Pressan


Pressan - 04.08.1994, Qupperneq 16

Pressan - 04.08.1994, Qupperneq 16
Ef hún væri skáld PRESSULSÐIÐ Eldheit lesbía í fyrra Mérskilstað hiðgóða tnannorð mitthafi beðið mikinn hnekki. Ég var hamingjusöm piparmey þangað til ég hitti minn heittelskaða í Blómavali ífyrra. Kona sem var eldheit lesbía ífyrra er hamingjusamlega gift karlmanni í dag. Skyldi þetta vera enn einn afrakstur kvennabaráttu síðustu áratuga? Ég er staðráðin í því að taka það rólega. En afhverjufer allt úr böndunum hjá okkur? Skyldi ég vera laumu-sjálfstœðismaður? Margir hafa ekki lengur neitt til að lifafyrir. En auðvitað hef égskoðun á því eins og öllu öðru. Ljóðlínurnar eru sjálfstæðar setningar úr greinum Ragnhildar Vigfúsdóttur í Vikublaðinu síðustu mánuði. Villti tryllti Villi Síðustu vikuna hefur þjóðin verið að velta fyrir sér einni spurningu og aðeins einni: vill Vilhjálmur Egilsson að við göngunr í Evrópusambandið eða vill hann það ekki? Ef Villi vill að við göngum í ESB, hvenær vill hann að við göngum í ESB? Ef Villi vill ekki að við göngum í ESB, hve- nær vill hann að við gerum það ekki? Eða kannski réttara sagt: Hvenær vill Villi að við göngum í ESB og hvenær vill Villi það ekki? Allt þetta og nriklu fleira hrings- nýst nú í hausnum á þjóðinni eftir yfírlýsingar Villa út og suður síð- ustu daga. Þegar Villi talar við Moggann vill hann nefhilega að „ Villi er eini al- vörunördinn sem hefur verið kosinn á þing. “ við sækjum um á morgun, þegar hann talar við Stöð 2 vill hann að við sækjum um í gær, en þegar hann talar við þingflokkinn segir Davíð að Villi sé ekki viss um að við eigum yfirleitt að sækja um og þá alls ekki fyrr en hinn daginn. Er það fúrða þótt fólk sé ringlað? En ég kann skýringu á þessu. Villi er eini þingmaður íslendinga sem getur haft hvaða skoðanir sem hann vill hvenær sem er. Villi er nefnilega eini alvörunördinn sem hefur verið kosinn á þing. Og eins og allir alvörunördar nýtur hann ákveðinnar ffiðhelgi sem aðrir geta bara látið sig dreyma urn. Þegar Villi hefur skrýtna skoðun á ein- hverju er brosað í kampinn og hugsað „Hann Villi er nú bara svona“, á meðan aðrir yrðu teknir af lífi án dóms og laga fyrir að hugsa eitthvað svipað í hljóði. Þannig getur Villi verið á móti einhverjum skatti á morgnana þegar hann er ffam- kvæmdastjóri Verslunar- ráðsins, en greitt svo at- kvæði með skattinum seinnipartinn þegar hann er þingmaður. Þannig getur Villi líka verið hlynntur ESB-aðild um helgar þegar hann er bara Villi og verið svo alls ekki viss á þing- flokksfundi á mánudegi þegar hann er affur orðinn þingmaður. Það vantar fleiri menn eins og Villa á þing. Menn sem taka að sér að hafa skoðanir sem aðrir þora ekki að hafa. Menn sem gera lífið á íslandi bærilegt. Menn sem sjá okkur fyrir skemmtiefni í sumarrign- ingunni og vetrarhörkun- urn. Alvörunörda. ÁS Áhrifamenn framtíðarinnar Forseti íslands Ekki er ósennilegt að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði þarnæsti forseti íslands. f Pressunni fyrr á árinu spáðu flestir álitsgjafanna að Guðrún Agnarsdóttir tæki við af Vigdísi Finnbogadóttur. Ef Ingibjörgu tekst vel upp sem borgarstjóri og verður í forystu fyrir því að sameina vinstri menn og leiða þá inn í nýja tíma verður umb- unin að taka við ráðsmennsku á Bessastöðum af Guðrúnu. Þar mun Ingibjörgu svo dveljast ffam á eftirlaunaaldurinn. Forsætisráðherra Þótt aðstoðarmenn forsætisráðherra hafi sjaldnast átt vísan pólitískan ffama síð- ar á ævinni er Eyjólfur Sveinsson, aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, undantekn- ing á reglunni. Honum var spáð forsætisráðherratign á unglingsárunum og sú spá stendur. Hann var formaður nemendafélaga allra þeirra skóla sem hann sótti og formaður stúdentaráðs HÍ. Eyjólfúr hoppaði einfaldlega yfir stuttbuxnastigið með því að taka ekki þátt í barnalegum krytum Heimdellinganna og þess vegna taka for- ingjarnir mark á honum. Svo hefur hann alla tíð talað eins og forsætisráðherra. Utanríkisráðherra Einhvern tíma á næstu öld komast hvítingjar á Vesturlöndum, einnig hér á landi, ekki lengur upp með að níðast á öðrum kynþáttum af þeirri einföldu ástæðu að hvítir verða í minnihluta. Það er því eðlilegt að íslendingar af öðrum kynþáttum en þeim hvíta hasli sér völl í forystusveit stjórnmálanna. Amal Rún Qase mun njóta dirfsku sinnar og áræðni og setjast einhvem tíma í ríkisstjóm. Hún nyti sín vel í utanríkisráðuneytinu og gæti víldcað sjóndeildarhring íslendinga. Formaður íslandsflokksins Einhvem tímann eftir aldamótin munu vinstri flokkarnir sameinast undir merkjum landsins sjálfs. Effir sem áður verða forystumenn gömlu flokkanna áhrifamestir innan Islandsflokksins en formaðurinn verður sameiningartákn og lít- ið meira en það. Konurnar verða æ sigursælli og því ekki ósennilegt að veðjað verði áffam á þær. Einn kandidat í formannssætið er Þórunn Sveinbjamardóttir starfs- maður Kvennalistans. Hún hefur metnaðinn og munninn fyrir neðan nefið. Og gömlu foringjarnir myndu sætta sig við hana vegna þess að þeir teldu sig geta fjar- stýrt henni. Formaður Dreifbýlisflokksins Til hliðar við stóm flokkana tvo verður lítill en einarður óánægjuflokkur lands- byggðarinnar. Ef Egill Jónsson ffá Seljavöllum verðu langlífur gæti hann leitt flokkinn fyrstu árin og verið guðfaðir hans. Síðan mætti hugsa sér að afkomendur hans eða Eggerts Haukdals héldu merkinu á loffi og tækju við. Þarna munu sam- einast vælukjóar, styrkjakóngar, fjallkóngar, einangmnarsinnar, þjóðræknir menn og þjóðrembnir, skrítnir og skemmtilegir. Og þeir munu sópa til sín töluverðu fylgi. Ritstjóri Upplýsingar Þegar sameinaðir vinstri menn hafa eignast öflugt dagblað til mótvægis við Moggann munu eilífar málamiðlanir setja mark sitt á ráðningar í lykilstöður. Skúli Helgason mun njóta þess. Þótt hann hafi kannski ekki allt sem til þarf, jafnvel ekki hæfileikana, þá hefur hann röddina, framkomuna, samskiptahæfileikana og ýmis- legt fleira sem gerir það að verkum að fólki líkar við hann. R-listinn sá ástæðu til að senda eftir honum til útlanda til að ritstýra fyrir sig kosningablaði sem gefur vís- bendingu um það sem koma skal. Stefán Jón Hafstein, fyrsti ritstjóri Upplýsingar, sér um að ala hann upp í stöðuna. Ritstjóri Morgunblaðsins Morgunblaðið gerir ekkert nema með gát. Og þar á bæ er sífellt verið að prófa menn, hvað þeir geta og hvort þeir komi til álita sem ffamtíðarritstjórar. Nú virðast þeir hafa fundið mann sem gæti tekið við blaðinu eftir fimmtán tií tuttugu ár, Steingrím Sigurgeirsson. Hann aðstoðar gömlu mennina við leiðaraskrifin og Reykjavíkurbréfin, er sendur til að taka viðtöl við valdamikla menn út í heimi og svo er hann menningarlegur. í honum holdgervast því Styrmir og Matthías báðir. Hann er skarpur stjómmálaskýrandi eins og sá fyimefúdi og hámenningarlegur eins og sá síðarnefndi sem sést best á lærðum greinum hans um vin. Borgarstjóri Reykjavíkur Steinunn V. Óskarsdóttir borgarfúlltrúi og Kvennalistakona er langt í ffá sjálf- kjörin sem borgarstjóri ffamtíðarinnar og raunar er líklegra að hún verði aldrei efúi í leiðtoga. En málamiðlanirnar bjarga henni. Þegar vinstri menn hafa sameinast verða þeir að gæta þess fyrstu árin að sterku leiðtogamir haldi sig ffekar til hlés og þá verður taktík hinnar óspjölluðu jómffúr óspart notuð. Steinunn fellur vel að henni, enginn trúir neinu illu upp á hana. PRESSAN Verstu mistökin Aftur skoðum við PRESSUNA fyrir fimm ámm, ffá þeim tíma þegar hún vissi hvorki hvað hún var né hvað hún ætl- aði að verða. í þetta sinn rekumst við á hópinn sem kallað- ist „Pressupennar“ og stóð undir vitsmunalegri umræðu í blaðinu. Þar voru ffemstir í flokki merkir ffæðimenn á borð við Guðmund Árna Stefánsson og Ögmund Jónasson. Annað eins tuð og bragð- laust sull hefur varla verið borið á borð fýrir lesendur og greinilegt að blaðið hefúr ekki borið neina virðingu fýrir lesendum sínum. Loforð: Aldrei, aldrei aftur. 16 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 4. ÁGÚST 1994

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.