Pressan - 04.08.1994, Síða 2
fœr
Jakob Magnús-
son fyrir að sýna
að óbreyttir al-
þýðumenn getav
enn gert sér von-
ir um frama í el-
ítu utanríkis-
þjónustunnar.
Sýnir þetta ekki að
umhverfismálin
borga sig ekki, Öss-
ur?
„Sýnist ykkur ég ekki nógu
vel haldinn á þessum launum?“
Össur Skarphéðinsson var
tekjulægstur ráðherranna
á síðasta ári með 333
þúsund krónur í laun á
mánuði.
FYRST & FREMST
Veisluhöld fyrir tollara
Sá siður hefur lengi haldist en farið leynt
að þegar „fossar" Eimskips leggjast að
bryggju er jafnan slegið upp mikilli veislu
þar sem ekkert er til sparað í veisluföngum.
Það væri svo sem ekki í frásögur færandi ef
heiðursgestirnir væru ekki þeir hinir sömu og
eiga að gæta þess að engum ólöglegum varn-
ingi sé smyglað í land, tollverðirnir. Ástæðan
fyrir þessum mikla veisluglaumi er sú að þegar
tollarar þurftu að afgreiða skip í ytri höfninni
þótti sjálfsagt að gefa þeim á garðann. Sá siður
hefur haldist og kosturinn er víst ekki til að
kvarta yfir hin seinni ár.
Fyrir skömmu sást fríður flokkur tollara í
sparieinkennisbúningunum sínum stíga út úr
rútu á kajanum við Sundahöfn og klifu þeir síð-
an mannganginn um borð í einn fossanna.
Höfðu sjónarvottar á orði að engu væri líkara
en nýstúdentar með hvíta kolla væru þar á ferð,
slíkur var hátíðarsvipurinn á mannskapnum.
Málsverðurinn tók drjúga stund og þurftu far-
þegar, sem voru með í för, bæði innlendir og
útlendir að sýna þolinmæði þar til allir höfðu
gert sér að góðu það sem til boða stóð. Ætt-
ingjar og vinir farþeganna hímdu á meðan á
bryggjunni. Útlendingunum þóttu skrítnar skýr-
ingarnar sem þeir fengu á töfinni á tollaf-
greiðslunni og einhverjir þeirra töluðu um mút-
ur í því sambandi.
Hitt er svo annað mál hvort þessi hlunnindi
tollara séu skattskyld.
Slökkviliðið á staðinn
Það vakti athygli um síðustu
helgi að varaformaður Alþýðu-
flokksins Guðmundur Árni Stef-
ánsson félagsmálaráðherra lagði
leið sína norður í land til að hitta
þá Sigbjöm Gunnarsson og
Gunnlaug Stefánsson þingmenn
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra og á Austurlandi, en báðir
hafa þeir staðið nær Jóhönnu
Sigurðar-dóttur en aðrir
þingmenn flokks-ins. Stuðnings-
menn Jóhönnu tóku ferðalagi
varaformannsins þannig að hann
ætti að slökkva þá elda sem Jó-
hanna hefði kveikt um landið...
Flokkur utan um
Jóhönnu?
Stuðningsmenn Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráðherra
hyggjast halda stóran fund innan
skamms þar sem reynt verður að
fylkja sem flestum undir hennar
merki. Meðal þeirra er nú talið úti-
lokað að boðið verði fram á lands-
vísu og því talið mikilvægt að sinna
þeim tveimur kjördæmum sem
líklega verður boðið fram í,
Reykjavík og Reykjanesi, af sem
mestri alúð. Einnig er talið að þessi
fýrirhugaði fundur geti tengst
þeirri ákvörðun að stofha sérstakan
flokk utan um Jóhönnu...
Nafnbreyting
Framhaldsaðalfundur í Jafnaðar-
mannafélagi íslands verður hald-
inn innan skamms en eins og
kunnugt er samþykkti landsfundur
Alþýðuflokksins ekki nafnið. Á
þessum framhaldsaðalfundi verður
því væntanlega reynt að breyta
nafninu, ef samstaða næst um
það...
Er kominn tími á Jón?
Meðal Framsólaiarmanna á
Suðurlandi hefur vaknað umræða
um það hvort að Jón Helgason
fyrrverandi ráðherra frá Seglbúð-
um hyggist halda áfram þing-
mennsku en hann verður 63 ára í
haust. Ef ekki þá er gert ráð fýrir að
Guðni Ágústsson fari í 1. sæti og
ísólfúr Gylfi Pálmason, sveitastjóri
á Hvolsvelli inn í 2. sætið sem
hingað til hefur gefið þingsæti.
Ekki er gert ráð fyrir neinum átök-
um um þetta enda framsólcnar-
mönum yfirleitt umhugað um að
mannabreytingar fari fram í kyrr-
þey...
Ljóðskáld á barnum
Á föstudaginn gefst kráargestum
I miðbænum kostur á óvenjuleg-
um bragðbæti með veitingunum.
Þá munu nokkur ljóðskáld
þramma á milli veitingastaða og
lesa stundarkorn úr verkum sínum
fyrir gesti. Þetta eru þau Linda Vil-
Jijálmsdóttir, Sjón, Elísabet Jök-
ulsdóttir og Bragi Ólafsson og auk
þess Breti nokkur, Martin Newell.
Ferðin hefst um tíuleytið og lýkur
undir miðnættið, en viðkomustað-
ir verða Kaffibarinn, Café Au Lait,
Sólon íslandus og Ari í Ögri. Ne-
well þessi er gamall hippi sem
skáldin kynntust á ferðum sínum
um England. Skáldskapur hans ku
vera forvitnilegur og bera þess
merki að rokkið er ekki langt und-
an, en Newell var á sínum tíma í
ekld ómerkari hljómsveitum en
Cleaners ffom Venus og öðrum
sem lesendur PRESSUNNAR
kannast áreiðanlega við...
Kunna sitt fag
Bréfaskipti hafa verið í gangi á
milli Reiknistofú bankanna og rík-
isskattanefndar vegna þess siðs
bankanna að senda ekki kvittanir
fýrir innheimtu þjónustugjalda
sinna. Eftir því sem komist verður
næst þá hefúr Reiknistofan meðal
annars fært þau rök fýrir því að
kvittanir eru ekki sendar, að um sé
að ræða vammlausar stofnan-
irfbankar og sparisjóðir) sem séu
hafnar yfir grun um misfærslur.
Hefur Reiknistofan meðal annars
bent á hinn gríðarlega fjölda lög-
giltra endurskoðanda sem situr í
stjórn stofnunarinnar, máli sínu til
stuðnings...
Þjóðviljinn yfirum
Með úrskurði héraðsdóms
Reykjavíkur 12. júlí síðastliðinn var
bú Prentsmiðju Þjóðviljans hf.,
með skráð aðsetur á Laugavegi 3,
tekið til gjaldþrotaskipta. Á síðasta
vetri var lokið gjaldþrotaskiptum í
Bjarka hf. sem var útgáfufélag
Þjóðviljans þannig að ljóst er að
Þjóðviljinn hefur nú endanlega
verið borinn til grafar af skiptaráð-
anda...
Flótti frá Hæstarétti?
Sem kunnugt er hafa miklar til-
færingar verið á dómurum Hæsta-
réttar og reyndar svo mjög að
mörgum finnst nóg um enda brýnt
að við embættið sé mikið „innra
samræmi" eins og lögmenn kafla
það. Á síðustu sex árum hafa sex
dómarar hætt og eru nú allar horf-
ur á því að á næsta ári hverfi einn
helsti lagaspekingur landsins úr
réttinum. Þór Vilhjálmsson verð-
ur 65 ára 10. júní á næsta ári og
gæti þá lögum samkvæmt hætt
eins og dómarar hafa reyndar unn-
vörpum nýtt sér enda tryggja eftir-
launasamningar þeim áffam full
laun. Frá því urn síðustu áramót
hefur hann verið í ársleyfi til að
vinna við Evrópudómstólinn en
ekki er vitað hvort hann kemur aft-
ur til starfa um næstu áramót...
í sátt og samlyndi
Fjölskylduuppgjörið hjá Heklu
hf. um daginn, þegar Ingimundi
Sigfússyni var komið út úr fýrir-
tækinu af yngri systkinum sínum,
er svolítið skondið í ljósi viðtals við
hann sem birtist í Frjálsri verslun
fýrir fimm árum. Systkinin létu
birta stóra mynd af sér með mál-
verk af föður sínum í bakgrunni
sem átti vísast að sýna án orða hina
miklu fjölskyldueiningu. 1 viðtal-
inu lætur Ingimundur hafa eftir
sér: „Ég tel að fjölskylduformið hafi
ótvíræða kosti fýrir fýrirtæki þegar
samhentir fjölskyldumeðlimir sjá
um reksturinn. Fjölskyldutengslin í
þessu fýrirtæki hafa án efa orðið
því til framdráttar. Við systkinin
viljum að fýrirtækið haldi áffam að
dafna og viljum alls ekki sjá það
leysast upp. Það eru allt of mörg
dæmi til um það að fjölskyldur og
fýrirtæki hafi splundrast vegna
ósamheldni og deilna.“
Svo mörg voru þau orð...
I vikunni
... var Jakob Frímann Magnússon gerður að ígildi sendiherra við sendiráð íslands
Lundúnum. Er ekki hægt að gera Sigurð Bjólu að utanríkisráðherra?
... bauðst stórfyrirtækið Electrolux til að reisa handboltahöllina sem við treystum okkur
ekki til að byggja. Reiknað er með að byggingin verði máluð í gulu og bláu og Svíar verði
heimsmeistarar.
... kom fram að íslenskar konur eru valdaminni og lægra launaðar en konur annars stað-
ar á Norðurlöndum. Á öðrum stað kom fram að þær fæða mun fleiri börn en aðrar nor-
rænar konur. Enginn virtist tengja þetta tvennt saman.
... var haldin verslunarmannahelgi án þess að neinum væri nauðgað. Stígamótakonur
hafa ekki kvartað yfir verkefnaleysi.
... sagði Markús Örn Antonsson (man einhver eftir lionum?) að hann vildi verða þing-
maður. Skoðanakannanir gefa til kynna að hann geti náð kjöri.
2 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 4. ÁGÚST 1994