Pressan - 05.05.1994, Síða 17

Pressan - 05.05.1994, Síða 17
Til kurteiss fólks Ágæta kurteisa fólk. Mikið er nú alltaf gaman að eiga samskipti við ykkur. Þið buktið ykkur og beygið fyrir manni og takið í höndina á manni í hvert skipti sem maður hittir ykkur og maður fær það á tilfinninguna að það sé tekið mark á manni. Hin andi manns heitir Stefán. Mörg ykkar eru líka ekki eins minnug og þið haldið. Oft hafa gamlir sam- starfs- og skólafélagar flaðrað upp um mig með orðunum: „Daníel. Hvað segir þú, Daníel? Hvað hef- urðu verið að gera, Daníel?“ Einnig hef ég ykkur grunuð um I 0 PIÐ BRÉF DAVÍÐ ÞÓR JÓIXISSOIXI „Oft hafa gamlir samstarfs- og skólafélagar flaðrað upp um mig með orðun- um: „Daníel. Hvað segir þú, DaníelP Hvað hef- urðu verið að gera, DaníelP““ kurteisustu ykkar eiga það reyndar til að ganga það langt að rnanni fer að líða hálfilla í návist ykkar. Manni líður ekki bara eins og það sé tekið mark á manni, heldur eins og kóngi. Almúgafólk kann ekki að bregðast við slíku og er á nálum gagnvart hirðsiðum sem það þekk- ir ekki. Kurteisi sem þannig fer út í öfgar er ekki þægileg, hún kemur manni í bobba og viðheldur fjar- lægð á milli manns og ykkar. Þið hafið mörg hver farið á námskeið þar sem ykkur var kennt að uppáhaldsorð hvers manns væri nafii hans. Þess vegna tönnlist þið í sífellu á nafhinu manns þegar maður hittir ykkur. „Já, Davíð.“ „Hvað segirðu gott, Davíð?“ „Jæja, Davíð, alltaf að grína, Davíð?“ Þetta er ónotalegt fyrir jafh ómannglöggan mann og mig sem ekki man nöfn og get því oft á tíð- um ekki komið eins ffam við ykk- ur. Setningar eins og: „Sæll, Jói“, „Allt gott, Jói,“ Já, Jói, maður kvartar alla vega ekki, Jói,“ missa einhvern veginn marks ef viðmæl- að leggja of mildð upp úr handa- bandinu. Handaband ykkar er þétt og innilegt, stundum mun inni- legra en kynni okkar gefa ástæðu til. Því líður mér stundum eftir að hafa tekið í höndina á ykkur eins og mér hafi hálfþartinn verið nauðgað, að ég tali nú ekld um þegar þið grípið með vinstri hendi um olnbogann á manni um leið og þrýstið þannig lúkunni á manni eins langt inn í greip ykkar og hún kemst. Stundum hef ég áhyggjur af því að ég afhjúpi mig gagnvart ykkur þegar ég heilsa ykkur með handabandi. Handtakið má ekki vera of laust, það er merki um vin- gulshátt, og ekki of þétt því það er merki um yfirgang. Mér líður hálf- illa innan um ykkur því öll mín einbeiting fer í að vera eðlilegur og afslappaður, en þegar maður þarf að hafa fyrir að einbeita sér að því er maður hvorugt. Það fyndna við þetta er samt uppruni þessa mannasiðar, handa- bandsins. Til að finna hann verður að fara aftur í gráa forneskju og að i upphafi mannsins sem tegundar. ö Eitt af því sem einkennir mann- £ inn er að hann kann að beita verk- ö færum. Annað sem einkennir j hann er hugarfar hans, sem olli því að skömmu eftir að hann lærði að beita verkfærum hugkvæmdist honum að beita aðra menn verk- færum eins og kylfum, eggjagrjóti og síðar sverðum og hnífum. Þetta gerði það að verkum að þegar ein- staklingur af tegundinni „maður“ mætti öðrum sem hann hafði ekki í hyggju að vinna mein var eðlilegt að sýna viðkomandi að hann væri óvopnaður. Sá sem heldur útréttri hendi og sýnir á sér lófann er ekki með banvænt verkfæri í lúkunni. Þannig varð handabandið til. Meðal suðrænna þjóða þykir ekki bara við hæfi að heilsast með handabandi heldur faðmast menn. Uppruni þessa faðmlags er sá sami og handabandsins. Það er verið að ganga úr skugga um að hinn aðil- inn sé vopnlaus. Faðmlagið þjónar þeim tilgangi að aðilar geti þreifað hvor á öðrum og gægst aftur fýrir bak til að ganga úr skugga um að viðkomandi feli ekki morðtól þar eða innanklæða. Allt tal um að hin suðrænu faðmlög bendi til meiri tilfinningahita og ástríðufyllra eðlis er þvi hrein fásinna. Hér er ein- vörðungu um ffumstætt afbrigði af venjulegu handabandi að ræða, afbrigði sem lýsir meiri tortryggni en hið norræna, rétta og slétta handaband. Ég skrifa ykkur þetta bréf, ágæta kurteisa fólk, tO að segja ykkur að í ljósi niðurstaðna rannsókna minna á uppruna og sögu kurteis- isvenja sé ég enga ástæðu til að bukta mig og beygja, faðma, kyssa og taka í hendurnar á öllum sém ég hitti. Ég álít það engan dóna- skap heldur finnst mér það bara lýsa því eðlilega trúnaðartrausti sem siðaðir menn neyðast til að bera hver til annars í nútímaþjóð- félagi, að hugsanlega séu ekki allir á höttunum eftir lífi manns. Með allra innilegustu virðingar- og vináttukveðju beint ffá mínum dýpstu hjartarótum, Davíö Þór Jónsson. ® íþróttahornið ★★1/2 á RÚV á fimmtudagskvöld. Arnar Bjömsson tekur við af Golla með Iiorn í stað Syrpu. Amar er einhver allra besti íþróttafréttamaðurinn. Hann er með alla statistík- ina á hreinu og það er jú það eina sem skiptir máli þegar íþróttir eru annars vegar. • Föðurarfur ★★★ Miles Froin Homeé Stöð 2 á fimmtudagskvöld. Richard Gere flottur í hlut- verki uppreisnargjarns náunga. • Ragnarökkur ★★★ Inspector Morse: Tmlight of the Gods á RÚV á laugardagskvöld. Síðasta myndin í röðinni um Morse lögreglufúlltrúa. Gi- elgud, gantliseigur, á hlutverkaskrá. Ps. Dagskrá Stöðvar 2 erþegar farin að lála á sjá eftir brottför jónasar. Sjónvarpsdálkur PRESSUNNAR vill nota þetta tækifæri til að þakka Jónasi samfýlgdina og sérlega ntilda dagskrárstjórn. I gegnum störf hans glitti ávallt í glimrandi karakter og einkar manneskjulega manneskju. Jónas leitaðist alltaf við að tára hinn guilna meðalveg — helst aldrei að stuða nokkurn mann — og hafa hlutina þannig að allir gætu haft af nokkurt garnan. Að skemmta öllum er mottó Jónasar og það þarf t.d. ekki að efást um að þeir Imbakassamenn tóku hann sér til fýrirntyndar hvað þetta varðar. Hafi á þessum vettvangi ein- hvern tfma orði verið hallað á Jónas er það orð hér með dregið aftur. Jón- as! Megir þú ganga á Guðs vegum. Við elskum þig. Viílrí^ít' • Gengið að kjörborði © Hveragerði og Sélfoss á RÚV á fimmtudagskvöld. Erna Indr- iðadóttir kafar í kosningamál þarna fý'rir sunnan. Kosningarnar eru rétt að hefjast og flestir komnir með hingað. Síðan apinn fór úr úr Eden og Kópa- vogur ákvað að taka við Tívólíinu — Tívkó, þá er Hveragerði ámóta áhugavert og túnfiskur. Selfoss er álíka glataður staður (þaðan komu Þorsteinn og Davíð). Og þessu ætlar Erna Indriða, þessi leiftrandi útgeislandi fféttakona, eða hitt þó heldur, að gera skil. Tveir mínusar gera plús — þrír mínusar eru eft- ir sem áður mínus. • Jarðbundinn engill © Earth Atigel á RÚV á föstudagskvöld. Skólastúlka snýr aftur þrjátíu árum eftir dauða sinn og reynir að leysa vandamál skóla- systkina sinna. Kannast einhver við söguna? Ef það er eitthvað gott í mat- inn og þig langar í meira, þá þarftu ekki að nota rómversku aðtérðina með fjöðrina heldur bara hugsa um þessa rnynd. • Skollaleikur 1/2 Class Act á Stöð 2 á föstudagskvöld. Alveg draug- leiðinleg mynd um tvo skólastráka sem reyna að bregða sér hvor í annars hlutverk. Aðalhlutverk: Christopher „Kid“ Reid og Christophcr „Play“ Martin. Jakk. Fær hálta stjörnu fyrir antirapplag sem er í iokin. Alveg hiíl- aríus. • Dauðakossinn ★ Kiss Bej'ore Dying á Stöð 2 á laugardagskvöld. Dauf endtugerð á m>Tid ffá 1956. Einhvern veginn stendur manni hjartanlega á sama um persónurnar. l M—I 1 F A R A R v Undur veraldar eru engum takmörkunum háð. Menn eru farnir að kannast við að tvífarar séu nánast á hverju strái en að heilu dú- ettarnir geti verið eins? Jake & The Fat Man, sem vaka yfir velferð Haawaiibúa, þekkja sjónvarpsáhorfendur um heim allan. Dúettinn Gunnar I. Birgisson & Sigurður Geirdal hefur enn sem komið er ekki teygt anga sína, svo teljandi sé, út fyrir landamæri Kópavogs. Þar hafa svo snarpa menn við stjórnvölinn því oftar en ekki eru líkindi með útliti og innræti. Og svo er einmitt nú. Siggi er alveg eins og Jake: Skarpar línur í andliti og einbeittur svipur. Gunni er ívið frjáls- legri en The Fat Man og mætti safna yfirskeggi að hætti tvífara síns. Páll Magnússon! Er hér ekki eitthvað sem þú ættir að athuga? ís- lenska sjónvarpsserían Siggi & Gunni. sitja þeir félagar í bæjarstjórn og mega bæjarbúar vel við una að Bíó • Hetjan hans pabba ★ í tvennu höfðu framleiðendumir eitthvað fyrir sér: Þetta er efhi í gamanmynd og helvíti væri gott að fá Gérard í hana. Svo gleymdu þeir sér við hitt. Bíóhöllinni • Óttalaus ★★ Það er eins og það sé ekki pláss fyrir allt sem þarf að segja, sem verður m.a. til þess að allt sem gerist með fjölskyldu arkitektsins er frekar yfirborðs- kennt. Bíóborginni • Systragervi 2 & Það er eins og enginn sem við þessa mynd starfaði hafi haft nokkurn áhuga á henni og menn fyrst og fremst hugsað um að drífa þetta helvíti af. Sambíóunum • Lævís leikur ★★ Malice. Film noir er af mörgum talin helsta stolt bandarískrar kvikmyndasögu og síðari tíma kvikmynda- gerðarmenn hafa oft gert myndir með sömu formerkjum eða í það minnsta nuddað sér utan í stílinn. Lævís leikur er ein slík. Regnboganum • Listi Schindlers ★★★★ Myndin er hrikalega áhrifamikil og laus við væmni, þótt hún fjalli um atburði sem vel er hægt að gera kröfu til að maður felli eitt eða tvö tár yfir. Háskólabíói • Dreggjar dagsins ★★★★ Það má segja að Dreggjar dagsins hvetji meðaljón- inn og -gunnuna til að láta ekki rútínuna skemma fyrir sér hin fornu sannindi: Mað- ur er manns gaman. Stjömubíói • Pelíkanaskjalið ★★★ Það fer vel á því að gera vandaða spennumynd sem byggist á jafnáþreifanlegum grunni. Frá- sögnin heppnast vel og maður er alltaf að bíða eftir því hvað gerist næst. Sambíóunum Tinna Gunnarsdóttir, listhonnuður og annar eigandi Galleris Greipar. ... er að dansa tangó! flr- a»»anE5!!f1 roxette PfffffHRMil u..2 tori amos !fc ALLIR GCISLRDISKRR A 1499 K ITIU DOGD 28.4. TIL 7.5.1994 cypress hill sími 91-811666 in the name of the father FIMMTUDAGURINN 5. MAÍ 1994 PRESSAN 17B

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.