Pressan - 05.05.1994, Page 19
HEITT
pHEYTT
• BJÚTÍ-MIÐSTÖÐVAR sem eru
opnar frameftir kveldi um helgar.
Þar sem maður getur fengið klipp-
ingu, nudd, snyrtingu og smávegis
neðan í því áður en maður málar
bæinn rauðan.
• STEGGJA- OG GÆSAPARTÍ það
fylgir vorinu líkt og gróðurinn,
• ÁRSTÍÐASKIPTAKVEFIÐ OG
FRUNSURNAR að það sé á mann
lagt að þurfa að vera illa útlítandi,
hás og sveittur þegar birtan er
orðin svona líka rosaleg er hreint
og beint ósanngjarnt. Af hverju
hafa vísindamenn ekki fundið ráð
við þessum kvillum? Maður bara
spyr.
fuglasöngurinn, endurfæðingin,
ilmurinn. Þetta er einhvern veginn
• SJÓNVARPSGLÁP það hefði
orðið hluti
af náttúr-
• HEITA-
HjwEBfflL -
PARTÍþaö
hefur
:z„a HSpL
aö gcra. BK
Svo hafa
þessi böð
líka þann góða eiginleika að maður
verið nær að
halda í gamla
góða siði og hafa
sjónvarpslausan
júlí. Það myndi
örugglega bjarga
Stöð 2 úrfjár-
hagskröggunum.
• PÓLITÍK hvaða
tík er nú það?
• EVRÓVISJÓN-
SÖNGVAKEPPNIN alltaf sömu
vaknar ívið mýkri en ella daginn
eftir, ekki eins þunnur og umfram
allt glaðari.
• BLEIKIR FÍLAR þeir passa ein-
hvern veginn svo vel inn í allt þetta
heita partistand. Þegar maður er
búinn að djamma yfir sig.
væntingarnar og alltaf sömu von-
brigðin. Svo bara kemst maður
alltaf að sömu niðurstöðunni; af
'hverju var maður að horfa á
helv... keppnina? Þó verður að
taka fram að söng- og dansatriði
íranna í hléinu var framúrskar-
andi. Með því besta sem sést hef-
ur.
Hverjir voru hvar?
Á skemmtistaðnum Berlín þetta sama laugardagskvöld
voru Nanna Guðbergsdóttir og Oliver, Ari Oroblu, Les og
Linda Pé, Linda Dögg Pétursdóttir og allar hinar flugfreyj-
urnar, Hallur Helga og Davíð Þór, Filippía brjóstgóða,
Brynja Nordquist, Rut Róbertsdóttir, Sigga Þrastar hár-
greiðslumeistari og Þorlákur
nokkur Einarsson.
Við opnun andlega húss-
ins í Dugguvogi, Pýramídans,
á laugardaginn voru m.a Guð-
laugur og .Guðrún Bergmann,
séra Cecil Haraldsson Frí-
kirkjuprestur sem blessaði
húsið, Ingibjörg Kristinsdóttir
skrifstofustúlka, Anna Jónsdóttir á Bylgjunni, Þórunn
Finnsdóttir hjúkrunarfræðingur og Guðmundur Har-
aldsson leikari.
Ekki verður hjá því komist að stikla á því í þessum merka dálki hvað gerðist á
Kaffibar Frikka og Dýrsins á laugardagskvöld. Múgæsingurinn var þvílikur að flestum
utanaðkomandi hefur vafalaust dottið í hug að fleira en vín væri haft um hönd. En til
að æra ekki óstöðugan er best að taka strax fram að svo var ekki. Þarna var einfald-
lega dansþyrst fólk á ferð sem hristir sig ekki um hverja helgi eins og unglingarnir.
Alltént sannaðist þarna að þegar ein beljan mígur verður öllum hinum mál. Úr læð-
ingi losnaði ein af frumorkum mannsins; dansorkan, með þeim hætti að ótrúlegasta
fólk endaði með limina lausa uppi á borðum. Stemmningin var vægast sagt góð. Með
því besta sem gerist. Barþjónarnir, þeir Jói og Frikki, minntu helst á Tom Cruise í
kvikmyndinni Kokkteil og Andrés Magnússon dyravörður sýndi alveg nýja takta í nýju
leðurbuxunum og um höndina hafði hann stálgaddana sem hann fékk í afmælisgjöf
kvöldið áður. Það má kannski benda á að gleraugun hefðu mátt vera í stíl og eilítið
rokklegri.
Meðal þátttakenda í gleðinni voru bræðurnir Þor-
steinn Gauti píanóleikari og Jóhann Sigurðarsynir leikari
ásamt eiginkonum sínum systrunum Jóhönnu tónlistar-
manni og Guðrúnu lögfræðingi Arnardætrum. Þarna voru
einnig Mörður Árnason íslenskufræðingur og Linda Vil-
hjálmsdóttir skáld, Baitasar Kormákur leikari og Heiðrún
Anna sem var ein af þeim sem því miður komust ekki inn í
Leiklistarskólann, Egill Helgason blaðamaður, Kata og
Beysi par, Sigrún og Gilli einnig par, Steinunn Ólina leik-
kona, Óskar Jónasson kvikmyndagerðarmaður og Húbert Nói myndlistarmaður,
Sigga Vala og Arndís, Kjartan Guðjóns og Harpa Karls og Frakkarnir, Sigga Guð-
laugs í Sjónvarpinu, Davíð Þór Jónsson grínisti, Hildur Hafstein og allar vinkonur
hennar, Jóhanna og Inga skemmtanasamlokur, Sigurður Hróarsson Borgarleikhús-
stjóri og fleiri og fleiri.
Fyrir utan og komust ekki inn voru m.a. Fjalar Sigurðsson Dagsljóssmaður og
fleira starfsfólk Sjónvarpsins.
Þeir sem m.a. voru á barnum kvöldið áður og misstu þvi af laugardagsfjörinu
voru Ragnhildur Vigfúsdóttir og Hafliði Helgason, vinkonurnar Telma L. Tómasson
og Herdís Birna Arnardóttir, starfsmenn Viðskiptablaðsins og margir margir fleiri.
Þegar tiðindamaður PRESSUNNAR var á heimleið
af skemmtun snemma á sunnudagsmorgun sá hann
hvar við Víðistaðavatn voru komnir nokkrir morgun-
hressir veiðimenn, þeirra á meðal veiðigarpurinn Engil-
bert Jensen, klassíker í íslenskri dægurlagatónlist, og
leikararnir Hilmar Jónsson og Erlingur Jóhannsson.
Aðalleikararnir í Hárinu
Hárið í Operunni
Allt bendir til þess að sumarið verði leiklist-
arvænt. Eins og PRESSAN greindi fi'á fyrir
skömmu verður söngleikurinn Hárið
frumsýndur í júlí. Leikstjóri er Baltasar Kormák-
ur og sýningarstaður Islenska óperan. Eftir um-
fangsmikla prufú hafa svo leikendur, söngvarar og
dansarar flestir verið valdir. Aðalhlutverk eru í
höndum leikaranna Magnúsar Jónssonar, Hin-
riks Ólafssonar, Jóhönnu Jónas, sambýliskonu
Magnúsar Margrétar Vilhjálmsdóttur, sem er í
útskriftarárgangi Leiklistarskóla íslands sem og
Hilmir Snær Guðnason, sem einnig fer með stórt
hlutverk. Burðarrullur í söngleiknum eru sjö
þannig að enn hefur ekki verið gengið frá tveimur
hlutverkanna, sem eru karl- og kvenhlutverk. Sól-
ey Elíasdóttir hefur verið nefhd sem líkleg til að
fara með kvenhlutverkið án þess þó að ffá því hafi
verið gengið, en hvaða karlleikari fyllir þennan
hóp er enn í lausu lofti. Hljómsveitarstjóri er hinn
reyndi Jón Ólafsson og hann hefur fengið til liðs
við sig kempurnar Harald Þorsteinsson og Birgi
Baldursson, sem skipa rytmasveitina, og gítar-
undrið Guðmund Pétursson.
FIMMTUDAGURINN 5. MAI 1994 PRESSAN 19B