Pressan - 18.08.1994, Side 2
• •
Ogmundur
Jónasson
fyrir að ná
fram kjara-
bótum fyrir
sitt fólk án
þess að
nokkur tœki
eftir því.
SPURNINGIN
Hverju reiðast goðin
núna, Knútur?
„Vættir Islands eru þvert á
móti að gleðjast yfir sigri okkar
sjálfstæðismanna í Hveragerði
og hrista upp í Hvergerðingum
og hvetja þá til að sýna dugnað
og framkvæmdasemi á kjör-
tímabilinu. Þær eru að hrista úr
okkur doðann."
Knútur Bruun er oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í bæjar-
stjórn Hveragerðis. Flokkur-
inn náði meirihluta í bænum
í kosningunum í vor og síðan
hefur allt leikið á reiðiskjálfi.
FYRST & FREMST
Ragnhildur oa Herdís
fjolga mannkyninu
Einn aðalmálsvari kvennhreyf-
ingarinnar hér á landi, Ragnhildur
Vigfusdóttir ritstýra kvenfrelsis-
ritsins Veru og dyggur stuðnings-
maður Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, hefur löngum látið
hafa eftir sér að hún sé þreytt á
þeirri spurningu hvort og hvenær
hún hafi í hyggju að eignast barn,
eins það sé hreinlega köllun allra
kvenna í lífinu. Á hinn bóginn lét
hún hafa eftir sér á dögnunum að
hún væri alfarið á móti haustkosn-
ingum því hún væri búin að gera
áætlanir fram í tímann sem ekki
væri haggað. Fóru menn þá að
leggja höfúðið í bleyti. Og uppfrá
því komust menn að kjarna máls-
ins; lífið gengur sinn vanagang,
parið Ragnhildur og Hafliði
Helgason eiga von á á barni innan
þriggja mánaða sem hún mun hafa
upplýst kynsystur sínar um fyrst á
Nordisk Forum á dögunum. En
Ragnhildur Vigfúsdóttir er ekki
eina nafntogaða konan í bænum
sem ætlar að fjölga mannkyninu
því Herdís Þorgeirsdóttir, fýrrum
ritstjóri Heimsmyndar, á einnig
von á sér og það nokkru fýrr en
Ragnhildur. Margir hafa einmitt
undrast yfir hvað hafi orðið um
Herdísi, hvar hún sé byrjuð að
vinna osfrv. Málið er semsé það að
Herdís, sem nýverið varð fertug, á
von á sínu þriðja barni og öll á hún
þau með frernur stuttu millibili, að
minnsta kosti þau tvö síðustu. Það
mun því kveða að Herdísi í móð-
urhlutverkinu á næstunni...
Hæstiréttur ruddur
Skipun Gunnlaugs Claessens, rík-
islögmanns, í embætti hæstaréttar-
dómara er athyglisverð í ljósi sög-
unnar. Þegar Magnúsi Thorodd-
sen, forseta Hæstaréttar, var vikið
úr embætti vegna áfengiskaupa-
málsins í desember 1989 var dóm-
urinn skipaður setudómurum.
Ástæðan var sem kunnugt er m.a.
sú að skipaðir dómarar við réttinn,
starfsfélagar Magnúsar, höfðu
sumir hverjir einnig nýtt sér ótæpi-
lega, í forsetatíð sinni, ffíðindi til
umtalsverðra áfengiskaupa á heild-
söluverði (m.a. Þór Vilhjálmsson
sem keypti um eitt þúsund flösk-
ur). Setudómararnir sjö klofnuðu í
afstöðunni til þess hvort víkja bæri
Magnúsi úr embætti, fimm voru
því meðmæltir en tveir andsnúnir.
Forseti dómsins var Gunnar M.
Guðmundsson og stóð hann að
úrskurði meirihlutans ásamt
Gunnlaugi Briem, Ingibjörgu
Benediktsdóttur, Jóni Finnssyni
og Ragnari H. Hall. Sækjandi fýrir
hönd ríkisins var auðvitað Gunn-
laugur Claessen. Síðan hafa hann
og Gunnar verið skipaðir hæsta-
réttardómarar og Ingibjörg sett.
Sveinn Snorrason var annar þeirra
sem voru í minnihluta í máli
Magnúsar. Hann hefur sóst eftir
dómaraembætti við réttinn en ekki
hlotið náð. Því er svo við að bæta
að Haraldur Henrysson, varafor-
seti Hæstaréttar, átti þátt í því á
sínum tíma að Lárusi Jóhannes-
syni var vikið úr embætti. Reynsla
sögunnar bendir því til þess að
leiðin til embættis við Hæstarétt sé
að ryðja dóminn...
Ólöf Rún hættir í
Dagsljósi
Dagljósþættirnir undir ritstjórn
Sigurðar Valgeirssonar verða aff-
ur, svo að segja með sama sniði á
dagskrá Sjónvarps þegar vetrardag-
skráin rennur aftur upp. Eina und-
antekningin verður sú að Ólöf Rún
Skúladóttir víkur úr Dagsljósi, en
mun þó ekki með öllu hætt að birt-
ast á í sjónvarpi allra landsmanna
því fréttastofan bíður hennar, enda
var hún aðeins í ársleyfi þaðan.
Enn munu þau Áslaug Dóra Eyj-
ólfsdóttir, Þorfinnur Ómarsson
og Fjalar Sigurðarsson halda starfi
sínu í Dagsljósi. Ekki er þó með
öllu ljóst hver eða yfirhöfuð hvort
einhver taki við af Ólöfu Rún. Að
sögn Sigurðar Valgeirssonar mun
það ráðast fjótlega og sagði hann
um þáttin í vetur að hann yrði með
svipuðu sniði nema líta mætti svo á
að „Ný árgerð yrði keypt af bíln-
cc
um...
Berta María 1 það
heilaga
Berta María Waagfjörð hefur
alið manninn í borg englanna und-
anfarin misseri og unnið við fyrir-
sætustörf og fleira. En hún er Iíkleg
hvað best kunn í fýrirsætuheimin-
um fýrir að hafa birst nakin á sið-
um Playboy. Hún mun innan fárra
vikna ganga upp að altarinu. Brúð-
kaupið fer fram í Los Angeles og er
sá lukkulegi einmitt þaðan en hann
hefur einmitt verið kærasti hennar
til nokkurra ára. Til brúðkaupsins,
sem verður ein heljarinnar garð-
Morðrannsókn á
bak við tjöldin
ótt rannsóknin á hvarfi Valgeirs Víðissonar,
sem hvarf sporlaust frá heimili sínu fyrir
tveimur mánuðum, sé ennþá formlega í
höndum Lögreglunnar í Reykjavík er Rannsókn-
arlögregla ríkisins að mestu leyti búin að taka
hana yfir. Reykjavíkurlögreglan vísar nú spurn-
ingum blaðamanna alfarið til Jóns H. Snorrason-
ar og Sigurbjörns Víðis Eggertssonar, rannsókn-
arlögreglumanna, sem stjórna rannsókninni hjá
RLR. Jón Bjartmars, varðstjóri hjá lögreglunni
Reykjavík, sagði í samtali við Pressuna að RLR
væri að rannsaka ákveðna þætti málsins. Jón og
Sigurbjörn Víðir verjast hins vegar allra frétta og
segja að á meðan engar áreiðanlegar vísbend-
ingar fierist þeim, sem benda til glæpsamlegs at-
hæfis í tengslum við hvarfið, sé málið í höndum
Reykjavíkurlögreglunnar. Sigurbjörn Víðir kom
mjög við sögu rannsóknar Guðmundar- og Geir-
finnsmálanna á sínum tíma sem bendir til þess
að hjá RLR sé áhersla lögð á þann möguleika að
Valgeir hafi verið myrtur.
Faðir Valgeirs, Víðir Valgeirsson, er þess
nánast fullviss að hann hafi fundið morðingja
sonar síns. Pressan hefur staðfestar heimildir
fyrir þessu. Hann mun hafa bent lögregluyfirvöld-
um á ákveðna menn í fíkniefnaheiminum sem
mjög líklega morðingja. En þrátt fyrir að líkurnar
á að Valgeir hafi verið myrtur aukist dag frá degi,
eftir því sem fleiri vísbendingar berast, er enn
látið líta svo út opinberlega að um venjulegt
mannshvarf sé að ræða. Hallast menn að því að
rannsóknarmennirnir vilji með því slá ryki í augu
meintra morðingja þannig að þeir verði ekki eins
varir um sig. Ef blásið yrði til opinberrar morð-
rannsóknar myndu þeir hins vegar draga sig inn í
skel sína og hafa hægt um sig eða jafnvel flýja
land. Það sem mælir einkum með þessari aðferð
er einkum sú staðreynd að ekkert lík hefur fund-
ist. Það væri því erfitt að sanna morð án þess að
játningar lægju fyrir.
Sterkur orðrómur er á kreiki um að Björn
Halldórsson hafi einbeitt sér að því að upplýsa
hvarf Valgeirs eftir að hann lét af störfum sem
yfirmaður fíkniefnadeildarinnar. Faðir Valgeirs
mun treysta honum best til þess að upplýsa mál-
ið og fleiri eru þeirrar skoðunar vegna þekkingar
Björns á afkimum fíkniefnaheimsins.
Það bendir því margt til þess að skipulögð
morðrannsókn sé í fullum gangi bak við tjöldin.
veisla að hætti Bandaríkjamanna,
mun vera boðið vel yfir 300
manns, þar af 20 frá íslandi. Það er
ekki dónalegt boðið sem Islending-
arnir fá því öllum þeim sem hefur
verið sent boðskort er sendur flug-
farseðill og verður þeim og séð íýr-
ir gistingu. Það mun vera faðir
brúðgumans sem borgar en hann,
eftir því sem PRESSAN kemst
næst, veit ekki aura sinna tal...
Friðrik semur endur-
minningar
Kvikmyndagerðarmaðurinn
Friðrik Þór Friðriksson ætlar ekki
að láta sér nægja að byggja bíó-
mynd á endurminningum sínum,
heldur er nú von á þeim á bók.
Þetta eru minningabrot eða „ör-
sögur“, form sem Friðrik Þór heíúr
fengist við áður. Það er Ámi Ósk-
arsson sem skráir, en Mál og
menninggefur út...
í vesturbænum
Nú stendur yfir val á leikurum í
söngleikinn West Side Story, sem
Karl Ágúst Úlfsson mun setja upp
í Þjóðleikhúsinu í vetur. Þegar hef-
ur verið ráðið í tvö karlhlutverk og
hrepptu þeir Baltasar Kormákur
og Hilmir Snær Guðnason hnoss-
ið, en sá síðarnefndi er nú kominn
á samning hjá Þjóðleikhúsinu eftir
góða frammistöðu í Hárinu...
Ari í Ögri gerir upp á
milli kynja
Ara sýslumanns í Ögri er eink-
um minnst fýrir að hafa vegið
fjölda spænskra sjómanna fýrr á
öldum. Kaffihús í Reykjavík er
nefnt í höfuðið á honum sem
kunnugt er og aðstandendur þess
er hvergi bangnir ffernur en Ari
sjálfur. I Morgimblaðinu í gær birt-
ist nefnilega ayglýsing þar sem
óskað er eftir „eldhressum konum
með geislandi ffamkomu“ til þjón-
ustustarfa og „snyrtilegum karl-
manni“ til dyravörslu. Eins og allir
vita er slík kyngreining í atvinnu-
auglýsingum bönnuð...
í vikunni...
H... kom í Ijós að rekstur heilbrigðiskerfisins hefur farið 1,6-1,7 milljarða fram úr áætlun á
þessu ári. Ekki hefur heyrst í Guðmundi Árna Stefánssyni síðan í partíinu í Turku.
... ákvað ríkisstjórnin að senda varðskipið Óðin í Barentshaf til aðstoðar íslenskum tog-
urum. Fallbyssan verðurtekin úr Óðni, en skipverjarfá að hafa með sér vasahnífa.
... kom fram að laun ríkisstarfsmanna hafa hækkað undanfarin ár og meira en helmingur
þeirra er í tveimur efstu launaþrepunum. Skyldi Ogmundur vita af þessu?
... buðust enn fleiri en áður til að leggja peninga í HM- höllina. Borgarstjórn er enn að
hugsa málið.
... héldu Hvergerðingar áfram að skjálfa, allt að þúsund sinnum á dag. Annars staðar á
landinu var blíðviðri.
2 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 18. ÁGÚST 1994