinu, skræku röddunum, sem síðar urðu breskum upp- tökumönnuin ástæða til að kalla félagana „The Girls from Iceland“, þá þeir reyndu að meika það með Change.“ Rcptilicus og The Hafler Trio Designer Titne ?! „Það þarf visst hugrekki til að gera svona plötu, en ennþá meira hugrekki, já, beinlínis fífldirfsku, til að hlusta á hana.“ Ýmsir Algjört kúl ★ „Það væri réttlætanlegt að gefa þetta safn út ef það væri selt undir þúsundkalli en ekki á fullu verðL“ Ýmsir Ringulreif ★ „í flestum tilfellum er útkoman áþekk hljómfræðilegu legókubbahúsi; kubbam- ir koma úr verksmiðjunni og hver sem er getur byggt.“ Sagtmóðígur Fegurðin, blómin ogguðdómurinn ★★★★ „Þeir spila eins og þeir eigi lífið að leysa þótt kunnáttan sé ekki upp á fjöl- marga FÍH-fiska. Þeir leggja fram fimm verk, hvert öðm betra, sannkölluð svöðu- sár á eym hvers tónelsks manns.“ Egill Ólafsson og LR Tónlistin tirEvu Lunu ★★★★ „Egill reiðir fram sextán lög og söng- texta sem halda sýningunni að miklu leyti saman. Heima í stofu gerir platan líka sitt gagn við að kippa manni í latínóliðinn.“ Nýdönsk og leikarar úr Þjóðleikhúsinu Gauragangur ★★★ „í söngleikjum er víst lenska að „allir syngi“ í viðlögum og það er þessi fjölda- söngur sem einna helst dregur plötuna niður.“ Elvis Costello Brutal Youth ★★★ „Útkoman er besta plata Costellos í háa herrans tíð. Elvis er frábær lagasmið- ur og hér iðar allt af grípandi melódíum og húrrandi fínum popplögum.“ Pavement Crooked Rain Crooked Rain ★★★ „Platan er fínpússaðasta verk sveitar- innar, en Pavement hefúr fínan húmor sem skín í gegn eins og vessafullur fíla- pcnsill á meikuðu yfirborði.“ Beck Mellow Gold ★★★ „Textamir em sýrðir en sniðugir, oft glórulaust þmgl sem þó meikar sens. í tónlistinni ægir öllu saman í geggjuðum grauti.“ Soundgarden Superunknown ★★★ „Söngvarinn heldur stundum að hann sé Plant og vælir á þennan leiðinlega háa- C-hátt sem flest þungarokk er smitað af. Tónlistin er þó það góð að maður fyrir- gefúr honum vælið.“ Primal Scream Give out but dont give up ★ „Þeir grúska ömgglega saman í plötu- rekkum, finna eitthvað sem allir fíla og scgja: „Svaka grúfi, svona skulum við gera næst.“„ ember ’92. Á undan henni mun besta tækjó-poppband Englands, tríóið Underworld, íremja sinn magnaða tækjaseið. I tengslum við þessar flugeldasýningar eru Snorr- arnir Eiður og Einar og Kiddi í Hljómalind farnir til Englands að spjalla við liðið fýrir næsta Extra- blað, sem kemur út í bláendann á maí. Einnig á að gera sjónvarpsþátt um þessi þrjú alheitustu dæmi P 0 P P DR. GUIMIMI Æðislegasta poppband Englands, Saint Etienne, kemur í byrjun júní... Lundúna, sem við fáum að berja augum í júní. Maður segir bara „vá“. Afleiðingarnar af þessu eru þær að hætt hefúr verið við tónleika bandaríska pöbbabandsins Spin Doctors, sem voru inni í myndinni og áttu að verða 18. júní. Listahátíð ætlar þó að gera sitthvað meira fýr- ir rokkáhugafólk landsins og 16. eða 17. verður slegið upp balli í Höllinni þar sem ýmsir íslenskir popparar skemmta. Eldra fólkið mun svo væntanlega fá sitt líka og óstaðfestar ífegnir herma að „kerl- ingin með nefið“, Barbra Streis- and, komi og haldi tónleika 18. júní. Listahátíð þarf eflaust að ... og óstaðfestar fregnir herma að „kerlingin með nef- ið“, Barbra Streisand, komi og haldi tónleika 18. júní. punga vel út fyrir Barböru því miðaverð á hverja tónleika í nýj- ustu tónleikasyrpu hennar um Bandaríkin var $350, 25 þúsund- kall íslenskar. Blóð, sviti og þráhyggja IUICK CAVE AND THE BAD SEEDS LET LOVEIN ★★★★ Níunda plata Nicks Cave er komin út. „Húrra fyr- ir því,“ segja þeir sem telja karlinn meistara. „ö“, segja líka margir, „ég gæti alveg eins hlustað á Tom Waits ef ég vildi rauövínstónlist." Ég dreg ekki dul á að bestu spretti sína átti Nick með hinni albrjáluðu rokksveit The Birthday Party í byrjun síðasta áratugar. Sjaldan hefúr'sveit farið jafnnálægt brún almennrar geðveiki. Þessu fýlgdi sukk og svínarí, heróín og við- bjóður. Nick var á tíma andlegt hræ. Á fýrstu sólóplötum hans ríkti hráleiki vesældarinnar en með meðferðum tókst Cave að sparka sprautunni og tónlistin varð stima- mjúk. Á „The Good Son“ ffá 1990 reyndi Nick að fara í velpússaða glansskó Las Vegas-raularans Ge- nes Pitney, en þar ríkti hælsæri. „Henry’s Dream“ ffá ’92 var enn máttlausari, lögin ómarkviss og slöpp og greinilegt að það þurfti meira en skóáburð. Með nýju plötunni er Nick kom- inn í sitt besta form síðan hann spígsporaði vel stemmdur á „Ten- der Prey“. Hann er ekki kominn í „rokkskó“ heldur er hann berfætt- ur og það halda honum engin bönd. Áhætta og sköpunargleði hafa læðst á ný í tónsmíðarnar og það glittir í gömlu geðveikina. Hrárri og kraftmeiri hefur Cave ekki verið lengi og ljóst að hann hefur gefist upp á að verða Las Vegas-stjarna. Nick semur öll lög nýju plötunn- ar. Þar skríður hann á milli hrárra ballaða og villtra rokklaga. Hann hefur sjaldan verið jafn þaninn og aðffamkominn. Það lekur sviti og blóð af þessu meistaraverki. Ástin er viðfangsefhið eins og alltaf áður. Ekki nein vemmileg rósrauð klígja heldur örvita og spiilt þrá sem end- ar offar en ekki í blóðugu voða- verki. Yfir textagerðinni sveima púkar geðveikinnar, þráhyggja og dimm ógn, sem Nick er orðinn út- lærður í að túlka. Hljómsveitin Vondu fræin hefur vaðið með Nick í gegnum eld og brennistein og sjaldan sýnt önnur eins tilþrif. Þar er hver maður sjálf- stæð eining. Mick Harvey hefur hangið með Nick síðan þeir voru ungir menn í listaskóla í Mel- bourne. Hann spilar á allt eins og vanalega, glúrinn galdra- karl og tónlistarmaður af guðs náð. Blixa sargar á gítarinn eins og heimurinn sé að farast og er orðinn flinkari en djöf- ullinn að ná sem furðulegust- um hljóðum úr brakinu. Die Haut-Þjóðverjinn Thomas Wydler lemur trommur og Martyn Casey, sem áður lék með Triffids, er kominn á bassa. Enn einn Ástrali, Con- way Savage, er svo kominn á orgel. Platan var tekin upp í London en fínpússuð í Mel- bourne um síðustu jól. Tony Cohen, sem vann mikið með Birthday Party, pródúserar, sem kannski skýrir að hluta ferskleikann og kraftinn sem leikur um þessa plötu. Fyrir áhugamenn um ástralskt rokk er svo rétt að benda á að nokkrir ástralskir snill- ingar koma ffam sem gestir á plöt- unni, þ.á m. David McComb, sem áður leiddi The Triffids, og Tex Perkins, sem lítur út eins og bif- vélavirki og er einn nresti töffari Ástralíu og ffábær tónlistarmaður. Þótt Vondu ffæin séu að bauka hvert í sínu horninu sameinast þau alltaf í beinskeyttri en tilrauna- kenndri tónsúpu. Nick er þó aðal- kokkurinn sem kemur með upp- skriftirnar, leggur línurnar fýrir þessa tíu rétta veislumáltíð. Þótt árið sé ekki hálfnað er hér kominn sterkur kandídat í „bestu plötur ársins“-útskriftina. Nick er kominn heim í heiðardal rokkhel- vítisins. Engin lækning í s j ónmáli hér óháði listinn 20 vinsælustu lögin á íslandi Hljömsveit Vikur lt Ain't Hard to Tell •NAS 3 2. (2) Oblivion • •Terrorvision 4 3. (5) Black Hole Sun •••••••••••••‘Soundgarden 4 4. (9) •Eric Morillo 2 5. (1) Do You Remember the First Time •Pulp 4 6. (10) Jailbird 1 7. (—) So What •Primal Scream 3 •Waltari 1 8. (6) Slowfinger ••••............Transglobal Underground 4 9. (7 Party in the Sky.....................Inspiral Carpets 4 10. i 12) Gotta Lotta Love 11. (17) Do You Love Me •lce T 2 ■Nick Cave 2 12. i.2'0) •Fluke 2 13. ;—: The Theme •Sabres of Paradise 1 14. ;18i Up to Our Hips •Charlatans 2 15. ..191 ■Madder Rose 2 16. 3' l'm Kurious •Kurious 5 17. 16 Teenage Sensation •Credit to the Nation 2 18. 11} Hobo Humpín (Slobo Babe) < Whale 5 19. 13. Supersonic •Oasis 7 Get Undressed ■Idha 1 Vinsældalisti X-ins og PRESSUNNAR er leikinn á X-inu klukkan tólf á hádegi á hverjum fimmtudegi þegar PRESSAN er komin út. Vinsældavaliö fer fram í síma 626977 virka daga klukkan 9-17. Vertu meö í að velja tuttugu vinsælustu lög- in á islandi. Party Zone Kiddi kanína VíRs«stóalÍ5tf X-trus og FftESSUNííAft er vafúm at Wustendtsm atfcva&ðtiro framnafí3ssköla«efT!«5«öa í samvtnnu vtd íist3fetág skotónna eg uppiýsmgum pfotu- sftúða á danshúsum ðaejarrns ■jgr, vinsaefustu login. \Ltner í.sviga visa tl sætts i iista » siðustu vðcu MORPHINE CUREF0R PAIN ★★★ Frá þeim rólega háskólabæ Boston hefúr ýmislegt gott komið á síðustu árum, t.d. sveitirnar Pixies og Throwing Muses og allt það sem þeim fylgir. Nýjasta Boston-sveitin sem vakið hefúr lukku er tríóið Morphine. Þeir eru með sömu hljóðfæraskip- an og gömlu vísindamennirnir í Jonee Jonee, láta sér nægja tromm- ur, tveggja strengja bassa og sax- ófón, og svo syngur bassaleikarinn. Tónlistin hér, líkt á fyrri plötunni, er nokkuð ffumlegt rokk, vistvæn blanda af hráu vaggi og vafasöm- um kokkteildjassi. Þrátt fyrir stríp- aða uppbyggingu er tónlistin ekld einhæf heldur duttlungafúll og margbreytileg enda leikið á fjöl- mörg hljóðfæri í hljóðverinu. Morphine setur sig i ýmsar stell- ingar. Ljúfar tregaballöður, grimmilegir keyrsluhundar og sval- ir fingrasmellir byggja upp fina plötu sem þó vex ekki með tíman- um heldur storlcnar í minningunni og verður aldrei annað en ágæt; fer ekld á nógu gott flug til að geta tal- ist æðisleg. Eitt lag magnar þó upp sælutilfinningu: það er erfitt að sitja kyrr þegar lagið „Buena“ rífur sig laust og engist eins og humar í potti. Þessu snilldarlagi fylgir þó ís- köld gusa yfirvegaðra gáfumanna- laga sem ná ekki í dingulinn á Ef rokkbransinn er sjúkur er engin lækning í sjónmáli hér. Þetta er fint til að hlusta á með bók í ryk- ugum dívani eða sem baktjalda- tónlist í spekingslegum umræðu- hópi. Tónlistin líður hjá eins og feiminn draugur á morfíni og gæti, þótt ágæt sé, orðið enn betri ef lagasmíðarnar væru sterkari og hnitmiðaðri. 8B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 5. MAÍ1994

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.