Pressan - 05.05.1994, Page 12
B ö I I
• AMMA LÚ Alvaran le.ikur á föstu-
dagskvöld og auk [)ess Örn Árnason,
hinn tekjuhái. Örn Árna og diskó á
laugardagskvöldið.
• BLÚSBARINN Oaniel Cassidy fiðla
og fjöiskylda hans á fimmtudags-
kvöld, Bláeygt sakleysi föstudags- og
laugardagskvöld.
• CAFÉ BÓHEM, VENUS Bukowski-
kvöld á fimmtudagskvöld. Diskótek og
formleg opnun á nýju diskóteki á
laugardagskvöld með helling af góð-
um diskótekurum.
• CAFÉ ROMANCE lan hinn breski
heldur áfram að leika undir glösum.
• CAFÉ ROYAL, Hafnarfirði Grunaðir
um tónlist á fimmtudagskvöld.
• DANSHÚSIÐ, Glæsibæ Gleðigjaf-
arnir; André Bachmann og Ellý Vil-
hjálms, á laugardagskvöldið.
• FEITI DVERGURINN Rokk- og
gleðisveitin Þú ert leikur á föstudags-
og laugardagskvöld.
• FOSSINN, Garðabæ Þuríður Sig.
og Vanir menn alla helgina.
• FÓGETINN Halli Reynis á fimmtu-
dagskvöld. Djasstríó Reynis Sigurðs-
sonar á háaloftinu sama kvöld, en
þeir ætla að spila suðrænan sveiflu-
djass. Tríóið skipa auk Reynis þeir
Þórður Högnason og Stephan von
Osterhold. Jón Ingólfsson trúbador
spilar frá föstudegi fram á sunnudag.
• GAUKUR Á STÖNG Hunang frá Ak-
ureyri fimmtudags- og föstudags-
kvöld. Synir Raspútíns laugardags-
og sunnudagskvöld.
• HÓTEL ÍSLAND Harmónikkuhátíð
'94 á föstudagskvöld. Sumargleðin á
laugardagskvöld.
• HÓTEL SAGA Þjóðhátíðardagskrá-
in í næstsiðasta sinn og hjómsveitin
Saga Class leikur fyrir dansi á laugar-
dagskvöldið. Birgir Tryggva og Þor-
valdur Halldórsson á Mímisbarnum
föstudags- og laugardagskvöld.
• HRESSÓ Wool.TjalzGKurog
Cranium allar saman á fimmtudags-
kvöld. Ekkert annað markvert um
helgina.
• RAUDA LJÓNID Léttir sprettir
föstudags- og laugardagskvöld.
• SÓLON ÍSLANDUS Kokkteilpinn-
arnir, þeir Atli Geir Grétarsson og
Hjörtur Howser, á föstudags- og
laugardagskvöld.
• TURNHÚSIÐ Eyjólfur Kristjánsson
og Ingi Gunnar Jóhannesson á föstu-
dagskvöld. Valdimar Örn Flygenring
gosi í trúbadorstellingum á laugar-
dagskvöld. Bjarni Tryggva augljós-
lega kominn til að vera á sunnudags-
kvöld.
• TVEIR VINIR Kvennahljómsveitin
Jarþrúður á fimmtudagskvöld, en eft-
ir því sem PRESSAN kemst næst
verður hún á Nordisk Forum i Ábo í
Finnlandi i ágúst. Þær eru góðar
stelpurnar.
Elvis-kvöld á laugardagskvöld. Und-
irbúningur og skráning á föstudags-
kvöld.
• ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN Leik-
húsbandiðumhelgina.
SVEITABÖLL
• ÁSLÁKUR, Mosfellsbæ Mæddir og
væmnir rokkarar úr Mæðusöngva-
sveitinni föstudags- og laugardags-
kvöld.
• GJÁIN, Selfossi Sniglabandið
föstudagskvöld.
• HÓTEL LÆKUR, Siglufirði Bubbi og
atvinnuleysið á föstudagskvöld.
Bubbi verður á Skagaströnd á laug-
ardagskvöld og á Hvammstanga
kvöldið eftir.
• HÓTEL MÆLIFELL, Sauðárkróki
Black out sýnir sinar bestu hliðar á
föstudagskvöld.
• LANGISANDUR, Akranesi Snigla-
bandið í heilu lagi á laugardagskvöld.
• SJALLINN, Akureyri Rúnar Þór í
kjallara á fimmtudagskvöld og Bubbi
með atvinnuleysistónleika uppi. Á
föstudagskvöld verður diskótek en á
laugardagskvöldið dregurtil tíðinda.
Þá munu Geirmundur Valtýsson og
saumaklúbbamir sjá um skemmtun-
ina.
• 1929, Akureyri Black out hrellir
norðanmenn á laugardagskvöld.
Q
Z
2E
Sófa- og svefnherbergismyndir
„Ef ég efaðist alltaf um eigið gildi þá
myndi ég bara þegja og horfa út í loftið.*
Myndlistarkonan Elín
Magnúsdóttir hleypir
sinni elleftu myndlistar-
sýningu af stokkunum næstkom-
andi laugardag í Gallerí einn einn.
Hún leggur sérstaka áherslu á er-
ótískar vatnslitamyndir og þema
sýningarinnar er sófa- og svefnher-
bergismyndir.
Hvað þýðir það?
„Þetta er svona það sem gerist
effir miðnætti. Ég hef verið að mála
það sem við sjáum ekki dags dag-
lega heldur ffekar mína eigin fant-
asíu um erótíska heiminn, tilfinn-
ingar og fólk — samskipti fólks.
Textinn með myndunum vísar þó
frekar til þess sem er að gerast í líf-
inu sjálfu — meira heimspekilegar
pælingar um lífið eins og það er.“
Elín lærði í Myndlistaskóla ís-
lands, var í eitt ár í Hollandi í AKI-
akademíunni og síðan í Gerrit Ri-
etveldt-akademíunni í Amsterdam
og lauk þaðan prófi 1987. Síðan
hefur hún unnið að myndlist svo
til eingöngu. „Ég hef farið í gegn-
um ákveðinn þroskaferil í lífi mínu
og nú er ég svona að líta í eigin
barm og skoða veröldina út frá því
sjónarhorni. Ég er að reyna að lyfta
mér svolítið upp fýrir hversdags-
leikann og inn í draumaheim þar
sem við leitum dálítið á önnur
mið, t.d. inn í samskipti við hitt
kynið, og sleppum okkur lausum
og lifum okkur inn í smáhvíld frá
amstri dagsins."
Vinrturðu sérstaklega út frá þínu
eigin sjónarhorni og þá sjónarhóli
konunnar?
„Já. Ég horfi á samskipti fólks og
reyni að draga ályktanir út frá því
— eiginlega út ffá fallegum form-
um og litum.“
Elín leitar mikið affur til alda-
móta um innblástur og þá í smiðju
Toulouse-Lautrecs, sem hún kallar
lærimeistara sinn. Toulouse-
Lautrec málaði mikið á ffanska
kaffihúsamenningartímanum í
kringum síðustu aldamót. Hann
dvaldi t.d. meðal vændiskvenna og
teiknaði þær mikið.
Elín leggur áherslu á að fólk
þurfi ekkert að vita ffæðilega um
myndlist. „Ég legg ríka áherslu á að
fólk upplifi myndlist með hjartanu
— með tilfinningum sínunr og
skynbragði — og dæmi út ffá því.
lil að kveðja kjöt og bein Charles Bukowski ætlar skemmti-
staðurinn Bóhem að halda hóf í kvöld, 5. maí. Af því til-
efni hringdi PRESSAN í Einar Kárason rithöfund til að
forvitnast um umræddan mann.
Hvernig týpa var Bukowski?
Einar sagðist ekki hafa þekkt hann neitt persónulega en gat þó
ffætt okkur nokkuð um hann. „Hann var svona góður náungi.
Hann var fyllibytta og var af lágum þjóðfélagsstéttum. Hann
hafði fýrirlitningu á meðalhegðun, þ.e.a.s. fólki sem stritast við að
lifa heiðarlegu lífi en hefur ekkert uppúr því og lifir við fátækt og
fáffæði allt sitt líf. Hann skemmti sér þó vel og hugarflugið hjálp-
aði honum mikið. T.d. þegar hann var að vinna á ömurlegum
vinnustað, þá gerði hann óspart grín að sjálfúm sér og starfs-
mönnum vinnustaðarins í huganum. Hann var ekki ruglaður
eins og margir halda, því hann var mjög klár, stílisti og mikill
hæfileikamaður. Hann skrifaði 30-40 bækur og var víða vinsæll,
en sá lítið af peningum fyrr en undir það síðasta. Hann gekk í
lörfum, keyrði á druslum og bjó í hreysum.“
Að mati Einars er besta bók Bukowskis bókin Factotum. Sú
bók er hluti af trílógíu sem er byggð á ævi höfundar. Hann gaf
einnig út margar ljóðabækur og Éinar segir að mörg ljóðanna séu
frábær. PRESSAN spurði hann hvort hann hefði viljað fara með
Bukowski á fyllerí og svaraði hann því að hann héldi að hann
hefði gert það, — hvað svo sem það þýðir. Einar segist ekki geta
borið Bukowski saman við neinn íslenskan samtímahöfund,
enda sé hann af allt öðrum þjóðflokki en þeir.
I kvöld ætlar Einar að lesa upp ljóð sem hann hefur þýtt eftir
Bukowski.
Meðal annarra sem koma fram á Bóhem í kvöld eru Gerður
Kristný, Didda, Hilmar Örn Hilmarsson, Súkkat, Inri, Séra ísleif-
ur og Énglabörnin og Hjörtur J., sem á heiðurinn af kvöldinu.
Ingibjörg Halldórsdóttir og Sigrún Elíasdóttir, nemendur í Varma-
landsskóla í Borgarfiröi, í starfskynningu á PRESSUNNI.
ki
Það er allt of algengt að fólk telji sig
ekki geta tjáð sig um myndlisl
vegna þess að það hafi ekki fræði-
lega þekkingu á henni. Það skiptii
miklu máli fyrir mig að mála ffá
degi til dags og standa með því sem
ég geri í dag og láta það standa.
Þetta er svona óslitinn þróunarfer-
ill. Ef ég efaðist alltaf um eigið gildi
myndi ég bara þegja og horfa út i
loffið.“
Bergdís Sigurðardóttii
V ] [ Ð
M/ELUM MEÐ :
... Síðu hári. Reyndar ekki
mjög aktúelt með hækkandi sól en
samt — það er orðið lummó að
vera með klippt upp í hnakka. Það
minnir fúllmikið á diskótískuna og
er nett til bóbósins.
... Appóló. Sætur og góður
kokkteill sem var upp á sitt besta
þegar Sigtún var og hét. Drekkið
tvö glös í einu og þá þarf ekki meir.
Góður fyrir nostalgíutrippara.
... Sveitum landsins. í við-
tækustu merkingu. Það að vera
sveitó hefúr ekki sömu merkingu
og áður. I stað merkingarinnar
lummó er sveitó nú töff. Til sveita
er að finna eina eðlilega fólkið sem
eftir er á íslandi. Og ilmandi fjósa-
lykt er til marks um alvörumennsku
sem gefúr skít í þær tildurrófur sem
hafa komið efnahagnum á kaldan
klaka með afætustarfsemi.
... Sígarettum, vindlum
og reykjarpípum. Á þessum
reyklausa degi er rétt að blása fram-
an í alla fasistana.
... Leðuijökkum. Alltafjaín-
hipp. Klikka aldrei og eiga við í
hvaða veðri sem er. Alltaf gaman að
fara í leður og finna fyrir villidýrinu
í sjálfum sér.
12B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 5. MAÍ 1994