Pressan - 04.08.1994, Page 20
B ö I I
Lífið eftir vinn
1
T»-
óháði listinn
20 vinsælustu lögin á ístandi
Sæti 1. (-) Lag Hljomsveit Vikur No Good (Start the Dance) Prodigy 1
Z. \Z)
ó. (1)
b. (b)
D. \73) 7. (-)
ö. \ /)
y. \xz) v»dl DUllg ••••••••’
n. (ib)
\ ) 13. (-) 14. (3)
1 Can't Imagine the World Without Me Echobelly 5
1D. \ )
1/. \±±)
ItJ. (1/) Skját •••••*•*••**
ZU. \ö)
Vinsældalisti X-ins og
PRESSUNNAR er leikinn á
X- inu. FiVl 97,7, klukkan
22-24 á hverju fimmtu-
dagskvöldi og endurtek-
inn klukkan 16 á sunnu-
dögum. Vinsældavaliö fer
fram í sinia 626977 virka
daga klukkan 9-17. Vertu
meö í aö velja tuttugu vin-
sælustu lögin á íslandi.
Funky five
1. Some Shit (Scratch Opera) Buckshot Leíunk
2 Mamn Said ...............Cnrteen Anderson
3. Blues Music .......G. Love & Specinl Snuce
4. Think (ABOUT IT) ..Pntra Fent Lyn Collins
5. Tears .....................Dn King & I
Blöörulisti Simma
1. No Good (Stnrt the Dance)......Prodigy
2. Snovvprincess .....Undurground Family
3. Sometimes Alvvnys .Jesus & Mary Chain
4. Africn's Inside Me ....Arrested Development
5. Happy Dny .....................Blink
Vinsœldalisti X-ins og PRESSUNNAR er valinn af hlustendum X-ins.
atkvæðum framhaldsskólanemenda i samvinnu við listafelög skolanna
og uppiýsingum plötusnuöa a danshúsum bæjarins uni vinsælustu log-
in. Númer i sviga vísa tii sætis á tista i siöustu viku
Ferðasýning
Rósönnu
Laugardaginn 6. ágúst ætlar
Rósanna Ingólfsdóttir að
opna leirlistasýningu í listmuna-
húsi Ófeigs við Skólavörðustíg 5.
Þetta er fyrsta einkasýning hennar
á Islandi en hún hefúr búið í Nor-
egi og Svíþjóð ffá árinu 1973.
R-ójanna stundaði listnám í
Noregi en flutti svo til Svíþjóðar og
hélt þar áfram námi. Hún hefur
sótt allmörg námskeið m.a. við
postulíns- og keramíkskólann í
Lidköping. Hún hefur rekið verk-
stæði í nokkur ár fýrir utan bæinn
Kungálv og segist um þessar
mundir vera að fikra sig meira útí
listrænt form leirgerðarinnar.
Fyrstu einkasýningu sína hélt hún í
Sviþjóð í desember ’93 en auk þess
hefxir hún tekið þátt í fjölda sam-
sýninga og má þar nefna Islands-
vikuna í Gautaborg árið 1992.
„Þetta er eiginlega að verða
nokkurskonar ferðasýning því
þetta er sama sýning og ég setti
upp í fýrra í Svíþjóð. I vor ætla ég
að sýna hana í Noregi og þá er ég
orðin nokkuð ánægð enda lengi
verið draumur minn að gera þetta.
Sýningin fjallar um þau þrjú lönd
sem ég hef búið í og hún spannar
allt frá fornöld til okkar tíma þó að
ég reyni ég að setja hana í eins nú-
tímalegt form og ég mögulega get.“
Sýningin ber nafnið Konungur-
inn, drottningin og ríkið og lýkur
henni 19. ágúst. „Ég er þarna með
mjög merkilegan stein sem ég
nefni EU (Evropa Union) og flög-
urnar sem ég vinn með eru
brenndar í viðarkyntum ofni með
saltglerungi. Ég ætla bara að vona
að fólki finnist þetta svolítið öðru-
vísi sýning.“
vífarar
Það er ekki seinna vænna að benda á að þessir menn eru á hraðri
leið með að verða alveg eins. Eða réttara sagt, Ingimar Ingi-
marsson er á góðri leið með að verða eins og Jack Nicholson.
Þessi mynd af Ingimar er nokkurra ára gömul, en þeir sem hafa séð
hann nýlega vita hvað hitinn í Brussel og þungi Evrópumálanna hafa
gert honum: hárið er á hröðu undanhaldi og þyngslin í augunum auk-
ast dag ffá degi. Nú þarf hann bara að ná Nicholson-brosinu og þá
getur hann sótt um hlutverk í The Shining 2.
„Stýrimaður á fljúg-
andi fui
Ásbjörn eða öllu lieldut-
Bubbi Morthens sýður hér
saman bakhliðina en hann
hefur lengi verið talinn kon-
ungur íslenskra t-okkara og
vakti nú síðast xnikla lukku á
Neistaflugi ’94 sem haldið
var um síðustu helgi á Nes-
kaupstað. Hann er einn af
þessum ódauðlegu í rokkinu,
ekki ósvipaður rauðvíni setn
verður betra með hverju ár-
inu sem líður.
Bcstu ár cevinnar?
Ókomin
Á hvaða aldri óskarðu þess ad verða
afi?
Vá, ekki hugmynd
Heimsfrœgasti Islendingurinn?
Snorri Sturluson
Hvað myndirðu gera efþú vaknaðir
upp á mitti Geirmundar Valtýsson-
ar og Páls Óskars?
Ég ntyndi taka í þá báða
Ilvað erað vera villturf
Það er að fara á sveitaball og berja
lágmark fjóra, fimm.
Hvern myndirðu helst vilja kýla
Þann sem lægi best við höggi
Hverju scrðti mcst eftir?
Engu
Besti drykkurinn?
Vatn
Vœrirðu jafnfrcegur efþú værir kall-
aður Ásbjörn en ekki Bttbbi?
Þú veist að Ásbjörn þýðir hinn
sterki guð
Hvað er verst ífari rokkara?
Frant úr hófi barnalegir textar
Hvert crfrœgasta ættmennið þitt
Morti gamli, Haukur Morthens.
Ertu ríkur rokkari?
Alveg moldrikur
Hvaða geisladiska langar þig að
eignast?
Dýrin í Hálsaskógi
Hvaða verslunarmannahelgi stend-
ur ttppúr hjá þér?
Ætli það ltafi ekki verið Þjóðhátíð-
in í Eyjum árið 1974. Þegar ég var
þar á fyllerí að berja mann og ann-
an.
Hvor er myndarlegri Linda Péturs
eða Sigga Beinteins?
Þær eru báðar alveg gullfallegar
Hinn fiillkomni kvenmaður?
Brynja Gunnarsdóttir
Ertu egóisti?
Já, í víðtækustu nterkingu orðsins.
Hvað varstu ífjrra lífi?
Það var ansi niargt, m.a. nauta-
bani, boxari, lúduspilari og trúba-
dor.
Hvað hrceðistu mest?
Sjálfan mig
Hvað erþað besta i fari þínu?
Ætli það sé ekki alveg absúrd, hí-
per jákvæðni
Eru hœgri höggin þyngri?
Nei, vinstri krókurinn rninn er
höggþyngri
Eru týpur töff?
Það stuðlar
Ljótasta dýr veraldar?
Maðurinn
Ætlarðu aldrei að brenna út?
Nei, því ég er ódrepandi
Efþú œttir að velja martröð tengda-
pabbans hver yrði fyrir valinu?
Ætli ég myndi ekki velja ritsjóra
Pressunnar
Líkamshluti í uppáhaldi?
Þeir eru margir en svona aðallega
tittlingurinn og hausinn
Hvað œtlarðu að verða í nœsta lífi?
Ég ætla að verða stýrimaður í
fljúgandi furðuhlut
Hvert er andvirði gítars þíns?
Ég veit það ekki alveg, ætli það sé
B a k h I i ð i n
ekid um 300 þúsund
Ef þú starfaðir ckki sent tónlistar-
tnaður hvað þá?
Garðyrkjumaður
Hvaða hluti ertu með á náttborð-
inu?
Ég var að klára fýrra bindið af
Lord of the rings.
Hvaða sjónvarpsþáttur stendur
uppúr?
Prime time, boxing special - Euro-
sport
Fceiirðu á karlaþing i Finnlandi ef
þcr stœði það til boða?
Að sjálfsögðu færi ég á karlaþing í
Finnlandi þó ekki væri nema til
þess að ræða nýjustu tísku í pung-
bindum.
20 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 4. ÁGÚST 1994
BLÚSBARINNGIænýja blúshljóm-
sveitin Boogiemen leikur á
fimmtudagskvöld en föstudag og
laugardag láta JJ-Soulband í sér
heyra.
CAFÉ ROMANCE Aö venju verður
píanóspil og söngur alla helgina
en nú er mættur til leiks nýr ástr-
alskur píanóleikari að nafni David
Ferguson.
CAFÉ ROYALE Fimmtudagskvöld
sýður Bubbi saman gömul og ný
lög. Bjórhátíð verður slegið upp
hina dagana og hljómsveitin Fán-
ar verður með stemningarlög í
samræmi við það. Bjórleikir (flug-
an í glasinu), miðnætursnarl,
glens og gaman.
DANSHÚSIÐ GLÆSIBÆ Lokað
vegna breytinga alla helgina.
FEITI DVERGURINN Útlagarnir
leika létta kántrítónlist föstu-
dags- og laugardagskvöld.
FÓGETINN Trúbadorinn Hermann
ARI skemmtirfimmtudagskvöld
og sama kvöld verður djass á
Háaloftinu. Á föstudag og laugar-
dag tekur trúbadorinn Hermann
INGIvið.
GAUKUR Á STÖNG Undir tungl-
inu treður upp með poppað rokk
á fimmtudag og föstudag en á
sunnudag og mánudag birtist
Mannakorn að nýju.
HÓTEL ÍSLAND Sökum mikillar
eftirspurnar ætla Brimkló og Fán-
ar að skemmta enn eina helgina.
Þar verða fremstir í flokki Maggi
Einars, Bjöggi Halldórs og Addi
Sigurjóns.
HÓTEL SAGA Hinir einu og sönnu
Gleðigjafar sýna sig og sjá aðra á
laugardagskvöldinu. Hilmar
Sverrison verður með alhliða
músík á Mímisbar föstudag og
laugardag.
PÚLSINN Opnunarhelgi. Synir
Hafnarfjarðar þeir Steinn
Ármann og Laddi skemmta alla
helgina, „Happy half hour" á
laugardag milli 22-22.30 og á
föstudag milli 20 og 21 verða
veitingarí boði hússins.
RAUÐA LJÓNIÐ Hljómsveitin Sýn
með „singalong" músík um helg-
ina eða svona alt muligt músik.
ROSENBERG Fimmtudagskvöld
kl. 22 tónleikar með Reptilicus.
SÓLON ÍSLANDUS Hjörtur Hows-
er píanóleikari leikur frá kl. 22
föstudag og laugardag.
TURNHÚSIÐ Goodfellows með
rokk, ryþma og blús alla helgina.
TVEIR VINIR Karókí og diskó
keyrtalla helgina. Frá og með
næstu helgi verður hins vegar
allt í botni og trylltir tónleikar um
hverja helgi þaðan í frá.
ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN
Diskó og meira diskó bæði kvöldin.
SJALLINN, Akureyri. Diskótek á
föstudag, aðgangur ókeypis. Á
laugardag færist heldur betur fjör
í leikinn og fá karlmennirnir sinn
skerf af skemmtun það kvöld.
Konum ekki hleypt inn fyrr en á
miðnætti og Þúsund andlit halda
stuðinu uppi fram á rauða nótt.