Pressan


Pressan - 05.05.1994, Qupperneq 15

Pressan - 05.05.1994, Qupperneq 15
 DRAUGASÖGUR OG NEYÐARLEGAR UPPÁKOMUR: 1„Það sem fer mest í taugarnar á mér þegar ég fer út að borða er þegar maðurinn á næsta afmæli. Það er algjör tremmi. Það er svo sem ekkert upp á þjónustufólkið að klaga en það að syngja. Einhvern veginn tekst því að klúðra laglínunni í: „Hann/Hún á afmæli í dag“.“ „Á Litlu-Ítalíu var spurt hvort pastað væri ekki öruggtega ferskt og búið til á staðnum, munnbita var spurt aftur, þá kom í Ijós að þetta var pakkapasta. Maður var sem sagt að borga þúsundkall fyrir eitt- hvað sem kostaði fimmtíukall. Á næsta borði sátu menn og hnakkrifust og létu ótrúlegustu fúkyrði ganga hvor yfir annan. Þegar þjónninn var beðinn að tala við þá til að lækka í þeim hávaðann var svarið: „Nei, þeir eru svo fullir að það er ekki hægt.“„ „Þetta kom ekki fyrir mig, heldur góða vini mína. Þau voru í sumarleyfi og sátu og snæddu lambasteik í Staðar- skála í Hrútafirði. Þá komu þangað inn Stefán Valgeirsson og frú — í jogginggöllum." „Ég fór einu sinni með fólki á Þrjá Frakka. Þetta átti að vera mjög fínt kvöld í tilefni brúðkaups. Við reyndum að láta Irtið fyrir okkur fara og vorum að koma okkur fyrir í einu horninu. Til að gera þetta meira kósí og lókal fór ein daman í hópnum í það að draga saman tvö borð. Borðin þar voru nokkuð massrf, þykk marmaraplata og járnfótur undir. Hún í sakleysi sínu dregur borðið af stað en gleymst hafði að skrúfa fótinn við plötuna. Platan fór niður á gólf, splundraðist um allan staðinn og... það má ímynda sér restina. En ég dáðist alttaf af þjónunum sem gátu látið eins og þetta hefði verið vatnsglas sem fór í gólfið.“ „Þetta gerðist á Holtinu. Ástæðan fyrir komu okkar þangað var að sýna erlendum bissness-manni það besta sem ísland hefur upp á að bjóða. Maturinn var frábær og þjónustan eins og best verður á kosið. Allt var pottþétt. Nema hvað við næsta borð sat hópur fólks og þar á meðal glæsileg ung stúlka. Eftir matinn færðu allir sig yfir í koníaks- stofuna nema hvað glæsilega konan komst ekki nema hálfa leið. Hún skilaði matnum á leiðinni fyrir framan altt og alla á rauða teppið. Þetta var hræðileg uppákoma, sérstaklega fyrir þjónana. Við hlógum ekkert smávegis, ekki að stúlkugreyinu heldur að þjónunum. Þið hefðuð átt að sjá svipinn á þeim, en þeir reyndu þó hvað þeir gátu að láta Ieins og ekkert hefði í skorist og þurrka upp af teppinu." „Besta slátrun á veitingastað var þegar Hafmeyjunni var slátrað af Jónasi Kristjánssyni. Staðinn sóttu að meðaltali fjórir á dag fyrir slátrunina en eftir hana mætti enginn og staðurinn fór á hausinn." mm 11 wwaari i»' .twi w^wiiiniinnwyr........ ' .... borði á Hard Rock Café á er ekki beint til þess fallið svarið var „jú“. Eftir einn Þeir verstu Rétt er að taka það fram að smekk- ur manna er misjafn og nokkrir staðir lenda beggja vegna striksins. Hér er enginn Stóridómur á ferð- inni, en þetta nefndu sælkerarnir: PASTA BASTA ®*» „Maturinn er oftast ókey hjá þeim en það er svona einhvers konar Síberíuloftslag þarna þannig að það er ólíft þarna út af kulda. Þjónustan er áhugalaus. Maður þarf að leggja mikið á sig til að ná athygli þjón- anna.“ „Reyndar með besta brauðið í bænum en þá er það upptalið. Sigl- ir undir fölsku flaggi sem pasta- staður.“ „Það er sama hvað borðað er þar; það verður allt að einum stórum hveitiklumpi í maganum á manni.“ ASÍA »*» „Ömurlegur staður. Maður stinkar eins og áma þegar maður kemur þaðan út — steiktur alveg í gegn.“ „Það sem þeir eru að gera er álíka mikill Kínamatur og Bæjarins bestu.“ „Hann er svo óekta. Maturinn þar er bara ekki góður á bragðið. Þjón- ustan er ágæt en umhverfið er óspennandi.“ GRILLIÐ Á HÓTEL SÖGU S® „Ömurleg þjónusta og maturinn ekki góður. í bæði skiptin sem ég hef farið þangað hef ég nagað mig í handarbökin yfir að hafa ekki farið á Múlakaffi.“ „Alltof íhaldssamir, bjóða ekki einu sinni upp á almennilegt kaffi. Þjón- ustan er gersamlega sterilíseruð. Hefði alla burði til að vera í hópi bestu staðanna. Best staðsetta veit- ingahús í bænum.“ A. HANSEN »9 „Takið með ykkur nesti ef svo ólík- lega vill til að þið hafið mælt ykkur mót við einhvern þar.“ „Þar fékk ég einu sinni ís, skreyttan með agúrkusneiðum.“ ÍTALÍA » S „Þar er heitt og þröngt.“ „Maður er orðinn vel bakaður sjálfur löngu áður en maturinn kemur.“ PÍSA ®® „Þeir hafa gleymt að taka til. Pizz- urnar eru einhverjar þær verstu í bænum.“ „Hefur dalað mjög.“ LITLA-ÍTALÍA ® „Staðurinn er blekking ffá upphafi til enda.“ MARHABA » „Verðlagningin er langt fyrir ofan gæði staðarins. Þjónustan er hörmulega léleg. Við pöntuðum okkur rauðvínsflösku með matn- um. Fyrst fengum við rósavín, sem er nú kannski ekki svo alvarlegt, en þá kemur þjónninn með fjóra mín- íatúra (eins og maður fær í flugvél- um). Við fáum þá útskýringu að stóru flöskurnar séu búnar og er- um ekki einu sinni beðin afsökun- ar. Þetta var eins og maður væri að leika í falinni myndavél eða ein- hverri skopmynd.“ VERDI ® „Reyndar fékk ég nú ágætis mat en staðurinn er alveg ótrúlega hallær- islegur — algjör brandari. Þegar við komum þarna inn var engin tón- list. Við vorum bara ein þarna. Svo var sett einhver tónlist á sem betur hefði verið látið ógert því græjurn- ar voru eitthvað bilaðar og ekkert nema skruðningar í hátölurunum.“ POTTURINN OG PANNAN 9 „Það er hrikalega þreyttur staður. Maturinn er eins og amma hefði gert hann og maður hefði tuðað yf- ir því — svolítið brasaður.“ MULAKAFFI ® „Slá sjálfum sér við í ógeðslegheit- um á hverjum degi.“ MACDONALD’S ® „Það verður að játast að þar hef ég ekki étið en komið þar inn og það var alveg nóg.“ BÚMANNSKLUKKAN * „Þar eru einhverjir skyrréttir sem hljóma sem ágæt hugmynd en eru ekki góðir á bragðið. Skyr með öllu virðist vera þeirra mottó.“ PIZZAHÚSIÐ » „Voðalega neikvætt. Maður kemur svona sæmilega klæddur en það er fyla af manni þegar maður fer. Annars finnst mér pizzastaðir al- mennt slæmir matsölustaðir.“ RAUÐA UÓNIÐ ® „Þar var einu sinni borin fyrir mig önd sem hefði ekki látið á sjá við vetnissprengju.“ KÍNAHOFIÐ » „Þeim stað mun ég seint fyirrgefa magapínuna.“ TOM MABORGARAR Á UEKJAR- TORGI ® „Hann er alltof brasaður." ASKUR ® „Það er reyndar alveg á mörkunum að sá staður geti talist veitingastað- ur. Salatbarir þar sem maður stendur í biðröð og nær sér í súpu og salat eru alveg hrikalega súrir.“ JARLINN S „Hamborgaramir eru eins og illa marínerað hvalkjöt og þráabragð af ffönskunum.“ LA CAFÉ ® „Ágætir í hamborgurum, en ættu ekki að gefa sig út fyrir að vera al- vöruveitingastaður." MONGOLIAN BAR-B-Q » „Eitthvað við matseldina sem skilur mann effir uppþembdan.“ SVARTA PANNAN » „Fyrir siðleysi í viðskiptum." CAFÉ ÓPERA ® „Bæði maturinn og þjónustan hef- ur sett verulega ofan.“ SKÍÐASKÁLINN » „Ef maturinn er ekki kaldur þá er allt annað að.“ BRÚ í HRÚTAFIRÐI ® „Brasaður matur, alveg hræðileg- ur.“ HÓTEL VALHÖLL ® „Þeir eru afskaplega slappir miðað við hvað margir túristar fara þarna inn og ofboðslega dýrt þarna. T.d. í fyrra þegar ég kom þangað var eini bjórinn sem hægt var að fá einhver mexíkóskur bjór sem kostaði 750 krónur flaskan. Skilyrði að eiga is- lenskan bjór á svona hóteli. Matur- inn var ekki slæmur, þetta var lambakjöt þannig að það var varla hægt að klúðra því, en það var eng- an veginn sjarmi yfir þessu. Miðað við umhverfið og túrismann sem er þarna ætti þetta að vera miklu betra.“ BÆJARINS BESTU ® „Það er alltof mikið salt í pylsun- um. Og umhverfið er ófagurt.“ FIMMTUDAGURINN 5. MAÍ 1994 PRESSAN 15B

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.